Morgunblaðið - 28.08.2009, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 2 8. Á G Ú S T 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
232. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
DAGLEGT LÍF
BUSAVÍGSLUR, Í RÆKTINA FYRIR JAFN-
MIKIÐ, TÍSKA OG HEIMUR ÞORBJARNAR
Við höldum með
stelpunum okkar
Ítarleg umfjöllun um
EM 2009 í Morgunblaðinu
„VIÐ sjáum það
vel hvað það get-
ur verið erfitt
fyrir fólk, sem
hefur jafnvel
alltaf staðið í
skilum og er
heiðarlegt fram í
fingurgóma, að
takast á við
greiðslubyrði
sem það hreinlega ræður ekki við.
Mörg heimili eru skuldum vafin,“
segir Ásta Sigrún Helgadóttir, for-
stöðumaður Ráðgjafarstofu heim-
ilanna.
Þrátt fyrir mikla skuldabyrði,
sem hjá yfir fjórðungi heimila nem-
ur meira en 500% af ársráðstöf-
unartekjum, reynir fólk til þrautar
að greiða af lánum frekar en að
hætta að greiða. Þannig eru á
bilinu 70-90% af viðskiptavinum
bankanna í eðlilegum skilum með
húsnæðislán, án þess að nýta sér
sérstök úrræði til þess að auðvelda
greiðslu á lánum. Staðan er betri
hjá Íbúðalánasjóði og lífeyrissjóð-
unum en hjá bönkunum.
Að sögn er staðan þó að þyngjast
nú, ekki síst vegna þess að fólk sér
ekki fram á að komast út úr skuld-
unum í nánustu framtíð, þrátt fyrir
að greiðslubyrðin af lánum sé í
augnablikinu ekki ómöguleg. „Eftir
því sem fleiri lenda í því að vera
með húsnæðisskuldir langt um-
fram eignir, jafnvel þrátt fyrir að
ráða við að greiða af lánum, verður
hljóðið þyngra í fólki og það verður
mikilvægt að reyna að sporna gegn
þeirri þróun með aðgerðum. Ekki
síst til þess að koma efnahag lands-
ins af stað,“ segir Ásta Sigrún. | 22
Skuldabyrði liggur þungt á fólki
Skuldum vafin
Ásta Sigrún
Helgadóttir
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í fótbolta tapaði 1:0 í gær fyrir Norðmönnum í úrslitakeppni Evr-
ópumótsins í Finnlandi. Möguleikar Íslands á því að komast í 8-liða úrslit eru þar með úr sög-
unni en Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari liðsins, segir að liðið eigi eftir að upplifa eitt æv-
intýri til viðbótar á EM. „Við eigum enn eftir að mæta Evrópu- og heimsmeisturum Þýskalands
í úrslitakeppni Evrópumóts og það er ævintýri út af fyrir sig,“ sagði Sigurður Ragnar, lands-
liðsþjálfari Íslands. Viðureign Íslands og Þýskalands fer fram á sunnudaginn. | Íþróttir
EITT ÆVINTÝRI EFTIR Á EM Í FINNLANDI
Morgunblaðið/Golli
NORSKI hag-
fræðingurinn
Tormod Her-
mansen fékk það
hlutverk að stýra
norska banka-
kerfinu gegnum
kreppuna sem
reið yfir um 1990
og tókst þá að
koma í veg fyrir
algert hrun.
Hann er meðal þekktustu manna í
norsku atvinnulífi og hefur verið
ráðgjafi stjórnvalda hér í sambandi
við endurreisn íslensku bankanna.
Hermansen telur að gott væri að
fá reynda erlenda bankamenn til að
stýra endurreistu bönkunum í
nokkur ár. Þá myndi traust á bönk-
unum aukast og ekkert sé mikil-
vægara fyrir lánastofnanir. | 12
Erlendir stjórnendur komi
að íslensku bönkunum
Tormod
Hermansen
HEILSUSérblaðu
m
fylgir Morgunblaðinu
í dag
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
MAGMA Energy, sem hyggst verða kjölfestufjár-
festir í HS orku, hefur lýst yfir vilja til að taka
þátt í endurskoðun á fyrirliggjandi samningi um
leigu HS orku á jarðvarmaauðlindum á Reykja-
nesskaga. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
leggja stjórnvöld áherslu á að sú endurskoðun
leiði til að leigutími verði styttur og greiðsla fyrir
leiguna hækkuð.
Beðið eftir nefnd forsætisráðherra
Íslenskir ráðamenn vilja með breytingunum
tryggja að meirihluti arðs af jarðvarmaauðlindum
HS orku renni til opinberra aðila.
Ross Beaty, forstjóri Magma, hitti Steingrím J.
Sigfússon fjármálaráðherra öðru sinni á fundi á
miðvikudag og sátu þeir þann fund einir. Þar mun
Beaty hafa fallist á að endurskoðun samningsins
fari fram í samræmi við niðurstöður nefndar á
vegum forsætisráðuneytisins sem fjallar um leigu
á vatns- og jarðhitaréttindum í opinberri eigu.
Nefndin, sem Karl Axelsson hæstaréttarlögmað-
ur fer fyrir, hefur verið að störfum frá því í fyrra
og átti að skila tillögum sínum 1. júní síðastliðinn.
Af því varð ekki og er nú gert ráð fyrir að hún skili
tillögum sínum í síðasta lagi 31. desember næst-
komandi. Samkvæmt upprunalega samkomulag-
inu átti HS orka að leigja nýtingu á auðlindunum
næstu 65 árin með möguleika á að framlengja þá
nýtingu til annarra 65 ára. Reiknað árlegt auð-
lindagjald vegna þessarar nýtingar, sem rennur
til eigenda landanna á Reykjanesi, er samtals 72
milljónir króna vegna allrar núverandi raforku-
framleiðslu HS orku, samkvæmt yfirlýsingu sem
Júlíus Jónsson, forstjóri HS orku, sendi fjöl-
miðlum í vikunni.
Vilja hækka auðlindagjald
» Meirihluti arðs auðlindanna
renni til hins opinbera
» Nú gert ráð fyrir 65 ára leigu
Magma Energy og fjármálaráðuneytið ræða um að stytta leigutíma orkulinda
Tekið verði mið af niðurstöðu nefndar á vegum forsætisráðherra
Hærra gjald og styttri leigutími | 6
SKIPAÐUR hef-
ur verið starfs-
hópur sem mun
annast undirbún-
ing vegna máls-
höfðana gegn ís-
lenska ríkinu
vegna setningar
neyðarlaga síð-
asta haust.
Viðskiptaráðu-
neytið leiðir hópinn sem er skipaður
fulltrúum viðskipta-, utanríkis-, fjár-
mála- og forsætisráðuneytis auk full-
trúa Seðlabanka og Fjármálaeftirlits.
Þegar hafa 39 bankar kvartað til
Eftirlitsstofnunar EFTA, þar sem
þeir telja að setning laganna brjóti
gegn EES-samningnum.
Líklegt þykir að ríkið muni bera
fyrir sig stjórnskipulegan neyðarrétt
en Gylfi Magnússon viðskipta-
ráðherra vill ekki gefa neitt upp um
málsástæður. | 16
Varist vegna
neyðarlaga
Gylfi Magnússon