Morgunblaðið - 23.12.2008, Qupperneq 20
Hann sáði
Kristín leggur til að Adam ruggi sér
kannski í ruggustól en í textanum
sem oft er sunginn segir að hann
ruggi sér í lendunum.
Hugmyndaflug
„Þá kemur kannski munnurinn út
og skeggið fer til hliðar,“ segir
Viktoría um hlátur jólasveinsins í
„Ég sá mömmu kyssa“.
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
H
vernig hrærir maður
vöggu? Og hver er
þessi mannkind sem
sungið er um yfir há-
tíðirnar? Jólalögin eru
uppfull af skrýtnum orðum og frá-
sögnum sem á stundum er ekki á færi
nema slungnustu málfræðinga að út-
skýra. Nokkra þeirra er að finna á
leikskólanum Dvergasteini þar sem
fimm ára krakkar úr skólahóp tóku
að sér að ljá frösum úr jólalögunum
merkingu.
Og það fer ekki milli mála að jóla-
lögin eru í sérlegu uppáhaldi þessa
dagana. Þar er „Adam átti syni sjö“
ofarlega á vinsældalista og því upp-
lagt að byrja á að fá örlitlar skýringar
á þeim texta. Hvað þýðir til dæmis
„hann sáði“?
„Er það ekki að hneigja sig?“ spyr
Tristan Alexandersson að bragði en
þær Viktoría Ósk Kjærnested og
Steinunn María Guðgeirsdóttir eru
heldur á því að þetta þýði að Adam sé
góður. Og að „rugga sér í lendunum“
er nú bara að „rugga sér eins og mað-
ur gerir það,“ segja krakkarnir klár-
lega vissir í sinni sök. „Eða að rugga
sér í ruggustól,“ bætir Kristín Þor-
steinsdóttir við. Eins og sönnum bók-
menntafræðingum sæmir er ákveðið
að kryfja nánar orðið „lendar“ og
krakkarnir eiga ýmsar skýringar á
því: „Það eru hendurnar hér,“ segir
Viktoría og bendir á olnbogann en
Tristan telur sennilegra að um sé að
ræða axlirnar. „Kannski er það
skinnið?“ stingur Haraldur upp á.
Með munninn út um skeggið
Það hýrnar yfir krökkunum þegar
skipt er um umræðuefni og textinn
við „Göngum við í kringum“ tekinn til
athugunar. Og þá er nærtækast að
spyrja hvað einiberjarunnur sé?
„Nei, það á að vera einiberjarund!
segir Steinunn hneyksluð og leggur
þunga áherslu á „D“ í lokin. Tristan
er uppteknari af því að útskýra orðið.
„Kannski það sé gosbrunnur og svo
er gengið í kringum hann,“ stingur
hann upp á. Sóley Guðmundsdóttir er
ekki svo viss: „Eða það sé tré með
berjum í.“ Hinar stelpurnar taka
undir þessa skýringu og luma á ýms-
um viðbótarupplýsingum. „Berin eru
svo skreytt, af því að þetta eru svona
platber,“ segir Steinunn og Kristín
heldur áfram. „Og kannski er það
gervitré.“
„Eigum við ekki að byrja að
syngja?“ spyr Haraldur og er greini-
lega farið að leiðast þófið en borð-
félagar hans láta það sem vind um
eyru þjóta því næst á dagskrá er „Nú
er Gunna á nýju skónum.“ Talið berst
að hinni brokkandi kisu, sem sumir
telja að sé hlaupandi á meðan öðrum
finnst líklegra að hún sé að mala.
„Kannski er hún uppi á þaki, eitthvað
að finna lyktina,“ segir Tristan og
krakkarnir hlæja hátt og innilega að
þessari hugmynd. Og svo var það
flibbahnappurinn hans pabba sem
börnin vita vel að er hnappur í skyrt-
Söngelskur
„Hvenær ertu eiginlega búin að
tala?“ spyr Haraldur blaðamann
þreytulega enda vill hann heldur
syngja.
Ekki er allt sem kemur
fyrir í textum jólalag-
anna gegnsætt og vel
skiljanlegt. Fimm ára
sérfræðingar Morg-
unblaðsins rýndu í þá og
áttu ekki í vandræðum
með að útskýra hin und-
arlegustu atriði í jóla-
söngvunum.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Textafræðingar Þau Viktoría Ósk Kjærnested, Sóley Guðmundsdóttir, Haraldur Ingi Ólafsson, Steinunn María Guðgeirsdóttir, Tristan Alexandersson og
Kristín Þorsteinsdóttir vita öll hvað þau syngja. Þau eru öll nemendur á leikskólanum Dvergasteini þar sem jólalögin eru oft sungin.
unni og finnst líklegt að hafi dottið af
og rúllað eitthvað í skyndingu. „Af því
að hann segir fljótur Siggi finndu
snöggvast flibbahnappinn minn,“ seg-
ir Steinunn með áherslu.
Þegar kemur að „Ég sá mömmu
kyssa jólasvein“ vita krakkarnir að
sjálfsögðu að hlátur sveinka stafar af
kitlum og kossum mömmunnar. „Þá
kemur kannski munnurinn út og
skeggið fer til hliðar,“ segir Viktoría
og sýnir með heilmiklu látbragði þess-
ar sviptingar í andliti jólasveinsins.
Það er ekki hægt að yfirgefa slíka
bókmenntaumræðu án þess að nefna
textann í „Jólasveinar ganga um gólf“
en hann hefur lengi valdið deilum
sem krakkarnir virðast þekkja út og
inn og útskýra í þaula fyrir blaða-
manni. En af hverju er kannan uppi á
stól í þessari vísu? „Kannski er það
bara einhver skápur, eða kannski er
ekki til hilla og þá er bara kannan
þar,“ segir Viktoría en Sóley á aðra
skýringu uppi í erminni. „Kannski
var Grýla að geyma könnuna þar af
því hún var að þrífa með henni, hella
úr henni á gólfið og skúra.“
Blaðamaður ætlar að halda áfram
þreytandi spurningum sínum en er
truflaður af Haraldi sem spyr án þess
að blikna: „Hvenær ertu eiginlega
búin að tala?“ Það er greinilega kom-
in óþreyja í hópinn sem iðar í skinn-
inu eftir að fá að syngja eitthvað af
þessum fínu jólalögum og að lokum
velja þau Bjart er yfir Betlehem til
flutnings. Og með glimrandi fínu
táknmáli og einlægri jólagleði syngja
þau þennan fallega sálm hástöfum
fyrir gestinn, sem hverfur út í snjóinn
og desemberrökkrið með anda
jólanna í hjarta.
Gervitré með platberjum
og kisa uppi á þaki
Gengið á sjó
út í Gróttu
Eins undarlegt og það hljómar
í eyrum flestra að geta gengið
yfir sjó og land á Sóley full-
komlega eðlilega skýringu á
þeim göldrum, enda hefur hún
oft gengið yfir sjó að eigin
sögn. „Stundum labba ég út í
Gróttuvitann og þá frýs oft
sjórinn og þá kemur svona
eyja til að labba í Gróttuvit-
ann,“ segir hún. „En ég má
bara vera í tíu mínútur í
Gróttuvitanum, eða sex mín-
útur, því þá kemur vatnið aft-
ur og þá þarf ég að drífa mig
til baka.“ Og þótt Tristan hafi
ekki gengið yfir sjó sér hann
ástæðu til að benda á að hann
hafi nú farið á reiðhjólinu sínu
yfir vatn.
20 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2008
Vegaljós er
ljósastaur
Eitt og annað þarfnast útskýr-
inga í „Bjart er yfir Betle-
hem“, eins og t.d. vegaljósið
skæra sem blaðamanni leikur
forvitni á að vita hvað er?
„Ætli það sé ekki ljósastaur,“
segir Kristín en Steinunn veit
betur. „Nei, ég veit hvað það
er,“ segir hún áköf. „Það er
ljósið á Betlehemstjörnunni.“
Jól í Neskirkju
24. desember – aðfangadagur
Jólastund barnanna kl. 16.00
Aftansöngur kl. 18.00
Jólasöngvar kl. 23.30
25. desember – jóladagur
Hátíðarmessa kl. 14.00
26. desember – annar í jólum
Jólaskemmtun barnastarfsins kl. 11.00
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.00
Nánari upplýsingar á neskirkja.is