Morgunblaðið - 28.08.2009, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 28.08.2009, Blaðsíða 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 2009 Lýður Guðmundsson, stjórnar-formaður Exista, viðurkennir að hann og aðrir stjórnendur beri ábyrgð á stöðu félagsins. En telur samt sem áður, að þeir hafi sýnt þann árangur á undanförnum ár- um, að eðlilegt sé að þeir sitji áfram við stjórnvölinn.     Lýður var þýfg-aður um það í Kastljósi, af Þóru Arnórsdóttur, hvers vegna það væri svo óskap- lega mikilvægt að hann og aðrir stjórnendur héldu stöðu sinni innan Exista. „Þetta stjórn- endateymi hefur sýnt þann árang- ur á undanförnum árum og þess vegna eru þessi félög ekki í vand- ræðum eins og allir keppinautar, eins og keppinautar VÍS, sem hafa farið lóðbeint á höfuðið og keppi- nautar Símans og Skipta, sem hafa farið lóðbeint á höfuðið.“     En það er nú ekki eins og Existastandi vel?“ sagði Þóra. „Nei, hún gerir það ekki,“ við- urkenndi stjórnarformaðurinn. „Þið hafið stjórnað því félagi,“ sagði Þóra. „Ég er alveg sammála því. Enda berum við líka ábyrgð á því,“ svar- aði Lýður. Hann bætti meira að segja síðar við, að að sjálfsögðu væri staðan stjórnendunum að kenna að stærstum hluta.     En svo kom öll réttlætingin, umhrunið sem Exista tapaði á að ósekju, lánið til sjeiksins sem stjórnin vissi ekkert um og hefði alls ekkert átt að vita neitt um og hvernig fjölmiðlar, skilanefndir og bloggarar ráðast að Exista- mönnum.     Að ósekju, að sjálfsögðu. Þóttstaðan sé þeim að kenna að stærstum hluta og þeir beri ábyrgð. Lýður Guðmundsson Ábyrgð í öðru orðinu Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 13 léttskýjað Lúxemborg 27 heiðskírt Algarve 30 heiðskírt Bolungarvík 8 skýjað Brussel 25 léttskýjað Madríd 33 heiðskírt Akureyri 10 skýjað Dublin 18 skýjað Barcelona 28 léttskýjað Egilsstaðir 11 skýjað Glasgow 15 léttskýjað Mallorca 29 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 12 rigning London 22 léttskýjað Róm 32 léttskýjað Nuuk 5 léttskýjað París 26 léttskýjað Aþena 31 heiðskírt Þórshöfn 13 léttskýjað Amsterdam 21 léttskýjað Winnipeg 19 alskýjað Ósló 15 skúrir Hamborg 26 heiðskírt Montreal 16 heiðskírt Kaupmannahöfn 23 heiðskírt Berlín 28 heiðskírt New York 22 alskýjað Stokkhólmur 21 heiðskírt Vín 28 léttskýjað Chicago 18 alskýjað Helsinki 17 skýjað Moskva 18 alskýjað Orlando 31 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 28. ágúst Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5.43 1,4 12.25 3,0 18.46 1,6 5:59 20:59 ÍSAFJÖRÐUR 1.32 1,6 7.36 0,9 14.18 1,8 20.59 1,0 5:56 21:13 SIGLUFJÖRÐUR 4.20 1,1 10.06 0,7 16.41 1,2 23.11 0,6 5:39 20:56 DJÚPIVOGUR 2.31 0,7 9.13 1,7 15.40 0,9 21.22 1,4 5:27 20:31 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á laugardag Norðan 8-13 m/s og víða rign- ing, en þurrt að kalla á S- og V- landi. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast syðst. Á sunnudag og mánudag Norðaustan 8-13 m/s NV- lands, en annars hægari. Víða súld eða rigning, en hægara og úrkomulítið syðra. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast S-til. Á þriðjudag og miðvikudag Hæg norðlæg eða breytileg átt og víða skúrir. Milt veður. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 8-13 metrar á sekúndu, en yfirleitt hægari suðaustan- lands. Hvessir heldur í kvöld. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast sunnan- lands. „SUMIR eiga erfitt með að ímynda sér að fíll og mús eigi sama forföður. Hins vegar verður auðveldara að sjá það fyrir sér eftir að hafa heyrt af hraðri þróun finkustofna á Galapa- goseyjum,“ segir Arnar Pálsson, dósent í líffræði við HÍ og einn skipuleggjenda fyrirlestraraðar í til- efni þess að 150 ár eru liðin frá út- komu bókar Darwins um þróun teg- undanna. Þróunarfræðingarnir Peter Grant og Rosemary Grant hafa hátt í þrjátíu ár rannsakað fink- ur á Galapagoseyjum. „Þau eru bæði virtir vísindamenn og hafa helgað sig þessum rannsóknum sem þykja afar merkilegar. Það er lítið til af óspilltri náttúru í heiminum og Ga- lapagoseyjar eru auðvitað alveg ein- stakar. Eins og frægt er þá er þarna einstakt tækifæri til að fylgjast með lífverum og þróun þeirra. Grant- hjónin hafa fylgst með hvernig sam- setning finkustofnanna breytist ár frá ári. Einn áratuginn eru finkur með stutta gogga algengastar svo breytist ef til vill veðurfar og skil- yrði og aðrar frætegundir verða al- gengar. Þá verða kannski finkur með langa gogga hæfastar og þar með algengastar. Það er oft talað um að þróunin taki aldir og árþúsundir en þau hafa fylgst með breytingum gerast á örstuttum tíma. Fyrirlesturinn verður haldinn á laugardag kl. 13 í hátíðasal Háskóla Íslands. svanbjorg@mbl.is Flinkasta finkan verður algengust Fyrirlestur um þekkta rannsókn á finkum á Galapagoseyjum Finkur á Galapagoseyjum sýna og sanna þróunarkenningu Darwins. Til á lager

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.