Stundin - 01.08.1940, Qupperneq 27

Stundin - 01.08.1940, Qupperneq 27
STUNDIN 27 Mrs. Malcolm Davis, kona gæzlumannsins við Zoological Park, Washington, heldur hér á tveimur hjarndýrahvoipum, sem voru með í dýrasafni, sem hún og maður hennar komu með frá Antarctica og Suður-Ameriku. 9 RAÐ VIÐ SVEFNLEYSI. 1. Drekkið glas af mjólk — helzt heita mjólk eða ef að þér eruð ekki bindindismað'ur, er gott að drekka eitt glas af sherry áður en þér gangið til hvílu. 2. Standið við opinn glugga í nokkrar mínútur og dragið andann djúpt. Strax og þér finnið til kulda skuluð þér fara aftur upp í rúm. Ilurinn úr sængu.rfötunum mun svæfa yður. 3. Starið á einhvern hlut, sem er skær eða gljáandi á litinn: stjörnu, luktarljós eða einhvern glampandi málm- hlut. Þegar augun þreytast og lokast skuluð þið opna þau nokkrum sinnum, en áður en langt um líður verðið þér kom inn í fasta svefn. 4. Gott er að leggja sig þannig að hver vöðvi hvílist, teygja úr sér á ýmsa vegu og geispa uppgerðargeispa ef það ekki tekst með öðru móti. Með því að geispa uppgerðar- geispa er maður farinn að geispa eðlilega eftir stutta stund. 5. Hugsið yður, að þér séuð nicur kominn á einhvern ró- legasta stað, sem þér þekkið, t.. d. grösugan fjallstind eða úti við sjó. Gott er að látast leigja á mosavöxnum árbakka um sumar. 6. Segið við sjálfa yður: Þú getur ekki sofiol, svo það er eins gott fyrir þig að fara á fætur. Þá skuluð þér loka glugganum, kveikja ljós, fara í slopp og setja upp gleraugu (ef þér notið gleraugu). Hugs unin um þetta mun gefa yður löngun til að vera kyrr í rúm- inu, og gera yður syfjaðan í tiibót. 7. Munið, að enda þótt þér getið ekki sofið, þá eruð þér að hvílast, þér hafið marga klukkutíma til að hugsa um gamlar endurminningar og marga aðra hluti, sem þér aldrei hafið tíma til að hugsa um á daginn. En þess verður ekki langt að bíða, að allar hagsanir renna út í einn draum. S. Gott er að fara með vís- ur eða hugsa um eitthvert fallegt lag, eða reyna að srafa eitthvert orð aftur á bak. 9. Ef þér viljið sofa vel og lengi, þá er bezt að sofna með sígarettu í munninum, það er bezta svefnmeðal, sem tií er. Veriði getur að þér sof- i* þá til eilífðar, og nokkrar líkur eru fyrir því, að það þurfi ekki að hafa fyrir að jarða yður, ef húsið brennur til grunna!!

x

Stundin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stundin
https://timarit.is/publication/737

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.