Morgunblaðið - 23.03.2009, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 23.03.2009, Blaðsíða 40
Birgir Sveinbergsson er smiður í Kardemommubæ Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is BIRGIR Sveinbergsson leikmyndasmiður hefur smíðað leikmynd fyrir fjórar uppfærslur Þjóðleikhússins á Kardemommubænum, 1975, 1984, 1995 og 2009. Árið 1975 smíðaði Birgir fyrst leikmynd fyrir Karde- mommubæinn og hitti þá höfundinn Thorbjörn Egner sem kom á sýningu verksins í Þjóðleikhúsinu. „Ég hafði gert nokkuð sem hann sagði mér að hann hefði ekki nokkurs staðar séð áður í sviðsmynd í Karde- mommubænum. Hann sagði mér að venjan væri sú að nota staur til að halda uppi þakinu yfir bakaríinu en ég hafði notað aðra aðferð og Egner var mjög hrifinn af því,“ segir Birgir. „Við töluðum saman nokkra stund. Hann var ákaflega skemmtilegur maður. Ég sagði honum að mér fyndist mikil heimspeki í þeim boðskap í Dýrunum í Hálsaskógi að ekkert dýr mætti éta annað dýr. Þá sagði Egner við mig: „Allt sem stendur í verkum mínum er sannleikur, þar er enginn tilbúningur.“ Auk þess að eiga þátt í að smíða fjórum sinnum leik- mynd í Kardemommubæinn hefur Birgir þrisvar smíðað leikmyndir fyrir Dýrin í Hálsaskógi og einnig leikmyndir fyrir Karíus og Baktus. Hann segir að Dýrin í Hálsaskógi séu í meira uppáhaldi hjá sér en Kardemommubærinn en bætir við: „Kardemommubærinn er mjög fallegt leikrit. Það sem hrífur mig ekki síst þar er hversu embættismað- urinn Bastían bæjarfógeti er einföld og góð sál.“ | 32 Morgunblaðið/Golli Birgir Sveinbergsson Þá sagði Egner við mig: „Allt sem stendur í verkum mínum er sannleikur.“ Hitti Thorbjörn Egner MÁNUDAGUR 23. MARS 82. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» MP banki vill hluta af útibú- um SPRON og Netbankans  MP banki hefur áhuga á að taka yfir hluta af útibúaneti SPRON og Netbankans, nb.is. Á þriðja hundrað manns missir vinnuna í SPRON þar sem FME hefur yfirtekið starfsemi bankans. »2 Ferming í fokheldri kirkju  Ytri umbúnaðurinn er ekki allt, segir Guðmundur Karl Brynjarsson, sóknarprestur í Lindasókn, sem fermdi um helgina í fyrsta sinn í fok- heldri sóknarkirkjunni sinni. »4 Ósáttir við launalækkunina  Starfsmenn Reykjavíkurborgar eru óánægðir með að á sama tíma og vinna eykst eigi að minnka þá yf- irvinnu sem unnin er. »6 Bankastjórar yfirheyrðir  Rannsóknarnefnd Alþingis ætlar að hefja formlegar skýrslutökur af stjórnendum bankanna í næstu viku. Á vef nefndarinnar segir að hún hafi metið það nauðsynlegt að hafa viss skjöl í höndunum fyrir skýrslutök- urnar, sem hún hafi nú. »6 Fái leiguna út á „samning“  Félag sem rekið er af fyrrverandi sveitarstjóra Grímseyjarhrepps krefst þess að krafa sem hreppurinn hefur gegn félaginu verði lækkuð þar sem hreppurinn skuldi því húsa- leigu. Oddvitinn segir leigusamning- inn falsaðan. »8 Börnin biðu forsetans  Nemendur í Waldorfskóla biðu óþreyjufullir eftir forsetanum á laugardag. Í skólanum var opið hús og heiðraði forsetinn nemendurna með nærveru sinni, einni og hálfri klukkustund síðar en þau reiknuðu með. »11 SKOÐANIR» Staksteinar: Ráðdeild Vinstri grænna Forystugreinar: Tímabær ákvörðun Gegnsæ fjármál flokkanna Pistill: Veröldin snýst í hringi Ljósvaki: Útsvar næstu árin UMRÆÐAN» Á að kasta krónunni? Minnipokamenn Hverjir eru verðugir? Dómaraheimild í forsjármálum Heitast 4°C | Kaldast -1°C Hæg, vestlæg átt og bjart með köflum, en stöku él við sjávarsíð- una. Hiti núll til fimm stig. »10 Verslunarskóli Ís- lands og Fjölbrauta- skóli Suðurnesja munu eigast við í úr- slitum Mælsku- og rökræðukeppni. »35 RÆÐULIST» Versló mætir FS KVIKMYNDIR» Það gengur vel hjá Freidu Pinto. »37 Það kennir ýmissa grasa í Norræna húsinu þar sem Nor- ræni tískutvíæring- urinn er haldinn í fyrsta skipti. »36 HÖNNUN» Færeyskt og grænlenskt FÓLK» Flugan skoðaði bæði tísku og myndlist. »34 FÓLK» Pabbi Simpson er ósáttur við Romo. »37 Menning VEÐUR» 1. Gat ekki staðið við greiðslur 2. Björguðu 5 ára telpu 3. Jade Goody látin 4. Tilfinningaríkur fundur »MEST LESIÐ Á mbl.is TÁP og fjör og frískir ungir menn að leik í góða veðrinu á Selfossi. Hvað er hægt að hugsa sér betra? Nökkvi stekkur upp í körfuna, Steindór fylgist með úr fjarska, tilbúinn að gera eina þriggja stiga körfu, Eysteinn skottast um og Atli Snær hvílir lúin bein og fylgist með stóru strákunum. Morgunblaðið/hag Fjör í körfunni ÞAÐ borgar sig að greiða reikninga á eindaga en ekki gjalddaga því þá daga sem líða frá eindaga að gjald- daga safnar upp- hæðin vöxtum, annað hvort hjá greiðanda eða hjá þeim sem rukkar. Reikningar eru oftar en ekki með gjalddaga 1. dag mánaðar en ein- daga 15. dag sama mánaðar. Margir opna því heimabankann sinn 15. dag hvers mánaðar og borga reikninga á eindaga. Málið vandast nokkuð þegar þann 15. ber upp á helgi því reikningar sem eru greiddir í heimabanka á laugardegi eða sunnudegi eru ekki færðir til bókar fyrr en á mánudegi. Þar af leiðandi geta dráttarvextir fallið á reikninga af þeirri einu ástæðu að þann 15. ber upp á helgi. Kunningi blaðamanns varð fyrir þessu um miðjan þennan mánuð og var alls rukkaður um 1.500 krónur vegna „vanskila“ á nokkrum reikningum frá Sjóvá. Vanskilin voru bakfærð eftir símtal frá kunningjanum og sú sem varð fyrir svörum var sammála um að eindaga ætti alls ekki að bera upp á helgi. runarp@mbl.is Auratal

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.