Morgunblaðið - 23.03.2009, Side 15

Morgunblaðið - 23.03.2009, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MARS 2009 Í LOK mars 2003, rúmum tveimur mánuðum eftir að S-hópurinn skrif- aði undir kaup á hlut ríkisins í Bún- aðarbankanum, var tilkynnt að við- ræður væru hafnar um að sameina bankann við annan íslenskan banka, Kaupþing. Hann hafði fengið við- skiptabankaleyfi árið áður. Banka- ráð Búnaðarbankans og stjórn Kaupþings samþykktu þann 12. apríl 2003 að bankarnir yrðu sameinaðir undir heitinu Kaupþing Búnaðar- banki Línur skýrast Við sameininguna eignuðust hlut- hafar Kaupþings 51,77 prósent í hin- um sameinaða banka en hluthafar Búnaðarbankans fengu 48,23 pró- sent. Stærstu hluthafar bankans eft- ir sameininguna voru Egla ehf., sem var leiðandi í S-hópnum undir for- ystu Ólafs Ólafssonar, og eignar- haldsfélag sem hét Meiður, en breytti síðar nafni sínu í Exista. Á meðal annarra eigenda var Fer- radis Holdings S.A. frá Lúxemborg, sem hafði verið níundi stærsti eig- andi Búnaðarbankans fyrir samein- ingu, og Otris S.A. sem var skráð til heimilis í Road Town, höfuðborg Tortola-eyju. Engar upplýsingar liggja fyrir um hverjir eigendur þessara félaga voru, en þeir Sigurjón Þ. Árnason (Ferradis) og Kristján Gunnar Valdimarsson (Otris) sóttu um kennitölur fyrir félögin svo þau gætu stundað bankastarfsemi á Ís- landi. Þeir störfuðu þá báðir hjá Búnaðarbankanum en voru ráðnir yfir til Landsbankans eftir að Sam- son eignaðist hann. Tillaga var gerð um að starfandi stjórnarformaður hins sameinaða Kaupþings Búnaðarbanka yrði Sig- urður Einarsson en forstjórar yrðu Hreiðar Már Sigurðsson og Sólon Sigurðsson. Sólon hætti reyndar störfum skömmu síðar og Hreiðar stjórnaði bankanum einn eftir það. Hverjir voru nýju eigendurnir? Upphaf þess félags sem síðar varð Exista er hægt að rekja aftur til árs- ins 2001. Þá settu átta sparisjóðir eignarhluti sína í Kaupþingi, sem samtals var 11,1 prósent, saman í eitt félag og kölluðu það SP eign- arhaldsfélag. Í október 2002, þegar einkavæðingarferli Búnaðarbankans stóð sem hæst, var nafninu breytt í Meiður ehf. Á sama tíma lagði Kaup- þing eign sína í sjálfu sér inn í félagið og heildareign Meiðs í bankanum varð við það um 26 prósent. Kaup- þing mátti hins vegar ekki eiga meira en tíu prósent í sjálfu sér sam- kvæmt lögum og því lá ljóst fyrir að bankinn þurfti að selja sinn hlut í Meið. Það gerðist á milli jóla og ný- árs 2002 þegar Bakkabræður Hold- ing, í eigu bræðranna Lýðs og Ágústs Guðmundssona, keypti 55 prósent í Meið. Nafninu var síðan breytt í Exista árið 2005. Exista var, í gegnum hollenska dótturfélagið Exista B.V., stærsti einstaki eigandi Kaupþings þegar bankinn féll með 24,71 prósents hlut í honum. Hvað varð um S-hópinn? Stærsti hluti þeirra 45,8 prósenta í Búnaðarbankanum sem S-hópurinn fékk að kaupa af íslenska ríkinu fór til Eglu ehf. Það félag var í eigu Kers (49,5 prósent), þýska bankans Hauck & Aufhauser (50 prósent) og VÍS (0,5 prósent). VÍS, sem var stjórnað af Finni Ingólfssyni, fyrrum viðskiptaráðherra, var auk þess beinn aðili að kaupunum. Þrátt fyrir að S-hópurinn hefði skuldbundið sig til að halda eignar- haldinu óbreyttu í 21 mánuð frá und- irskrift þá keypti Ker um þriðjung af hlutafé Hauck & Aufhauser í KB banka í febrúar 2004. Þá var einung- is liðið um eitt ár frá því að kaupin voru frágengin. Valgerður Sverris- dóttir, þáverandi viðskiptaráðherra, veitti skriflegt leyfi fyrir sölunni. Rúmu ári síðar, í júní 2005, var Hauck & Aufhauser búinn að selja allan hlut sinn í bankanum. Ker sam- einaðist síðar Kjalari ehf. undir nafni þess síðarnefnda. Kjalar er í 94 pró- senta eigu Ólafs Ólafssonar. Við sameiningu Kers og Kjalars færðist hollenska dótturfélagið Egla Invest B.V. inn í Kjalar, en það átti 9,88 pró- sent í Kaupþingi þegar bankinn féll í október síðastliðnum. Þessir tveir aðilar, Kjalar og Ex- ista, voru því langstærstu eigendur Kaupþings síðustu árin. Þar sem rúmlega tíu prósent af hlutafé bank- ans voru geymd á safnreikningi án atkvæðisrétta voru félögin tvö og eigendur þeirra ráðandi í Kaupþingi ásamt stjórnendum bankans. Bankinn sameinast Kaupþingi  Búnaðarbankinn sameinaðist Kaupþingi skömmu eftir að gengið var frá kaupum S-hópsins  Við þá sameiningu myndaðist sá hópur eigenda og stjórnenda sem stýrðu bankanum fram að endalokunum EITT AF helstu markmiðum rík- isins með sölu á hlut sínum í Bún- aðarbankanum var að erlend fjár- málastofnun myndi koma þar að. Því vann það með bjóðanda ef hann hafði slíka í sínum hópi. S-hópurinn tilkynnti einkavæð- ingarnefnd að hann væri í viðræðum við franska bankarisann Societe General til að tryggja mögulega fjármögnun snemma í september 2002. Starfsmönnum nefndarinnar var í kjölfarið falið að kanna hvers kyns sú aðkoma væri. Þann 6. september barst tölvu- póstur frá Anders Alfredsson hjá HSBC þar sem hann fór yfir samtal sitt við mann að nafni Michael Saut- ter frá Societe General. Alfredsson sagði Sautter hafa sagt sér að So- ciete General hefði verið beðinn nokkrum dögum áður, þann 28. ágúst, að aðstoða S-hópinn við und- irbúning á tilboðsgögnum hópsins. Staða Societe General óskýr Alfredsson sagðist þá hafa beðið Sautter um að útskýra nánar hvað fælist í aðkomu bankans að tilboð- inu. Í svari Sautter kom fram að bankinn væri ekki áhugasamur um að koma inn sem fjárfestir þar sem slíkt myndi stangast á við hlutverk hans sem ráðgjafa hópsins. Það hefði hins vegar verið rætt að So- ciete General myndi mögulega hjálpa S-hópnum við öflun fjár- magns í tengslum við viðskiptin. Slík fyrirgreiðsla hefði hins vegar enn ekki verið samþykkt af lánanefnd bankans og að mun víðtækari upp- lýsingar þyrftu að liggja fyrir um málið til að það myndi gerast. Í byrjun nóvember kynnti HSBC drög að samantekt og niðurstöðum úr viðræðum þeirra við bjóðendur í hlut ríkisins í Búnaðarbankanum, S- hópinn og Kaldbak. Í fundargerð einkavæðingarnefndar er bókað að það hafi verið nokkuð ljós niðurstaða í „mati þeirra að svokallaður S- hópur væri sterkari kostur hvort sem Societe General væri með eða ekki.“ Í matsskýrslunni kemur fram í dálki sem kallaðist „staða fjár- mögnunar“ að Societe General væri að leita að alþjóðlegum fjárfesti og væri að skoða að fjárfesta sjálfur í hópnum. Það er þó ljóst að HSBC fannst staða bankans í hópnum óskýr. Málið var í kjölfarið rætt og ákveðið að fá „nánari skýringu á að- komu Societe General.“ Norrænn banki kynntur Seinna um daginn var haldinn nýr fundur í nefndinni þar sem Edward Williams hjá HSBC gerði grein fyrir samskiptum sem hann hafði átt við S-hópinn og Societe General frá síð- asta fundi. Í bréfi til Williams ritaði Sautter að „við höfum verið skipaðir ráðgjafar hóps af fjárfestum í einka- væðingarferli Búnaðarbank- ans ... auk þess þá höfum við mögu- lega áhuga á að skrifa okkur fyrir hlutafé í fjárfestingarfélagi [innsk. blaðam. sem síðar varð Egla] sem verið er að koma á laggirnar af hópnum til að kaupa hlutabréf í Bún- aðarbankanum [...] þá erum við einn- ig í viðræðum við norrænan banka, sem hefur lýst yfir alvöru áhuga á því að eignast hlut í fjárfestinga- félaginu ... fjárfestirinn mun verða kynntur einkavæðingarnefnd, ef við- skiptin eiga sér stað.“ Þessar skýringar virðast hafa nægt nefndarmönnum því í lok fund- arins mælti einkavæðingarnefnd með því að gengið yrði til samnings- viðræðna við S-hópinn. Óþekktir utan Þýskalands Í fundargerð einkavæðing- arnefndar þann 12. desember er bókað að „gert er ráð fyrir að aðild Soc. Gen. yrði staðfest morguninn eftir“. Sú staðfesting fékkst aldrei. Þess í stað kom S-hópurinn „á fram- færi beiðni um frest á undirskrift til 13. janúar nk.[...] Fram kom að ekki væri hægt að tilkynna um erlendan aðila fyrr en við undirskrift.“ Í tölvupósti frá Williams þennan sama dag, 13. desember, kemur fram að um fjóra mögulega aðila væri um að ræða. Þrjú af þeim fjór- um nöfnum sem honum hefði verið kynnt litu út fyrir að vera „skyn- samlegir mögulegir fjárfestar.“ Síð- ar í bréfinu segir að „aðeins einn þeirra er vel þekktur sérfræðingum fjármálastofnana utan Þýskalands en mjög stutt könnun á hinum gefur til kynna að þeir gætu líka verið trú- verðuglegir fjárfestar“. Einungis einn hinna ónafngreindu, en áhuga- sömu, fjárfesta gat þó séð fyrir sér að hafa áhuga á jafn stórum hlut og Societe General hafði séð fyrir sér að þeir gætu mögulega eignast. Í niðurlagi póstsins segir síðan orð- rétt „Vona að þetta hjálpi. Við erum ekki fullkomlega öruggir en ég held að það sé skynsamlegt að halda áfram á grundvelli þess sem SocGen hefur sagt mér.“ Með sterkan bakhjarl Einkavæðingarnefnd fékk síðan loks að vita hver hin erlenda fjár- málastofnun var á fundi sínum þann 9. janúar. Hann hét Hauck & Auf- hauser, var þýskur og fjarri því að vera þekktur í hinum alþjóðlega fjármálaheimi. Daginn eftir var rætt um hvenær ætti að ganga frá kaupsamningn- um.Í fundargerð er hins vegar bók- að að það væri „vandamál að fá full- trúa erlends banka til að skrifa undir fyrir tiltekinn tíma. Farið var yfir upplýsingar um bankann ... Ljóst er að miklu máli skipti að bakhjarl bankans er Bayerische Landesbank sem er þekktur og stór banki.“ Athygli vekur að í öllum fund- argerðum einkavæðingarnefndar er Hauck & Aufhauser aldrei nefndur á nafn. Bankinn hafði enda lítl afskipti af þessum eignarhlut sínum og skip- aði Guðmund Hjaltason sem fulltrúa sinn í stjórn Eglu. Guðmundur var þá forstjóri Kers og tók síðar við stöðu framkvæmdastjóra Eglu. Rúmum tveimur árum eftir að Hauck & Aufhauser keypti hlut sinn var bankinn búinn að selja hann all- an til annarra aðila innan S-hópsins. Societe General verður Hauck & Aufhauser  Erlendi aðilinn var fyrst sagður vera Societe General Morgunblaðið/Kristinn. Ný stjórn Sigurður Einarsson varð starfandi stjórnformaður, Hjörleifur Jakobsson varð varaformaður stjórnar og Hreiðar Már Sigurðsson og Sólon Sigurðsson urðu forstjórar hins sameinaða banka.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.