Morgunblaðið - 23.03.2009, Side 16
16 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MARS 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
ÖLLUM útibúum SPRON verður
lokað og viðskiptavinum beint til
Nýja Kaupþings. Á þriðja hundrað
manns missa vinnuna samtals í
Sparisjóðabankanum og SPRON í
kjölfar þess að Fjármálaeftirlitið
(FME) tók yfir starfsemina hjá báð-
um fyrirtækjum.
Flestir missa vinnuna
„Mér sýnist á öllu að meirihlutinn
missi vinnuna,“ segir Friðbert
Traustason, framkvæmdastjóri
Starfsmanna fjármálafyrirtækja
(SSF), um yfirtöku SPRON og
Sparisjóðabankans. Um 180 manns
unnu hjá SPRON og færist hluti
þeirra yfir til nýrra starfa hjá Nýja
Kaupþingi og einhverjir munu sinna
ráðgjafarstörfum hjá skilanefnd. 60-
70 manns unnu hjá Sparisjóðabank-
anum. Á þriðja hundrað bankamenn
eru því að bætast við þá 1.300 sem nú
þegar eru atvinnulausir. „Ég hugsa
til þess með hryllingi að þetta skuli
gerast. [...] Ef við tökum fjölda
starfsmanna í bönkunum áður en
þessi bóla fór af stað þá voru starfs-
menn í bönkunum rúmlega 4.000
talsins, áramótin 2003-2004,“ segir
Friðbert. Hann segir að næstu skref
hjá SSF séu að tryggja áunnin rétt-
indi þeirra starfsmanna sem missa
vinnuna.
Fólk grátandi á Grand Hóteli
Sérstök skilanefnd hefur verið
skipuð yfir SPRON og hefur stjórn
sjóðsins verið vikið frá. Á sérstökum
fundi á Grand Hóteli í gær útskýrði
Guðmundur Hauksson, forstjóri
SPRON, fyrir starfsmönnum hvern-
ig staðan væri. Ólafur Már Svav-
arsson, formaður starfsmannafélags
SPRON, segir fundinn hafa verið
mjög erfiðan og tilfinningaríkan.
„Fólk var grátandi, stjórnin var
klökk og þakkaði fyrir samstarfið.
Þetta var í raun mjög átakanlegt,“
segir hann. Aðrir fundarmenn sem
Morgunblaðið ræddi við tóku undir
með Ólafi. „Fólk er slegið, það er
ekkert öðruvísi,“ sagði einn þeirra.
Yfirtaka sjóðsins hefði komið eins og
þruma úr heiðskíru lofti. Menn voru
óánægðir að þurfa að heyra tíðindin í
útvarpinu, en starfsfólk heyrði fyrst
af yfirtökunni síðdegis á laugardag.
Öll útibú SPRON, nema útibúið í
Borgartúni, verða lokuð í dag. Við-
skiptavinir SPRON fá sjálfkrafa að-
gang að innstæðum sínum og njóta
annarrar bankaþjónustu hjá Nýja
Kaupþingi. Sama gildir um við-
skiptavini Netbankans, nb.is. Frjálsi
fjárfestingarbankinn verður rekinn
áfram í óbreyttri mynd um sinn.
Séreignarsparnaður frystur
FME hefur fryst tímabundið tvo
sjóði sem SPRON rekur, verð-
bréfasjóð og fjárfestingarsjóð rekstr-
arfélags SPRON, en sjóðirnir hafa að
geyma séreignarsparnað. Við-
skiptavinir SPRON munu ekki geta
fengið séreignarsparnaðinn greiddan
út meðan sjóðirnir eru frystir.
Ákvörðunin var tekin með hagsmuni
og jafnræði eigenda hlutdeild-
arskírteina að leiðarljósi. Ákvörðun
um áframhaldandi rekstur sjóðanna
verður hraðað eins og kostur er, að
því er segir í tilkynningu frá FME.
SPB fer í greiðslustöðvun
„Það er ekki búið að loka bank-
anum. Hann mun óska eftir greiðslu-
stöðvun á morgun [í dag] en hann
verður áfram til,“ segir Agnar Hans-
son, forstjóri Sparisjóðabankans.
Gert er ráð fyrir því í ákvörðun FME
að bankaráð Sparisjóðabankans sitji
áfram og hefur bankaráðið farið þess
á leit við Agnar að hann verði áfram
forstjóri. Innstæður sparisjóða í
Sparisjóðabankanum færast til
Seðlabankans og aðrar innstæður til
Nýja Kaupþings. Spurður hvort ekki
sé í reynd verið að leysa bankann upp
í núverandi mynd segir Agnar að
aðrir verði að svara því. „Það er alveg
ljóst að þetta er ekkert stór hluti af
efnahagsreikningnum. Aðrar inn-
stæður voru einn til tveir milljarðar
af þrjú hundruð milljarða efnahags-
reikningi,“ segir Agnar.
Yfirtaka FME á Sparisjóðabank-
anum og SPRON mun ekki hafa
neina röskun í för með sér fyrir starf-
semi annarra sparisjóða í landinu.
Þeir eru þó margir hverjir í rekstr-
arvandræðum og sex sparisjóðir hafa
nú þegar sótt um eiginfjárframlag
frá ríkissjóði. Sjóðirnir þurfa að sýna
fram á að með slíku framlagi sé hægt
að koma á raunhæfri endur-
skipulagningu á rekstri þeirra.
Á þriðja hundrað missir vinnu
FME tekur yfir SPRON og Sparisjóðabankann Öllum útibúum SPRON lokað og viðskiptavinum
beint til Nýja Kaupþings Tár féllu á fundi starfsmanna Engin samkeppni í greiðslumiðlun
Morgunblaðið/Golli
Yfirtaka Gunnar Haraldsson, stjórnarformaður FME, og Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra tilkynntu um yfirtökuna á blaðamannafundi í Þjóðmenning-
arhúsinu á laugardaginn. Gylfi kynnti jafnframt aðgerðir til að verja hagsmuni sparisjóðanna. Sex sparisjóðir hafa nú sótt um sérstakt eiginfjárframlag.
1. FME tekur yfir vald hluthafafundar
SPRON og víkur stjórn félagsins frá
störfum. Skipuð er skilanefnd yfir SPRON.
2. Nýja Kaupþing tekur yfir
innistæður SPRON. Bankinn yfirtekur
þó ekki peningamarkaðsinnlán frá
fjármálafyrirtækjum sem kunna að eiga
innlán hjá SPRON.
3. Nýja Kaupþing yfirtekur skuldbindingar
samkvæmt inn- og útflutningsábyrgðum
og ábyrgðir vegna efnda fyrirtækja og
einstaklinga sem tengjast reglubundinni
starfsemi.
4. Stofnað verður sérstakt hlutafélag í
eigu SPRON sem tekur við öllum eignum
félagsins og öllum tryggingaréttindum,
þ.m.t öllum veðréttindum, ábyrgðum
og öðrum sambærilegum réttindum
sem tengjast kröfum SPRON. Hið nýja
dótturfélag gefur út skuldabréf til Nýja
Kaupþings tryggt með veði í öllum eignum
sínum sem endurgjald fyrir hinar yfirteknu
innlánsskuldbindingar.
-Netbankinn verður lagður niður og færast
innlán til Kaupþings
-Öllum útibúum SPRON verður lokað
-Frjálsi fjárfestingarbankinn verður rekinn
áfram í óbreyttri mynd og verður hann
eign hins nýja dótturfélags.
Eiginfjárstaða SPRON hefur verið undir
lögbundnum mörkum frá lokum október.
Hefur FME veitt sjóðnum ítrekaða fresti til
að koma á raunhæfri endurskipulagningu á
fjárhag sjóðsins.
Atburðarás: Yfirtaka FME á SPRON og Sparisjóðabankanum
12. mars FME óskar eftir nánari
upplýsingum um það hvernig SPRON
hyggst uppfylla kröfur um nauðsynlegt
eigið fé og laust fé.
18. mars SPRON svarar FME
og bendir á sölu fasteignabréfa til
Íbúðalánasjóðs sem leið til að leysa
fjármögnun félagsins. Er þar ráðgert að
selja 43 milljarða króna skuldabréfasafn
og í framhaldinu annað safn veðskulda-
bréfa í erlendri mynt fyrir 20 milljarða.
20. mars Seðlabankinn bendir á að
ólíklegt sé að þessi sala bæti eiginfjárstöðu
SPRON. Til þess verði ávöxtunarkrafan í
þessum viðskiptum að vera lægri en sú
krafa sem liggur til grundvallar bókfærðu
verði bréfanna hjá sjóðnum. Seðlabankinn
metur stöðu SPRON þannig að hann
geti ekki staðið við skuldbindingar sínar
gagnvart viðskiptavinum eða kröfuhöfum.
21. mars FME óskar eftir svörum
frá stjórnendum SPRON. Í svarbréfi
SPRON sama dag segir að til þess að
tryggja starfsemi sjóðsins þurfi frekari
fyrirgreiðslu frá Seðlabankanum. SPRON
óskar jafnframt eftir frekara svigrúmi til að
leiða til lykta ágreining um uppbyggingu
eiginfjárgrunns með lengingu lána.
21. mars Stjórn SPRON sendir
síðdegis bréf til FME þar sem óskað er eftir
því að gripið verði til aðgerða á grundvelli
neyðarlaganna.
Frá lokum október hefur eiginfjárstaða
Sparisjóðabankans verið undir
lögbundnum mörkum en FME hefur veitt
bankanum ítrekaða fresti í því skyni að
gefa bankanum kost á að endurskipuleggja
fjárhag sinn.
Í bréfi sem FME barst frá Seðlabankanum
21. mars er vikið að neikvæðri eigin-
fjárstöðu og óviðunandi lausafjárstöðu
Sparisjóðabankans. Það sé mat Seðla-
bankans að staða Sparisjóðabankans
sé óviðunandi og geti auk þess haft
neikvæð keðjuverkandi áhrif á önnur
fjármálafyrirtæki.
Bankaráð sér sér ekki annað fært en að
óska eftir því að FME grípi til úrræða.
1. Seðlabankinn yfirtekur skuldbindingar
Sparisjóðabankans vegna innstæðna
sparisjóða.
2. Greiðslumiðlun Sparisjóðabankans
færist yfir til Seðlabankans.
3. Nýja Kaupþing yfirtekur innstæður
annarra en sparisjóða.
4. Nýja Kaupþing yfirtekur skuldbindingar
samkvæmt inn- og útflutningsábyrgðum
og yfirtekur ábyrgðir vegna efnda
fyrirtækja og einstaklinga sem tengjast
reglubundinni starfsemi.
Aðrir sparisjóðir
Með neyðarlögunum
var ríkissjóði veitt
heimild til að leggja
sparisjóðum til fjárhæð
sem nemur allt að 20% af
eigin fé hvers þeirra. Fjármálaráðuneytið
hefur þegar móttekið umsóknir sex spari-
sjóða um eiginfjárframlag frá ríkissjóði.
Um er að ræða umsóknir frá Sparisjóði
Norðfjarðar, Sparisjóði Keflavíkur, Spari-
sjóði Vestmannaeyja, Sparisjóði Svarfdæla,
Sparisjóði Bolungarvíkur og Byr sparisjóði.
Greiðslumiðlun Sparisjóða-
bankans færist yfir til Seðla-
bankans í kjölfar þess að
Sparisjóðabankinn var tekinn
yfir. Greiðslumiðlun Seðla-
bankans er í höndum banda-
ríska bankans JP Morgan.
„Það er að sjálfsögðu æskilegt
að hafa fleiri en einn aðila á
þessum markaði, eins og öll-
um mörkuðum,“ segir Vil-
hjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins. „Það gefur
augaleið að það er hætta á því
að þjónustan verði dýrari en
ella. Það þarf að láta á það
reyna,“ segir Vilhjálmur og
vísar til þess að sama lögmál
gildi á þessum markaði og
öðrum þar sem aðeins einn
aðili veitir þjónustu.
Fyrir bankahrunið sinntu
stóru bankarnir þrír allir
þessu hlutverki. Vilhjálmur
segir að setja þurfi í forgang
að byggja upp greiðslumiðlun
hjá öðrum bönkum sem fyrst.
Greiðslumiðlun
til Seðlabankans
STARFSFÓLK Sparisjóðabankans
var á leið á árshátíð á laugardag-
inn þegar þær fréttir bárust að
bankinn hefði verið tekinn yfir af
Fjármálaeftirlitinu. Það virtist þó
ekki koma verulega niður á
stemmningunni á árshátíðinni, sem
haldin var á Hótel Sögu, að sögn
þeirra starfsmanna sem Morg-
unblaðið ræddi við. Menn hefðu
fengið tækifæri til „að vera saman
og deila tilfinningum með vinnu-
félögunum.“ Einn starfsmaður
Sparisjóðabankans sló á létta
strengi og tilkynnti vinum og
vandamönnum á samskiptasíðunni
Facebook að Fjármálaeftirlitið
yrði með sérstakt skemmtiatriði á
árshátíðinni þá seinna um kvöldið.
Þótti flestum það heldur ódýrt
skemmtiatriði.
FME með
skemmtiatriði