Morgunblaðið - 23.07.2009, Qupperneq 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 2009
ÖSSUR Skarp-
héðinsson utan-
ríkisráðherra
hélt í gær til Sví-
þjóðar þar sem
hann mun eiga
fund með Carl
Bildt, utanrík-
isráðherra lands-
ins. Svíþjóð fer
nú með for-
mennsku í ráð-
herraráði Evrópusambandsins og
mun Össur ræða við Bildt um aðild-
arumsókn Íslands að Evrópusam-
bandinu. Þá munu þeir ræða næstu
skref í umsóknarferlinu.
Össur til Svíþjóðar
til að ræða um ESB
Össur
Skarphéðinsson
DAGANA 22.-26. júlí verður
gönguhátíðin „Svartfuglinn“ hald-
inn á sunnanverðum Vestfjörðum.
Tilgangurinn með hátíðinni er að
gefa fólki kost á að kynnast þeim
frábæru gönguleiðum sem eru á
svæðinu. Boðið er upp á bæði þung-
ar og léttar göngur með leiðsögn
sem kryddaðar eru með ýmsum
uppákomum. Ókeypis er í göng-
urnar en greiða þarf fyrir báts-
ferðir.
Svartfuglinn
FÉLAG fagfólks í frítímaþjónustu
skorar á sveitarstjórnir að standa
vörð um starfsemi félagsmiðstöðva
og frístundaheimila fyrir börn og
unglinga.
„Innlendar og erlendar rann-
sóknir sýna að þátttaka í skipu-
lögðu félags- og tómstundastarfi
undir handleiðslu hæfra leiðbein-
enda dregur úr líkum á hvers kyns
áhættuhegðun, s.s. áfengis- og
vímuefnaneyslu og ofbeldi,“ segir
m.a. í ályktun.
Frístundaþjónusta
verði ekki skert
STUTT
SVAVAR Ottesen, prentari og fyrr-
verandi bókaútgefandi, er látinn.
Hann fæddist 21. september 1932 á
Akureyri og bjó þar alla tíð.
Foreldrar Svavars voru Þorkell V.
Ottesen, prentari, og Jónína Jóns-
dóttir. Svavar hóf nám í prentiðn hjá
POB 15 ára og starfaði hjá fyrirtæk-
inu allt til ársins 1967. Þá tók hann
við annan mann á leigu Prentsmiðju
Björns Jónssonar og þeir keyptu síð-
an fyrirtækið þremur árum síðar. Þá
stofnuðu þeir bókaútgáfuna Skjald-
borg sem Svavar starfaði við árum
saman. Árið 1988 söðlaði hann um og
hóf störf hjá Degi og vann þar þang-
að til hann settist í helgan stein.
Svavar sinnti ýmsum trúnaðar-
störfum fyrir Framsóknarflokkinn í
gegnum árin og einnig fyrir Knatt-
spyrnufélag Akureyrar.
Svavar kvæntist Önnu Maríu Þór-
hallsdóttur árið 1953. Þau eignuðust
sex börn og eru fimm á lífi. Svavar og
Anna María slitu samvistir en sam-
býliskona hans frá 1977 var Sóley
Halldórsdóttir.
Útför Svavars verður frá Akur-
eyrarkirkju á morgun, föstudaginn
24. júlí, kl. 13.30.
Andlát
Svavar
Ottesen
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Hörfatnaður
30% afsláttur
Str. S - XXL
Allar gerðir og stærðir
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
Þú minnkar
um eitt númer
Póstsendum
Sérverslun með
FÁKAFENI 9 - (við hliðina á ísbúðinni)
Sími: 553 7060
Ný sending
Skór & töskur
www.gabor.is
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, Sími: 562 2862
ÚTSALA
- 40%
Frábært úrval
af sundfatnaði
Hæðasmára 4 • 201 Kópavogur
Sími 553 7355 • www.selena.is
Opið 11-18 virka daga, 11-15 laugard.
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Glæsilegt úrval
af sparilegum
sumardressum á
ÚTSÖLUNNI
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Fréttir á SMS
„MEÐ þessum samningi og viljayfir-
lýsingu er verið að tryggja í sessi
stöðu garðyrkjubænda,“ segir Jón
Bjarnason, sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra, en hann undirrit-
aði í gær breytingar á gildandi aðlög-
unarsamningi um starfsskilyrði
framleiðenda garðyrkjuafurða frá
mars 2002. Við sama tækifæri kynnti
hann nýja reglugerð sem tekur gildi
1. september nk. þar sem kveðið er á
um að merkja skuli matjurtir með
upprunalandi. Sagðist Jón sann-
færður um að upprunamerking
myndi styrkja stöðu íslenskrar fram-
leiðslu enn frekar í sessi.
Aðlögunarsamningurinn er sam-
bærilegur breytingum sem gerðar
voru á búvörusamningnum í apríl sl.
varðandi framleiðslu mjólkur og
kindakjöts. Þannig eru samningsað-
ilar, þ.e. ríkið, Bændasamtök Íslands
og Samband garðyrkjubænda, sam-
mála um að framlengja samninginn
um tvö ár eða til ársloka 2013 og
verður hann vísitölubundinn frá
þeim tíma. Allar nánari upplýsingar
um samninginn má finna á vef land-
búnaðarráðuneytisins (www.sjavar-
utvegsraduneyti.is).
Samhliða samningnum var undir-
rituð viljayfirlýsing um ásetning að-
ila um að auka hagkvæmni íslenskr-
ar ylræktar og auka möguleika
greinarinnar á komandi árum.
Við undirritunina minnti Þórhall-
ur Bjarnason, formaður Sambands
garðyrkjubænda, á að garðyrkju-
bændur væru enn óánægðir með
hátt raforkuverð til garðyrkju-
bænda. Sagðist hann fagna reglu-
gerðinni um merkingu upprunalands
enda hefði það verið baráttumál
garðyrkjubænda sl. ár. „Samningar
við bændur eru mikilvægari en menn
hafa áður gert sér grein fyrir,“ sagði
Haraldur Benediktsson, formaður
Bændasamtaka Íslands. Sagði hann
nýlega samantekt BÍ sýna að ís-
lenskur landbúnaður framleiði um
50% allra þeirra matvæla sem neytt
er hérlendis. silja@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Undir berum himni Haraldur Benediktsson og Steingrímur J. Sigfússon
rituðu undir samninginn ásamt Jóni Bjarnasyni og Þórhalli Bjarnasyni.
Matjurtir merktar
upprunalandi sínu