Morgunblaðið - 23.07.2009, Qupperneq 16
Svikabrigsl hatursfylkinga
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„ÞAÐ VAR hluti áróðursherferðar
aðildarandstæðinga að halda því
fram að þeir stæðu frammi fyrir
geysiöflugri
breiðfylkingu að-
ildarsinna sem
hefði undirtökin,
málflutningur
sem átti ekki við
rök að styðjast,“
segir Frank
Rossavik, yfir-
upplýsingafulltrúi
já-hliðarinnar fyr-
ir atkvæðagreiðsluna um ESB-aðild í
Noregi 1994, aðspurður hvort reynt
hefði verið að draga hlutlægni fjöl-
miðla í efa.
„Þótt rök hafi verið færð fyrir inn-
göngu í sambandið í leiðurum flestra
dagblaðanna myndi ég ekki segja að
annarri hliðinni hefði verið hampað
umfram hina í almennum fréttaflutn-
ingi.“
– Á Íslandi hefur verið gripið til
orðsins svikari í umræðum um aðild-
arumsóknina. Bar á sambærilegri
orðræðu þegar tekist var á um aðild í
Noregi á síðasta áratug?
„Þessi lýsing þín hljómar mjög
kunnuglega í norska samhenginu,
sérstaklega ef rifjuð er upp umræðan
á 10. áratugnum. Ég er of ungur til
að muna eftir umræðunum á 8. ára-
tugnum en mér er tjáð að hún hafi
meira og minna verið eins þá. Á síð-
asta áratug heyrðust frá báðum hlið-
um ásakanir sem voru hvorki á
kurteisislegum né vinsamlegum nót-
um. Þeir sem vændu andstæðinga
sína um svik voru þó í minnihluta.
Annað og þessu óskylt er að marg-
ir sem tóku þátt í síðustu aðildar-
umræðu taka alla jafna ekki þátt í
umræðum um stjórnmál og það var
mjög jákvætt. Þátttaka í þjóðar-
atkvæðagreiðslunni var einnig góð
(88,6%) og meiri en við eigum að
venjast í þingkosningum.“
Beittu tilfinningarökum
– Einkenndist málflutningur þessa
hóps af tilfinningasemi?
„Það skyldi ekki gera lítið úr eða
gagnrýna notkun tilfinningaraka í
stjórnmálaumræðum. Margir stilltu
upp röksemdum sínum eftir tilfinn-
ingalegum línum. Nefna má að ófáir á
já-hliðinni héldu því fram að ekki
væri hægt að búa við að bændur færu
með völdin og að nauðsyn krefði að
við yrðum nútímalegt ríki sem ætti
aðild að sambandinu. Þetta voru
sumpart tilfinningarök og því ekki
aðeins nei-hliðin sem beitti þeim.
Þá ber að hafa í huga að Noregur
er ungt lýðræðisríki. Við fengum
sjálfstæði frá Svíum 1905 og það ber
því jafnan ríkulegan ávöxt að höfða
til þjóðerniskenndarinnar í rökræð-
um.“
– Var í aðildardeilunum að finna
víti til að varast fyrir Íslendinga?
„Það verður erfitt að komast hjá
þeim á Íslandi vegna þess að ég held
að andrúmsloftið sé sambærilegt og í
Noregi, að margir líti svo á að landið
sé í senn á jaðrinum og viðkvæmt
fyrir hættum heimsins. Eflaust munu
margir Íslendingar óttast aðild.
Ég er svartsýnn á möguleika Ís-
lendinga að komast hjá slíkri um-
ræðu, einkum í ljósi aðdragandans að
umsókninni, fjármálahrunsins.
Ég óttast að þetta leiði til þess að
íslenska aðildarumræðan verði jafn-
vel enn harðvítugri en í Noregi.
Von mín er hins vegar sú að um-
ræðan á Íslandi verði siðaðri. Útfrá
því litla sem ég veit um íslensku um-
ræðuna er ég hins vegar ekki alltof
vongóður um það.“
Ekki lengur svo viss
Inntur að lokum eftir afstöðu sinni
til aðildar kveðst Rossavik að svo
komnu máli ekki sannfærður um að
hagsmunum Noregs sé betur borgið
innan Evrópusambandsins en utan
þess, né heldur að hagur sambands-
ins væri meiri með landið innan-
borðs.
„Ég gæti talið upp fjölmargar
ástæður en læt nægja að nefna lofts-
lagsmálin. Noregur er mikið olíu-
vinnsluríki og ég held að sambandið
hefði ekki getað viðhaft sömu fram-
sækni í loftslagsmálum ef landið
hefði verið aðili að því frá 1995.“
Morgunblaðið/Baldur Arnarson
Frá Tromsø Norðmenn hafa tvívegis fellt ESB-aðild í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Upplýsingafulltrúi já-hliðarinnar þegar Noregur felldi ESB-aðild 1994 varar við klofningi á Íslandi
Andstæðingar inngöngu sökuðu fjölmiðla um hlutdrægni Ásakanirnar hluti áróðursherferðar
Í HNOTSKURN
»Rossavik telur að áhrifinaf inngöngu Íslands í ESB
yrðu óveruleg í Noregi.
»Það hafi t.a.m. ekki haftúrslitaáhrif að Svíar, sem
standi þeim mun nær, skyldu
hafa gengið í sambandið.
»Hann segir mikinn viljafyrir því í Noregi og hjá
ESB að viðhalda EES-
samningnum.
Frank Rossavik
16 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 2009
Inntur eftir því hvaða áhrif umsókn
Íslendinga hafi haft í Noregi segir
Rossavik að nú sé meira rætt um
ESB og EES-samninginn.
„Það verður gengið til þingkosn-
inga í haust og eflaust munu ein-
hverjir flokkar víkja að aðildar-
spurningunni. Ég tel ekki að þeir
hefðu gert það ef ekki hefði komið
til aðildarumsóknar Íslendinga.
Það er skoðun mín að Hægri-
flokkurinn, sem er hlynntur aðild,
og Miðflokkurinn, sem er henni
andvígur, myndu fagna tækifærinu
til að geta gert aðildarspurninguna
að kosningamáli enda eru þeir lík-
legir til að njóta góðs af því.“
Aðspurður hvaða áhrif umsóknin
hafi haft á Evrópustefnu norskra
jafnaðarmanna segir Rossevik
áhrifin lítil. Flokkurinn sé klofinn í
afstöðunni til aðildar sem skýri
hvers vegna leiðtogar hans hafi
ávallt lagt meiri áherslu á að halda
honum saman og vera við völdin en
að ganga í sambandið.
Hann segir flesta stjórnmála-
menn hafa forðast að endurvekja
aðildarumræðuna og bendir á að
raunhæf stjórnarmynstur til hægri
og vinstri feli í sér stóran jáflokk og
tvo smærri neiflokka.
Gefur tilefni til aðildarumræðu
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
eru 20 matvöruverslanir og sex
bensínstöðvar opnar allan sólar-
hringinn. Í nokkrum tilfellum eru
aðeins nokkur hundruð metrar á
milli verslananna.
Stórtækastir í sólarhringsopnun
eru eigendur 10-11 en alls eru 18
verslanir keðjunnar á höfuðborg-
arsvæðinu opnar allan sólarhring-
inn.
Fyrir nokkru ákváðu stjórn-
endur Hagkaupa, sem rekin eru
undir hatti Haga, rétt eins og 10-
11, að hafa tvær verslanir opnar
allan sólarhringinn; í Skeifunni og
í Garðabæ. Kjötborðum í flestum
Hagkaupaverslunum hefur hins
vegar verið lokað og nú eru aðeins
kjötborð í Hagkaupum í Garðabæ
og í Kringlunni. Fjórar bens-
ínstöðvar Skeljungs eru opnar all-
an sólarhringinn og tvær bens-
ínstöðvar N1. Á stöðvunum eru
reknar litlar matvöruverslanir.
Á höfuðborgarsvæðinu búa um
200.000 manns og eru því um
7.700 manns, vakandi og sofandi,
um hverja sólarhringsbúð.
VR hefur ekki skoðun
á afgreiðslutíma
Sólarhringsafgreiðsla krefst
vaktavinnu en margar rannsóknir
hafa sýnt fram á neikvæða fylgi-
fiska hennar, s.s. auknar líkur á
svefnleysi, félagslega einangrun
vegna óreglulegs vinnutíma og að
samverustundum með fjölskyld-
unni fækkar. Á hinn bóginn hefur
verið bent á að vaktavinna hentar
sumum ágætlega og virðist ekki
hafa neikvæð áhrif á þá.
Á sínum tíma barðist Versl-
unarmannafélag Reykjavíkur gegn
því að afgreiðslutími verslana yrði
gefinn frjáls en nú hefur VR enga
sérstaka skoðun á sólarhringsaf-
greiðslu.
Kristinn Örn Jóhannesson, for-
maður VR, er gamall vakta-
vinnumaður og hann segir að
vaktavinna hafi bæði kosti og
galla. Næturvinna geri engum
gott en hægt sé að draga úr göll-
unum með góðu vaktavinnukerfi.
„En ég sé nú ekki að það þurfi
svona gríðarlegt þjónustustig í
allri borginni,“ bætti hann við.
Kostnaðinum væri líklega velt út í
verðlagið. „Á hinn bóginn hlýtur
þetta að teljast jákvætt því langur
afgreiðslutími er atvinnuskap-
andi.“
26 verslanir eru opnar
allan sólarhringinn
!
"#"$%&
'%(
)*+'&
!,
-
"
ICELANDAIR hóf í gær beint áætl-
unarflug milli Íslands og Seattle á
vesturströnd Bandaríkjanna. Af því
tilefni klippti Birkir Hólm Guðnason,
forstjóri félagsins, á borða í Leifs-
stöð í gærmorgun. Síðar um daginn
flugu Boeing-þotur Icelandair, sem
voru að koma frá Evrópu, hringflug
yfir höfuðborgarsvæðið af sama til-
efni og með í för slóst Þristurinn, eða
„gamli“ Páll Sveinsson.
Samkvæmt upplýsingum frá Ice-
landair fer svo fram kynningardag-
skrá í Seattle í dag, í samstarfi við al-
þjóðaflugvöllinn í Seattle og
ferðamálaráð borgarinnar. Bókanir í
flugið til Seattle og frá eru sagðar
fara vel af stað. Þannig hafi sala á
ferðum frá Seattle-svæðinu til Ís-
lands verið meiri en gert var ráð fyr-
ir. Flogið verður fjórum sinnum í
viku í vetur: frá Íslandi á mánudög-
um, miðvikudögum, föstudögum og
laugardögum kl. 17 og frá Seattle á
þriðjudögum, fimmtudögum, laugar-
dögum og sunnudögum. bjb@mbl.is
Ljósmynd/Ellert Grétarsson
Beint flug til Seattle
TVEIR karlar á fertugsaldri voru handteknir í Reykjavík í fyrradag eftir
að í fórum þeirra fundust munir sem þeir gátu ekki gert grein fyrir. Málin
eru óskyld en annar mannanna hefur nú játað innbrot í miðborginni.
Karl um þrítugt var einnig handtekinn í Reykjavík eftir að hann freist-
aði þess að komast með vörur úr stórmarkaði án þess að greiða fyrir þær.
Snemma í gærmorgun voru síðan karl og kona á þrítugsaldri handtekin í
Garðabæ eftir að í bíl þeirra fundust munir sem talið er að séu illa fengnir.
Nokkur innbrot voru einnig tilkynnt. Brotist var inn í tvo bíla í Elliðaár-
dal og einn í Hafnarfirði.
Mikið um þjófnaði í borginni