Morgunblaðið - 27.02.2009, Qupperneq 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2009
„ÉG veit ekki hvað tekur við að lokinni þingmennsku. Það
er ekkert fast í hendi þannig að nú verð ég að fara að líta í
kringum mig,“ sagði Árni M. Mathiesen, oddviti Sjálf-
stæðisflokksins í Suðurkjördæmi og fyrrverandi fjár-
málaráðherra við mbl.is í gær. Árni gefur ekki kost á sér í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.
Árni sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hann sagði að á
ferðum hans um kjördæmið að undanförnu hefði berlega
komið í ljós að mikill vilji væri til breytinga innan Sjálf-
stæðisflokksins. „Þessi afstaða er vel skiljanleg í ljósi
þeirra erfiðleika sem þjóðin hefur gengið í gegnum á síð-
ustu mánuðum og misserum. Þó ég sé allur af vilja gerður til þess að bregð-
ast við þessu kalli um breytingar má ljóst vera að því eru takmörk sett hvað
ég get gert í þeim efnum af augljósum ástæðum. Ég hef því ákveðið að gefa
ekki kost á mér í prófkjöri flokksins hinn 14. mars næstkomandi vegna kosn-
inganna 25. apríl í vor. Það er hlutverk leiðtoga að leiða en það er líka nauð-
synlegt fyrir leiðtoga að vita hvenær á að víkja.“
„Nauðsynlegt fyrir leiðtoga að
vita hvenær á að víkja“
Árni M. Mathiesen
Árni M. Mathiesen gefur ekki kost á sér í prófkjöri
JÓHANNES Nordal, fyrrverandi seðlabankastjóri, segir
í umsögn sem hann veitti viðskiptanefnd í byrjun vik-
unnar vegna Seðlabankafrumvarpsins, að upphafleg laga-
setning um Seðlabankann og allar veigamiklar breytingar
síðan hafi verið rækilega undirbúnar og um þær ætíð
náðst þverpólitísk samstaða á þingi. Hvatti hann nefndina
til að vanda sem best til verksins. „Mér virðist sérstaklega
mikilvægt að fá umsögn Seðlabanka Evrópu, sem mér
skilst að hafi verið í boði [...],“ segir m.a. í umsögn hans.
„Ekki fer á milli mála að frumvarpið er í upphafi mjög
af vanefnum gert og er þakkarvert að meirihlutinn hefur
þegar lagt fram breytingartillögur sem bæta nokkuð úr alvarlegustu van-
köntum þess,“ segir hann einnig. Þá segir Jóhannes margt mæla með að að-
stoðarbankastjórarnir verði tveir. „Skilgreining á valdsviði peningastefnu-
nefndar virðist mér einnig þurfi að vera skýrari en felst í frumvarpinu og
breytingartillögum meirihluta viðskiptanefndar, ella getur skapast óvissa
um gildi einstakra ákvarðana bankans.“
Ætíð náðst þverpólitísk
samstaða um breytingar
Jóhannes Nordal
Jóhannes Nordal gerði ýmsar athugasemdir
VIÐ blasir að tugir þúsunda náms-
manna fái ekki sumarvinnu þegar
skólum lýkur í vor vegna ástandsins í
atvinnulífinu. Katrín Jakobsdóttir
menntamálaráðherra átti fund sl.
miðvikudag með fulltrúum fram-
haldsskólanemenda sem lýstu mikl-
um áhyggjum af sumarstörfum.
Hún sagði að sá möguleiki væri til
skoðunar að auka námsframboð í
sumar, svo námsmenn gætu nýtt
tímann fengju þeir ekki vinnu.
Birkir Jón Jónsson, þingmaður
Framsóknarflokksins, spurði
menntamálaráðherra á Alþingi í
gær, hvernig hún ætlaði að bregðast
við því að næstkomandi vor mundu
40 þúsund námsmenn koma út á
vinnumarkaðinn úr framhalds- og
háskólum landsins. Sagði Birkir Jón
að alvarleg staða blasti við á vinnu-
markaði á sama tíma og hugsanlega
væru fyrir 20 þúsund manns á at-
vinnuleysisskrá. Birkir Jón spurði
hvort til stæði að auka verulega
námsframboð svo að ungt fólk þyrfti
ekki að ganga atvinnulaust um göt-
urnar í sumar.
Katrín greindi frá því að vinnu-
hópur ráðuneyta fjallaði um hvaða
úrræði væru fyrir hendi vegna sum-
arstarfa námsmanna. Annar fjallaði
um samspil LÍN og vinnumarkaðar-
ins. Hún benti einnig á að fram-
færslugrunnur LÍN miðast við að
námsmenn hafi eina milljón í sjálfs-
aflafé, sem þeir afli sér með sum-
artekjum og vinnu með námi.
Mikil óvissa um sumar-
störf tugþúsunda nema
Morgunblaðið/G.Rúnar
Dökkt útlit Verða einhver sum-
arstörf í boði fyrir skólafólk?
Aukið námsfram-
boð yfir sumartím-
ann til skoðunar
KRISTINN H. Gunnarsson hefur
sagt sig bæði úr Frjálslynda flokkn-
um og þingflokki frjálslyndra. Þetta
kom fram í upphafi þingfundar í gær
þegar lesið var upp bréf frá Kristni.
Hann sagði í samtali að hann væri að
íhuga áframhaldandi þátttöku í
stjórnmálum. „Mér fannst vera orðið
fullreynt, að mér tækist að ná fram
breytingum á flokknum, bæði
áherslum og í forustusveit,“ sagði
Kristinn. Hann segir að trúnaðar-
brestur hafi orðið milli hans og for-
ustu flokksins á síðasta ári í
tengslum við komu palestínsku
flóttamannanna til Akraness. „Þessi
trúnaðarbrestur hefur dregið á eftir
sér langan slóða af öðrum málum.“
Kristinn sagðist ekki vera búinn
að gera endanlega upp við sig hvað
hann gerir varðandi framboðsmál í
vor. Þessa ákvörðun hafi borið brátt
að. „Ég er að hugsa það núna að
halda áfram í stjórnmálum og reikna
með að vinna það hratt.“
„Það mun að sjálfsögðu koma
maður í manns stað,“ sagði Guðjón
A. Kristjánsson, formaður flokksins,
um ákvörðun Kristins. „Ég óska
honum velfarnaðar, þangað sem
hann fer.“ Sagði hann ljóst að mikil
endurnýjun yrði í flokknum.
Fullreynt að ná
fram breytingum
Kristinn H.
Gunnarsson
Guðjón Arnar
Kristjánsson
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
EFTIR miklar umræður og deilur
var frumvarpið um Seðlabanka Ís-
lands samþykkt sem lög frá Alþingi
síðdegis í gær með 33 atkvæðum
gegn 18 atkvæðum þingmanna
Sjálfstæðisflokksins. Einnig var
samþykkt breytingartillaga meiri-
hluta viðskiptanefndar um að pen-
ingastefnunefnd bankans skuli þeg-
ar tilefni er til gefa opinberlega út
viðvaranir, ef hún metur það svo að
alvarleg hættumerki séu til staðar
sem ógna fjármálakerfinu. Felld
var breytingartillaga fulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins um að forsætisráð-
herra skuli leita staðfestingar Al-
þingis á skipan seðlabankastjóra og
aðstoðarbankastjóra til bráðabirgða
þar til embættin hafa verið auglýst.
„Landlæg spilling og vantrú“
Álfheiður Ingadóttir, VG og for-
maður viðskiptanefndar, sagði til-
lögu sjálfstæðismanna mjög ómál-
efnalega. Búið hefði verið til mjög
vandað regluverk um hvernig skipa
ætti í stöðurnar. Til þessa hafi for-
sætisráðherra skipað í stöðurnar
einhendis, „og landlæg spilling og
vantrú á skipan í embættis-
mannakerfinu íslenska, hefur orðið
til þess að í þessu frumvarpi sem
hér liggur fyrir er gerð tillaga um
allt annað verklag“.
Lokaumræðan um frumvarpið
stóð yfir í allan gærdag. Höskuldur
Þórhallsson, þingmaður Framsókn-
arflokksins, var mjög gagnrýninn í
ræðu sinni og sagði þjóðina hafa
mátt þola illdeilur tveggja fylkinga,
sem hafi barist um völdin í landinu.
„Ég held að almenningur sé búinn
að fá nóg af þessum illdeilum. Ég
segi hingað og ekki lengra. Ég tek
ekki þátt í þessum skrípaleik,“
sagði hann og bætti við að Alþingi
ætti að berjast fyrir því að mál
væru unnin faglega frá upphafi til
enda.
Sakar forseta Alþingis
um misbeitingu valds
Sagði hann að Alþingi hefði beðið
mikinn hnekki þegar forseti Alþing-
is ákvað að fresta þingfundi vegna
deilna um afgreiðslu frumvarpsins í
viðskiptanefnd sl. mánudag. „Þetta
er einhver grófasta misbeiting á
valdi í sögu íslenska lýðveldisins,“
sagði hann.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins
gagnrýndu frumvarpið harðlega,
ekki síst breytingartillögu meiri-
hluta viðskiptanefndar um hlutverk
peningastefnunefndar. Birgir Ár-
mannsson sagði að nefndinni væri
falið algerlega nýtt hlutverk. Sjálf-
stæðismenn teldu hana fullkomlega
vanhugsaða, enginn gerði sér eng-
inn grein fyrir því hvaða áhrif hún
gæti haft. „Við höfum áhyggjur af
því að hún geti verið stórskaðleg,“
sagði hann. Guðjón A. Kristjánsson,
formaður Frjálslynda flokksins
sagðist styðja málið heilshugar.
Össur Skarphéðinsson iðn-
aðarráðherra sagði sjálfstæðismenn
liggja í samfelldri vörn fyrir þann
mann sem mestu réði í Sjálfstæð-
isflokknum, þ.e. Davíð Oddsson.
Vandað eða vanhugsað?
Ný Seðlabankalög samþykkt 33/18 Sjálfstæðismenn segja viðvörunarhlutverk
peningastefnunefndar stórhættulegt Nýtt og betra verklag, segja stjórnarliðar
Morgunblaðið/Heiddi
Tekist á „Kannski eiga þessar illdeilur stóran þátt í þeim vanda, sem þjóðin
glímir við í dag,“ sagði Höskuldur Þórhallsson, sem var í eldlínunni í gær.
Í HNOTSKURN
»Frumvarpið um Seðla-bankann var lagt fram á
þinginu 4. febrúar.
»Verulegar breytingarvoru gerðar á frumvarp-
inu við umfjöllun þingsins.
»Forysta ríkisstjórnarinnarvildi að lokaumræða færi
fram sl. mánudag en meiri-
hluti viðskiptanefndar ákvað
að bíða skýrslu ESB.
»Umræðu um frumvarpiðvar frestað nokkrum sinn-
um og engin þingmál fengust
rædd sl. mánudag vegna
deilna um afgreiðslu málsins.
»Meirihluti viðskipta-nefndar samþykkti svo
frumvarpið með breytingu á
fundi í fyrrakvöld.
»Lokaumræða hófst fyrirhádegi í gær og lauk síð-
degis með samþykkt laganna.
Orðrétt
á Alþingi
’„Nú hefur þessi hreyfing ogmeirihluti almennings náð þvífram, að það hefur verið boðað tilkosninga, ríkisstjórnin fór frá og önnurhefur tekið við til bráðabirgða, það
hefur verið hreinsað til í Fjármálaeft-
irlitinu og hér er verið að samþykkja
að hreinsa til í Seðlabankanum.“
MÖRÐUR ÁRNASON
’„Ég held, virðulegi forseti, að þaðhefði verið afar gott að ákvæði afþessum toga hefði verið til staðar íþeim hremmingum sem við höfumverið að ganga í gegnum.“
LÚÐVÍK BERGVINSSON
’„Ef peningastefnunefnd á að til-kynna opinberlega þegar tilefni ertil um alvarleg hættumerki, getur húnalveg eins sagt: ég ætla að stúta kerf-inu.“
PÉTUR BLÖNDAL
’„Mér er það gjörsamlega hulinráðgáta að meirihluti viðskipta-nefndar skuli ekki hafa áttað sig áhvað er um hættulega tillögu hér aðræða.“
JÓN MAGNÚSSON
’„Síðast en ekki síst, þá hefur hérverið samþykkt breytingartillaga,sem að okkar mati getur verið stór-skaðleg, er einsdæmi í löggjöf umseðlabanka í heiminum […]
BIRGIR ÁRMANNSSON
’„Fyrir þá sem sitja hér uppi ááhorfendabekkjunum og líta yfirráðherrabekkina, þá sjá þeir að það ereinn ráðherra viðstaddur, sem er ótrú-legt.“
SIGURÐUR KÁRI KRISTJÁNSSON.
’„Það er miður að Sjálfstæð-isflokkurinn skuli ekki treysta sértil þess að stíga skrefið til fulls viðþessa lokaafgreiðslu.“ÁLFHEIÐUR INGADÓTTIR
LAUSN Icesave-deilunnar, með að-
stoð alþjóðasamfélagsins og þeirra
ríkja sem næst okkur standa, er ein
af forsendum endurreisnar íslensks
efnahagslífs. Þetta segir í svari ut-
anríkisráðherra við fyrirspurn Sivj-
ar Friðleifsdóttur, Framsókn-
arflokki. „ESB-ríkin hafa mjög
skýra afstöðu til þess hverjar skyld-
ur Íslands eru í máli þessu og hafa
skoðanir verið látnar í ljós um að Ís-
land sé að virða að vettugi skyldur
sínar á innri markaði sambandsins.
Það gæti valdið uppnámi á EES-
samningnum,“ segir í svarinu.
Gæti valdið
uppnámi