Morgunblaðið - 23.03.2009, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 23.03.2009, Blaðsíða 17
Fréttir 17ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MARS 2009 SJÁLFSTÆÐ MYNT Í FJÁRMÁLAKREPPU Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra Opnunarávarp Massimo Suardi, sviðsstjóri hjá framkvæmdastjórn ESB (DG Ecfin) Achievement and challenges of the EU in dealing with the financial crisis Yngvi Örn Kristinsson, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans Það sem hefði getað orðið: Fjármálakreppan á Íslandi með annarri mynt Hörður Arnarsson, forstjóri Marel Gjaldeyrismál í alþjóðlegum rekstri Pallborðsumræður Auk framsögumanna situr Þórarinn G. Pétursson starfandi aðalhagfræðingur Seðlabankans í pallborði GULLTEIGUR, GRAND HÓTEL REYKJAVÍK Fundarstjóri er Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Vinsamlega staðfestið þátttöku með því að senda tölvupóst á birna@vi.is DAGSKRÁ: MORGUNVERÐARFUNDUR KL. 8:15 - 9:45 ÞRIÐJUDAGINN 24. MARS 2009 í boði Viðskiptaráðs Íslands og fastanefndar ESB gagnvart Íslandi og Noregi Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is ÞAU UMMÆLI Christina D. Romer að viðsnúningur verði í bandarísku efnahagslífi síðar á árinu hafa undir- strikað ólíka afstöðu demókrata og repúblikana til þess hvenær þetta stærsta hagkerfi heims réttir úr kútnum, á sama tíma og útlit er fyrir að fjárlagahallinn á næsta áratug verði mun meiri en fyrst var ráðgert í viðreisnaráætlun stjórnar Baracks Obama Bandaríkjaforseta. Kvaðst Romer fastlega reikna með því, líkt og sjálfstæð- ir efnahagssérfræðingar, að botninum verði náð í ár og að hagkerfið byrji að vaxa þegar á næsta ári. Repúblikanarnir Judd Gregg, sem situr í fjárlaganefnd öldungadeildar, og Richard Shelby, sem á sæti í banka- nefnd sömu þingdeildar, deila ekki þessari bjartsýni. Gjaldþrot blasir við bandaríska þjóðarbúinu Máli sínu til stuðnings vísuðu þeir til þeirrar áætlunar fjárlagaskrifstofu þingsins að samanlagður halli á fjárlög- um Bandaríkjanna á næsta áratug verði 2,3 billjónum dala, eða 2.300 milljörðum dala, meiri en talið var. Dró Gregg upp dökka mynd af horfunum og sagði ekkert annað en gjaldþrot þjóðarbúsins blasa við ef viðreisnar- áætlun stjórnarinnar yrði fylgt eftir. Shelby var sama sinnis í gær er hann sagði Bandaríkin stefna hraðbyri að efnahagslegu hruni, enda stefndu skuld- ir þjóðarbúsins í 20 billjónir dala við lok næsta áratugar. Romer telur þessar spár of svartsýnar, enda þurfi að hafa í huga að deilt sé um spár fjárlagaskrifstofu þingsins. Óvissan aukist eftir því sem spárnar nái lengra fram í tímann, jafnframt því sem ályktað sé að hagvöxtur verði minni en tilefni sé til að ætla á þessari stundu. Deilt um batahorfurnar  Einn helsti efnahagsráðgjafi Bandaríkjaforseta reiknar með viðsnúningi síðar í ár  Formaður repúblikana í fjárlaganefnd öldungadeildar spáir þjóðargjaldþroti Í HNOTSKURN »Fjárlagaskrifstofa Banda-ríkjaþings spáir 9,3 billj- óna dala halla á ríkissjóði á næsta áratug. »Verði það raunin verðauppsafnaðar skuldir þjóðarbúsins þá um 20 billj- ónir Bandaríkjadala. »Sú upphæð jafngildirvergri landsframleiðslu á Íslandi í fyrra í 2.437 ár, en hún var þá 933 milljarðar kr. »Obama bað kjósendur ígær um að sýna meiri bið- lund gagnvart efnahags- aðgerðum hans og lýsti yfir stuðningi við Tim Geithner fjármálaráðherra, sem sætt hefur gagnrýni. AP Húsnæðislán 4,875% vextir til 30 ára í boði í Maineríki. BARNALEIKFÖNG, íþróttatreyjur, skór, ferðatöskur og treflar voru á meðal þess sem Moskvubúum stóð til boða á markaði fyrir notaðar vörur í gær. Úrvalið var gott enda margir tilbúnir til að láta eigur sínar gegn sanngjörnu verði. Kreppan hefur þannig komið hart niður á Rússum, olíuverðið hefur dregið úr tekjum ríkissjóðs svo um munar og atvinnuleysið farið yfir 8 prósent. Laun starfsmanna hafa verið lækkuð, jafnvel um tugi prósenta, og kaupmáttur almennings rýrnað eftir því sem gengi rúblunnar gagnvart Bandaríkjadal og evru hefur fallið. Á þriðju milljón er nú án vinnu og spáir stjórnin því að talan fari hæst í 2,8 milljónir í ár. Reuters Gengið á fataskápinn til að afla tekna HUNDRUÐ þúsunda hlýddu á messu Benedikts XVI. páfa í ná- grenni Luanda, höfuðborgar Angóla, í gær. Páfi vék að illskunni í ræðu sinni, með þeim orðum að Afríkubú- ar þyrftu að snúa bökum saman gegn vopnuðum átökum í álfunni. Harmleikur varð á opnum fundi páfa á knattspyrnuleikvangi í Lu- anda daginn áður, þegar tvær stúlk- ur létust og 10 slösuðust í troðningi. Mikið fjölmenni hefur hlýtt á ræð- ur páfa í fyrstu Afríkuför hans, en þau ummæli hans að smokkar séu ekki besta vörnin gegn eyðni hafa víða fallið í grýttan jarðveg. Páfinn í Afríkuför Í Angóla Páfinn undirbýr messu. HELGIN mun lengi lifa í minn- um ástralskra kvenréttinda- kvenna því þá féll eitt helsta karlavígið í stjórnmálum landsins. Jafn- aðarkonan Anna Bligh varð þá fyrst kvenna til að leiða fylkisstjórn til sigurs í kosningum, nánar til- tekið í Queenslandfylki þar sem Verkamannaflokkurinn vann nauman sigur á sameinuðu fram- boði Frjálslynda flokksins og Þjóð- arflokksins. Um öld tók að fella þetta vígi en ástralskar konur öðluðust kosn- ingarétt í Queensland á fyrsta ára- tug síðustu aldar. Vígið hefur því staðið lengi, ekki síst í ljósi þess að Ástralar voru, líkt og Nýsjálend- ingar, á meðal fyrstu þjóða heims- ins til að veita konum kosningarétt. Karlavígi fellur Anna Bligh HÁTT í hundrað búddhamunkar voru teknir höndum á laugardag eftir að þeir gerðu ásamt öðrum mótmælendum áhlaup á lögreglu- stöð í Rabgya í Qinghai-héraði í Kína, norðaustur af Tíbet. Um hálfur mánuður er frá því að 50 ár voru liðin frá uppreisn Tíbeta gegn yfirráðum Kínverja og hefur Kínastjórn gripið til umfangsmik- illa aðgerða til að koma í veg fyrir fjöldamótmæli Tíbeta. Á sama tíma lét Gyaincain Norbu, sem Kínverjar skipuðu Panchen Lama, eða næstæðsta and- lega leiðtoga Tíbeta, á eftir Dalai Lama, en sú skipan varð umdeild, þau orð falla að Tíbetar ættu að fylkja sér saman í stuðningi við kommúnistastjórnina í Kína. Fjöldahand- tökur í Kína SPÁNVERJINN Ruben Noe Coro- nado verður í september, ef allt gengur að óskum, fyrsti „karlinn“ til að eignast tvíbura, með konu sinni Esperanza Ruiz. Coronado fæddist sem kona og gekk undir nafninu Estefania og er enn skilgreind sem kona samkvæmt spænskum lögum. Hugur hans stóð til að eignast börn og frestaði hann því fullri kyn- skiptiaðgerð þangað til að hann hefði eignast afkvæmi. Varð hann óléttur að lokinni tæknifrjóvgun eftir að læknar tjáðu unnustu hans, tveggja barna, fráskilinni móður, að hún gæti ekki eignast fleiri börn. Karl gengur með tvíbura

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.