Morgunblaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2009
Á sjöunda hundrað mannsfyllti Kringlubíó kl. 18 álaugardagskvöldið þegar
bein útsending hófst frá Metropo-
litanóperunni í New York. Ég
vissi svosem ekki alveg við hverju
var að búast, búin að horfa á ótal
óperumyndbönd um dagana og
oftar en ekki orðið fyrir von-
brigðum með það að sjá stór-
brotin verk tekin upp með einni
kameru á sýningu og með lélegu
sjónvarpshljóði. Satt að segja var
ég viðbúin því að útsendingin frá
Metropolitan yrði í þeim dúr.
En það var nú aldeilis ekki svo.
Þeir sem hafa komið í Metropo-litanóperuna þekkja það þeg-
ar ljósin í salnum eru dregin upp.
Það er til marks um að nú sé sýn-
ing að hefjast. Meðan gestir í
Kringlubíói biðu eftir að eitthvað
gerðist var sýnt niður í hljóm-
sveitargryfjuna og út í salinn
þegar gestir komu inn. Það var
óneitanlega glaðningur fyrir Ís-
lendingshjartað að sjá Stefán
Ragnar Höskuldsson í sæti fyrsta
flautuleikara, og tilhlökkun, því í
óperunni sem var á dagskrá, Lu-
ciu di Lammermoor eftir Doni-
zetti, er áhrifamikið atriði þar
sem Lucia missir vitið, bók-
staflega í dúetti með flautuleik.
Einleiksflautuleikari hljómsveit-
arinnar, Stefán Ragnar, var því í
stóru hlutverki í sýningunni.
Skyndilega var áhorfendum
svipt upp á svið – tjöldin enn
dregin niður, og ein af stór-
stjörnum Metropolitanóperunnar,
franski kóloratúrsópraninn Natal-
ie Dessay, bauð gesti velkomna,
kynnti óperuna og kvaðst verða
gestgjafi okkar bíóáhorfenda. Svo
hófst óperan, og um leið kómísk
uppákoma. Á maður að klappa
þegar hljómsveitarstjórinn geng-
ur í salinn – þegar maður horfir á
það í bíói … og eftir aríur? Gestir
í Kringlubíói voru svolitla stund
að átta sig á þessum óvenjulegu
kringumstæðum, en margir
klöppuðu, og þeir klöppuðu ákaft.
Ég held að mörgum í bíóinuhljóti að hafa verið innan-
brjósts eins og mér þegar pólski
baritónsöngvarinn Mariusz Kwie-
cien hóf upp raustina í hlutverki
Enricos, bróður Luciu. Hvílík
rödd! Ég hafði bundið miklar von-
ir við að heyra loks í rússnesku
sópransöngkonunni Önnu Net-
rebko, sem var í hlutverki Luciu.
Hafði bara heyrt hana á plötu, en
aldrei á sviði. Hún var auðvitað
jafn stórkostleg söngkona og ég
hafði ímyndað mér, en mér fannst
hún lengi að komast í gang. Það
var ekki fyrr en í öðrum þætti óp-
erunnar að hún sýndi virkilega
það sem í henni býr. Í senunni í
lokaþættinum, þar sem Lucia
sturlast, var samspil hennar og
Stefáns Ragnars áhrifamikið og
gríðarlega fallegt.
Pólski tenórinn Piotr Beczala
hljóp í skarðið fyrir forfallaðan
stjörnutenórinn Rolando Villazón
í hlutverki Edgardos, unnusta Lu-
ciu, en kannski er það til marks
um gæði söngvaraliðsins í Met-
ropolitan, að ég á erfitt með að
ímynda mér að Villazón hefði get-
að gert þetta betur en forfalla-
söngvarinn.
Hljómsveitin var algjörlega
óaðfinnanleg undir stjórn Marcos
Armiliatos; skörp og dýnamísk,
og auðvelt að skilja hvers vegna
hún er í metum sem ein allra
besta óperuhljómsveit í heimi, ef
ekki bara sú besta.
Og svo kom hlé. Natalie Dessayleiddi okkur þá um undra-
heima þessa mikilfenglega óp-
eruhúss. Hún tók viðtöl við söngv-
arana, greip þá glóðvolga þegar
þeir komu af sviðinu; talaði við
hljómsveitarstjórann og sviðs-
stjórann og sýndi okkur sviðs-
menn að störfum. Það kom mér á
óvart hversu mikil handavinna er
baksviðs. Hundrað manna flokkur
réðst á sviðsmyndina um leið og
tjöldin féllu, eins og skipulögð
mauraþúfa, og smám saman hvarf
gamla sviðsmyndin og sú nýja var
sett upp. Allt var þetta meira og
minna handgert, fyrir utan raf-
drifna sleða sem drógu stærstu
hlutana út á hliðarsviðin.
Inn í öll skemmtilegheitin bak-
sviðs fléttaði Natalie Dessay ákaf-
lega forvitnilegu myndefni frá
óperuhúsinu, meðal annars sam-
antekt um feril Placidos Dom-
ingos við Metropolitanóperuna,
allt frá því að hann stökk með
litlum fyrirvara inn í afleysinga-
hlutverk fyrir Franco Corelli á
sjöunda áratugnum. Hún sýndi
líka brot úr heimildamynd um
söngvarakeppnina sem MET held-
ur fyrir unga söngvara, og ég sá
ekki betur en að þar væri Dísella
Lárusdóttir meðal annarra ungra
söngvara, þótt ég þori ekki að
fullyrða það.
Það kom mér verulega á óvarthversu mikið var lagt í út-
sendinguna frá Metropolitanóper-
unni. Óperusýningin sjálf var því
sem næst fullkomin og mögnuð
upplifun. En allt hitt, leiðsögn
Dessay í gegnum sýninguna var
gríðarlega vel heppnað og gerði
upplifunina enn dýpri og
skemmtilegri.
Eftir þessa vel heppnuðu sýn-
ingu varð mér hugsað til óp-
erumenningarinnar á Íslandi.
Framtak Sambíóanna að senda
beint út frá besta óperuhúsi
heims í hámarksgæðum í Kringlu-
bíói er lofsvert. Ríkisútvarpið
hefur sent beint út frá Metropo-
litanóperunni í mörg ár, en auð-
vitað vantar heilmikið þegar sjón-
ræna þáttinn vantar. Ég hef
mikla trú á því að það styðji við
annað í íslenskri óperumenningu
og auki áhuga almennings á óp-
erutónlist. Síðast en ekki síst held
ég að það hljóti að breyta við-
miðum í íslenskum óperusöng.
Um leið og við sjáum og lærum
hvernig þeir bestu fara að og það
verður hversdagsreynsla fyrir
þennan fjölda fólks hljótum við að
setja markið hærra sjálf.
Magnað óperubíó
Mariusz Kwiecien Frábær baritónsöngvari frá Póllandi. Hér er hann í hlut-
verki Enricos ásamt vinnumönnum sínum á Lammermoor-búgarðinum.
AF LISTUM
Bergþóra Jónsdóttir
» Síðast en ekki síst held ég að [sýningarnar] hljótiað breyta viðmiðum í íslenskum óperusöng. Um
leið og við sjáum og lærum hvernig þeir bestu fara
að og það verður hversdagsreynsla fyrir fjölda fólks
hljótum við sjálf að setja markið hærra.
Fim 12/2 kl. 20:00 aukas.
Lau 14/2 kl. 19:00
Fös 20/2 kl. 19.00
Lau 7/3 kl. 19:00
Fös 13/3 kl. 19.00
Lau 14/3 kl. 19.00
Sun 22/3 kl. 19.00
Lau 28/3 kl. 19.00
Yfir 130 uppseldar sýningar. Áhorfendasýning ársins 2008.
Fló á skinni (Stóra sviðið)
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Fólkið: Sýningum lýkur í febrúar!
Fim 12/2 kl. 20.00
Fös 13/2 kl. 20.00
Lau 14/2 kl. 20.00
Fim 26/2 kl. 20.00
Fös 27/2 kl. 20.00
Lau 28/2 kl. 20.00
Fös 6/3 kl. 20.00
Lau 7/3 kl. 20.00
Ath! Bannað innan 16 ára. Ekki fyrir viðkvæma. Aðeins sýnt í febrúar og mars.
.Fös 13/2 kl. 22:00 aukas
Lau 14/2. kl. 19:00 aukas.
Lau 21.2 kl. 19:00 8. kort
Lau 21/2 kl. 22:00 aukas.
Sun 22/2 kl. 20:00 9. kort
Mið 25/2 kl. 20:00 10. kort
Fim 26/2 kl. 20:00
Fös 27/2 kl. 19:00
Leiklestrar á verkum Söru Kane.
Ást Fedru - 10. febrúar. Hreinsun - 17. febrúar. Þrá - 24. febrúar. 4:48 geðtruflun - 3. mars – 1.500 kr.
Sannleikurinn, einleikur Péturs Jóhanns (Litla sviðið)
Sýningum lýkur í febrúar á vinsælasta söngleik leikársins.
Fólkið í blokkinni (Stóra sviðið)
Fös 13/2 kl. 19:00 aukas.
Fös 13/2 kl. 22:00 Lau 21/2 kl. 19:00
Lau 21/2 kl. 22:00 síð. sýn.Lau 14/2 kl. 13:00
Lau 21/3 kl. 19.00
Sun 8/3 kl. 20.00
Fös 13/3 kl. 20.00
Lau 14/3 kl. 20.00
Sun 15/3 kl. 20.00
Fös 20/2 kl. 22.00 aukas
Mið 11/2 kl. 20:00 4. kort
Fim 12/2 kl. 20:00 5. kort
Fös 13/2 kl. 19:00 6. kort
Lau 14/2 kl. 22:00 aukas.
Sun 15/2 kl. 20:00 aukas.
Fös 20/2 kl. 19:00 7. kort
Fös 20/2 kl. 22:00
Mið 18/2 kl. 20:00aukas.
Fim 19/2 kl. 20:00 aukas.
Fös 27/2 kl. 19.00
Lau 28/2 kl. 19.00
Lau 28/2 kl. 22.00
Sun 1/3 kl. 20.00
Fös 13/3 kl. 19.00
Fös 13/3 kl. 22.00
Lau 14/3 kl. 19.00
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Hart í bak (Stóra sviðið)
Skoppa og Skrítla í söng-leik (Kúlan)
Sumarljós (Stóra sviðið)
Heiður (Kassinn)
Kardemommubærinn (Stóra sviðið)
Fös 13/2 kl. 20:00 Ö
Lau 14/2 kl. 20:00 Ö
Fim 19/2 kl. 20:00 Ö
Lau 28/2 kl. 13:00
Lau 7/3 kl. 13:00 Ö
Sun 15/2 kl. 20:00 Ö
Lau 14/2 kl. 20:00 Ö
Fim 26/2 kl. 20:00 Ö
Fös 27/2 kl. 20:00
Fim 5/3 kl. 20:00 aukasýn.
Lau 14/3 kl. 13:00
Lau 21/3 kl. 13:00 Ö
Fös 20/2 kl. 20:00 Ö
Fös 6/3 kl. 20:00
Lau 14/3 kl. 20:00 Ö
Mið 18/3 kl. 20:00 aukasýn.
Lau 28/3 kl. 13:00
Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is
Sýningum lýkur í mars
Örfáar aukasýningar með bestu vinkonum barnanna
Síðasta sýning
Sýningum að ljúka
Sýningar í maí komnar í sölu, sjá www.leikhusid.is
Lau 28/2 kl. 20:00 Ö
Sun 1/3 kl. 14:00 U
Sun 1/3 kl. 17:00 U
Lau 7/3 kl. 14:00 U
Lau 7/3 kl. 17:00 U
Sun 8/3 kl. 14:00 U
Sun 8/3 kl. 17:00 U
Lau 14/3 kl. 14:00 U
Sun 15/3 kl. 14:00 U
Sun 15/3 kl. 17:00 U
Þri 17/2 kl. 18:00 fors. Ö
Mið 18/2 kl. 18.00 fors. Ö
Fös 20/2 kl. 18:00 fors. U
Lau 21/2 kl. 14:00 frums. U
Lau 21/2 kl. 17:00 U
Sun 22/2 kl. 14:00 U
Sun 22/2 kl. 17:00 U
Lau 28/2 kl. 14:00 U
Lau 28/2 kl. 17:00 U
Lau 21/3 kl. 14:00 U
Lau 21/3 kl. 17:00 U
Sun 22/3 kl. 14:00 U
Sun 22/3 kl. 17:00 U
Lau 28/3 kl. 14:00 U
Lau 28/3 kl. 17:00 U
Sun 29/3 kl. 14:00 U
Sun 29/3 kl. 17:00 U
Lau 4/4 kl. 14:00 U
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
■ Fimmtudagur 12. febrúar kl. 19.30
Myrkir músíkdagar
Stjórnandi: Daníel Bjarnason
Einleikarar: Víkingur Heiðar Ólafsson og Einar Jóhannesson
Daníel Bjarnason: Píanókonsert
Haukur Tómasson: Dialogo
Jón Ásgeirsson: Klarinettukonsert
Þorkell Sigurbjörnsson: Ríma
Það er ekki á hverjum degi sem nýr íslenskur píanókonsert
er frumfluttur. Að þessu leyti má telja tónleikana
stórviðburð í íslensku tónlistarlífi, en þá mun
píanósnillingurinn Víkingur Heiðar Ólafsson frumflytja
píanókonsert eftir Daníel Bjarnason, sem mun einnig
þreyta frumraun sína sem stjórnandi með hljómsveitinni.
■ 19. febrúar kl. 19.30
Drottning fiðlukonsertanna
Stjórnadi: Rumon Gamba
Einleikari: Leila Josefowicz
Carl Nielsen: Sinfónía nr. 5
G. Finzi: Romance for strings
Ludwig van Beethoven: Fiðlukonsert
ÁHUGI á leikritaskáldinu Söru Kane hér á landi hefur
aukist til muna eftir frábærar viðtökur verksins Rústað í
leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur. Í kjölfarið hefur
Borgarleikhúsið ákveðið að halda áfram kynningu á
verkum skáldsins en öll önnur verk hennar verða flutt í
sviðsettum leiklestrum á Nýja sviðinu á næstu fjórum
vikum.
Röðin hefst í kvöld á því að annað verk Kane, Ást
Fedru, verður leiklesið. Fjöldi leikara tekur þátt í verk-
efninu en í hverjum leiklestri er einn leikstjóri fenginn til
þess að stýra, en sá fær aðeins viku til undirbúnings.
Röðinni lýkur þann 3. mars þegar verk hennar 4:48 geðtruflun verður leiklesið.
Sara Kane framdi sjálfsmorð aðeins 28 ára að aldri en hún olli straum-
hvörfum í leikritun á stuttum ferli sínum.
Ferill Söru Kane grand-
skoðaður með leiklestrum
Sarah Kane
Lést árið 1999.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111