Morgunblaðið - 23.03.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.03.2009, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 3. M A R S 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 80. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is  JÓNAS SEN GEFUR ATLA HEIMI FIMM STJÖRNUR «SKARTGRIPIR Í HJÁVERKUM KONUR ERU MEÐ ARNAR UM HÁLSINN á 1 lítra Kókómjólk Gott á brúsann! FUNHEITT TILBOÐ Eftir Þorbjörn Þórðarson og Björgvin Guðmundsson „ÞETTA var mjög erfiður fundur og þetta var til- finningaríkt. Fólk var grátandi, stjórnin var klökk og þakkaði fyrir samstarfið. Þetta var í raun mjög átakanlegt,“ segir Ólafur Már Svavarsson, for- maður starfsmannafélags SPRON, um fund starfsmanna SPRON á Grand Hóteli í gær. Á fundinum útskýrði Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON, stöðuna fyrir starfsmönnum í kjölfar yfirtöku Fjármálaeftirlitsins (FME) á sparisjóðnum. Fyrirséð er að á þriðja hundrað um störfum ef þetta gangi eftir. Stór hluti starfs- fólks SPRON hefur unnið lungann úr sínum starfsferli hjá sparisjóðnum og er núna að horfa fram á atvinnuleysi í einni mestu efnahagskreppu í sögu þjóðarinnar. „Ég hugsa til þess með hryll- ingi að þetta skuli gerast. […] Ef við tökum fjölda starfsmanna í bönkunum áður en þessi bóla fór af stað þá voru starfsmenn í bönkunum rúmlega 4.000 talsins um áramótin 2003-2004,“ segir Frið- bert Traustason, framkvæmdastjóri Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF). Starfsmenn SPRON grétu  Á þriðja hundrað manns missir vinnuna í kjölfar yfirtöku FME á SPRON og Sparisjóðabankanum  Öllum útibúum SPRON verður lokað en MP banki lýsir yfir áhuga á að taka yfir hluta af starfsemi  Á þriðja hundrað sagt upp 2, 16 manns missi vinnuna í kjölfar yfirtöku FME á SPRON og Sparisjóðabankanum, en starfsfólk beggja fyrirtækja heyrði tíðindin fyrst í gegnum fjölmiðla síðdegis á laugardaginn. Öll útibú SPRON, fyrir utan útibúið í Borg- artúni, verða lokuð í dag og er viðskiptavinum beint til Nýja Kaupþings, en allar innstæður hafa verið færðar þangað. MP banki hefur sett sig í samband við FME og lýst yfir vilja til að taka yfir hluta af starfsemi SPRON, að sögn Margeirs Pét- urssonar, stjórnarformanns MP banka. Margeir segir SPRON njóta mikillar viðskiptavildar og þar sé gott starfsfólk. Hægt verði að bjarga einhverj- Tilkynntu yfirtöku Formaður stjórnar FME og viðskiptaráðherra.  Ættleiðing- arkostnaður tvöfaldast sam- kvæmt bréfi sem Íslensk ættleiðing hef- ur sent til þeirra sem eru á biðlistum eft- ir barni að ut- an. Einn þeirra segir bréfið koma eins og kalda vatnsgusu framan í þá sem hafa staðið í þungbæru ferli við að eign- ast barn í mörg ár. Slíkar hækk- anir geti kollvarpað öllum áætl- unum fólks, jafnvel þótt fjárhagur þess sé traustur, í samræmi við reglur um þá sem fá leyfi til að ættleiða. »6 Kollvarpar öllum áætlunum þegar kostnaður tvöfaldast  Aðild Íslands að Evrópusamband- inu skal leiða til lykta með þjóð- aratkvæði og ríkisstjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokknum kemur ekki til greina að loknum kosn- ingum. Þetta er meðal ályktana landsfundar Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs sem lauk í gær. Vinstri græn eru eftir sem áður ekki hlynnt inngöngu í ESB. Flokkurinn mun sækjast eftir fé- lagshyggjustjórn og vill tryggja áframhaldandi rannsókn hrunsins, lækka vexti og hefja í framhaldinu afnám verðtryggingar. »4 Vinstri græn álykta gegn Sjálfstæðisflokki og ESB  „Hún hélt fyrst að þetta væri barn að kafa en sá svo að það hreyfðist ekki og þá kom þetta skelfing- aróp.“ Þannig lýsir Ronald Guðnason við- brögðum konu sinnar sem fann fjögurra ára frænku hans líflausa á botni sundlaugarinnar á Hellu á laugardag. Ronald sýndi snör handtök og blés lífi í stúlkuna, sem hefur jafnað sig að fullu. „Þetta gekk ótrúlega vel, einn tók við af öðrum og gerði það sem hann gat.“ »2 Á frænda sínum og öðrum sundgesti líf sitt að launa Alexía Margrét Axelsdóttir LEIKMENN íslenska karlalandsliðsins í handknattleik léku við hvern sinn fingur þegar þeir unnu stórsigur á Eistlandi, 38:24, í undankeppni Evrópu- mótsins í Austurríki sem fram fer á næsta ári. Ísland er því enn taplaust í sínum riðli og sæti á EM sannarlega í augsýn. Leikið var á Ásvöllum í Hafn- arfirði fyrir troðfullu húsi áhorfenda sem létu vel í sér heyra. | Íþróttir Eistland reyndist auðveld bráð Morgunblaðið/Golli Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is STJÓRNENDUR Búnaðarbankans höfðu áhyggjur af því að pólitísk tengsl S-hópsins við Framsóknar- flokkinn gætu skaðað bankann, einkavæðingarnefnd var talin trú um að franski bankarisinn Societe Gene- ral væri hluti af hópnum og rætt var um það á fundi nefndarinnar um miðj- an desember 2002 að hætta mögulega við söluferlið þegar kom í ljós að svo var ekki. Þetta er meðal þess sem kemur fram í umfjöllun Morgun- blaðsins um sölu á hlut íslenska rík- isins í Búnaðarbanka Íslands. Fyrr í þessum mánuði veitti for- sætisráðuneytið í fyrsta sinn fullan aðgang að öllum gögnum í skjalasafni einkavæðingarnefndar sem varða sölu á Landsbankanum og Búnaðar- bankanum. Í rökstuðningi ráðuneyt- isins fyrir aðganginum segir meðal annars: „Þau fyrirtæki sem hér um ræðir eru ekki lengur starfandi með sama hætti og áður og hugsanlegir hagsmunir kaupenda á sínum tíma af leynd vega ekki þungt í samanburði við þá ríku almannahagsmuni sem tengjast aðgangi.“ Pólitísk tengsl S-hóps voru áhyggjuefni Áhyggjur voru innan Búnaðarbanka vegna tengsla S-hópsins við Framsókn Í HNOTSKURN »Kjölfestuhlutur í Bún-aðarbanka var seldur til S- hópsins í janúar 2003. Salan hefur alltaf verið umdeild. »Aðgangi að skjalasafnieinkavæðingarnefndar vegna sölunnar hefur ætíð verið neitað þar til nú. »Morgunblaðið birtir í dagúttekt á söluferlinu byggða á gögnum málsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.