Morgunblaðið - 13.07.2009, Blaðsíða 4
FRÉTTASKÝRING
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
RÍKISSTJÓRNINNI ber að halda
sig innan þess ramma sem settur er í
nefndaráliti meirihluta utanríkis-
málanefndar Alþingis, verði tillaga
nefndarinnar um umsókn um aðild að
Evrópusambandinu samþykkt. Litið
er á nefndarálitið sem vegvísi við að-
ildarviðræður og þess krafist að ekki
verði vikið frá hagsmunum sem þar
eru skilgreindir án umræðu á Alþingi.
Í áliti meirihluta utanríkismála-
nefndar er meðal annars fjallað um
umsóknarferlið og þá meginhags-
muni sem stjórnvöldum ber að hafa
að leiðarljósi í aðildarviðræðum.
Meirihlutinn metur að það sé full-
nægjandi veganesti fyrir stjórnvöld
og að tiltekin skilyrði í umboði rík-
isstjórnarinnar muni ekki skila neinu
umfram það. Segir þar að á þessum
sjónarmiðum byggist nánar skil-
greindari markmið sem sett verði síð-
ar í ferlinu þegar orðið sé ljóst hvaða
atriði kalla á samningaviðræður.
„Meginhugsunin er fyrst og fremst
sú að setja skýrari ramma utan um
það umboð sem Alþingi veitir fram-
kvæmdavaldinu. Það er gert með því
að hnykkja á því að ríkisstjórnin eigi
að fylgja þeim meginhagsmunum og
verklagi sem lýst er. Þá er nánar
kveðið á um samstarf við hagsmuna-
aðila, aðkomu Alþingis og fleiri at-
riði,“ segir Árni Þór Sigurðsson, for-
maður nefndarinnar.
Sér fiskveiðistjórnunarsvæði?
Mismunandi orðalag er notað þeg-
ar fjallað er um málin. Nefna má að
nefndin telur að allar bollaleggingar
um sameiginlega nýtingu orkuauð-
linda séu „óásættanlegar“. „Raunhæf
leið“ til að tryggja forræði íslenskra
stjórnvalda yfir sjávarútvegi sé að
skilgreina efnahagslögsöguna sem
sérstakt íslenskt fiskveiðistjórnar-
svæði, þannig að erlend skip fái ekki
réttindi til veiða úr íslenskum veiði-
stofnum. Meirihlutinn telur „alger-
lega útilokað“ að Ísland taki yfir regl-
ur ESB varðandi brottkast afla. Þá
má nefna að hann telur „afar mikil-
vægt“ að Íslendingar fari með for-
ræði samninga við stjórn veiða úr
deilistofnum, „eins og hægt er“. Þá er
„frumskylda“ samningamanna Ís-
lands að tryggja að afrakstur sjávar-
auðlindarinnar falli til á Íslandi.
Þannig verði „ekki veitt svigrúm“ fyr-
ir erlendar útgerðir að fjárfesta hér.
„Það eru allir meira og minna sam-
mála um þau mál sem við reifum og
teljum mest áríðandi,“ segir Árni.
Rammi fyrir
samningamenn
Íslendinga
Alþingi verði ávallt með í ráðum
Í áliti meirihluta utanríkismála-
nefndar Alþingis má finna vegvísi
um nokkur mikilvæg hagsmuna-
mál Íslands fyrir væntanlegar
viðræður um aðild að ESB.
Tillaga meirihluta utanríkismála-
nefndar hljóðar svo: „Alþingi
ályktar að fela ríkisstjórninni að
leggja inn umsókn um aðild Ís-
lands að ESB og að loknum við-
ræðum við sambandið verði
haldin þjóðaratkvæðagreiðsla
um væntanlegan aðildarsamn-
ing. Við undirbúning viðræðna
og skipulag þeirra skal rík-
isstjórnin fylgja þeim sjón-
armiðum um verklag og meg-
inhagsmuni sem fram koma í
áliti meiri hluta utanríkismála-
nefndar.“
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
leggja m.a. til að efnt verði til
þjóðaratkvæðagreiðslu um það
hvort Íslendingar eigi að sækja
um aðild að ESB.
Í tillögu þingmanns Framsókn-
arflokksins er lagt til að aðild-
arviðræður fari fram á grundvelli
samningsumboðs með tilteknum
skilyrðum.
Tillögur til umræðu
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 2009
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til
leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Verð kr. 19.990
Netverð á mann. Flugsæti aðra leið með
sköttum (KEF-BCN). Sértilboð 24. júlí.
Ath. aðeins örfá sæti á þessu sértilboði.
Allra síðustu sætin!
Barcelona
24. júlí
frá kr. 19.990
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða frábær sértilboð á flugi til Barcelona 24. júlí. Gríptu þetta frábæra
tækifæri og njóttu þín í borginni sem býður frábært mannlíf og fjölbreytni í menn-
ingu, afþreyingu að ógleymdu fjörugu strandlífi og endalausu úrvali veitingastaða
og verslana.
Eftir Svanbjörgu H. Einarsdóttur
svanbjorg@mbl.is
TÓMAR rútur sendast landshluta
á milli til að sinna skoðunarferðum
farþega á skemmtiferðaskipum
sem liggja víðsvegar við hafnir
landsins. „Í dag [í gær] erum við
að sjá um skemmtiferðir fyrir átta
þúsund farþega á sex skemmta-
ferðaskipum víðs vegar um land,“
segir Gunnar Rafn Birgisson,
framkvæmdastjóri ferðaskriftstof-
unnar Atlantik, sem hefur sinnt
farþegum skemmtiferðaskipa í
þrjátíu ár.
Ferja rútur landshluta milli
„Þetta er stærsti dagurinn hjá
okkur frá upphafi. Þrjú stærstu
skipin eru stödd á Akureyri og
sigla um nóttina til Reykjavíkur.
Við þurfum því að ferja tíu til tólf
rútur suður til að geta sinnt skoð-
unarferðum farþeganna í Reykja-
vík.“ Hann segir einnig þurfa að
ferja leiðsögumenn milli landshluta
til að sinna ferðunum. Þeir fá
stundum far með rútunum en ef
þeir eiga að vera tilbúnir til vinnu
daginn eftir þurfa þeir að fljúga
milli staða. Hann segir það algengt
því oft geti reynst erfitt að útvega
nógu marga leiðsögumenn.
Fjölþjóðleg flóra farþega
Höfnin á Akureyri iðaði af fjöl-
breyttri, fjölþjóðlegri flóru fólks
því fjölmennustu skipin lágu þar í
gær. Farþegar um borð eru um
6.000 fyrir utan áhafnir skemmti-
ferðaskipanna sem í eru um 2.500
manns. Gestir um borð eru af
margvíslegu þjóðerni. Stærsta
skipið er ítalskt og um borð eru
einkum Evrópubúar, og eru Ítalir,
Spánverjar og Þjóðverjar fjöl-
mennastir. Gunnar Rafn segir þó
að flestir skipaferðalangar komi
frá Bandaríkjunum og einnig séu
Bretar fjölmennir.
Gunnar Rafn segir komu skip-
anna krefjast gríðarlegs skipulags
og þau hafi hafið undirbúning við
að panta rútur og bóka leið-
sögumenn í nóvember á síðasta
ári. Hann segist prísa sig sælan
með hve vel gangi því það sé
þrautin þyngri að fá svona margar
rútur og leiðsögumenn til starfans.
„Fyrir utan skipin á Akureyri er-
um við einnig að sjá um tvö skip í
Reykjavík og eitt á Seyðisfirði. Við
erum í samstarfi við 15-20 rútufyr-
irtæki, gríðarlegan fjölda leiðsögu-
manna, veitingastaða o.fl. Þetta er
ekki hægt nema með mjög sam-
stilltu samstarfi margra.“
Rútur á flakki
Farþegar skemmtiferðaskipa í skoðunarferðum eru svo
margir að ferja þarf rútur og leiðsögumenn landshluta á milli
FJÖLDI skemmtaferðaskipa sem sigla að Íslandsströndum eykst ár frá ári.
Komur skipanna lengja ferðamannatímabilið hér á landi því fyrstu skipin
sigla að landi í lok maí og síðustu skip eru allajafna á ferðinni í lok sept-
ember. Ferðaskrifstofan Atlantik tekur á móti rúmlega 60 skipum í sumar.
Heimsóknir skemmtiferðaskipa eru því heilmikil búbót fyrir land og þjóð
sem sárlega þarf á gjaldeyri að halda. Skipin hafa viðkomu víða við strend-
ur landsins en helstu móttökuhafnir fyrir utan Reykjavík og Akureyri eru
Ísafjörður, Grundarfjörður, Seyðisfjörður, Djúpivogur og Vestmanna-
eyjar. Þá sigla ætíð nokkur skip til Húsavíkur og Siglufjarðar og jafnvel til
fleiri staða.
Lengir ferðamannatímabilið
Morgunblaðið/Golli
Rútufjöldi Þær voru margar rúturnar til staðar í Sundahöfn í gærmorgun, þegar skemmtiferðaskipið Aida Aura
lagðist að bryggju. Þær voru ennþá fleiri rúturnar sem biðu farþega á bryggjunni á Akureyri í gærmorgun.
EVRÓPSKI hönnunarskólinn Insti-
tuto di Design (IED) býður íslensk-
um nemum að greiða skólagjöldin
fyrir skólaárið sem nú fer í hönd á
genginu 145 krónur fyrir evruna, en
gengið er núna, samkvæmt upplýs-
ingum frá Kaupþingi, um 180 krónur.
Arnþrúður Jónsdóttir, sölustjóri
Lingo, sem hefur milligöngu um
skólavist, segir að þessi gjaldeyris-
trygging sé einungis í boði fyrir Ís-
lendinga.
Hún segist hafa átt í samstarfi við
skólann í 19 ár og nefnir að þar séu
menn meðvitaðir um hve fjár-
málakreppan lék okkur og gengi
krónunnar illa, sem hafi gert skóla-
gjöldin óhagstæðari. Því hafi þetta
samkomulag verið gert.
Skólaárið í BA-námi hjá IED kost-
ar 8.700 evrur, eða um 1,3 milljónir
króna með gjaldeyrisvörninni, sem
er um 20% afsláttur miðað við geng-
ið. Ekki hefur enn verið ákveðið að
veita sambærileg kjör á hinum ár-
unum tveimur, sem eftir væru í BA-
námi. Á síðasta ári fóru um 30 ís-
lenskir nemar í skólann. Arnþrúður
reiknar með minni áhuga í ár. Auk
krónuvandræða upplýsti LÍN ekki
um úthlutunarreglur fyrr en í lok
júní í stað byrjunar maí, bendir hún
á.
Skólinn býður einnig upp á eins
árs nám og mastersnám, og kennt er
bæði á Ítalíu og Spáni.
Téður afsláttur til Íslendinga er
ekki einsdæmi, bendir Arnþrúður á:
Tungumálaskóli í Cambridge á Eng-
landi veitir þeim sem sækja sérhæft
tungumálanám 50% afslátt og 20%
afsláttur er veittur þeim sem fara í
almennt enskunám.
helgivifill@mbl.is
Skólar bjóða Ís-
lendingum afslátt
Hönnunarskóli býður upp á fast gengi
ÁSTA Ragnheið-
ur Jóhannes-
dóttir, forseti Al-
þingis, segist í
samtali við Morg-
unblaðið vonast
til þess að um-
ræðum um þings-
ályktunartillögu
stjórnarflokk-
anna um aðild að
Evrópusamband-
inu ljúki í vikunni. Hún segir þó að-
spurð að ómögulegt sé að segja til
um hvenær málinu ljúki. Umræð-
urnar haldi áfram í dag og á morg-
un. „Svo sjáum við bara hvernig
[umræðunni] miðar. Menn eru enn
þá í fyrstu umferð. Það er ábyggi-
lega eftir þó nokkuð mikil umræða,
miðað við það,“ segir hún. „Það eru
margir eftir á mælendaskrá.“ 24
þingmenn eru skráðir til leiks, sam-
kvæmt frétt mbl.is.
Tillögur stjórnar og stjórnarand-
stöðu eru ræddar samhliða, að sögn
Ástu Ragnheiðar. helgivifill@mbl.is
Vonast til að ESB-mál
verði leitt til lykta
á Alþingi í vikunni
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir
Þorskur Vilja forræði yfir fiskinum.