Morgunblaðið - 23.03.2009, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 23.03.2009, Blaðsíða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MARS 2009 Eftir Andrés Þorleifsson andresth@mbl.is HÆGT verður að flytja ófrosinn fisk út með mun öruggari og betri hætti en nú er ef hugmynd fjög- urra frumkvöðla verður að veruleika. Með þessari hugmynd vann sprotafyrirtæki þeirra félaga, Controlant, frumkvöðlakeppni Innovit í ár og hlaut að launum Gulleggið. Frumkvæðið kom frá sjávarútveginum „Ein af aðalástæðunum fyrir því að við fórum út í þetta verkefni var frumkvæði frá sjávarútveg- inum,“ segir Gísli Herjólfsson, doktorsnemi við HÍ og einn frumkvöðlanna. „Það sem þeir vilja gera er að flytja meira af ferskum fiski út heldur en frosnum fiski, vegna þess að ferskur fiskur er mun verðmætari,“ útskýrir Gísli. Hann bendir á ís- lenskar rannsóknir sem sýni að ef hægt er að geyma fiskinn á ákveðnu hitastigsbili sé hægt að halda honum ferskum og koma í veg fyrir örveru- myndanir, líkt og hann væri frosinn. Hitastigsbilið sé aftur á móti afar þröngt, og hafi fiskútflytj- endur því fram að þessu ekki treyst sér til að flytja fiskinn út. Kerfi hannað af Controlant geti breytt því. Hugmyndin gengur með nokkurri einföldun út á að koma upp þráðlausu skynjarakerfi sem getur gefið rauntímaupplýsingar um hitastöðu matvæl- anna. Þessar upplýsingar má nota til að halda hita fisksins innan hinna umræddu marka. Gísli segir upphaflegu hugmyndina um þráð- laust skynjarakerfi upphaflega hafa kviknað í sambandi við verkefni í Háskóla Íslands, en þar stunduðu þeir nám í verkfræði og tölvufræði. „Þetta er búið að vera sjálfboðavinna með námi,“ segir Gísli til útskýringar, en hann sér fram á að nú geti þetta verkefni orðið að fullri vinnu. CONTROLANT FÆR GULLEGGIÐ Í ÁR  Nýsköpunarsetrið Innovit verðlaunar frumkvöðla með Gulleggi  Hugmyndin gæti aukið verðmæti útflutnings Morgunblaðið/Golli Fjöregg þjóðarinnar Fyrirtæki Gísla Herjólfssonar (t.v.) og Erlings Brynjúlfssonar (t.h.) hlaut í ár nýsköp- unarverðlaun Innovit. Sameigendur þeirra eru Trausti Þórmundsson og Atli Þór Hannesson. Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is KOSTNAÐUR við ættleiðingar tvö- faldast samkvæmt bréfi sem Íslensk ættleiðing (ÍÆ) sendi á dögunum til fólks sem bíður eftir ættleiðingu. Frá síðasta hausti hefur verið gert ráð fyrir að heildarkostnaður við ættleiðingu sé um 1,5 milljónir króna en í umræddu bréfi segir að í lok febrúar sé heildarkostnaður á bilinu 2,5–2,8 milljónir króna. Eng- ar upplýsingar eru um þessar hækkanir á heimasíðu félagsins og ekki er í bréfinu sundurliðun á því af hverju þessi hækkun stafar, að öðru leyti en að gengislækkun ís- lensku krónunnar hafi mest að segja. Þá segir að þar sem ættleið- ingum hafi fækkað vegna lengingar biðtíma þá dreifist fastur kostnaður við rekstur skrifstofu félagsins á færri ættleiðingar. Þó er tekið fram að styrkur hins opinbera standi að mestu undir rekstrinum, þ.e. laun- um og húsaleigu. Þá er tilkynnt um hækkanir og breytingar á ýmsum gjöldum sem greiða þarf í ferlinu. M.a. er tekið upp 60 þúsund króna árlegt um- sóknargjald í stað sk. milligreiðslu sem áður var innt af hendi einu sinni. Greiða skuli umsóknargjaldið fyrir 1. apríl ár hvert, en að öðrum kosti sé litið svo á að fallið hafi verið frá umsókn. Bréfið barst umsækj- endum nú í vikunni. Bréfið eins og köld gusa Umsækjandi sem Morgunblaðið ræddi við segir að bréfið komi eins og köld gusa framan í fólk sem hafi staðið í þungbæru ferli svo árum skipti. Allar áætlanir þess hafi gert ráð fyrir ákveðnum kostnaði sem hafi á nokkrum árum hækkað úr einni upp í 1,5 milljónir króna. Það að uppgötva skyndilega að sá kostn- aður hafi aftur hækkað um helming kollvarpi öllum slíkum áætlunum. Það geti auðveldlega orðið til þess að fólk, sem hafi lagt mikið undir um langt skeið, hætti í ferlinu, jafn- vel þótt búið sé að meta fjárhag þess traustan, sem er ein af for- sendum þess að fá að ættleiða. Spyrja megi hvort viðunandi sé í réttarríki að kostnaður para við að stofna til fjölskyldu hlaupi á millj- ónum. Allar ættleiðingar hérlendis fari í gegnum ÍÆ svo umsækjendur hafi ekki í önnur hús að venda. Fólk veigri sér því við að gagnrýna félag- ið, af ótta við að það muni hafa nei- kvæð áhrif á umsókn þess. Ingibjörg Birgisdóttir, varafor- maður ÍÆ, segir bréfið klaufalega orðað og undirstrikar að fólk muni ekki detta út af biðlistum greiði það ekki 60 þúsund króna gjaldið fyrir 1. apríl. Í raun hafi verið um að ræða kynningu á hækkunum sem ekki hafi enn komið til fram- kvæmda. Þær séu þó óhjákvæmi- legar vegna gengisbreytinga en mestur hluti kostnaðar við ættleið- ingar sé í erlendri mynt. Þá hafi gjaldtaka erlendis einnig hækkað, t.a.m. í Kína þar sem 50% hækkun hafi orðið á ættleiðingargjaldi þar- lendra stjórnvalda, sem geng- ishækkun bætist svo við. Hún segir að nákvæmar útskýringar verði gefnar á hækkununum á aðalfundi félagsins, sem verður haldinn nk. fimmtudag. Og hún segir fjarri því að fólk þurfi að óttast að tjá sig um málefni félagsins: „Að sjálfsögðu hefur það engin áhrif á framvindu umsókn- anna, og mér þykir mjög leitt ef fólk hefur haft slíkt á tilfinningunni,“ segir hún.  Fólki á biðlistum eftir ættleiðingum tilkynnt um hækkun á heildarkostnaði sem nemur meira en milljón  Kollvarpar öllum áætlunum fólks eftir langa og þungbæra bið, segir umsækjandi Kostnaður hækkar um helming Morgunblaðið/Kristján Í Kjarnaskógi Íslenskar stúlkur fæddar 2002 ættleiddar frá Kína. RANNSÓKNARNEFND Alþingis um bankahrunið hyggst hefja form- legar skýrslutökur af stjórnendum bankanna í næstu viku. Á vef nefnd- arinnar segir að hún hafi metið það nauðsynlegt að hafa í höndunum viss skjöl og gögn frá opinberum aðilum og bönkunum áður en slíkar skýrslu- tökur fara fram. Hefur nefndin að undanförnu tek- ið skýrslur af stjórnendum innan stjórnsýslunnar sem höfðu með höndum eftirlit og ákvarðanir um málefni fjármálafyrirtækja. Segir á vef nefndarinnar að athug- anir hennar beinist sérstaklega að viðskiptum bankanna við stærstu lántakendur þeirra, auk þess sem nefndin vinnur að sérstakri grein- ingu á því hvort þeir sem voru lán- takendur bankanna hafi tengst eig- endum þeirra og starfsmönnum. Loks rannsakar nefndin viðskipti með hlutabréf í bönkunum og verð- myndun á þeim. andresth@mbl.is Banka- stjórar yf- irheyrðir Formlegar skýrslu- tökur að hefjast „MÉR heyrist á fólki að það sé ekki par sátt við þessa að- ferðafræði, á sama tíma og vinnan eykst á að minnka þá yf- irvinnu sem unn- in er,“ segir Garðar Hilm- arsson, formaður Starfsmanna- félags Reykjavíkurborgar, um þá stefnu Reykjavíkurborgar að hætta að greiða starfsfólki yf- irborgun. Með því á að ná hluta tveggja milljarða króna sparnaðar hjá Reykjavíkurborg. Meðaltal kemur svipað út Framkvæmdin er með þeim hætti að yfirvinnunni er sagt upp, að sögn Garðars. „Málið er að þetta eru bæði fastlaunasamn- ingar um fasta yfirvinnu sem menn hafa tekið að sér og svo hafa menn fengið þetta inn í ráðn- ingarsamninga og sjálfstæða samninga. Þessu er sagt upp og raunverulega sagt við fólk, eftir því sem ég hef spurnir af, að ann- aðhvort geti það fengið minni lækkun strax, með því að taka uppsögn með þriggja mánaða fyr- irvara og endurráðningu að þeim tíma liðnum, eða þá að menn geti tekið lækkun strax og fengið þá minni lækkun á mánuði en með- altalið á árinu ætti að koma svipað út,“ segir Garðar. Hafa gagnrýnt „Við höfum gagnrýnt þetta, borgin auðvitað ákveður hvaða vinnu hún ætlar að kaupa, en þarna er fólk sem er að taka hækkun á húsnæðislánum og öðru og fær þessa skerðingu. Við erum hins vegar líka á móti uppsögnum og enn frekar, jafnvel. Fækkun á störfum er ekki góður kostur beint inn í atvinnuleysið. Þannig að fólk er svolítið á milli steins og sleggju og borgin notfærir sér það,“ segir Garðar. Hann segist jafnframt hafa heyrt af því að fólk sé hrætt um vinnuna og hafi því kannski skrif- að undir eitthvað þó að Starfs- mannafélag Reykjavíkurborgar hafi ekki mælt með því. sia@mbl.is Borgar- starfsmenn ósáttir Garðar Hilmarsson Hætt að greiða yfir- vinnu hjá borginni ÞYRLA Landhelgisgæslunnar, TF- Gná, sótti í gær tvo vélsleðamenn sem höfðu slasast rétt ofan við Sand- fellshóla í Öxarfirði. Upphaflega var óskað eftir þyrlu kl. 14:38, en þegar meiðsl mannanna reyndust ekki eins alvarleg og óttast var í fyrstu var þyrlunni snúið við. Björgunarmenn hugðust þá flytja mennina undir læknishendur á Kópaskeri, en þegar í ljós kom að sú ferð tæki um þrjá tíma var þyrlan aftur ræst út. Lenti hún með menn- ina á Akureyri á sjötta tímanum í gærkvöldi. andresth@mbl.is Sótti vél- sleðamenn Gæslan Þyrlan flutti tvo slasaða vélsleðamenn til Akureyrar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.