Morgunblaðið - 23.03.2009, Page 23

Morgunblaðið - 23.03.2009, Page 23
Umræðan 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MARS 2009 mbl.is verður með viðtalsþátt tileinkaðan kosningabaráttunni. Þátturinn heitir Zetan og þar munu formenn stjórnmálaflokkanna sitja fyrir svörum í beinni útsendingu. Fyrsta útsendingin er mánudaginn 23. mars kl. 12:00 en þá mætir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri hreyfingarinnar, græns framboðs í Zetuna. Strax kl. 14:00 sama dag kemur Þór Saari, hagfræðingur og talsmaður Borgarahreyfingarinnar. Forsvarsmenn flokkanna koma í Zetuna næstu mánudaga og hægt verður að horfa á þættina á mbl.is þegar hverjum og einum hentar. Það eru blaðamennirnir Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, Agnes Bragadóttir, Björn Vignir Sigurpálsson og Karl Blöndal sem hafa umsjón með þáttunum. Kraumandi kosningabarátta á mbl.is Zetan Kosningar 2009 DITMAR Blefken kom aldrei til Íslands en heimildarmenn hans voru erlendir menn sem hingað komu í stutta heim- sókn og tal höfðu haft af Íslendingum. Upphaflegir heim- ildarmenn hans voru þannig vafa- laust Íslendingar. Sagan er nú að endurtaka sig. Hver Íslendingurinn á fætur öðr- um stígur nú fram og gefur fáfróð- um, fákænum útlendum fjölmiðla- mönnum, sem ekkert vita um Ísland, yfirlýsingar um gífurlega „spillingu“ og „glæpi“ hérlendra stjórnvalda, sem beri ábyrgð á nú- verandi ástandi. Útlendingarnir, sem ekki vita betur, prenta þetta athugasemdalaust. Síðan er eitt- hvert erlent heimsblað eða fjöl- miðill borinn fyrir rógnum, sem þó kom upprunalega frá íslenskum heimildarmönnum fjölmiðilsins. Til dæmis hefur íslensk kona lýst því yfir á fjölsóttri útlendri vefsíðu að Geir Haarde sé að öllu leyti sam- bærilegur við Robert Mugabe og ástandið hér fyllilega sambærilegt við ástandið í Simbabve. Enginn lyftir augabrún hér á Íslandi þótt svona sé sagt í íslenskum fjölmiðli eða vefsíðu. Útlendingar taka hins vegar svona tal í fullri og fúlustu alvöru. Er einhver hissa á því að orðstír landsins hafi beðið hnekki? Það er gömul saga og ný, að sá sem talar illa um sjálfan sig þarfn- ast ekki óvina. Það eru að sjálfsögðu fyrst og fremst þeir Íslendingar, sem til- heyra Samfylkingar/Baugs- klíkunni, sem gleiðastir hafa verið og duglegastir að sverta og sví- virða eigin land og þjóð frammi fyrir útlendingum. Ekki þarf að taka fram, að fólkið sem nú talar hæst allra um „landráð“ einhverra pólitískra andstæðinga sinna eru líka þeir sem vilja setja landið undir erlent vald. Gamalt orð yfir liðsmenn þeirrar hugmyndafræði, sem Samfylkingin stendur fyrir, er „mensévíkar“. Saga mensévíka er þyrnum stráð. Á fundi einum í flokki sósíal- demókrata upp úr aldamótunum 1900 varð flokksbrot Len- íns í meirihluta. Það gefur góða innsýn í hugarheim og starfs- aðferðir þess sam- viskulausa óþokka og ósvífna lygara, sem Lenín var, að upp frá þessum fundi nefndi hann ávallt fylg- ismenn sína „meirihlutamenn“ (bolsévíka). Það segir þó enn meiri sögu um skapgerð og sálarlíf and- stæðinga hans, sem höfðu yf- irgnæfandi meirihluta í flokki sósí- aldemókrata, að þeir létu það yfir sig ganga að láta kalla sig „minni- hlutamenn“ (mensévíka). Þeir létu Lenín komast upp með þetta og nafnið festist smám saman við þá. Foringinn, Kerensky, hélt að hann mundi eiga í fullu tré við Lenín af því að þeir höfðu þekkst í æsku. Hann var heppinn að sleppa lif- andi. Í borgarastyrjöldinni á Spáni létu mensévíkar bolsévíka valta al- veg yfir sig og Franco hrifsaði völdin. Í stríðlok reyndu mensé- víkar í Austur-Evrópu enn að vinna með bolsévíkum, en voru í staðinn fangelsaðir, skotnir eða fleygt út um glugga. Hér á Íslandi hafa mensévíkar skilið eftir sig langa slóð misheppnaðra og fallít hugsjóna og fyrirtækja: Alþýðu- prentsmiðjan, Alþýðuhúsið, Al- þýðublaðið, Alþýðubankinn, Al- þýðubrauðgerðin og, eftir fjölmargar greiðslustöðvanir: Al- þýðuflokkurinn. Gömlu mensévík- arnir þar gáfust endanlega upp fyrir ný-mensévíkum, fyrrverandi bolsévíkum, sem eftir fall alræðis og gúlags í austri voru farnir að kalla sig, af þeirri sýndarmennsku sem þessu fólki er svo lagin, „lýð- ræðiskynslóð“ Alþýðubandalags- ins. Þeir hrifsuðu strax öll völd. Ekkert varð eftir af Alþýðuflokkn- um nema eitthvert tuð um Evr- ópusambandið. Flokkurinn mun nú vera í skrifborðsskúffu í Sví- þjóð. Nýliðnir atburðir eiga ekkert sameiginlegt með falli járntjalds- ins 1989 eins og sumir vinstrisinn- aðir einfeldningar hafa haldið fram. Líkindin eru hins vegar mik- il við það, þegar lýðræðislega kjör- in stjórnvöld á Ítalíu og Þýska- landi gáfust upp fyrir ofbeldismönnum á millistríðs- árunum. Í lok fyrri heimsstyrjaldar ríkti mikil upplausn í Evrópu og upp spruttu fjölmargar „grasrót- arhreyfingar“. Í Rússlandi hafði lítill hópur „aðgerðarsinna“ undir stjórn Leníns hrifsað völdin frá ráðlausri, ráðvilltri stjórn mensé- víka og á Ítalíu stofnaði gamall marxisti, Benito Mussolini, nýja „grasrótarhreyfingu“ og náði völd- um skömmu síðar. Um 1930 skall svo kreppan yfir af fullum þunga. Efnahagur Þýskalands var í kaldakoli og stjórnvöld vissu ekki sitt rjúkandi ráð. Hópar „mótmælenda“ af ýmsu tagi óðu um götur og torg. Þeir heimtuðu „nýja menn“ til valda og fengu að lokum vilja sín- um framgengt. Lýðræðislega kjör- in stjórnvöld gáfust upp og allir vita hvernig fór. Hérlendis hafa litlir hópar, sam- anlagt álíka margir eða færri en kusu Ástþór í forsetakosningum, farið um götur og torg með ofbeldi og stöðugum hótunum í fylgd fá- einna nytsamra sakleysingja. Þeir hafa m.a. kastað múrsteinum, mat- vælum og, eins og apar í dýra- garði, sínum eigin úrgangi að Al- þingishúsi og Stjórnarráði. Ný-mensévíkunum í Samfylking- unni hljóp hland fyrir hjarta. Þeir eru sama marki brenndir og hinir eldri og gáfust því upp fyrir of- beldinu og hlupu í fangið á gömlu bolsévíkunum í VG. Þangað leitar klárinn sem hann er kvaldastur. Sagan endurtekur sig alltaf. Fyrst sem harmleikur, síðan sem farsi. Minnipokamenn Vilhjálmur Eyþórs- son fjallar um efna- hagsmál og hvernig umræða á erlendum vettvangi getur skaðað orðstír þjóðarinnar » Sagan endurtekur sig alltaf. Fyrst sem harmleikur, síðan sem farsi. Vilhjálmur Eyþórsson Vilhjálmur Eyþórsson stundar ritstörf. Framsóknarmenn hafa komið með þá hugmynd, að einna réttast væri að fella niður 20% allra íbúðalána með einu pennastriki. Þeir hafa kynnt þessa hug- mynd sína sem ein- falda, fljótvirka og raunhæfa. Viðbrögð manna við þessari hugmynd Fram- sóknar hafa verið afar misjöfn. Bjarni Benediktsson, alþing- ismaður, virðist sjá eitthvað gott í henni, en fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna finna þessari hugmynd allt til foráttu. Jóhanna Sigurðardóttir, for- sætisráðherra, sagði í viðtali ný- lega, að hugmyndin væri fráleit, því með henni væri verið að greiða niður skuldir ríka fóksins í land- inu. Jóhanna taldi að beina ætti hjálpinni að fátækum og illa stödd- um. Þeir einir væru hinir rétt- mætu þyggjendur aðstoðar. En hverjir eru í raun þessir verðugu fátæku skuldarar, sem styrkja má með skattpeningum almennings? Eru eigendur fyrirtækjanna, sem hafa fengið, eða eru að fá, millj- arðaskulda niðurfellingu í boði al- mennings þessir fátæku, sem verð- skulda aðstoðina. Eru verst stöddu íbúðakaupendur kreppunnar örugglega fátæka fólkið á Íslandi og því verðugt aðstoðar úr rík- issjóði? Og enn fremur má spyrja. Eru þeir líka verðugir aðstoðar, sem hafa sökkt sér dýpst í skuldafen útrás- arinnar og súpa nú seyðið af gleypugangi og græðgi Hrunadans- ins? Já, hverjir eru þessir hinir réttmætu styrkþegar krepp- unnar? Ætlar Jóhanna Sigurðardóttir, for- sætisráðherra, kannski að ræða við þá alla og einslega áður en hún réttir þeim blóðsogna hjálparhönd skattgreiðenda fram- tíðarinnar? Er von að spurt sé. Nei, þetta er auðvitað allt hin mesta fásinna. Hinir verðugu skuldarar eru auðvitað öll íslenska þjóðin og því er tuttuguprósent til- laga Framsóknarmanna sann- arlega skoðunarverð, og ekki bara það, heldur er hún sennilega það skásta, sem sést hefur, í fremur fá- tæklegri flóru hugmynda um raun- hæfar leiðir til aðstoðar við tækni- lega gjaldþrota íbúðakaupendur á Íslandi í dag. Hverjir eru verðugir? Gunnar Ingi Gunn- arsson skrifar um 20% niðurfellingu íbúðarlána Gunnar Ingi Gunnarsson »Hinir verðugu skuld- arar eru auðvitað öll íslenska þjóðin og því er tuttuguprósent tillaga Framsóknarmanna sannarlega skoðunar- verð... Höfundur er læknir., ,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.