Morgunblaðið - 23.12.2008, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2008
ÞAÐ er vel við hæfi að jólamyndin
Four Christmases sé á toppi sein-
asta Bíólistans fyrir jól. Tæplega tvö
þúsund bíógestir skelltu sér á mynd-
ina um síðustu helgi og er því heild-
arfjöldi gesta kominn upp í 12.755
sem verður bara að teljast nokkuð
góður árangur. Teiknimyndin Mada-
gascar: Escape 2 Africa situr í öðru
sæti eftir sýningar helgarinnar en
rúmlega tvö þúsund manns sáu
myndina um helgina. Tekjur af
henni voru þó um einni milljón minni
en af Four Christmases. Vís-
indaskáldsögumyndin The Day the
Earth Stood Still með Keanu Reeves
í aðalhlutverki situr svo í þriðja sæti
en hana sáu um 1.300 manns um
helgina og er heildaraðsókn því
komin í tæpa 8.000 manns og tekj-
urnar um sex milljónir króna.
Aðeins ein mynd var frumsýnd
um síðustu helgi, kvikmyndin Taken
með Liam Neeson í aðalhlutverki, en
hún komst ekki hærra en í fjórða
sæti. Rúmlega þúsund bíógestir
skelltu sér á þessa mynd sem var að-
eins sýnd í tveimur kvikmyndasöl-
um. Unglingarómansinn Twilight
nýtur enn ágætra vinsælda og fellur
aðeins niður um eitt sæti á milli
vikna. Rúmlega átta hundruð manns
sáu myndina um helgina sem þýðir
að heildaraðsóknin er komin í 9.204
gesti. Mest sótta myndin á listanum
er hins vegar ennþá Bond-myndin
Quantum of Solace en kvikmyndin
hefur setið á listanum í heilar sjö
vikur. Heildarfjöldi gesta er kominn
yfir 60 þúsund manns og tekjur af
myndinni hafa því náð 50 milljóna
króna markinu.
Tekjuhæstu kvikmyndirnar
Allt eins og það á að vera
@%
A?A) ))$
,)%
* )3+%A
9! ?#
(
'1@A @B( C2@
#( 6* #( # " 1 "
(
+ #
D! !
2 " @(
=@ 1 ' '(
? * 2
:(
1* E2 )(
"+ 7
Four Christmases Vince Vaughn og Reese Witherspoon lenda í svo fyndn-
um aðstæðum að hálfa væri nóg.
NÝJASTA grínmynd Jims Carreys
skaust beinustu leið á toppinn í
Bandaríkjnum eftir að talið var
upp úr kössunum þar vestra. Kvik-
myndin halaði inn um 18,2 milljónir
dala eða rúmum tveimur milljónum
dala meira en nýjasta hetjumynd
Wills Smiths, Seven Pounds, sem
var næsttekjuhæst. Kvikmyndin
The Tale of Despereaux með Matt-
hew Broderick hafnaði í þriðja sæti
en hún fékk um 10,5 milljónir dala í
kassann, litlu meira en vísindatryll-
irinn The Day the Earth Stood Still
en heildartekjur hennar eru komn-
ar yfir 48 milljónir dala á aðeins 10
dögum.
Ef marka má þær yfirlýsingar
sem berast frá yfirmönnum kvik-
myndaveranna var árið 2008 nokk-
uð gott ár og ef sagan kennir okk-
ur eitthvað mun lakur
efnahagurinn ekki koma svo illa
við buddurnar í Hollywood. Alveg
er það dæmigert.
Carrey á kunnug-
legum slóðum
1. Yes Man
2. Seven Pounds
3. The Tale of Despereaux
4. The Day the Earth Stood Still
5. Four Christmases
6. Twilight
7. Bolt
8. Slumdog Millionaire
9. Australia
10. Quantum of Solace
Kunnuglegt Carrey leikur lygara sem getur allt í einu ekki logið ... nei,
bíddu nú við. Það var Liar Liar. Nú getur hann ekki sagt nei. Hmmm...
Tekjuhæstu kvikmyndir vestanhafs
LEIKKONAN Jessica Alba hélt
brúðkaupsveislu á heimili sínu síð-
asta föstudag, sjö mánuðum eftir
að hún gifti sig.
Alba og Cash Warren gengu í
hjónaband án þess að láta neinn
vita í maí á þessu ári og ákváðu að
bíða með hátíðarhöld með vinum og
fjölskyldu þangað til nú.
„Veislan var til að fagna ást
þeirra og hjónabandi. Það voru
engin tár, aðeins mikil hamingja og
ást. Þetta var mjög einstök veisla
fyrir alla,“ sagði einn veislugestur.
Bæði Alba og Warren héldu
ræðu og auðvitað var Honor, sex
mánaða dóttir þeirra viðstödd, en
hún var klædd eins og móðir henn-
ar, í gráan kjól.
Hjónakornin giftu sig hjá dóm-
ara í Beverly Hills, án gesta, þegar
Alba var kasólétt.
„Gifting Jessicu og Cash kom öll-
um á óvart, henni fannst allt í lagi
að eiga barn þó þau væru ekki gift
en eitthvað hefur hefðin haft áhrif
á hana. Cash er yndislegur maður
og hún elskar hann mjög heitt,“
sagði vinkona leikkonunnar um
málið.
Alba og Warren hittust árið 2004
þegar hann var aðstoðarmaður leik-
stjóra á tökustað kvikmyndarinnar
Fantastic Four.
Héldu
brúðkaups-
veislu
Hjón Cash Warren og Jessica Alba.
KÆRASTA Lindsay Lohan, Sam-
antha Ronson, heimsótti sjúkrahús
á sunnudaginn. Hinn 31 árs plötu-
snúður var í fylgd Lohan er hún
kom á sjúkrahús í Los Angeles,
degi eftir að sagt var frá því að hún
hefði verið að hringja í vini sína og
kvarta yfir stressi og ofþreytu.
„Hún þjáist af þunglyndi og af
skorti á svefni og mat. Lindsay hef-
ur verið að hjálpa henni í gegnum
þetta en hún gekk í gegnum svipað
ástand fyrir tveimur árum,“ sagði
vinur stúlknanna við Life and Style
Weekly-tímaritið.
Læknar voru kallaðir á heimili
Ronson stuttu áður en hún fór á
sjúkrahúsið og vitni sáu hana flutta
inn í gegnum neyðarinngang í
hjólastól.
Stress
og ofþreyta
Lindsay Lohan Samantha Ronson