Morgunblaðið - 10.02.2009, Side 14
14 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2009
./
./
0
0
./
!1/
0
0
2%2+ &

0
0
6/
0
0
./" ./#
0
0
Þetta helst ...
● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallarinnar,
ICEXI6, hækkaði um 2,68% í við-
skiptum gærdagsins og endaði vísitalan
í 952,15 stigum. Gengi bréfa Straums-
Burðaráss hækkaði um 14,43% og
Bakkavarar um 1,49%, en Marel lækk-
aði um 2,64% og Össur um 0,62%.
Gengi annarra félaga stóð í stað.
Velta á hlutabréfamarkaði var
óvenjumikil, eða 340 milljónir króna,
en velta á skuldabréfamarkaði nam
tæpum níu milljörðum króna.
bjarni@mbl.is
Hækkun í Kauphöll
● MOODY’S mats-
fyrirtækið hefur
enn á ný lækkað
lánshæfiseinkunn
gamla Kaupþings.
Er lánshæfismat
bankans fyrir for-
gangsskuldabréf
nú C, en var áður
Caa2. Lánshæfi í
erlendri og innlendri mynt er óbreytt
og horfur eru stöðugar. Er endurskoðun
Moody’s á lánshæfi Kaupþings nú lokið.
bjarni@mbl.is
Lánshæfið lækkað
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
ÞÝSKI bankinn DZ bank AG hefur
fryst 55 milljónir evra af fjármunum
Kaupþings í bankanum og er það
meðal þess sem stendur í vegi fyrir
uppgjöri við þýska viðskiptavini
EDGE-útibús Kaupþings.
Þetta er meðal þess sem kom fram
á fundi skilanefndar Kaupþings með
erlendum kröfuhöfum sl. fimmtu-
dag. Skilanefndin hafði ráðstafað
þessu fjármagni til að greiða þýskum
sparifjáreigendum. Heildarskuld-
bindingar bankans vegna sparifjár-
eigenda í Þýskalandi eru rúmlega
330 milljónir evra.
Umræddar 55 milljónir evra hafði
DZ bankinn í sinni vörslu þar sem
Kaupþing nýtti reikninga DZ sem
millilið þegar innlánum var safnað á
EDGE-reikningana. Frysti DZ
bankinn fjárhæðina vegna annarrar
óskyldrar kröfu á Kaupþing. Skila-
nefnd Kaupþings telur að frysting
fjármagnsins sé ekki lögmæt og hef-
ur farið fram á að DZ bankinn sýni
fram að umrætt fé hafi ekki verið í
vörslu hans vegna EDGE. Ekki
verður gripið til sérstakra úrræðna
fyrir þýskum stjórnvöldum til að fá
frystingunni aflétt fyrr en samninga-
leiðin hefur verið reynd til þrautar.
Þýskir sparifjáreigendur hafa
sýnt því takmarkaðan skilning að bú-
ið sé að leysa mál viðskiptavina
Kaupþings í flestum öðrum löndum,
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins. Kaupþing á sem stendur í
viðræðum við þýska fjármálaeftirlit-
ið, Bafin, um lausn á málum þar-
lendra sparifjáreigenda.
Öll mál tengd innlánum vegna
Kaupþing Edge-reikninganna í Nor-
egi, Finnlandi og Austurríki hafa
verið leyst og allir sparifjáreigendur
í þessum löndum hafa fengið innlán
sín greidd að fullu og voru þau
greidd af eignum Kaupþings. Ljóst
er að Kaupþing á nægt lausafé til að
standa við kröfur Þjóðverjanna.
Frystu eignir Kaupþings
Í HNOTSKURN
»Rúmlega 30.000 inni-stæðueigendur voru í við-
skiptum við Kaupþing EDGE í
Þýskalandi.
»Kaupþing reynir nú að fáfrystingu DZ bankans af-
létt svo hægt sé losa um 55
milljónir evra og gera upp við
sparifjáreigendur, en fénu
hafði verið ráðstafað í það.
»Heildarkröfur sparifjár-eigenda í Þýskalandi nema
330 milljónum evra. Morgunblaðið/Kristinn
Kröfuhafar Erlendir kröfuhafar funduðu í síðustu viku með fulltrúum skila-
nefndar Kaupþings. DZ bank hefur fryst 55 milljónir evra í eigu Kaupþings.
SAMKVÆMT mati á stöðu gamla
Glitnis, sem unnið var fyrir skila-
nefnd bankans, eru eignir bankans
1.008 milljarðar króna en skuldir
bankans eru metnar á 2.417 millj-
arða.
Fram kemur í Morgunkorni
Greiningar Glitnis, að umtalsverð
óvissa sé í eignamatinu og óraun-
hæft sé talið að selja eignir fyrir en
eftir tvö ár þegar markaðir hafi
skánað og hægt verði að fá hærra
verð fyrir eignirnar. Haft er eftir
Árna Tómassyni, formanni skila-
nefndarinnar, að með fyrirvara um
þessa miklu óvissu megi reikna með
að gamli Glitnir geti greitt 20-40% af
skuldum sínum til kröfuhafa.
gummi@mbl.is
Getur greitt
20-40%
Skuldir gamla Glitnis
eru 2,4 milljarðar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„STAÐGENGILL forstjóra Fjár-
málaeftirlitsins tók við daglegri
stjórn eftirlitsins eftir að gengið
hafði verið frá starfslokum við fyrr-
verandi forstjóra þess. Því varð
dagleg starfsemi eftirlitsins ekki
fyrir skaða vegna starfslokanna.“
Svo segir í yfirlýsingu frá við-
skiptaráðuneytinu vegna ummæla
formanns bankastjórnar Seðla-
banka Íslands um stjórn FME í
bréfi til forsætisráðherra hinn 8.
febrúar sl.
Þá segir að viðskiptaráðherra
hafi skipað nýja stjórn FME hinn 5.
febrúar sl. Því hafi ekki orðið tafir
á afgreiðslu mála vegna þessa.
Í bréfi formanns bankastjórnar
Seðlabankans segir að brotthlaup-
inn ráðherra hafi skilið FME eftir
stjórnlaust, bæði hvað fram-
kvæmdastjórn og yfirstjórn varð-
aði. Af því hafi hlotist verulegur
skaði. gretar@mbl.is
Ekki tafir á
afgreiðslu mála
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
EIMSKIP afskrifaði 34,5 milljónir
evra, um fimm milljarða króna, í lok
síðasta árs vegna eignar sinnar í hol-
lenska frystigeymslufyrirtækinu
Daalimpex. Félagið tilkynnti í gær
að Daalimpex yrði tekið til gjald-
þrotaskipta.
Samkvæmt upplýsingum frá Eim-
skip munu eignir Daalimpex að öll-
um líkindum duga fyrir útistandandi
kröfum, en félagið var metið á um 75
milljónir evra, tæpa ellefu milljarða
króna, í árslok 2007. Eignirnar eru
því taldar um 40 milljóna evra virði,
eða 5,8 milljarða króna.
Enginn íslenskur banki á kröfu
Enginn íslenskur banki er á meðal
kröfuhafa Daalimpex og því eru þeir
ekki berskjaldaðir fyrir tjóni ef ekki
tekst að innheimta fyrir kröfum.
Eimskip tapaði samtals 648,4
milljónum evra, um 95 milljörðum
króna, á árinu 2008. Það var Íslands-
met í tapi þar til Straumur fjárfest-
ingarbanki birti sitt ársuppgjör
nokkrum dögum síðar, en hann tap-
aði 699,3 milljónum evra.
Kaupverðið ekki uppgefið
Eimskip eignaðist Daalimpex að
fullu fyrir tveimur árum þegar félag-
ið keypti 60 prósenta eignarhlut. Áð-
ur hafði það átt 40 prósent í félaginu.
Kaupverð var ekki gefið upp á þeim
tíma.
Morgunblaðið óskaði í gær eftir
því að fá kaupverðið uppgefið en
fékk þau svör hjá Eimskip að það
væri ekki hægt vegna trún-
aðarsamkomulags við fyrri eig-
endur. Til stóð að selja Daalimpex og
voru samningar á lokastigi þegar
snurða hljóp á þráðinn á síðustu
metrunum og salan gekk ekki eftir.
Því verður félagið tekið til gjald-
þrotaskipta.
Fjárfestu í frystigeymslum
Þegar Eimskip keypti Daalimpex
var það eitt stærsta frystigeymslu-
fyrirtæki í Evrópu og rak sex stórar
frystigeymslur í Hollandi. Eimskip
fjárfesti um tíma í mörgum frysti-
geymslufyrirtækjum á borð við Inn-
ovate og Atlas Cold Store. Eimskip
afskrifaði einnig Innovate í fyrra-
sumar, en bókfært virði félagsins var
á þeim tíma 72,1 milljón evra, um tíu
og hálfur milljarður króna á núvirði.
Eimskip setur Daalimpex í gjaldþrot
Milljarðar
í afskriftir
Morgunblaðið/Frikki
Átti Íslandsmet Eimskip tapaði tæpum 100 milljörðum á síðasta ári
SÚ afstaða Dav-
íðs Oddssonar,
formanns banka-
stjórnar Seðla-
banka Íslands, að
neita að segja af
sér er neyðarleg.
Þetta er mat
Lars Christen-
sens, yfirmanns
greiningardeildar Danske Bank, að
því er fram kemur í frétt Bloom-
berg-fréttastofunnar.
Segir Christensen liggja ljóst fyr-
ir að með hliðsjón af þeim mistök-
um sem gerð hafi verið hafi banka-
stjórn Seðlabankans nú þegar átt
að vera búin að segja af sér.
Bloomberg hefur einnig eftir
Thomas Haugaard, hagfræðingi
hjá Svenska Handelsbanken í
Kaupmannahöfn, að það sé grund-
vallaratriði að komið verði á trú-
verðugleik varðandi efnahags-
stefnu Íslands. „Það er skynsamlegt
að hreinsa til í kerfinu,“ segir hann.
„Seðlabankinn hafði þeim skyldum
að gegna að hafa yfirsýn yfir fjár-
málakerfið, þeir hefðu átt að gera
sér grein fyrir alvöru þess sem var
að gerast.“
Þá er haft eftir Gunnari Helga
Kristinssyni, prófessor í stjórn-
málafræði við Háskóla Íslands, í
frétt Bloomberg, að ef ríkisstjórn í
einhverju öðru landi hefði lýst því
yfir að hún vildi að seðlabanka-
stjórar hættu störfum hefðu þeir
undir eins stigið til hliðar.
gretar@mbl.is
Neyðarleg afstaða