Morgunblaðið - 10.02.2009, Side 35
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | notadir.brimborg.is
-11%
-12%
pÉãÇì îáð çââìê ìã îÉêð
seljagamla
kaupanýjan
notaðan
kýíí í•âå ìã Ö‹ðá
kýíìã þ~ð ëÉã îáð ÉáÖìã
hçãÇì ∞ _êáãÄçêÖ ∞ Ç~Ö
Fjöldi annarra Ford bíla í boði.
Hringdu núna í síma 515 7000.
Áfram Ísland
pãÉääíì • åçí~ÇáêKÄêáãÄçêÖKáë çÖ îÉäÇì
åçí~ð~å Ä∞ä Ñóêáê þáÖ Ó Ñ~êðì ë∞ð~å • ÄÖëKáë
çÖ ë~ååêÉóåÇì íáäÄçð Ç~ÖëáåëK
hçãÇì ∞ _êáãÄçêÖ ∞ Ç~ÖK
`
çÜå
C
t
çäÑÉ
m
ìÄäáÅ
o
Éä~íáçåë
ðëä~åÇá
sáð Éêìã •
í•åìã ∞ Ç~Ö
Ó Ñóêáê þáÖ
-16%
Ný
r
Ný
r
eða
* Tilboðsverð er nettóverð með afslætti. Á sumum myndum af nýjum Transit í þessari auglýsingu er sýndur aukabúnaður sem ekki er innifalinn í verðinu. Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Brimborgar.
-14%
No
taðu
r
Ford Transit 300M Sendibíll
2,0TDCi 85 hö dísil beinskiptur
Hleðslurými 9,07 m3, 6 dyra
Fast númer PN789
Skrd. 09/2005. Ek. 91.300 km.
Ásett verð með vsk 2.420.000 kr.
Afsláttur með vsk 330.000 kr.
Tilboðsverð með vsk 2.090.000 kr.
Tilboðsverð án vsk 1.678.714 kr.*
-13%
No
taðu
r
Ford Transit 220L Sendibíll
1,8TDCi 75 hö dísil beinskiptur
Hleðslurými 4,4 m3, 6 dyra
Fast númer AY495
Skrd. 06/2005. Ek. 57.800 km.
Ásett verð með vsk 1.890.000 kr.
Afsláttur með vsk 240.000 kr.
Tilboðsverð með vsk 1.650.000 kr.
Tilboðsverð án vsk 1.325.301 kr.*
-10%
No
taðu
r
Ford Transit 300M DC Pallbíll
2,0TDCi 85 hö dísil beinskiptur
Lengd álpalls 2,54 m, 4 dyra, 6 manna
Fast númer RL692
Skrd. 10/2004. Ek. 56.900 km.
Ásett verð með vsk 2.390.000 kr.
Afsláttur með vsk 240.000 kr.
Tilboðsverð með vsk 2.150.000 kr.
Tilboðsverð án vsk 1.726.907 kr.*
Ford Transit 280S Sendibíll
2,2TDCi 85 hö dísil beinskiptur
Hleðslurými 6,55 m3, 6 dyra
Ásett verð með vsk 4.475.000 kr.
Afsláttur með vsk 495.000 kr.
Tilboðsverð með vsk 3.980.000 kr.
Tilboðsverð án vsk 3.196.787 kr.*
pÉãÇì îáð
çââìê ìã
Öçíí îÉêð
Ford Transit 220S Sendibíll
1,8TDCi 75 hö dísil beinskiptur
Hleðslurými 3,4 m3, 6 dyra, þaklúga
Ásett verð með vsk 3.155.000 kr.
Afsláttur með vsk 379.000 kr.
Tilboðsverð með vsk 2.776.000 kr.
Tilboðsverð án vsk 2.229.718 kr.*
NýrFord Transit 220L Sendibíll
1,8TDCi 75 hö dísil beinskiptur
Hleðslurými 4,4 m3, 6 dyra
Ásett verð með vsk 3.567.000 kr.
Afsláttur með vsk 577.000 kr.
Tilboðsverð með vsk 2.990.000 kr.
Tilboðsverð án vsk 2.401.606 kr.*
www.ford.is
Menning 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2009
FRAMLEIÐSLA kvikmyndar breska leikstjórans Ridley Scott um Hróa Hött
er í lausu lofti. Ástæðan er sú að stöðugar seinkanir á tökum hafa valdið því að
leikkonan Sienna Miller hefur hætt við leika í myndinni. Miller sem átti að fara
með hlutverk Marian, er á Hróa hjarta, gat ekki staðið við skuldbindingar sín-
ar þar sem hún átti að hefja vinnu að annarri kvikmynd. Nú er talað um að
ástralska leikkonan Cate Blanchett verði fengin í hlutverkið, en hún hlýtur nú
að teljast öllu vænlegri kostur en Miller enda margverðlaunuð fyrir leik
sinn.
Margar ástæður eru fyrir seinkununum en þær má rekja til vand-
ræða við handritsgerð, óheppilegs veðurfars og óákveðni í ráðningu í
aukahlutverk. Framleiðslan er þó ekki talin í hættu enn og áætlað er
að hefja tökur seinna á þessu ári.
Myndin mun heita Nottingham og vera öllu dekkri útgáfa af sög-
unni um Hróa Hött en sést hefur á hvíta tjaldinu til þessa. Ekkert í
líkingu við myndina þar sem Kevin Costner fór í sokkabuxurnar.
Ástralinn Russell Crowe mun fara með hlutverk Hróa en einnig
hafa þau Mark Strong, William Hurt og Vanessa Redgrave verið
orðuð við myndina.
Cate Blanchett Getur hún
hugsanlega bjargað Hróa hetti?
Er Hrói út í hött?
LESARINN – The Reader er
byggð á Der Vorleser, vinsælustu
skáldsögu Þjóðverjans Bernhards
Schlink. Hann fæddist undir lok
seinna stríðs og fjallar Lesarinn
ekki síst um gjána á milli kynslóð-
anna sem alast upp eftir stríð og þá
sem tóku þátt í hernaðarátökunum,
þar sem Helförin og Dauðagangan
illræmda koma mikið við sögu.
Myndin hefst um miðjan 10. ára-
tuginn, lögmaðurinn Michael Berg
(Fiennes) er að kveðja hjásvæfu
sína, framkoma hans ber vott um
andlega vanlíðan. Einhver óham-
ingja nagar sálu mannsins og hún
útskýrist í afturhvörfum til loka 6.
áratugarins, þegar Berg (Kross), þá
15 ára nemandi, veikist á leið úr
skóla og er hjúkrað af ókunnum
vegfaranda, Hönnu Schmitz (Wins-
let). Hún fer með piltinn heim til
sín, upp úr þeim fundi hefst heitt og
ástríðuþrungið samband á milli
Bergs og hinnar hálffertugu
Hönnu. Berg kemst fljótlega að því
að hún hefur einstaka unun af því
að láta lesa fyrir sig og eftir að
Berg missir sveindóminn í dyngju
Hönnu elskast þau heilt sumar og
hann les henni sínar uppáhalds-
bókmenntir.
Einn daginn er Hanna horfin og
Berg situr eftir í sárum. Síðan vík-
ur sögunni fram á 7. áratuginn,
Berg stundar laganám undir hand-
leiðslu prófessors Rohls, sem lætur
nemendur sína fylgjast með rétt-
arhöldum yfir stríðsglæpamönnum,
konum sem störfuðu við gæslu gyð-
inga í Auschwitz. Sér til skelfingar
sér Berg Hönnu á meðal hinna
grunuðu, hann kemst einnig að hinu
mikla leyndarmáli hennar, Hanna
er ólæs og óskrifandi. Í ljósi þess
gæti hann komið henni til hjálpar í
vörninni, en guggnar á því.
Sjálfsagt kemur skömmin við
sögu, laganeminn vill ekki ljóstra
upp leyndarmálinu sem þau áttu
saman þegar Berg var nánast ferm-
ingardrengur en ástkona hans að
klífa miðjan fertugsaldurinn. Sú er
þó ekki meginástæðan fyrir þögn
Bergs, heldur öllu frekar sektin
sem eftirstríðskynslóðirnar máttu
burðast með, arfur ódæðisverka
Þriðja ríkisins. Hanna blygðast sín
fyrir að kunna hvorki að lesa né
skrifa, Berg bíður þess og vonar að
hún iðrist gjörða sinna. Gjáin lokast
ekki auðveldlega og Berg reynir að
breiða yfir sárin með því að lesa
uppáhaldssögurnar hennar Hönnu
inn á segulband sem styttir henni
stundirnar í langri fangavist og
hjálpar henni að læra að lesa og
skrifa.
Sviðsmyndirnar og búningarnir
líta óaðfinnanlega út, Lesarinn
spannar nokkra áratugi á of-
anverðri síðustu öld, frá grámyglu
Þýskalands eftirstríðsáranna til
Þýskalands samtímans eftir efna-
hagsundrið. Kvikmyndatakan er í
færum höndum tveggja af virtustu
tökustjórum samtímans, Rogers
Deakins og Chris Menges, umbúð-
irnar eru sterkari en brothætt inni-
haldið. Daldry hefur m.a. gert tvær
eftirminnilegar myndir, Billy Elliot
(’00) og The Hours (’02), og nær að
skapa þrúgandi andrúmsloft þjóð-
félags sakborninga. Lesarinn er
döpur mynd, eins og efni standa til,
vansæld og ráðaleysi Fiennes smit-
ar út til áhorfenda. Sambandið á
milli Bergs og Hönnu er óvenjulegt,
ekki aðeins sökum aldursmunarins
heldur enn frekar vegna þess
illbrúanlega bils sem aðskilur kyn-
slóðirnar. Winslet sýnir að hún get-
ur tekist á við hlutverk gjörólík
þeim sem hún er þekktust fyrir.
Hún er jafn trúverðug sem hrífandi
kona í blóma lífsins í syndsamlegu
sambandi við piltunginn Berg og
Hanna Schmitz stríðsglæpamaður,
grá og guggin eftir 20 ára fangels-
isvist. Kross er einkar trúverðugur
sem hinn ungi og saklausi Berg og
ekkert síðri þegar hann sér heim-
inn hrynja í réttarsalnum, í fylgd
með prófessornum, sem stórleik-
arinn Ganz gerir að sannfærandi
tengli á milli hrjáðra kynslóða sak-
bitinnar þjóðar. Snilldarleg inn-
koma Olin í hlutverki fórnarlambs
Helfararinnar minnir okkur á sam-
sektina sem grúfði yfir og gerir
sjálfsagt enn.
Kostuleg Kate Winslet fer á kostum í þessari kvikmynd enda bæði búin að
fá Golden Globe og Bafta verðlaunin fyrir leik sinn í The Reader.
Þjóð í sálarkreppu
Háskólabíó
The Reader
bbbmn
Leikstjóri: Stephen Daldry. Aðalleikarar:
Kate Winslet, Ralph Fiennes, David
Kross, Lena Olin, Bruno Ganz. 106 mín.
Bandaríkin/Þýskaland. 2008.
SÆBJÖRN
VALDIMARSSON
KVIKMYND
STRÍÐSGLÆPIR Hönnu Schmitz
tengjast bæði þjónustu hennar
sem vörður í Auschwitz-
útrýmingarbúðum nasista í Pól-
landi og enn frekar þátttöku
hennar í hinni illræmdu Dauða-
göngu, sem átti sér stað þegar
herir bandamanna nálguðust
útrýmingarbúðirnar í Póllandi
og víðar. Þá gripu nasistar til
þess úrræðis að reka nauð-
stadda fangana úr búðunum um
langan veg á óhultari svæði inni
í Þýskalandi, fjarri vígstöðv-
unum. Þessi tilraun til að fela
ódæðisverkin og skömmina var
hroðaleg raunaganga sem hófst
haustið 1944 og stóð fram und-
ir stríðslok 4́5. Gönguleiðin var
mörkuð líkum, mestmegnis
gyðinga, sem hungraðir og
klæðlitlir hrundu niður á göng-
unni. Og er einn af mörgum
smánarblettum Þriðja ríkisins.
Dauðagangan
frá Auschwitz