Morgunblaðið - 23.03.2009, Page 30
30 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MARS 2009
Krossgáta
Lárétt | 1 klaufaskapur,
8 æpi, 9 æviskeiðið, 10
meis, 11 óheflaðan
mann, 13 áma, 15 stafli,
18 storkar, 21 lúsaregg,
22 undirnar, 23 mergð,
24 glamraði.
Lóðrétt | 2 hlutdeild, 3
þræta, 4 bjart, 5 kraft-
urinn, 6 digur, 7 venda,
12 afreksverk, 14 ótta,
15 fíkniefni, 16 pen-
ingar, 17 út, 18 dugleg-
ur, 19 lofað, 20 væskill.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 fjöld, 4 gepil, 7 úldin, 8 felur, 9 dún, 11 auðn,
13 hrái, 14 ýlfur, 15 barr, 17 æfir, 20 þrá, 22 lokka, 23
bifar, 24 rimma, 25 tuska.
Lóðrétt: 1 fjúka, 2 önduð, 3 dund, 4 Gefn, 5 pólar, 6
lerki, 10 úlfur, 12 nýr, 13 hræ, 15 bolur, 16 rekum, 18
fífls, 19 rorra, 20 þaka, 21 ábót.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú pælir sjaldan í hvers vegna
lífið leiki við þig, en gerðu það núna.
Ekkert er aumkunarverðara en sá sem
gasprar af engu viti.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Eitthvað sem áður var falið á bak
við gráa skýjahulu kemur í dagsljósið.
Þér hættir til að spenna bogann of hátt
og þarft að halda þig við raunveruleik-
ann og vera trúr sjálfum þér.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú færð hugmyndir um það
hvernig þú getur aukið tekjur þínar.
Mest heillandi við þig er hversu miklum
árangri þú nærð.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Viðleitni þín til þess að hjálpa
ættingja gengur ekki alveg sem skyldi.
Láttu hana ekki hrífa þig með sér held-
ur stattu fast á þínu.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Sýndu samstarfsfólki þínu meiri
sanngirni og umburðarlyndi. Gættu
allrar varúðar svo þú verðir ekki fyrir
tjóni.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Ef þú leggur þig allan fram
máttu vera ánægður með störf þín
hvort heldur um er að ræða í starfi eða
heima við. Leggðu þig fram um að
styrkja tengslin við vini og vandamenn.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Nú er lag til þess að skjóta á fundi
með vinum og vandamönnum. Vertu
ljúfur og haltu augunum opnum.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Augu þeirra, sem eru í
kringum þig, eru að opnast fyrir þeim
hæfileikum sem þú ert gæddur. Orð
geta hitt í mark og mundu að aðrir eiga
líka rétt á sínum skoðunum.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þegar taka þarf mikilvægar
ákvarðanir þarftu að vera ákveðinn og
sterkur. Forðastu að særa viðkvæmt
stolt einhvers.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það getur reynst nauðsynlegt
að halda fast utan um hlutina til þess að
maður missi ekki frá sér ýmislegt sem
manni er kært.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Gerðu það sem þig lystir.
Gættu þess þó að ofmetnast ekki eða
gleyma þætti þinna nánustu í velgengni
þinni.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Flestir fylgja reglunum sem sett-
ar eru. Verk þín sanna sig sjálf svo þú
skalt fara þér hægt en njóta árangurs
erfiðis þíns.
Stjörnuspá
23. mars 1663
Ragnheiður Brynjólfsdóttir
biskupsdóttir lést í Skálholti,
21 árs. Við útför hennar var
sálmur Hallgríms Péturssonar
Um dauðans óvissa tíma (Allt
eins og blómstrið eina) líklega
fluttur í fyrsta sinn, en hann
hefur verið sunginn við flestar
jarðarfarir síðan.
23. mars 1937
Sundhöllin í Reykjavík var
vígð að viðstöddu fjölmenni.
Hún hafði verið átta ár í bygg-
ingu. Morgunblaðið sagði að
þetta væri „dýrasta og vegleg-
asta íþróttastofnun landsins“.
23. mars 1938
Fyrsta kvikmyndin með Ty-
rone Power í aðalhlutverki
var sýnd í Nýja bíói í Reykja-
vík. Þetta var „Lloyds í Lond-
on“. Morgunblaðið sagði
myndina vera framúrskarandi
listaverk og heimsfræga.
Leikarinn kom til landsins í
nóvember 1947 og vakti heim-
sókn hans mikla athygli.
23. mars 1970
Eggert G. Þorsteinsson ráð-
herra greiddi atkvæði á Al-
þingi gegn stjórnarfrumvarpi
um verðgæslu og samkeppnis-
hömlur. Frumvarpið féll á
jöfnum atkvæðum. „Einstæður
atburður,“ sagði Þjóðviljinn.
23. mars 1999
Skýrt var frá því að Nóatún,
KÁ og 11-11 hefðu sameinast í
Kaupási hf. með 33 verslanir.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
„AFMÆLISVEISLAN bíður um sinn enda er ég
enn að safna kröftum eftir prófkjörsslag Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík,“ segir Kolbrún Bald-
ursdóttir sálfræðingur sem fagnar fimmtíu ára af-
mæli sínu dag. Þrátt fyrir að niðurstaðan hafi
verið önnur en hún vonaðist eftir segir Kolbrún að
þátttakan í prófkjörinu hafi í reynd verið afmæl-
isgjöfin frá sér til sín.
En þó svo að stór afmælisveisla verði geymd þar
til sól hækkar á lofti og blómin springa út mun
Kolbrún fagna tímamótunum í kvöld. Fögnuður-
inn verður á rólegu nótunum, góður kvöldverður í
faðmi fjölskyldunnar.
Ásamt því að reka eigin sálfræðistofu er Kolbrún skólasálfræð-
ingur í Áslandsskóla í Hafnarfirði og stjórnar sjónvarpsþættinum Í
nærveru sálar sem er á dagskrá sjónvarpsstöðvarinnar ÍNN. Í þætt-
inum er fjallað um félags- og sálfræðileg málefni og í þessari viku er
einelti meðal fullorðinna til umfjöllunar. Kolbrún segist fá mjög góð
viðbrögð við þættinum og hefur áhorfið aukist jafnt og þétt. Að auki
heldur hún úti virkri bloggsíðu, þar sem hún birtir reglulega greinar
um sálfræðileg málefni. andri@mbl.is
Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur fimmtug
Prófkjörið var afmælisgjöfin
Reykjavík Hekla Sóley
fæddist 28. desember kl.
21.21. Hún vó 2.990 g og
var 48 cm löng. Foreldrar
hennar eru Matthildur
Gunnarsdóttir og Jóhann
Vignir Gunnarsson.
Reykjavík Esther Ólöf
fæddist 9. október kl.
21.58. Hún vó 4.120 g og
var 54 cm löng. Foreldrar
hennar eru Sólveig Dögg
Larsen og Brynjar Ágúst
Hilmarsson.
Akureyri Eva fæddist 19.
ágúst kl. 15.50. Hún vó
3.520 g og var 51 cm löng.
Foreldrar hennar eru Elín
Margrét Stefánsdóttir og
Ævar Hreinsson.
Sudoku
Frumstig
9
8 3 9
4 2 5
1 7 2 8
3 8 1
2 6
9 2 5 4
2 6
4 7 8
1 6 4
6 9 5 3
4 9
1
4 7 3 8
8 1 4
8 5
6 2
2 4 8 6
3 1
2 7 6
4
7 5 2 6
1 9 8
3 9 4 7
9 8 4 3
6 1
3 4 2 7 5 8 1 6 9
7 1 5 9 6 2 8 4 3
6 9 8 1 4 3 2 7 5
4 8 7 2 3 5 6 9 1
2 5 1 6 9 7 4 3 8
9 3 6 4 8 1 5 2 7
8 7 9 5 2 6 3 1 4
1 6 3 8 7 4 9 5 2
5 2 4 3 1 9 7 8 6
5 1 9 3 7 8 2 4 6
3 4 7 6 1 2 9 8 5
6 8 2 9 5 4 1 7 3
4 7 5 8 9 3 6 1 2
9 6 8 5 2 1 4 3 7
1 2 3 7 4 6 5 9 8
8 3 4 2 6 9 7 5 1
2 5 1 4 3 7 8 6 9
7 9 6 1 8 5 3 2 4
6 1 5 2 4 7 8 9 3
7 2 8 3 9 6 5 4 1
9 3 4 8 1 5 2 6 7
5 8 2 9 6 3 7 1 4
3 4 6 7 8 1 9 5 2
1 7 9 4 5 2 3 8 6
8 5 7 1 3 4 6 2 9
4 6 3 5 2 9 1 7 8
2 9 1 6 7 8 4 3 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 23. mars, 82. dag-
ur ársins 2009
Orð dagsins: Ég lít svo á, að ekki séu
þjáningar þessa tíma neitt í sam-
anburði við þá dýrð, sem oss mun op-
inberast. (Rm. 8, 18.)
Keppni í minnisleikni hefur á öll-um tímum haft mikið aðdrátt-
arafl. Sumir muna ekki neitt, aðrir
muna nokkurn veginn allt, þar með
talið hluti sem engu máli skipta.
Japaninn Akira Haraguchi er í
sérflokki hvað síðari hópinn varðar.
x x x
Söguhetja okkar fæddist árið 1946og lagði eins og margir af sinni
kynslóð stund á verkfræði en hefur
nú látið af því starfi.
Sannleiksástin hefur verið mikið
hreyfiafl í lífi hans og ófá stundin ver-
ið nýtt til að höndla hinn endanlega
sannleika í gegnum utanbók-
arlærdóm á aukastöfum tölunnar pí,
sem stendur fyrir hlutfallið á milli
ummáls og þvermáls hrings.
x x x
Flestir láta nægja sér að muna töl-una sem 3,14 en Haraguchi
finnst lítil íþrótt í því. Það var því stór
stund í lífi Haraguchis þegar hann
stóð upp úr stólnum um hálftvöleytið
eftir miðnætti aðfaranótt 4. október
2006, eftir að hafa þulið upp hundrað
þúsundasta stafinn.
Afrekið var tekið upp á kvik-
myndatöluvél í salarkynnum austur
af Tókýó, þar sem kappinn tók sér
fimm mínútna hlé á tveggja tíma
fresti til að næra sig á hrísgrjóna-
kúlum. Vafalaust hefur heilabúið
fagnað þeim kolvetnaskammti.
Jafnvel klósettferðir hans voru
festar á filmu til að sanna að ekki
væru brögð í tafli.
x x x
Vart þarf að taka fram að Hara-guchi á heimsmetið í þessari
íþrótt og reyndar einnig fyrra metið,
83.431 tölustaf sem sett var í júlí
2005. Met hans eru hins vegar um-
deild og á landi hans Hiroyuki Goto
enn opinbera metið sem er „aðeins“
42.195 tölustafir og sett árið 1995.
Minnisþrautin er sem fyrr segir
annað og meira en dægradvöl fyrir
Haraguchi sem lítur svo á að utan-
bókarlærdómur tölunnar pí sé ekk-
ert minna en trúarbrögð alheimsins.
Til verksins notast hann við kerfi
þar sem táknmyndir eru notaðar í
stað talna. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 e6 4. e3 f5 5. Bd3
Bd6 6. O-O Rd7 7. b3 De7 8. a4 Rh6 9.
Ba3 O-O 10. Dc1 e5 11. Bxd6 Dxd6 12.
dxe5 Rxe5 13. Rxe5 Dxe5 14. Rd2 Be6
15. Rf3 Df6 16. cxd5 Bxd5 17. Bc4
Had8 18. Hd1 De6 19. Rg5 De5 20. f4
De7 21. Bxd5+ cxd5 22. Hd3 Hfe8 23.
Dd2 Rg4 24. He1 Rf6 25. Da5 b6 26.
Db5 Hc8 27. Hxd5
Staðan kom upp nýlega í efstu deild
þýsku deildarkeppninnar. Þýski al-
þjóðlegi meistarinn Michael Richter
(2.421) hafði svart gegn landa sínum og
kollega Volkmar Dinstuhl (2.436).
27… Hc1! 28. Hdd1 Hxd1 29. Hxd1
Dxe3+ 30. Kh1 Dxf4 svartur hefur nú
peði meira og vænlegt tafl. 31. Rf3 h6
32. a5 bxa5 33. Dxa5 He3 34. h3 Hxf3!
innsiglir örlög hvíts. 35. Dd8+ Kh7 36.
gxf3 Dxf3+ 37. Kh2 Df2+ 38. Kh1 Re4
og hvítur gafst upp.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Ás uppi í erminni.
Norður
♠D5
♥Á753
♦D9
♣K9872
Vestur Austur
♠ÁG108 ♠9732
♥DG1096 ♥K842
♦KG62 ♦1074
♣– ♣63
Suður
♠K64
♥–
♦Á853
♣ÁDG1054
Suður spilar 6♣.
Við fyrstu sýn lítur út fyrir að
hjartaásinn í borði komi að litlum not-
um á móti eyðu suðurs. En svo er
ekki. Ásinn gegnir lykilhlutverki í
vandlega úthugsaðri áætlun sagnhafa.
Útspilið er ♥D.
Vestur hafði opnað á 1♥ og þar
með er vitað um háspilastyrkinn á
þeim bæ. Sagnhafi sparar hjartaásinn
til síðari tíma og trompar útspilið.
Tekur tvisvar tromp og notar sam-
ganginn til að stinga önnur tvö hjörtu.
Spilar síðan litlum spaða að drottning-
unni í borði. Vestur má ekki fara upp
með ásinn, því þá fríast ♠K. Vestur
dúkkar því. Þá dregur sagnhafi ♥Á
undan erminni og hendir niður spaða-
hundi heima. Spilar loks spaða á
blankan kóng og leggur upp með stæl.
Vestur þarf að spila frá ♦K eða hálit í
tvöfalda eyðu.
Nýirborgarar