Morgunblaðið - 28.08.2009, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 28.08.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is EFTIR harðar deilur allt frá því Icesave-lánasamningarnir við Hol- lendinga og Breta voru undirritaðir í júní verður ríkisábyrgð á lána- samningunum afgreidd frá Alþingi í dag með fyrirvörum. Vinna fjárlaganefndar, sem hefur verið að störfum í nánast allt sumar vegna málsins, hefur öðru fremur miðast við að ná sáttum um fyrirvara á ríkisábyrgðinni. Frá því Stein- grímur J. Sigfússon fjármálaráð- herra mælti fyrst fyrir frumvarp- inu hefur tekið miklum breytingum. Þingmenn Sjálfstæðisflokks, Borgarahreyfingar og Framsókn- arflokks voru frá upphafi ekki til- búnir til þess að styðja frumvarpið nema með miklum fyrirvörum. Það sama átti raunar við um hluta þing- manna Vinstri grænna og Samfylk- ingarinnar. Meirihluti var því ekki fyrir málinu eins og það kom til þingsins, að lokinni undirritun samningsins. Í fjárlaganefnd var lagt upp með að reyna að tryggja að endur- greiðslur á lánunum til Breta og Hollendinga, sem í versta falli geta numið hundruðum milljarða, gætu ekki ógnað efnahag landsins. Pétur Blöndal, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, lagði til við upphaf vinnunnar á Alþingi að fyrirvar- arnir við ríkisábyrgðina yrðu alltaf miðaðir við greiðslugetu landsins en ekki þær skyldur sem á okkur voru lagðar samkvæmt samn- ingnum. „Þetta er róttæk nálgun í sjálfu sér, en hin eina rétta að mínu mati. Um þetta náðist þverpólitísk sátt og svo voru hagfræðingar á Al- þingi í því að útfæra þetta, þar á meðal Tryggvi Þór Herbertsson, Þór Saari og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, ásamt auðvitað fleirum, m.a. framsóknarmönnum.“ Ekki verður byrjað að greiða Icesave-lánin til baka fyrr en 2016, en samkvæmt fyrirvörum við frum- varpið, sem greitt verður atkvæði um í dag, er ekki gert ráð fyrir að ríkisábyrgðin nái til lengri tíma en til ársins 2024. Það þýðir að endur- greiðslutímabilið á lánunum er ein- angrað við átta ár. Þá er auk þess miðað við að hagvöxtur stýri því hversu mikið er greitt af lánunum. „Ef það er hagvöxtur í landinu þá greiðum við í samræmi við skuld- bindingar og fyrirvara. Ef hann er enginn þá greiðum við ekki til baka, enda liggur fyrir að þá er engin geta til þess. Hollendingar og Bretar hafa því beinan hag af því að okkur gangi vel að end- urreisa efnahaginn, sem ég tel einna mikilvægast við þá fyrirvara sem ríkisábyrgðin mun hvíla á,“ segir Pétur. Icesave-fyrirvarar sem tryggja hag landsins Morgunblaðið/Eggert Við upphaf vinnu Það var þétt setið á fundum fjárlaganefndar þegar Icesave-ríkisábyrgðin var til umfjöllunar. Atkvæði verða greidd um hana í dag. Efnahagslegir fyrirvarar gera ráð fyrir að greitt sé í samræmi við getu landsins til þess að greiða lánin til baka. Fólk úr öllum flokk- um lagðist á eitt.                   ! "                      ! " "$% &  '!            (  )   &  '!          !"  * +  *$ % , -    # &  '!          !"  * +  *$ % , -    #                  (   '  . /     0     Icesave-skuldir verða greiddar af ríkinu í samræmi við gang efnahagsmála Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is „ÞEIR sem stóðu að þessu máli höfðu ekki tryggt meirihluta fyrir því á þinginu, hvað þá samstöðu í stjórninni,“ sagði Bjarni Bene- diktsson þingmaður og formaður Sjálfstæðis- flokksins í þriðju og síðustu umræðu Alþingis í gær um frumvarp um ríkisábyrgð vegna Ice- save-lánasamninganna við Breta og Hollend- inga. Bjarni sagði þá samstöðu sem myndast hefði um málið ekki til komna vegna vilja yf- irvalda til samvinnu. „Nei, hún verður til vegna þess að í þinginu myndaðist nýr meiri- hluti sem tók völdin af ríkisstjórninni í málinu, breytti frumvarpinu og setti girðingar, setti öryggisnet í þetta mál, sem breyta öllum grundvallarforsendum þess og koma til móts við, eins og hægt er, hagsmuni Íslendinga til lengri tíma,“ sagði Bjarni. Meirihluti fjárlaga- nefndar lagði fram nýjar breytingartillögur við frumvarpið en verulegar breytingar voru gerðar á frumvarpinu í annarri umræðu. Verulegar breytingar á málinu Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaga- nefndar, sagði í umræðunni að þeir fyrirvarar, sem settir hafa verið við ríkisábyrgðina sam- kvæmt frumvarpinu, séu afar mikilvægir og verulegar breytingar hafi orðið á málinu í með- förum fjárlaganefndar. Samstaða hefur verið meðal allra flokka á þingi um Icesave-málið utan Framsóknar- flokksins. „Icesave-málið er ekki aðeins eitt stærsta mál sem Alþingi Íslendinga hefur þurft að ræða heldur um leið eitt mesta hneykslismál, hugsanlega mesta hneyksli, sem við höfum horft upp á í íslenskum stjórnmál- um,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður og formaður Framsóknarflokksins. Hann sagði stjórnvöld hafa brugðist grund- vallarskyldu sinni í málinu og ekki varið þjóð sína. „Þvert á móti hafa þau varið mjög hart málstað andstæðinga okkar í þessu máli,“ sagði Sigmundur. Atkvæði um breytingartillögur um Icesave- samninginn verða greiddar í dag og síðan verða greidd atkvæði um frumvarpið í heild. Nýr meirihluti tók völdin  Samstaða ekki vegna vilja stjórnvalda, segir formaður Sjálfstæðisflokksins  „Hneykslismál“, segir formaður Framsóknar um Icesave-samninginn Morgunblaðið/Ómar Hlé Þingi verður frestað til 1. október. „VERULEG hækkun vaxta- bóta gæti skilað meiri árangri en margt annað,“ segir Gylfi Arn- björnsson forseti ASÍ um hugsan- legar lausnir á greiðsluvanda heimilanna. „Það þarf fjölbreytt úrræði sem m.a. fela í sér afskriftir skulda sem eru komn- ar langt fram yfir verðmæti eigna og greiðslugetu. En krafan er fyrst og fremst sú að finna úrræði sem tryggi réttarstöðu einstaklinganna þannig að þeir séu ekki háðir duttl- ungum og jafnvel eignarhaldi lána- stofnana.“ Viljum borgaraleg réttindi Gylfi segir tillögur sem ASÍ hafi sett fram um greiðsluaðlögun hafa verið eyðilagðar í meðförum Alþing- is í vor. „Málið var tekið út úr far- vegi velferðarmála og sett inn sem kafli í gjaldþrotalöggjöfinni með ýmsum fyrirvörum og girðingum. Útkoman er flækja og óskapnaður og málin meðhöndluð eins og gjald- þrotamál. Þetta er ekki það úrræði sem við kölluðum eftir. Það á ekki að leysa þetta á forsendu bankanna. Við viljum borgarleg réttindi sem kveða á um að tekið verði af um- hyggju og hlýju á vanda fólks sem varð til af hruninu.“ Greiðsluverkfall ekki leiðin Aðspurður um greiðsluverkfall sem Hagsmunasamtök heimilanna hafa boðað segir Gylfi að það beri með sér að verið sé að búa til nýtt réttlæti til að mæta óréttlæti og það sé ekki raunhæft. „Ef á að finna lausn á því óréttlæti að lán lands- manna hafi hækkað þá er sú lausn ekki til. Persónulegt stríð við lána- stofnun er ekki skynsamleg. Ég ótt- ast að fólk sem fari þessa leið lendi í enn meiri vanda. Það þarf breytta löggjöf sem veitir fólk rétt á aðstoð og úrræðum.“ Gylfi segir að það verði að setja í þetta meiri kraft og skilgreina vand- ann sem á að leysa. „Það er dapur- legt til þess að hugsa að Alþingi hafi karpað um eitt málefni vikum sam- an og ekkert af þessum málum kom- ist að. Af hverju vann Félagsmála- nefnd ekki að málinu á meðan fjárlaganefnd sinnti Icesave? Og sem viðbrögð við gagnrýni okkar segir félagsmálaráðherra að það eigi að undirbúa tillögur fyrir 1. október. Þingið er að störfum núna. Félags- málanefnd hlýtur að geta eytt einni nóttinni í þetta. Það verður að breyta lögunum með réttarstöðu fólks í huga.“ svanbjorg@mbl.is Úrræði en ekki óskapnað! Gylfi Arnbjörnsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.