Morgunblaðið - 27.02.2009, Page 18
18 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2009
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
ATVINNULAUSIR í Hafnarfirði eignuðust nýj-
an vettvang í gær þegar atvinnu- og þróunarsetrið
Deiglan var opnað í Menntasetrinu við Lækinn.
„Við hóuðum í sjálfboðaliða til að kanna hver
þörfin væri og það kom í ljós að fólk vildi bara að
við opnuðum sem fyrst,“ segir Anna Sigurborg
Ólafsdóttir, þjónustu-og þróunarstjóri Hafn-
arfjarðarbæjar. Í boði verða ýmis námskeið og
ráðgjöf í samræmi við þær óskir sem komu fram
auk þess sem hægt er að koma tillögum að fleiri
námskeiðum í hugmyndakassa. „Við viljum vera
viss um að við séum að sinna því sem fólkið vill, en
við vitum í rauninni ekki hverjar þarfir þessa fólks
eru, þetta er alveg óskrifað blað,“ segir Brynhild-
ur Bárðadóttir verkefnastjóri Deiglunnar.
Hún leggur því áherslu á að í Deiglunni séu all-
ar hugmyndir velkomnar og það sé ekkert skilyrði
að vera atvinnulaus heldur sé aðstaðan opin öll-
um. „Við vonumst eiginlega til að það myndist
hálfgerð kaffihúsastemning hérna á kaffistofunni
og hvetjum alla til að koma, kenna það sem þeir
hafa fram að færa og læra eitthvað nýtt á móti.
Eins konar skiptinám eiginlega.“
Besta afleiðingin að fólk finni sér vinnu
Deiglan er fyrsta miðstöðin sem komið er upp
fyrir atvinnulausa í Hafnarfirði, en Anna segir að í
pípunum sé að koma einnig á fót Litlu deiglunni,
sem er hugsuð fyrir ungt atvinnulaust fólk undir
tvítugu, auk þess sem samstarf er hafið við Ný-
sköpunarmiðstöð um að stofna frumkvöðlasetur í
Hafnarfirði. „Grunnurinn að þessu öllu er að fá
fólk út, að virkja það, því það er svo mikil hætta á
að það einangrist. Með þessu hefur það tilefni til
að fara út, hitta aðra sem eru í sömu stöðu og við
vonumst til þess að í besta falli verði niðurstaðan
sú að það finni vinnu,“ segir Brynhildur.
Meðal þeirra námskeiða sem nú eru í boði er til
dæmis kennsla við heimilisbókhald, gerð fer-
ilskráa, hönnun og fjölmiðlun, líkamsrækt og ljós-
myndun. Þá má nefna matreiðslunámskeið sem
verður haldið undir titlinum „Ódýrt og gott“ þar
sem bent verður á leiðir til að spara í matarinn-
kaupum og elda hagkvæman heimilismat. Deiglan
er opin milli 9:00 - 12:00 alla virka daga.
Morgunblaðið/Kristinn
Í Deiglunni Jósep Gíslason, Brynhildur Bárðadóttir, Anna Sigurborg Ólafsdóttir, Þórunn Stefánsdóttir, Ragnheiður Gestsdóttir og Finnur Gunnþórsson
Ýmislegt í boði í Deiglunni
Mikilvægt að atvinnulausir hafi vettvang til að vera virkir og leita tækifæra
„HUGMYNDIN er sú að koma fólki
af stað, að gefa því tækifæri til að
hreyfa sig og fá félagsskap,“ segir
Jósep Gíslason, sjálfboðaliði í Deigl-
unni. Jósep var með eigin rekstur en
hefur verið atvinnulaus um nokkurt
skeið eftir að harðnaði í ári.
„Ég hef aldrei lent í því áður að
missa vinnuna og við blasir bara al-
gjört tómarúm,“ segir Jósep. Hing-
að til hafi fólk tiltölulega fljótt getað
gengið inn í nýja vinnu ef það varð
atvinnulaust, hann hafi sjálfur þá
reynslu frá fyrri tíð, en nú þurfi að
hafa mun meira fyrir því að finna sér
eitthvað að gera.
Atvinnulausir halda sig til hlés
Þrátt fyrir erfiða stöðu á vinnu-
markaði segir hann þó að einhver
tækifæri séu fyrir hendi, en fólk
þurfi að vera mjög vakandi til að
grípa þau. Þess vegna sé lykilatriði
að halda fólki virku.
„Fyrst þegar fólk missir vinnuna
er það mjög aktívt. Það finnur sér
verkefni heima fyrir og reynir sjálft
að bjarga sér. En þegar tíminn líður
er svo hætt við því að það einangrist
óafvitandi og eitt vandamálið er það
að ná í þetta fólk. Við erum orðin
fleiri en 16 þúsund sem erum at-
vinnulaus, en þetta fólk er ekki mjög
sýnilegt.“ Sjálfur er hann mikill
göngugarpur og hefur starfað sem
leiðsögumaður. Hann vill ólmur
virkja þá sem eru atvinnulausir til að
hittast reglulega og fara í léttar
„gönguferðir með tilbrigðum“ eins
og verkefnið er kallað. „Við hittumst
hér og göngum í 30 til 40 mínútur
um Hafnarfjörð. Eftir gönguna er
svo stoppað hjá einhverju fyrirtæki,
þar sem við fáum kynningu á starfi
og fleira. Hugmyndin er sú að þetta
geti orðið til þess að kynna fólki ný
svið sem geta kannski vakið áhuga
þess á námi eða gefið því hugmyndir
að vinnu. Vonandi verður með þessu
hægt að búa til tækifæri, en hvað
verður veit maður ekki.“
Jósep hefur þegar talað við fjölda
fyrirtækja í Hafnarfirði og fengið
mjög góðar viðtökur við hugmynd-
inni. Hann leggur áherslu á að göng-
urnar eigi að vera léttar og
skemmtilegar við allra hæfi.
Gengið á vinnustaði
Morgunblaðið/Kristinn
Göngur Næra sálina segir Jósep
Færi á að
skiptast á
þekkingu
Morgunblaðið/Kristinn
Heilsan Má ekki verða út undan
„DEIGLA þýðir að það er eitthvað
spennandi að gerast og ef allt geng-
ur vel, þá getum við vonandi skapað
eitthvað nýtt,“ segir Þórunn Stef-
ánsdóttir, sjálfboðaliði í Deiglunni.
Þórunn er sjálf ekki atvinnulaus en
ákvað strax að leggja fram sína
krafta þegar hún heyrði af hug-
myndinni um Deigluna.
„Fólk byggir sjálfsmynd sína svo
mikið á vinnunni og skiptir sér jafn-
vel upp í hópa; annars vegar þeir at-
vinnulausu og hins vegar þeir sem
eru með vinnu. En það er örþunn
lína þarna á milli. Mig langaði sjálfa
til að deila minni þekkingu en vil á
móti gjarnan fá að læra af þeim sem
hafa eitthvað annað fram að færa.“
Sorgarferli að missa vinnuna
Sjálf hyggst Þórunn bjóða upp á
námskeið í heilbrigðum lífsstíl enda
sé hætt við því að fólk vanræki sjálft
sig þegar daglega lífið fer úr skorð-
um við atvinnumissinn. „Það er stað-
reynd að við göngum í gegnum sorg-
arferli við svona áfall eins og að
missa allt í einu vinnuna.
En grunnþarfirnar mega samt
ekki gleymast og einmitt þegar
þyrmir yfir þig er mikilvægt að
styrkja ónæmiskerfið og heilsuna.
Núna er tíminn til að nýta millibils-
ástandið og láta það rætast sem þú
hafðir aldrei tíma fyrir áður.“
Taktu þátt í að móta framtíðina
Nánari upplýsingar um fundina og félagsstarf Sjálfstæðisflokksins
má finna á heimasíðu flokksins, www.xd.is, eða í síma 515 1700.
Opnir vinnufundir Endurreisnarnefndar
Endurreisnarnefnd Sjálfstæðisflokksins hefur það verkefni að móta tillögur og
hugmyndir um uppbyggingu íslensks efnahagslífs næstu misserin. Á næstu
vikum verða fjölmargir fundir þar sem leitað verður eftir skoðunum og áliti
flokksmanna. Ný heimasíða hefur verið opnuð á www.endurreisn.is þar sem
allir eru hvattir til þess að kynna sér málin og segja sína skoðun.
Nefndin mun standa fyrir opnum vinnufundi í Valhöll laugardaginn 28. febrúar
kl. 14. Unnið verður í fjórum hópum: Uppgjör og lærdómur, Hagvöxtur
framtíðarinnar, Atvinnulíf og fjölskyldur og Samkeppnishæfni.
Endurreisnarnefnd
Sjálfstæðisflokksins