Morgunblaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 41. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Lífeyrisgreiðslur skerðast
Líklegt er, að lífeyrisgreiðslur
margra sjóða verði skertar á þessu
ári enda hafa eignir þeirra rýrnað
umtalsvert. Á það einkum við um
sjóði á almennum vinnumarkaði en
trúlega verður skerðingin engin hjá
Lífeyrissjóði opinberra starfsmanna
og sjóðum sveitarfélaganna. Hafa
forsvarsmenn lífeyrissjóðanna átt
viðræður við stjórnvöld um uppgjör
vegna framvirkra gengissamninga
við gömlu bankana en þau mál eru
enn í skoðun. »Forsíða
Ákvæði um uppljóstrara
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur
saksóknari, kynnti í gær starfsemi
embættisins og starfsmenn þess.
Eru þeir fjórir í fullu starfi og einn í
hlutastarfi. Það er nýlunda, að nú
má hlífa svokölluðum uppljóstrara
við ákæru, þótt sekur sé, að upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum. »4
Frysti 55 milljónir evra
Þýski bankinn DZ bank AG hefur
fryst 55 millj. evra af fjármunum
Kaupþings í bankanum og er það
eitt með öðru, sem stendur í vegi
fyrir uppgjöri við viðskiptavini
Edge-útibús Kaupþings. »14
SKOÐANIR»
Staksteinar: Sjálfstæði bankastjóra
Forystugreinar: Norrænar varnir? |
Til hamingju, Pacifica!
Ljósvakinn: Stephen King á
Mýrdalssandi
Pistill: Arnsúgur þjóðarandans
UMRÆÐAN»
Jón Baldvin, EES og bankahrunið
Íslenska hagkerfið í endurreisn
Hver ber ábyrgðina ef illa fer?
Steingrímur J. og stóryrðin um IMF
4'5"('
/
!
",
!
67889:;
(<=:8;>?(@A>6
B9>96967889:;
6C>(B"B:D>9
>7:(B"B:D>9
(E>(B"B:D>9
(3;((>$"F:9>B;
G9@9>(B<"G=>
(6:
=3:9
.=H98?=>?;-3;H(B;@<937?"I:C>?
&J&
&J J
J &J&
%J ?'!
!! ""&$"'/
"&
J&
& &J J J & %J J&
&J&%&
.B
2 (
& &J
J%
J&
& Heitast -1° C | Kaldast -9° C
Fremur hæg, norð-
læg átt. Víða létt-
skýjað en skýjað að
mestu norðan- og aust-
anlands og él. » 10
Karlakórinn Fjalla-
bræður þakkar
Færeyingum fyrir
sig með því að semja
lag um smáþjóðina
vingjarnlegu. »32
TÓNLIST»
Sungið með
pungnum
FÓLK»
Stjörnurnar mættu á
Bafta-verðlaunin. »33
Sæbjörn Valdimars-
son gefur kvikmynd-
inni The Reader
þrjár og hálfa
stjörnu af fimm
mögulegum. »35
TÓNLIST»
Winslet er
mögnuð
TÓNLIST»
Plant og Krauss sigursæl
á Grammy. »31
TÓNLIST»
Sólstafir ætla að flytjast
til London. »30
Menning
VEÐUR»
1. Íslendingar „nýju Pólverjarnir“
2. Sigurður Helgason látinn
3. Fljúgandi furðuhlutur yfir Obama
4. Gleymdist í bílskúr í hálfa öld
Íslenska krónan styrktist um 0,26%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
VEÐURBLÍÐAN á landinu undanfarna daga
hefur verið með eindæmum. Eitthvað hefur
dregið úr frostinu en eftir sem áður hefur ver-
ið bjart. Því hefur viðrað vel til að fara út að
ganga, líkt og þessar ungu konur gerðu í of-
anverðum Elliðaárdal um helgina. Samkvæmt
spá Veðurstofunnar viðrar ágætlega í dag og á
morgun en á fimmtudag er spáð suðaust-
anvindi með snjókomu og slyddu.
Hressandi ganga í vetrarblíðunni
Morgunblaðið/Heiddi
KONUM líður
verr en körlum í
krabbameins-
meðferð. Þær
finna frekar fyr-
ir þunglyndi,
kvíða og al-
mennri lík-
amlegri og and-
legri vanlíðan.
„Ég hef sinnt
mikið krabba-
meinssjúku fólki og hef ekki fundið
fyrir þessum mun,“ segir Elísabet
Hjörleifsdóttir um niðurstöðu dokt-
orsrannsóknar sinnar. „Karlmenn
sýna alveg eins tilfinningar sínar.“
Því komi niðurstaðan á óvart. | 16
Konum líður
verr en körlum
Elísabet
Hjörleifsdóttir
FIÐLULEIKARINN Sigurbjörn
Bernharðsson fékk á sunnudag
Grammy-verðlaun sem liðsmaður
kammersveitarinnar Pacifica. Þau
voru veitt fyrir besta flutning
kammertónlistar á plötu.
Verðlaunaplatan geymir
strengjakvartetta nr. 1 og 5 eftir
tónskáldið Elliot Carter er fagnaði
aldarafmæli fyrr í vetur. | 28
Íslendingur
fær Grammy
MINNI losun á sorpi er einn af fylgi-
fiskum kreppunnar. Á þetta ekki
hvað síst við um fyrirtæki, en þó einn-
ig almenning, samkvæmt upplýs-
ingum frá bæði Gámaþjónustunni og
Sorpu. Eru heildartölur um losun
sveitarfélaganna á sorpi þannig um
15-17% lægri í janúar í ár en þær
voru á sama tíma í fyrra.
„Við sjáum þetta nokkuð glöggt í
fyrirtækjaúrganginum, sem er um
60% af því sem við tökum við,“ segir
Ragna Ingibjörg Halldórsdóttir,
deildarstjóri markaðs- og fræðslu-
sviðs hjá Sorpu. Hún segir vissulega
hafa dregið úr byggingaúrgangi, en
einnig pakkningum og öðrum umbúð-
um sem fylgi verslunarrekstri.
„Við verðum varir við samdrátt
bæði í heimilis- og byggingaúrgangi,“
segir Sveinn Hannesson, fram-
kvæmdastjóri Gámaþjónustunnar.
Samdrátturinn sé vissulega meiri er
kemur að rusli frá byggingariðn-
aðinum, en þó sé hann líka áberandi
hjá heimilunum. „Dagblöðum hefur
til dæmis fækkað og þau sem eftir
eru á markaðinum eru áberandi
þynnri. Þetta verðum við varir við í
endurvinnslutunnum okkar.“
Hann segir þá hjá Gámaþjónust-
unni hafa verið farna að íhuga að losa
tunnurnar oftar áður en kreppan
skall á, en nú sé þess engin þörf.
Hjá Sorpu verða menn ekki jafn-
mikið varir við að heimilisúrgang-
urinn hafi minnkað. Samdráttar verði
engu að síður vart bæði á endur-
vinnslustöðvunum og í móttökustöð-
inni, auk þess sem hreyfing í þessa
átt eigi sér einnig stað í Góða hirð-
inum. „Það var lítill munur fyrst í
stað, en nú er þetta aðeins að byrja,“
segir Ragna Ingibjörg.
annaei@mbl.is
Minna um sorp
Úrgangur fyrirtækja og heimila minnkar í kreppunni
Samdrátturinn líka farinn að ná til Góða hirðisins
Morgunblaðið/Frikki
Samdráttur Minna er um umbúðir
og annan úrgang í kreppunni.
Í HNOTSKURN
»Sorpúrgangur hefur dreg-ist saman um 15-17% frá
sama tíma í fyrra og er áber-
andi minna um sorp frá fyr-
irtækjum.
»Það er þó ekki bara sorp-úrgangurinn sem hefur
minnkað því markaðurinn fyr-
ir endurvinnsluefni hefur
einnig dregist mjög saman. Að
sögn Sveins á það jafnt við um
ál, stál, pappa og olíu. „Í sum-
ar fengum við um 100 evrur
fyrir tonnið af pappa, núna
fáum við kannski tíu evrur
fyrir sama magn.“