Morgunblaðið - 10.02.2009, Side 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2009
ÞETTA var mjög góður fundur og að mörgu leyti
breyting frá því sem við höfum búið við hingað til því
umræðurnar voru opinskáar,“ segir Gylfi Arnbjörnsson,
forseti ASÍ.
Haldinn var í gær fjölmennur samráðsfundur for-
ystumanna heildarsamtaka launþega á almenna vinnu-
markaðinum og hjá hinu opinbera, forsvarsmanna sam-
taka atvinnurekenda og fulltrúa sveitarfélaga með
fjórum ráðherrum í Ráðherrabústaðnum. Forsætisráð-
herra kynnti verkefnalista ríkisstjórnarinnar.
Gylfi segir að ASÍ hafi lýst því yfir að samtökin væru
reiðubúin til samstarfs við stjórnvöld um að hrinda fjöl-
mörgum verkefnum í framkvæmd en samtökin hafi þó
fyrirvara á útfærslu einstakra mála.
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins, segir mjög brýnt að taka ákvarðanir um
nokkur stór verkefni. Þar beri hæst lækkun vaxta, af-
nám gjaldeyrishafta og að komast út úr ríkisbankafyr-
irkomulaginu og að hér starfi bankar sem þjóni at-
vinnulífinu. Margt hafi nú þegar verið gert vegna
vaxandi atvinnuleysis en skerpa þurfi á aðgerðum gegn
því.
Viðsemjendur á almenna vinnumarkaðinum þurfa að
ákveða fyrir mánaðamót hvort kjarasamningarnir verða
framlengdir. Það ræðst væntanlega í framhaldi af for-
mannafundi ASÍ sem boðað hefur verið til 16. febrúar.
Sambandsstjórn Samiðnar samþykkti í gær að veita
miðstjórn umboð til að fresta endurskoðun á launalið
kjarasamninga fram á sumar.
Kjarasamningar starfsmanna hjá ríkinu renna út í
lok mars. Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands
Íslands, sagðist eftir fundinn í Ráðherrabústaðnum í
gær telja líklegt að framhald yrði á samráði aðila vinnu-
markaðarins og stjórnvalda á næstu vikum. omfr@mbl.is
Víðtækt samráð um
brýnustu aðgerðir
Morgunblaðið/Golli
Málin rædd Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA, og Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna
fjármálafyrirtækja, spjalla saman eftir umræðurnar. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra boðaði til fundarins.
Ræðst á næstu vikum hvort samningar verða framlengdir
LANDGRÆÐSLAN þarf eins og
flest opinber fyrirtæki að glíma við
niðurskurð í fjárveitingum. Nið-
urskurðurinn kemur misjafnlega
niður á verkefnum og til dæmis
hækkar framlag til verkefnisins
Bændur græða landið. Einnig er
lögð áhersla á að skera ekki niður
fjármuni til Landbótasjóðs.
Á heimasíðu Landgræðslunnar er
Sveinn Runólfsson spurður hvort
tækifæri séu í stöðunni og nefnir
hann að gott fræsumar geti gefið
möguleika á útflutningi. Gengið sé
hagkvæmt útflutningi og ef vel tak-
ist til með söfnun á fræi af lúpínu og
beringspunti sé mögulegt að selja
fræ til Alaska. aij@mbl.is
Lúpínufræ
til Alaska?
Morgunblaðið/Eyþór
„ÞETTA ER lífæð háskólastarfs og
vísinda og ef við ætlum að vera með
háskóla- og vísindastörf er þetta
forsenda þess,“
segir Ágúst Ein-
arsson, rektor
Háskólans á Bif-
röst. Um 80 millj-
ónir króna vant-
ar til að hægt sé
að greiða fyrir
landsáskrift að
erlendum tíma-
ritum og gagna-
grunnum. Gert
sé ráð fyrir sömu
upphæð fyrir aðganginn og fyrri
ár, þrátt fyrir gengisfallið.
„Það vantar fé til að greiða fyrir
landsaðganginn. Það voru ekki af-
greiddir þeir fjármunir sem óskað
var eftir við fjárlagagerðina, þegar
fjárlög voru afgreidd. Það er veru-
leg fjárvöntun fyrir landsaðgang að
rafrænum áskriftum. Landsbóka-
safnið sér um þennan þátt [...] Það
eru uppi miklar áhyggjur innan há-
skólanna og háskólabókasafna
landsins. Auðvitað eru menn að
reyna að ná niður samningum við
tímaritin og annað slíkt en það er
það mikil fjárvöntun að það blasir
við að það þurfi að segja upp
gagnagrunnum og í því felst stór-
hætta. Það er von að ný stjórnvöld
taki myndarlega á þessu.“
Ágúst kveður aðspurður „mega
gleyma“ því að Íslendingar eignist
háskóla á lista þeirra 100 bestu í
veröldinni fari svo að þessi aðgang-
ur rofni. baldura@mbl.is
Óttast að
lífæð háskól-
anna rofni
Ágúst
Einarsson
BRÁÐABIRGÐANIÐURSTAÐA
krufningar hefur ekki varpað ljósi
á dánarorsök konu á fertugsaldri,
sem fannst látin í Kapelluhrauni,
sunnan Hafnarfjarðar, á fimmtu-
dag. Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni er áfram unnið að
rannsókn málsins, sem er viðamikil.
Aðilar sem tengdust hinni látnu og
sambýlismanni hennar hafa verið
yfirheyrðir. Einnig hefur verið rætt
við þá sem þekkja til í Kapellu-
hrauni en lík hinnar látnu fannst í
húsi þar sem dúfur eru hafðar.
Upplýsinga um frekari framgang
rannsóknarinnar er ekki að vænta
fyrr en í lok vikunnar.
Eins og áður hefur komið fram
var sambýlismaður hinnar látnu úr-
skurðaður í gæsluvarðhald til 20.
febrúar. Enginn annar hefur verið
handtekinn í tengslum við málið.
Dánarorsök
ekki enn ljós
Morgunblaðið/Júlíus
Mannslát Af rannsóknarvettvangi.
BÚIÐ er að sprengja nærri 40 pró-
sent af Bolungarvíkurgöngum eða
1.928 metra af 5.100 metrum. Í síð-
ustu viku voru sprengdir 55 metrar
frá Hnífsdal og 39 metrar frá Bol-
ungarvík.
Fylgjast má með framvindu
verksins á vef Vegagerðarinnar.
Einnig er brú yfir Ósá langt komin
Bolungarvíkurmegin auk þess sem
unnið er við vegagerð út frá göng-
unum Hnífsdalsmegin. Það er Ósafl
sem vinnur verkið en að því standa
Íslenskir aðalverktakar hf og sviss-
neska verktakafyrirtækið Marti
Contractors Ltd. aij@mbl.is
Góður gangur
í göngunum
FORSÆTISRÁÐUNEYTIÐ sendi í
gærkvöldi yfirlýsingu til fjölmiðla í
tilefni af umræðum á Alþingi í gær-
dag þar sem Birgir Ármannsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
spurðist fyrir um það hvort forsæt-
isráðuneytinu hefði borist umsögn
frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum um
frumvarp til laga um breytingu á
lögum um Seðlabanka Íslands.
Í yfirlýsingunni kemur fram að
eftir að frumvarpi til laga um breyt-
ingu á lögum um Seðlabanka Íslands
hafi verið dreift á Alþingi í sl. viku og
það þýtt á ensku hafi embættismenn
ráðuneytisins sent enska þýðingu
frumvarpsins til upplýsingar til
AGS. Hafi það verið gert í samræmi
við vinnubrögð og alþjóðlegar hefðir
í samskiptum stjórnvalda og AGS
þegar unnið sé á grundvelli sameig-
inlegrar efnahagsáætlunar. Í fram-
haldinu hafi ráðuneytið fengið
nokkrar tæknilegar ábendingar frá
AGS sem sendar hafi verið í trúnaði
og borist ráðuneytinu í tölvupósti um
sl. helgi. Ráðherra hafi fengið þær í
hendur eftir umræður á Alþingi í
gær. „Forsætisráðuneytið hefur
þegar óskað eftir því við Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn að sem fyrst verði
send formleg umsögn, sem ekki sé
bundin trúnaði, og verði birt opin-
berlega þegar hún berst og kynnt
viðskiptanefnd Alþingis sem hefur
frumvarp til laga um breytingar á
lögum um Seðlabanka Íslands nú til
umfjöllunar,“ segir í tilkynningunni.
Hafa óskað eftir formlegri
opinberri umsögn frá AGS
Forsætisráðherra fékk tæknilegar ábendingar AGS fyrst í hendur eftir umræður
Í HNOTSKURN
»AGS sendi í gær frá sér yf-irlýsingu þar sem fram
kom að stofnunin hefði ekki
sent forsætisráðuneytinu bréf
í tengslum við lagafrumvarp
um breytingu á lögum um
Seðlabanka Íslands.
»Að beiðni yfirvalda hefðiAGS hins vegar sent
tæknilegar ábendingar um
frumvarpið. Tekið er fram að
oft sé leitað til AGS vegna
lagasetningar um seðlabanka.
Morgunblaðið/Golli
Seðlabanki Um fátt er meira rætt.
EFTIRLAUN alþingismanna og
ráðherra munu skerðast í hlutfalli
við 5 til 15 prósenta lækkun á laun-
um þeirra, samkvæmt úrskurði
kjararáðs fyrir áramót. Fylgt er svo-
kallaðri „eftirmannsreglu“, sem þýð-
ir að eftirlaunin verða í takt við laun
eftirmanna þingmanna og ráðherra.
Þetta segir Páll Ólafsson, deild-
arstjóri hjá Lífeyrissjóði starfs-
manna ríkisins (LSR), sem leggur
þó sérstaka áherslu á að það muni
fara eftir áunnum réttindum hvers
og eins hversu mikla tekjuskerðingu
áðurnefnd lækkun hefur í för með
sér.
Inntur eftir því hversu margar
milljónir króna launalækkunin muni
spara ríkinu segist Páll ekki hafa
slíkar tölur á hraðbergi.
Hann tekur hins vegar ímyndað
dæmi af dæmigerðum forstöðu-
manni opinberrar stofnunar sem sé í
launaflokki 130 og fái 577.459 krónur
í mánaðarlaun. Eftir 10% lækkun
fari launin niður í tæpar 520.000
krónur, sem sé sú tala sem miðað sé
við þegar eftirlaun eru reiknuð út.
Páll minnir á að enn sem komið er
hafi einungis þingmenn og ráð-
herrar verið lækkaðir í launum og
því sé dæmið ekki raunverulegt.
Til samanburðar er þingfar-
arkaup nú 520.000 kr. á mánuði, eftir
tæplega 7,5% lækkun.
baldura@mbl.is
Eftirlaun
lækka líka
Embættismenn
lækkuðu í launum