Morgunblaðið - 23.03.2009, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.03.2009, Blaðsíða 9
Fréttir 9INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MARS 2009 Hlíðasmára 14 sími 588 2122 www.eltak.is Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum mesta úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Hafðu samband líðas ára 14 Sí i 588 2122 .eltak.is Lífrænt og hollt ótrúlegt úrval! fyrst og fremst ódýr! Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is FÁHEYRT er að mannanafnanefnd klofni við afgreiðslu umsókna. Það gerðist engu að síður þegar nefndin tók afstöðu til eiginnafnsins Skalla- grímur. Meirihluti nefndarinnar hafnaði nafninu á þeim grundvelli að Skallagrímur teldist ekki vera myndað í samræmi við almennar nafnamyndunarreglur íslensks máls og því brjóta í bága við íslenskt mál- kerfi. „Fyrri liður nafnsins Skallagrím- ur er viðurnefni, þ.e. viðbót við eig- inlegt nafn sem er Grímur. […] Fjöl- mörg dæmi eru um viðurnefni í íslenskum bókmenntum, s.s. Brennu-Njáll, Göngu-Hrólfur, Axl- ar-Björn og Grasa-Gudda en viður- nefni geta verið viðkvæm og niður- lægjandi, ekki síst ef þau eru kennd við útlitseinkenni eins og í þessu til- viki. Nafnið Skallagrímur hefur enn- fremur verið notað sem viðurnefni á sköllóttum mönnum. Ekki er hefð fyrir því að greinileg viðurnefni séu hluti af eiginlegum eiginnöfnum og telst Skallagrímur því ekki vera myndað í samræmi við almennar nafnamyndunarreglur íslensks máls og telst því brjóta í bág við íslenskt málkerfi,“ segir m.a. í áliti meiri- hluta mannanafnanefndar. Í sératkvæði sínu bendir Baldur Sigurðsson, dósent í íslensku á menntavísindasviði Háskóla Íslands, á að nafnið Skallagrímur sé að tvennu leyti ekki í samræmi við ís- lenska nafnahefð. Annars vegar vegna þess að það sé viðurnefni eða auknefni, en hins vegar því að mjög fátítt sé að fyrri liður nafns sé í eign- arfalli (sbr. skalla-) en þó séu slík nöfn til, t.d. séu nöfnin Hagalín, Gils- laug og Maríuerla á mannanafna- skrá. „Ég tel samt sem áður unnt að fallast á nafnið vegna sérstöðu þess í sögu Íslands og bókmenntum,“ skrifar Baldur og bendir á að nöfn Skallagríms og föður hans, Kveld- úlfs, séu hefðbundin nöfn á þekktum körlum í fornbókmenntum Íslend- inga og nú þegar svo rótgróin að fáir leiði hugann að því að um auknefni eða viðurefni sé að ræða, hvað þá að þau séu niðrandi. „Nöfnin Kveldúlfur og Skalla- grímur hafa því, að mati undirritaðs, fest sig í sessi sem góð og gild nöfn þrátt fyrir þá annmarka sem á þeim eru frá sjónarmiði nafnhefðarinnar. Með því að samþykkja nafnið Skalla- grímur á mannanafnaskrá er engan veginn verið að gefa fordæmi fyrir því að önnur auknefni að fornu eða nýju geti öðlast sess sem fullgild mannanöfn.“ Skallagrímur veldur deilum  Mannanafnanefnd hefur það sem af er ári kveðið upp 22 úrskurði  Nefndin er ósammála um nafnið Skallagrím og telur meirihluti það brjóta í bága við málkerfið Morgunblaðið/RAX Nafngiftir Þau mega heita Brynný, Amor, Drauma, Tjaldur, Jólín, Birtingur, Tarfur, Orka, Snjáka eða Tími en ekki Skallagrímur, Austar, Zar, Dúa eða Mýa. HÁSKÓLINN í Reykjavík hefur ákveðið að auka námsframboð í sumar og verður þetta í fyrsta sinn sem boðið er upp á námskeið í öll- um fimm deildum skólans yfir sum- artímann. Nám- skeiðin verða bæði í boði í grunnnámi og meist- aranámi. „Við höfum orðið vör við að mjög margir nemendur hafa áhyggjur af því að fá ekki vinnu í sumar og hafa skráð sig nú þegar í sumarnám hjá okkur,“ segir Steinn Jóhannsson, kennslustjóri í HR. Hann segir mest hægt að taka þrjú námskeið yfir sumarið en á hefðbundnu námsmiss- eri séu tekin fimm námskeið. „Við höfum aldrei séð annan eins áhuga á sumarnámi og er núna,“ segir hann en sömu kennarar munu sjá um kennsluna í sumar og yfir veturinn. „Það vilja allir leggjast á eitt til að gefa fólki möguleika á því að stunda nám í sumar.“ ben@mbl.is Fleiri sum- arnámskeið í boði í HR Steinn Jóhannsson Áhugi á sumarnámi aldrei verið meiri Samþykkt Amor Birtingur Borgúlfur Mikkel Rögnvald Sveinar Sverre Tarfur Tími Tjaldur Abigael Bjargdís Brynný Dóa Drauma Gumma Isabel Jólín Orka Snjáka Stefana Hafnað Emerald Michel Rami Skallagrímur Ulf Zar Austar Austarr Bergman Leona Manuela Marija Mýa Thalía Úrskurður manna- nafnanefndar á eiginnöfnum frá desemberSamþykkt Brúnsteð Júl Yngling Hafnað Austar Austarr Dúa Skagan Zar Úrskurðir á millinöfnum LÖGREGLAN á Húsavík stöðvaði för 19 ára gamals ökumanns á fólks- bíl í Ljósavatnsskarði í gærkvöldi. Reyndist pilturinn vera nokkuð langt yfir hámarkshraða, eða á 139 kílómetra hraða. Að sögn lögreglunnar á Húsavík má hann búast við allt að 90 þúsund króna sekt og þremur punktum í ökuferilsskrá sína, en ungir öku- menn mega að hámarki fá 7 punkta áður en kemur til sviptingar. Að sögn lögreglu hafa aðstæður til hraðaksturs verið nokkuð góðar að undanförnu. Þar sem veður muni fara versnandi á næstu dögum megi að sama skapi búast við minni hrað- akstri. andresth@mbl.is Ungur ökumaður á hraðferð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.