Morgunblaðið - 23.12.2008, Qupperneq 25
Jórunn Frímanns-
dóttir skrifar um
strætisvagna-
samgöngur nokk-
urra helstu
nágrannasveitar-
félaga höfuðborg-
arsvæðisins
HINN 2. janúar
mun Strætó bs. hefja
reglubundinn akstur
milli höfuðborg-
arsvæðisins og
Hveragerðis og Sel-
foss annars vegar og Akraness,
Hvalfjarðarsveitar og Borgarness
hins vegar. Á virkum dögum verða
farnar ellefu ferðir fram og til
baka milli höfuðborgarsvæðisins og
þeirra þéttbýlisstaða sem hér um
ræðir, sex á laugardögum og fimm
á sunnudögum. Samningar um
aksturinn hafa verið undirritaðir.
Með aukinni þjónustu Strætó
verða í boði reglubundnar ferðir
til Reykjavíkur, t.d. fyrir þá sem
stunda þar vinnu eða nám, einfald-
ari og hagkvæmari en nokkru
sinni fyrr. Farþegar Strætó munu
eiga greiðan aðgang að leiðakerfi
sem er hvort tveggja í senn, þétt-
riðið og dreift en um 130 km eru
milli ystu áfangastaða. Um leið
opnast möguleikar fyrir höf-
uðborgarbúa og ferðamenn til að
heimsækja Suður- og Vesturland
til hagsbóta fyrir ferðaþjónustu
þessara svæða. Kjalnesingar njóta
svo sannarlega góðs af þessum
breytingum, en með þessu mun
verða samfelldur akstur um Kjal-
arnes frá morgni til kvölds.
Með þessari stórauknu þjónustu
hefur Strætó opnað kraftmikla líf-
æð milli nokkurra helstu byggð-
arkjarna í nágrenni höfuðborg-
arinnar og komið á beintengingu
íbúanna þar við strætisvagnakerfi
höfuðborgarsvæðisins. Þessir
tímamótasamningar hafa enn-
fremur stuðlað að eflingu suðvest-
urhorns landsins sem eins atvinnu-
svæðis.
Samhliða umtalsverðri stækkun
á þjónustusvæði Strætó bs. hefur
nýtt fargjaldafyrirkomulag verið
tekið í notkun. Það byggist á fjór-
um fargjaldasvæðum og svipar
mjög til þess fyrirkomulags sem
tíðkast í borgum nágrannalanda
okkar.
Svæði 1 er núver-
andi leiðakerfi innan
höfuðborgarsvæðisins
og svæði 2 er kragi í
kringum höfuðborg-
arsvæðið. Hveragerði,
Akranes og Hvalfjarð-
arsveit eru á svæði 3
og Selfoss og Borg-
arnes á svæði 4.
Hækkar fargjaldið
fyrir hvert gjaldsvæði
sem ekið er um, enda
lengra að fara og
kostnaður við þjónustuna meiri.
Nokkur eftirvænting hefur ríkt
meðal íbúa sveitarfélaganna sem
nú hafa samið við Strætó bs. um
akstur, enda um ódýran og þægi-
legan ferðamáta að ræða, sér-
staklega þegar kostir afslátt-
arkortanna eru nýttir. Ákveðið
hefur verið að halda gjaldskrá
Strætó óbreyttri enn um sinn, sem
ætti að koma sér vel hjá mörgum
um þessar mundir. Þeir sem
kynna sér fargjaldakerfi Strætó
(www.straeto.is) sjá að Strætó er
afar álitlegur kostur að ferðast
með, hvort heldur er innan höf-
uðborgarsvæðisins eða þegar
ferðast milli höfuðborgarsvæðisins
og þeirra þéttbýlisstaða sem fyrr-
nefndir samningar ná til. Sam-
anburður sýnir að Strætó er mun
ódýrari kostur en einkabíllinn.
Stjórn Strætó bs. hefur einsett
sér að móta leiðakerfið þannig að
það þjóni sem best þörfum not-
enda. Með nýgerðum samningum
hefur verið stigið stórt skref í þá
átt að færa þjónustuna nær íbúum
nokkurra helstu nágrannasveit-
arfélaga höfuðborgarsvæðisins og
svara eftirspurn eftir bættum al-
menningssamgöngum.
Jórunn Frímannsdóttir
»Með þessari stór-
auknu þjónustu
hefur Strætó opnað
kraftmikla lífæð milli
nokkurra helstu
byggðarkjarna í ná-
grenni höfuðborg-
arinnar
Höfundur er borgarfulltrúi og stjórn-
arformaður Strætó bs.
Til hamingju Ár-
borg, Hveragerði,
Akranes, Borgar-
byggð og Hval-
fjarðarsveit
Gjaldsvæði Strætó bs.
Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift
eða í síma 569 1122
mbl.is/moggaklubburinn
– meira fyrir áskrifendur
Bókun og upplýsingar um gististaði er að finna á www.sumarferdir.is
Kanaríeyjar
Gisting á Amazonas eða Paraiso Almendros
– íbúðir/smáhýsi með 1 svefnherbergi.
12. janúar – 9 nætur
21. janúar – 7 nætur
Verð frá 69.900 á mann m.v. 2+1.
Verð frá 74.900 á mann m.v. 2.
Innifalið: Flug og gisting í eina viku
Dunas Mirador í „allt innifalið“
12. janúar – 9 nætur
21. janúar – 7 nætur
Verð frá 99.900 á mann m.v. 2.
Innifalið: Flug og gisting „allt innifalið“ í eina viku
Tenerife
Gisting á Parque Santiago stúdíó eða íbúð
með 1 svefnherbergi.
4. janúar – 9 nætur
13. janúar – 7 nætur
20. janúar – 7 nætur
Verð frá 69.900 á mann m.v. 2+1.
Verð frá 74.900 á mann m.v. 2.
Innifalið: Flug og gisting í eina viku
2+1 stendur fyrir tvo fullorðna og eitt barn, 2ja til og með 11 ára.
Sparnaður:
3ja manna fjölsk. getur sparað
allt að 78.951 kr. og tveir
einstaklingar allt að 87.366 kr.
miðað við vikuferð til Tenerife
13. janúar og gistingu í íbúð
með svefnherbergi og stofu á
Parque Santiago.
Tilboð fyrir áskrifendur
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2008