Morgunblaðið - 30.03.2009, Síða 27

Morgunblaðið - 30.03.2009, Síða 27
ar þú komst inn á okkar heimili með Viðari syni okkar ásamt mömmu þinni og Óskari bróður þínum í möndlugraut í hádeginu á aðfanga- dag. Þú varst falleg stelpa með geisl- andi bros og þetta bros fengum við alltaf frá þér fram á síðustu stundu. Elsku Bobbie, þú ert einstök móð- ir og gerðir allt sem þú gast gert til að Auður fengi bata. Leitaðir eftir aðstoð erlendis sem ekki var hægt að framkvæma hérlendis með aðstoð færustu lækna hérna heima og dugði ekki til. Elsku Viðar, þú varst eins og klettur við hlið einginkonu þinnar og alltaf til staðar fyrir mæðgurnar ásamt ykkar börnum. Við þökkum fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum með Auði Bryndísi. Elsku Bobbie, Viðar, Óskar og Aníta Eva og aðrir aðstandendur, guð gefi ykkur styrk og hjálpi ykkur að sjá ljósið skína aftur. Guðlaug og Ólafur. Elsku Auður. Það eru margar minningar sem koma upp í huga minn á stundu sem þessari. Þegar þú varst að koma pínulítil að spyrja eftir Freydísi, ég kom til dyra og þú varst svo feimin að þú varla leist upp, hvað þá að þú gætir spurt um Freydísi. Maður var farinn að þekkja þegar þú komst, hleypti þér bara inn og kallaði á Freydísi. Þú varst heimalningur heima hjá okkur og partur af fjöl- skyldunni. Þegar maður kom heim á daginn kom það á óvart ef þú og Freydís voruð ekki saman að leika. Þið voruð óaðskiljanlegar. Þegar þú greindist svo með heila- æxlið fyrir 5 árum hélt maður að þú yrðir bara skorin upp og þar með væri þetta búið. En svo var nú ald- eilis ekki, þú barðist eins og hetja við þetta og það var sama hvað gekk á þú varst alltaf jákvæð og brosandi, og fyrir það dáist ég að þér. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Héðan skal halda heimili sitt kveður heimilisprýðin í hinsta sinn. Síðasta sinni sárt er að skilja, en heimvon góð í himininn. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Vald. Briem.) Það er með miklum söknuði sem ég kveð þig, elsku Auður mín, og eins og ég sagði í síðasta sinn sem ég sá þig niðri á spítala: „Við sjáumst síð- ar.“ Elsku Bobbý, Viðar, Guðmundur, Hrafnhildur, systkini og aðrir ætt- ingjar ég votta ykkur mína dýpstu samúð, Katrín Aðalsteinsdóttir. Að kynnast góðu fólki er ekki sjálfgefið. Ég kynntist Auði þegar ég var 4 ára þegar við bjuggum báðar í Smáratúninu. Upp frá þessu urðum við vinkonur og höfum verið bestu vinkonur síðan. Ég man ekki líf mitt án Auðar og ég get ekki ímyndað mér hvernig lífið á eftir að verða án hennar. Betri vinkonu er ekki hægt að eiga. Auður var mjög hress og lífs- glöð stelpa og gátum við hlegið sam- an svo tímunum skipti. Þegar litið er til baka rifjast upp ótal minningar en þær sem standa upp úr eru öll ferðalögin sem við fór- um saman í, fótboltamótin, útileig- urnar, sumarbústaðaferðir, Spánar- ferðin og ekki má gleyma þjóðhátíð í Eyjum árið 2007 þar sem ég, Auður og Aron skemmtum okkur konung- lega og mun ég aldrei gleyma þeirri ferð. Auður var mjög góð og var alltaf komin ef eitthvað bjátaði á. Ég man að þegar ég var nýhætt með fyrrver- andi kærastanum mínum og flutti aftur til Keflavíkur kom Auður strax til mín og gaf mér fallegt hálsmen al- veg að tilefnislausu, þetta sýnir hversu góðhjörtuð hún var. Ég gat alltaf leitað til Auðar ef eitthvað var að og hafði hún þann eiginleika að dæma fólk ekki fyrir mistök sem það gerði í lífinu. Ég tel mig lánsama að hafa fengið tækifæri til að kynnast Auði og fengið að njóta allra góðu stundanna sem við áttum saman. Ég trúi því að hún sé komin á betri stað og muni vaka yfir mér og fylgja mér um ókomna framtíð. Ég kveð hana með söknuði. Elsku Bobbie4, Viðar, Gummi, Hrafnhildur, Óskar, Aníta, Aron og Tinna, ykkur vil ég senda innilegar samúðarkveðjur og vona að guð verði með ykkur á þessum erfiðu tímum. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Þín vinkona Freydís Aðalsteinsdóttir. Minningar 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MARS 2009 Smáauglýsingar 569 1100 Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Iðnaðarmenn Helgi pípari Viðgerðir - Nýlagnir - Breytingar. Lítil sem stór verk, hitamál o.fl. Hafið samband í síma 820-8604, Helgi pípari. Til sölu TIL SÖLU EVRUR 10% yfir gengi. Uppl. í síma 865 5833. Skattframtöl Skattframtal 2009 fyrir einstaklinga. Hagstætt verð. Sjáum um eldri framtöl og kærur. Einnig bókhald, vsk.-skil, heimasíður, lén o.fl. Dignus ehf. - dignus.is - s: 699-5023. Framtalsþjónusta 2009 Skattaframtöl fyrir einstaklinga, einstaklinga með rekstur og félög. Einnig bókhald. Hagstætt verð - vönduð vinna. Sæki um frest. Sími 517 3977 - framtal@visir.is Þjónusta Nú er tími framkvæmda Byggingaverktaki getur bætt við sig verkefnum. Nýsmíði, viðhald og endurbygging. Munið 100% endurg. vsk. af vinnu á byggingastað. Uppl. s. 551 6200 og 899 5660. GULL-GULLSKARTGRIPIR Kaupum til bræðslu allar tegundir gullskartgripa, gamla, nýlega, ónýta, gegn staðgreiðslu. demantar.is Magnús Steinþórsson, Pósthússtræti 13, sími: 699-8000. Málarar Málningarvinna Þaulvanur málari getur bætt við sig verkefnum. Inni og úti. Vönduð og öguð vinnubrögð. Sanngjarnt verð. Uppl. í síma 897 2318. Ýmislegt Teg. 11001 - þessi sívinsæli í CDEF skálum á kr. 3.850,- buxur í stíl í stærðum S,M,L,XL,XXL á kr. 1.950. Teg. 3347 - fallegur og haldgóður í stærðum CD skálum á kr. 3.850,- mjúkar boxer buxur í stíl í stærðum M,L,XL,XXL á kr. 1.950. Teg. 84830 - léttfylltur og BARA fallegur í BC skálum á kr. 3.850,- buxur í stíl í S,M,L,XL á kr. 1.950. Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10 - 14 Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is GULL-GULLSKARTGRIPIR Kaupum til bræðslu allar tegundir gullskartgripa, gamla, nýlega, ónýta, gegn staðgreiðslu. demantar.is Magnús Steinþórsson, Pósthússtræti 13, sími: 699-8000. Bílaþjónusta Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza AERO 2008, FWD. Öruggur í vetraraksturinn. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Bilaskoli.is Bókleg námskeið - ökukennsla - akstursmat - kennsla fatlaðra Snorri Bjarnason BMW 116i ´07. Bifhjólakennsla . 8921451/5574975.Visa/Euro Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '08. 8924449/5572940. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06. 8637493/5572493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '08. 6960042/5666442. Húsviðhald Þarftu að breyta eða bæta heima hjá þér? Eða þarftu aðstoð í nýbyggingunni? Við erum til í að aðstoða þig við alls- konar breytingar. Við erum til í að brjóta niður veggi og byggja upp nýja, breyta lögnum, flísaleggja eða parketleggja og fl. Bjóðum mikla reynslu og góð vinnubrögð. Upplýsingar í síma 899 9825. Tökum að okkur að leggja PVC dúk á þök og bílskúra. Þjónum lands- byggðinni einnig. Erum líka í viðgerðum. Uppl. í síma 659-3598. Sumarhús Raðauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir Ársfundur Eftirlaunasjóður starfsmanna Útvegsbanka Íslands boðar til ársfundar miðvikudaginn 15. apríl 2009 kl. 17.15 á Grand Hótel, Setrið 1. hæð. Dagskrá: Skýrsla stjórnar. Önnur hefðbundin ársfundarmál. Allir sjóðfélagar eiga rétt á setu á ársfundi með málfrelsi og tillögurétti. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta. Stjórnin. Tilkynningar Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eftirtalin framkvæmd skuli háð mati á umhverf- isáhrifum samkvæmt lögum um mat á um- hverfisáhrifum nr. 106/2000 m.s.br. Vegagerð milli Eiðis í Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði í Reykhólahreppi og Vesturbyggð Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofn- un, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnunar: www.skipulag.is. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um- hverfisráðherra og er kærufrestur til 28. apríl 2009. Skipulagsstofnun. Félagslíf MÍMIR 6009033019 III°  HEKLA 6009033019 VI  GIMLI 6009033019 ISmáauglýsingar augl@mbl.is Farðu inn á mbl.is/smaaugl Sigurður Ólafsson ✝ Sigurður Ólafs-son fæddist í Reykjavík 7. desem- ber 1916. Hann lést á Landspítalanum, Landakoti, aðfaranótt 25. febrúar síðastlið- ins og var útför hans gerð frá Fossvogskirkju 9. mars. Meira: mbl.is/minningar Flettu upp nafni fermingarbarnsins mbl.is FERMINGAR 2009 NÝTT Á mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.