Morgunblaðið - 27.02.2009, Síða 13
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2009
Samfylking og Vinstri hreyfingin grænt framboð hafa komið sér
saman um að Alþingiskosningar fari fram laugardaginn 25. apríl
næstkomandi. Morgunblaðið mun daglega birta fréttir sem tengjast
framboðum, prófkjörum, kosningafundum o.fl. .
Alþingiskosningar 2009
HELGA Sigrún Harðardóttir, alþingismaður, hefur
ákveðið að bjóða sig fram í Suðvesturkjördæmi og sækist
eftir 1. sætinu þar. Helga Sigrún var í 3. sæti á lista
Framsóknarflokks í Suðurkjördæmi í síðustu kosningum
og varð þingmaður eftir að Bjarni Harðarson sagði af
sér. Með því að færa sig yfir í Suðvesturkjördæmi býður
hún sig fram gegn Siv Friðleifsdóttur sem leitt hefur
lista flokksins í því kjördæmi um árabil og gefur áfram
kost á sér. Helga Sigrún er kennari og náms- og starfs-
ráðgjafi að mennt, með mastersgráðu í mannauðs- og
samskiptastjórnun
Helga Sigrún sækist eftir 1. sæti
Helga Sigrún
Harðardóttir
ÓLI Björn Kárason
gefur kost á sér í 4.
sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokks-
ins í SV-kjördæmi.
Óli Björn var
blaðamaður á
Morgunblaðinu og
stundaði nám í
hagfræði í Banda-
ríkjunum. Hann
var ritstjóri Viðskiptablaðsins
1994-1999 og síðar ritstjóri DV.
Hann er ritstjóri vefjarins AMX.
Óli Björn gefur kost
á sér í 4. sæti
Óli Björn
Kárason
MAGNÚS Orri
Schram gefur kost
á sér í 3.-4. sæti í
prófkjöri Samfylk-
ingarinnar í SV-
kjördæmi.
Magnús er með
BA-próf í sagn-
fræði frá Háskóla
Íslands og meist-
aragráðu í við-
skiptum og stjórnun frá HR. Vef-
síða hans er www.magnusorri.is
Magnús Orri sæk-
ist eftir 4.-5. sæti
Magnús Orri
Schram
BJÖRN Ingimars-
son gefur kost á sér
í 3. sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokks-
ins í NA-kjördæmi.
Björn er sveit-
arstjóri Langanes-
byggðar og þar áð-
ur var hann
sveitarstjóri Þórs-
hafnarhrepps.
Hann er hagfræðingur og hefur
sinnt ýmsum trúnaðarstörfum á
vettvangi sveitarstjórnarmála.
Björn Ingimarsson
sækist eftir 3. sæti
Björn
Ingimarsson
RÓBERT Marshall, varaþingmaður og aðstoðarmaður
samgönguráðherra, gefur kost á sér í 2.-3. sæti í prófkjöri
Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Róbert var í þriðja
sæti flokksins, baráttusætinu, í kjördæminu í síðustu kosn-
ingum, en þá vantaði bara 56 atkvæði á að hann næði kjöri.
Róbert er fyrrverandi blaða- og fréttamaður. Hann
leggur áherslu á áframhaldandi samgöngubætur, breyt-
ingar á kvótakerfinu, upptöku evru og aðild að Evrópu-
sambandinu. Hann telur öflugt atvinnulíf og sköpun nýrra
starfa vera bestu leiðina til að verja velferðina og fjöl-
skyldurnar í landinu. Heimasíða hans er www.marshall.is.
Róbert Marshall sækist eftir 2.-3. sæti
Róbert
Marshall
SIGMAR J. Eð-
varðsson, oddviti
sjálfstæðismanna í
Grindavík, gefur
kost á sér í 4.-5.
sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokks-
ins í Suður-
kjördæmi.
Sigmar er með
meistarapróf í vél-
virkjun auk þess að hafa stundað
nám í rekstrar- og viðskiptafræði.
Sigmar gefur kost
á sér í 4.-5. sæti
Sigmar J.
Eðvarðsson
VALDIMAR Sig-
urjónsson hefur
ákveðið að sækjast
eftir 1. eða 2. sæti á
lista Framsókn-
arflokksins í NV-
kjördæmi. Valdi-
mar er við-
skiptalögfræðingur
frá Háskólanum á
Bifröst. Fyrir síð-
ustu kosningar skipaði hann 3. sæti
á lista flokksins í kjördæminu.
Valdimar stefnir á 1.
eða 2. sætið
Valdimar
Sigurjónsson
GUÐBJÖRN Guð-
björnsson gefur
kost á sér í 3. sæti í
prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins í Suður-
kjördæmi.
Guðbjörn er með
próf í opinberri
stjórnsýslu auk
þess að hafa lokið
prófi í óperusöng.
Hann hefur starfað m.a. sem óp-
erusöngvari og lögreglumaður, en
er nú yfirtollvörður.
Guðbjörn stefnir á
3. sætið
Guðbjörn
Guðbjörnsson
Karl Steinar Ósk-
arsson gefur kost á
sér í 4. -5. sæti í for-
vali VG í SV-
kjördæmi. Karl er
fæddur og uppalinn
á Suðureyri. Hann
er með B.Sc. gráðu
í eldisfræði frá Há-
skólanum í Sogndal
í Noregi. Hann hef-
ur lengstum starfað í sjávarútvegi,
en seinni ár hjá Samskiptum, Norð-
lenska og Ingvari Helgasyni.
Karl stefnir á 4.-5.
sæti í forvali VG
Karl Steinar
Óskarsson
SVALA Jónsdóttir
gefur kost á sér í
3.-5. sæti í prófkjöri
Samfylkingarinnar
í NA-kjördæmi.
Svala er sviðs-
stjóri hjá Jafnrétt-
isstofu og var áður
jafnréttisráðgjafi.
Hún sat í sérfræð-
inganefnd Evrópuráðsins um jafn-
rétti. Hún tók þátt í að stofna Sam-
fylkinguna.
Svala gefur kost
á sér í 3.-5. sæti
Svala Jónsdóttir
ARNÓR Karlsson,
fyrrum bóndi á
Bóli, síðar Arn-
arholti, í Bisk-
upstungum, lést á
Landspítalanum í
Fossvogi miðviku-
daginn 25. febrúar,
73 ára að aldri.
Arnór var fæddur í
Efstadal í Laug-
ardal 9. júlí árið
1935 og lauk stúd-
entsprófi frá
Menntaskólanum að
Laugarvatni 1958.
Tveimur árum síðar
hóf hann búskap á Bóli í Bisk-
upstungum og bjó þar og síðar í
Arnarholti í sömu sveit til 2003.
Jafnframt stundaði
hann kennslu í ýmsum
skólum í nágrenninu,
lengst í Skálholtsskóla.
Arnór starfaði mikið að
félagsmálum bænda og
var formaður Lands-
samtaka sauðfjárbænda
1991–1997. Hann
stundaði ritstörf, skrif-
aði ásamt öðrum um
Biskupstungur í byggð-
arlýsinguna Sunn-
lenskar byggðir, lýsti
gönguleiðum á Kili í
ritinu Fótgangandi um
fjallasali og skrifaði um
Kjöl í Árbók Ferðafélags Íslands
2001. Arnór var ókvæntur og barn-
laus.
Andlát
Arnór Karlsson
MÁLSTOFA um íslenska rjúpna-
stofninn verður haldin á Fosshóteli
Lind við Rauðarárstíg á morgun kl.
14.00. Skotveiðifélag Íslands stend-
ur að málstofunni.
Frummælendur verða dr. Ólafur
K. Nielsen, fuglafræðingur hjá
Náttúrufræðistofnun Íslands, sem
fjallar um rjúpnarannsóknir og
veiðiráðgjöf, Karl Skírnisson, dýra-
fræðingur á Keldum, segir frá
sníkjudýrum í rjúpum og Bjarni
Pálsson, deildarstjóri Umhverf-
isstofnunar, spáir í rjúpnaveiðar út
frá veiðiskýrslum. Gunnar Stef-
ánsson, prófessor við Háskóla Ís-
lands, mun tala um stofnlíkan fyrir
rjúpu, Árni Sigurðsson, veðurfræð-
ingur á Veðurstofunni, um veðrið á
veiðitíma rjúpna og Sigmar B.
Hauksson, formaður Skotvís, talar
um veiðitíma á rjúpu.
Málstofa um
rjúpurnar
lögleg tilkynning
Aðilar utan Bandaríkja NorðurAmeríku: Þessi sátt kann að hafa áhrif á þig þar
sem hún tekur til hagsmuna í höfundarrétti að bandarískum bókum sem gefnar
eru út utan Bandaríkjanna. Ef þú átt slíkra hagsmuna að gæta í bók eða öðru efni í
bók, mun þessi sátt binda þig nema þú hafnir henni tímanlega.
Ef þú ert bókarhöfundur, bókaútgefandi eða
annar aðili sem á höfundarrétt að bók eða
öðru rituðu efni,
kann sátt í hópdómsmáli varðandi skönnun/notkun Google á
bókum og öðrum ritverkum að hafa áhrif á réttindi þín.
Höfundar og útgfendur höfðuðu hópdómsmál þar sem
því var haldið fram að Google bryti gegn höfundarrétti
rithöfunda, útgefenda og annarra rétthafa höfundarréttar
(„rétthafar”) með því að skanna bækur og innskot sem
njóta höfundarréttar, og birta útdrætti án heimildar.
Google hafnar þessum kröfum. Aðilar hafa náð
samkomulagi um sátt. Í þessari samantekt eru veittar
almennar upplýsingar um sáttina. Gerð er grein fyrir
hugtökunum „bækur” og „innskot” hér á eftir.
Hvað felur sáttin í sér?
Sáttin, verði hún samþykkt, mun heimila Google að
skanna inn bækur og innskot sem njóta höfundarréttar í
Bandaríkjunumog viðhalda rafrænumbókagagnagrunni.
Sá gagnagrunnur inniheldur bækur sem ekki eru tiltækar
á prenti sem og bækur sem eru tiltækar á prenti, heimili
rétthafar það. Google mun geta selt aðgang að einstökum
bókum og stofnanaáskriftir að gagnagrunninum, setja
auglýsingar á hverja síðu sem tileinkuð er bók og nýta
bækur í öðrum viðskiptalegum tilgangi. Rétthafar geta
hvenær sem er breytt tilmælum til Google að því er
varðar einhverra þessara nota. Í gegnum skrá yfir réttindi
að bókum („skrá”), sem komið verður á fót með sáttinni,
mun Google greiða rétthöfum 63% af öllum tekjum af
þessum notum.
Google mun einnig greiða 34,5 milljónir bandaríkjadala
til að stofna og fjármagna starfsemi skránna í upphafi
og til að greiða kostnað við tilkynningar og stjórnsýslu
að því er varðar sáttina og að minnsta kosti 45 milljónir
bandaríkjadala til að greiða rétthöfum að bókum og
innskotum í reiðufé vegna bóka og innskota sem Google
skannar inn fyrir eindagann sem gefinn er til að hafna
sáttinni.
Til hverra tekur sáttin?
Hópurinn sem sáttin tekur til eru allir aðilar á heimsvísu
semeigahagsmuni íbandarískumhöfundarrétti íeinhverri
bók eða innskoti. Merking hugtaksins „hagsmunir í
bandarískum höfundarrétti” er víðtæk. Hvar sem þú
ert staddur, vinsamlega lestu tilkynninguna í heild til
að ákveða hvort sáttin eigi við þig.
Það eru tveir undirflokkar:
• Undirflokkur „höfunda” (höfundar að bókum og
öðru rituðu efni, og erfingjar þeirra, arftakar og
framsalshafar) og
• Undirflokkur „útgefenda” (útgefendur bóka og
tímarita, og arftakar þeirra og framsalshafar).
Til hvaða efnis tekur sáttin?
Hugtakið „bækur” tekur til ritverka sem njóta
höfundarréttar, svo sem skáldsagna, kennslubóka,
doktorsritgerða og annarra ritverka sem gefin voru út
eða dreift á pappír 5. janúar 2009 eða fyrr. Bandarísk
verk verða að vera skráð hjá Höfundarréttarskrifstofu
Bandaríkjanna til að sáttin taki til þeirra. Hugtakið
„bækur” tekur ekki til tímarita, persónulegra skjala, nótna
og verka sem eru í almenningseigu eða eru verk ríkisins.
Hugtakið „innskot” tekur til sérhvers texta eða
annars efnis, svo sem inngangsorða, ritgerða, ljóða,
tilvitnana, bréfa, söngtexta, myndskreytinga barnabóka,
nótna, korta og línurita, ef þau njóta sjálfstæðrar
höfundarréttarverndar, sem bók, ríkisritverk eða bók í
almenningseigu inniheldur, 5. janúar 2009 eða fyrr og
sé um bandarísk verk að ræða, sem skráð eru (sjálfstætt
eða sem hluti af öðru verki) hjá Höfundarréttarskrifstofu
Bandaríkjanna. Innskot taka ekki til myndræns efnis (að
undanskildum myndskreytingum barnabóka) eða verka
sem eru í almenningseigu eða eru verk ríkisins.
Nánari lýsingu á þessum skilmálum ásamt öðrum
mikilvægum upplýsingum um sáttina er að finna í
tilkynningunni.
Hvað á ég að gera?
Vinsamlega lestu tilkynninguna í heild, en hana er
að finna á http://www.googlebooksettlement.com.
Ákveddu hvort þú ættir að:
• Vera áfram aðili að sáttinni. Nú ákveður þú að
vera áfram aðili að sáttinni og ert þú þá bundinn
af niðurstöðu dómstólsins, sem felur í sér eftirgjöf
krafna þinna á hendur Google.
• Mótmæla eða koma með athugasemdir við sáttina.
Mótmæli þín eða athugasemdir verða að berast
skriflega fyrir 5. maí 2009.
• Draga þig út úr sáttinni og halda rétti þínum til að
höfða persónulega mál gegn Google. Þú verður að
draga þig skriflega út fyrir 5. maí 2009.
• Skrá kröfu um staðgreiðslu (ef þú ert hæfur
til þess). Þú verður að skrá kröfur þínar fyrir
5. janúar 2010.
Dómstóllinn hefur skipað lagalegan ráðgjafa fyrir
hvorn hóp. Nú er sáttin samþykkt og mun þá lagalegi
ráðgjafinn sem gætir réttinda undirflokks höfunda fara
fram á lögfræðikostnað og útgjöld sem Google hefur
fallist á að greiða. Þér er einnig heimilt að ráða þinn
eigin lögmann á þinn eigin kostnað.
Dómstóllinn mun ákvarða hvort sáttin verður samþykkt
í málflutningi um sanngirni hennar sem fara mun fram
11. júní 2009 klukkan 1:00 eftir hádegi.
Þú getur nálgast allar upplýsingar, þar með talið tilkynninguna í
heild, á eftirfarandi vefsíðu:
Heimsókn: http://www.googlebooksettlement.com
Hringja: gjaldfrjálst númer 00 800 8000 3300
Þú getur haft samband skriflega við: Google Book Search Settlement
Administrator, c/o Rust Consulting
P.O. Box 9364, Minneapolis, MN 55440-9364, UNITED STATES OF AMERICA