Morgunblaðið - 24.08.2009, Blaðsíða 13
Daglegt líf 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 2009
Útsala
20 - 70 % afsl.
af öllum vörum
Baðdeild Álfaborgar
Skútuvogi 4 - sími: 525 0800
Sturtuklefar - Baðinnréttingar
Hreinlætistæki - Blöndunartæki
Baðker ofl.
Eftir Guðrúnu Völu Elísdóttur
K
atrín Jóhannesdóttir,
sem er kölluð Katý, er
fædd og uppalin í
Borgarnesi og er
kennari við Hússtjórn-
arskólann á Hallormsstað. Þar kenn-
ir hún fatasaum, útsaum, prjón og
hekl.
Eftir stúdentspróf frá FVA árið
2003, lá leið Katýjar í Hússtjórnar-
skólann á Hallormsstað, þar sem
hún var eina önn. „Þar lærði ég ótrú-
lega margt skemmtilegt og mikil-
vægt og bjó á heimavist í fyrsta
skipti. Og á meðan ég var þar planaði
ég næstu skólavist. Mig langaði að
fara í lýðháskóla til Danmerkur, þar
sem kenndar væru ýmsar listgreinar
og handavinna. Í byrjun ársins 2004
fór ég svo í ASK højskole ásamt vin-
konu minni, til að vera fram í júní.“
Þarna lærðu þær teikningu, leir-
list, fatasaum, skartgripagerð, vefn-
aði og auðvitað dönsku. Katý segir
þetta hafa verið mjög skemmtilegan
tíma. Eftir námsdvölina gerði hún
sér ferð lengra inn á Jótland til að
skoða handavinnuskóla sem henni
hafði verið bent á – Skals hånd-
arbejdsskole.
Kolféll fyrir skólanum
„Í Skals er boðið upp á stutt nám-
skeið, eina önn eða eitt ár. Ég skoð-
aði skólann og kolféll fyrir honum. Á
þessum tíma var ég búin að sækja
um í Iðnskólanum og ætlaði í klæð-
skeranám. Ég ákvað að sækja líka
um í Skals og láta það bara ráðast á
hvorum staðnum ég kæmist inn. Það
kom svo á daginn að ég fékk inn-
göngu í báða skólana, svo ég varð að
gjöra svo vel að taka sjálfstæða
ákvörðun.“ Niðurstaðan varð sú að
Katý hóf nám í Danmörku.
Katý ætlaði upphaflega að vera
eina önn í Skals en þegar fór að síga
á seinni hlutann ákvað hún að bæta
við annarri önn. „Í Skals er mikil
fjölbreytni í handverksfögunum og
margt spennandi í boði. Ég tók út-
saum sem aðalgrein en var svo líka í
hand- og vélprjóni, vefnaði, fata-
saum, öskjugerð, hattagerð, leð-
urvinnu o.fl. Þar kynntist ég því fyrir
alvöru hvað margt er handavinna
annað en að sauma föt, svo þarna
opnaðist fyrir mér nýr heimur og ég
steinhætti við klæðskeranámið.“
Eftir þetta fór Katý í framhalds-
nám í Textilseminariet í Viborg, sem
er 3½ árs nám og þar lauk hún BA-
prófi. Útskriftarfagið hennar var
vélprjón.
„Það sem kveikti handavinnu-
áhugann hjá mér var að við upphaf
unglingsáranna var ég ekki alveg
tilbúin að vera „eins og allir hinir“ og
fór þá að prófa mig áfram við að
sauma flíkurnar sjálf. Það gekk al-
veg merkilega vel miðað við að ég
bara klippti út í loftið, saumaði sam-
an og gekk svo í þessum múnder-
ingum svona ljómandi ánægð! Ég
man ekki eftir að hafa verið sér-
staklega mikið fyrir handavinnu sem
barn, heldur byrjaði ævintýrið fyrir
alvöru svona í kringum fermingu. Á
þessum tíma voru margir farnir að
gefa mér gömul efni til að sauma úr,
svo ég gat alveg sleppt mér í sauma-
skapnum. Í efri bekkjum grunnskóla
var svo farið að kenna aðeins fata-
saum svo þar naut ég mín algjörlega
og stefndi á að verða klæðskeri.“
Katý minnir að fyrstu handtökin
við saumaskap hafi verið heima við
saumavél mömmu hennar, þar sem
hún saumaði föt á barbídúkkurnar.
,,Annars lærði ég líka ótrúlega
snemma bæði að prjóna og hekla og
ég held að það hafi verið mamma
sem kenndi mér grunninn í því áður
en ég lærði það í grunnskóla.“ Hún
segir handavinnuáhugann líklega
kominn frá ömmum sínum.
Prjónar fylgihluti á konur
„Núna legg ég aðaláherslu á
vélprjón í hönnun minni og prjóna
aðallega fatnað og fylgihluti úr
enskri og ítalskri ull. Þó það hljómi
skammarlega að vinna ekki með ís-
lensku ullina ákvað ég samt að vinna
með þessi efni því hún er mun mýkri
og liprari en sú íslenska og stingur
þar af leiðandi nánast ekkert. Und-
anfarið hef ég mest prjónað fylgi-
hluti á konur, þ.e. grifflur, legghlífar,
ermar, húfur o.s.frv. því ég hef ein-
faldlega ekki haft undan að prjóna
sjálfar flíkurnar, en það er auðvitað
bara lúxusvandamál.“
Sala á vörunum hennar hefur
gengið mjög vel og í sumar nýtti
Katý sér tækifærið sem kennslu-
kona í sumarfríi og skellti upp litlu
verkstæði á loftinu hjá ömmu og afa í
Borgarnesi. „Þar sat ég og prjónaði
öllum stundum og hafði ekki einu
sinni tækifæri til að hanna nýja línu,
sem ég annars ætlaði að gera. En
það verður vonandi tækifæri til þess
í haust. Ég hef ekki mikið verið í
markaðssetningu, enda prjóna ég
flíkurnar sjálf í prjónavél og lykkja
saman í höndunum svo ferlið er frek-
ar seinlegt, og þar af leiðandi næ ég
ekki að framleiða mikið samhliða
kennslunni.“
Langar að vekja meiri áhuga á
handavinnu
Katý segist hafa mjög gaman af
því að bródera og þá oft ýmsa texta.
„Ég hef þá notað málshætti í t.d.
borðdúka, myndir og bakkabotna og
svo hef ég búið til eigið mynstur fyrir
útsauminn. Ég er mjög mikið fyrir
svona fínlega vinnu og er oft tilbúin
að eyða miklum tíma í algera smá-
hluti.“
Katý bætir við að hún sé rosalega
ánægð sem kennslukona á Hallorms-
stað og vonar að hún eigi eftir að
vekja meiri áhuga á handavinnu hjá
nemendunum og að einhverjir sjái
þess vegna sína framtíð í faginu.
„Draumurinn er samt sá að komast
að því einn daginn að mín eigin hönn-
un og framleiðsla standi undir bæði
sér og mér og að ég hafi kost á því að
þróa lítið rassvasafyrirtæki yfir í
eigin verslun með vinnustofu.“
Handavinnuáhuginn
erfðist frá ömmunum
TENGLAR
..............................................
www.katy.is
Úr ýmsum áttum Á sýningu Katýar
í Safnahúsinu í Borgarnesi kennir
ýmissa grasa. Sýningin er nokkurs
konar uppskeruhátíð og sýnir hand-
verk frá ýmsum tímabilum í hönnun
Katýar. Þar má m.a. finna skírnar-
kjól sem systir Katýar saumaði en
Katý bróderaði í nöfn allra þeirra
barna sem skírð hafa verið í honum.
Hannyrðasýningin „Þá er það frá…“
hefur verið í Safnahúsinu í sumar en
þar sýnir Katrín Jóhannesdóttir ýmis-
konar handverk.
Útlærð Katrín Jó-
hannesdóttir, Katý,
hefur menntað sig í
handverki í mörg ár.
Sýning Katýar í Safnahúsinu í
Borgarnesi var uppistandandi
í allt sumar og svo framlengd
vegna mikillar aðsóknar. „Það
var mjög gaman, en ég vissi
að margir voru forvitnir að
vita hver uppskeran hjá mér
væri eftir tæp fimm ár í Dan-
mörku. Hugmyndin var þess
vegna að sýna Borgnesingum
afraksturinn. Ég safnaði sam-
an handavinnunni minni frá
því í Hússtjórnarskólanum og
frá Danmörku. Þetta var því
mjög fjölbreytt sýning þar
sem útsaumur í gömlum stíl
var innan um nýjustu prjóna-
línuna mína, hekluð barna-
teppi eða handsaumaða leð-
urhanska.“
Katý er búin að halda þrjár
einkasýningar frá því hún út-
skrifaðist úr skólanum um
áramótin síðustu. Sú fyrsta
var á Skörinni hjá Handverki
og hönnun í Reykjavík í mars.
Þar sýndi hún útskriftarverk-
efnið sitt sem kallast „frá Vi-
borg til www“ en þar tók hún
það sem hún lærði frá Viborg
og gerði það sýnilegt öðrum
á www.katy.is. Þetta eru
vélprjónaðar kvenflíkur og
fylgihlutir með innblæstri frá
íslenska þjóðbúningnum. Aðra
sýninguna hélt hún í Slátur-
húsinu á Egilsstöðum, sem er
búið að gera að menningar-
húsi.
Uppskera
undanfarinna ára