Morgunblaðið - 23.12.2008, Page 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2008
SJÚKRATRYGGINGASTOFNUN
og heilbrigðisráðueytið munu bjóða
tannlæknum áframhald á „litla
samningnum“ út árið 2009 (for-
varnarskoðun 3ja og 12 ára barna).
Tannlæknafélag Íslands mælir
þó gegn því að tannlæknar skrifi
undir framlengingu samningsins
því að með því að skrifa undir væru
tannlæknar að samþykkja aðgerð-
ar- og sinnuleysi stjórnvalda í þess-
um málaflokki.
„Viljaleysi, framtaksleysi og
sinnuleysi stjórnvalda þegar kemur
að tannheilsugæslunni kemur enn
og aftur í opna skjöldu og það virð-
ingarleysi sem skjólstæðingum
tannlækna er sýnt svíður sárt.
Stjórnvöld hafa algjörlega brugðist
þeirri skyldu sinni að tryggja við-
unandi tannheilsu íslenskrar
æsku,“ segir í tilkynningu.
Tannlæknar skrifi
ekki undir samning
BJÖRN Bjarnarson dómsmála-
ráðherra hefur kynnt ríkisstjórn-
inni tillögur um skuldaaðlögun,
þ.e. breytingar á nauðungar-
samningskafla gjaldþrotaskipta-
laga.
Í tillögunum felst að ein-
staklingur sem er ófær um að
standa í skilum með skuldbind-
ingar sínar geti leitað nauðasamn-
ings um skuldaaðlögun við kröfu-
hafa sína með aðstoð umsjónar-
manns.
Með skuldaaðlögun eru skuldir
einstaklings lagaðar að greiðslu-
getu hans, t.d. má kveða á um al-
gera eftirgjöf samningskrafna,
hlutfallslega lækkun þeirra eða
gjaldfrest á þeim svo eitthvað sé
nefnt, segir í tilkynningu.
Kynnir tillögur
um skuldaaðlögun
VIGDÍS Finnbogadóttir afhenti í
fyrradag styrk úr minningarsjóði
bróður síns, Þorvaldar Finnbog-
arsonar. Styrkinn, 250.000 krón-
ur, hlaut að þessu sinni Arnar
Björn Björnsson, nemandi á
þriðja ári í umhverfis- og bygg-
ingarverkfræði við Háskóla Ís-
lands. Styrkurinn er veittur fyrir
hæstu meðaleinkun í verkfræði
að loknu öðru námsári.
Afhenti styrk úr
minningarsjóði
Íslenskir friðarsinnar standa að
blysför niður Laugaveginn í kvöld,
á Þorláksmessu. Safnast verður
saman á Hlemmi kl. 17:45 og leggur
gangan af stað stundvíslega kl. 18.
Að venju munu friðarhreyfing-
arnar selja kyndla á Hlemmi í upp-
hafi göngunnar.
Í lok göngu verður efnt til fundar
á Ingólfstorgi.
Morgunblaðið/Jim Smart
Blysför á Þorlák
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
KALL Dominique Strauss-Kahn,
framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins (AGS), eftir stórauknum
ríkisútgjöldum til að örva hagvöxt
hefur vakið athygli. Haft er eftir hon-
um á vef AGS að meiri útgjöld þurfi í
húsnæðismálum, auka þurfi atvinnu-
leysisbætur, lækka skatta á lágtekju-
fólk og fara í stórframkvæmdir í
mörgum löndum. Af tveimur slæmum
kostum hefur hann sagst vilja að rík-
issjóðir verði skuldsettir í skiptum
fyrir að samdrátturinn í heimshag-
kerfinu verði minni og skammvinnari.
Á sama tíma er dagskipunin til Ís-
lendinga að skera niður og gæta að-
halds.
Ólafur Ísleifsson, lektor í hagfræði
við Háskólann í Reykjavík, segir ekki
óeðlilegt að ráð Strauss-Kahn til
ólíkra landa séu ólík. Ísland sé nú
komið í hóp skuldugustu ríkja. Hann
segir líka augljóst að sjóðurinn hafi
tekið eftir og sé að bregðast við þeirri
gagnrýni sem hann hefur orðið fyrir á
liðnum árum, ekki síst á kröfur hans
um niðurskurð í ríkisútgjöldum. „Við
sjáum það hér að ekki eru nú gerðar
sérlega strangar kröfur um aðhald í
ríkisbúskapnum á árinu 2009.“
Reyndar hefði verið full ástæða til að
ganga lengra í niðurskurði að sögn
Ólafs. „Vegna þess að niðurskurður-
inn er „niðurskurður frá útgjalda-
áformum“ að einhverju leyti. Ekki
eru heldur stigin sérlega þung skref í
átt að aukinni tekjuöflun ríkissjóðs og
vegna þess að okkur er þröngur
stakkur skorinn vegna þess hvað rík-
issjóður er orðinn skuldugur.“ Á
þessu ríki skilningur meðal fólks.
AGS veitti talsvert svigrúm hér
Gylfi Magnússon, dósent við Há-
skóla Íslands, segir ekki misræmi í
orðum Strauss-Kahns og stefnunni
fyrir Ísland, þó hann gefi fyrrnefnd
ráð ríkjum þar sem fjármálakerfi
hafa haldið sér sæmilega og ríkisfjár-
mál eru í betra standi en hér.
„Eitt af því sem mælir gegn mjög
harkalegum niðurskurði er að hann
dýpkar kreppuna. AGS viðurkenndi
það í rauninni í aðgerðaáætlun sinni
fyrir Ísland. Ekki var gerð krafa um
að við skærum það harkalega niður að
jafnvægi næðist strax á næsta ári eða
2010. Það er gefið talsvert svigrúm til
þess að ná jafnvægi seinna. Ég held
að það sé af hinu góða,“ segir Gylfi.
Reuters
Strauss-Kahn Hann vill að ríki auki útgjöld sín til að örva hagkerfi heimsins. Er Ísland þá eyland í niðurskurðinum?
Ráðleggur sjóðurinn öðr-
um allt annað en Íslandi?
Eðlilegt að ráðleggja aukin útgjöld ríkjum sem hafa ráð á því
Ólafur
Ísleifsson
Gylfi
Magnússon
VERKTAKAR innan Samtaka iðn-
aðarins munu fá verðbætur á óverð-
tryggða verksamninga sína sam-
kvæmt drögum að samkomulagi
milli Reykjavíkurborgar og Sam-
taka iðnaðarins (SI) sem voru sam-
þykkt á borgarráðsfundi sl. laugar-
dag. Samkomulaginu er ætlað að
draga úr hættu á að verktakar segi
sig frá verkum með tilheyrandi
kostnaðarauka fyrir borgina. Í bók-
un meirihlutans um málið segir m.a.:
„Þeir verksamningar sem Reykja-
víkurborg hefur gert til skemmri
tíma en eins árs hafa verið óverð-
tryggðir. Undanfarnar vikur hafa
fyrirtæki sem gert hafa slíka samn-
inga við Reykjavíkurborg og Samtök
iðnaðarins fyrir hönd félagsmanna
sinna gert kröfu um að Reykjavík-
urborg verðbæti samingana með vís-
an til brostinna forsendna vegna
þróunar verðbólgu, gengisstöðu
krónunnar og þeirrar kreppu sem nú
ríkir í efnahagsmálum þjóðarinnar.
Ljóst er að verðbæturnar geta auð-
veldað fyrirtækjum að ljúka verk-
efnum sínum fyrir Reykjavíkur-
borg.“ Loks segir í bókuninni að með
samningnum sé borginni gert kleift
að standa við skuldbindingar sínar
gagnvart borgarbúum vegna við-
komandi framkvæmda sem annars
gætu stöðvast.
Ekki sanngjarnt
Í bókun Vinstri grænna segir m.a.
að samningurinn geri ráð fyrir 250
mkr. útgjöldum í þágu verktaka sem
gerðu tilboð í verk á vegum borg-
arinnar eftir 1. mars 2008 og ekki
verði séð að samkomulagið sé byggt
á sanngirnissjónarmiðum, enda séu
„verðbætur aftur í tímann við einn
aðila umfram aðra í því ástandi sem
nú ríkir illa réttlætanlegar. Auk þess
stinga 250 ma. kr. aukaútgjöld í
þágu verktaka í stúf, nú þegar leitað
er allra leiða til hagræðingar“. Jafn-
framt segir í bókun VG að í ágúst
hafi verið lagt fram bréf í borgarráði
frá fjármálaskrifstofu þar sem ekki
var talið heimilt að endurskoða og
taka upp verðbótaákvæði í stuttum
verktakasamningum með tilvísun til
útboðsreglna og jafnræðisreglu
stjórnsýsluréttar. „Nú, í desember,
er skyndilega talið eðlilegt, þrátt
fyrir framangreint álit fjármála-
skrifstofu, að semja um verðbætur
aftur í tímann við Samtök iðnaðar-
ins.“
Í bókun Samfylkingar um málið er
tekið undir gagnrýni VG auk þess
sem hnykkt er á að við núverandi að-
stæður séu fullar verðbætur til vel-
ferðarþjónustu eitt helsta áherslu-
mál Samfylkingarinnar. Þá segir: „Í
þessu máli er hins vegar einnig […]
rétt að ýmis rök standa til þess að
fjárhagslegum hagsmunum Reykja-
víkurborgar sé best borgið með því
að ljúka deilum um uppgjör óverð-
tryggðra verksamninga með sátt.“
Borgarráð samþykkti samkomu-
lagið með fjórum atkvæðum gegn
einu, Samfylking sat hjá. sia@mbl.is
Fá verðbætur á óverð-
tryggða samninga
Samkomulagi ætlað að draga úr hættu á að verktakar segi sig
frá verkum með tilheyrandi aukakostnaði fyrir Reykjavíkurborg
Morgunblaðið/Golli
Í HNOTSKURN
»Ólafur F. Magnússon lýstiandstöðu við forgangs-
röðun meirihlutans á sama
tíma og velferðarþjónustan í
borginni þarf að sæta skerð-
ingu.
»Hann minnti á tillögur sín-ar um unglingasmiðjurnar
Tröð og Stíg sem ekki hafa
fengið afgreiðslu í borgarráði
og ekki hefur verið horfið frá
ákvörðun um fækkun stöðu-
gilda og þjónustuskerðingu
hjá smiðjunum.
Fæst hjá N1, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is
Veiðikortið veitir aðgang að
31 vatnasvæði vítt og breitt um landið,
í allt sumar fyrir aðeins 6000 kr.
Þú ákveður svo hvar og hvenær þú veiðir.
Handbók með ítarlegum upplýsingum, kortum o.fl. fylgir.
Frí heimsending þegar verslað er á www.veidikortid.is
Sérfræðingar
í saltfiski
466 1016
- Útvatnaður saltfiskur án beina til suðu
- Sérútv. saltfiskur án beina til steikingar
- Ýsa, þorskur, gellur, kinnfiskur, rækjur
- Einnig fjölbreytt úrval tilbúinna rétta
www.ektafiskur.is
pöntunarsími:
frumkvöðlafyrirtæki ársins - viðurkenning frá matur úr héraði - localfood