Morgunblaðið - 28.08.2009, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 28.08.2009, Blaðsíða 34
34 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 2009 Atvinnuauglýsingar • Upplýsingar gefur María Viðarsdóttir í síma 569 1306/669 1306 eða marialilja@mbl.is Umboðsmann vantar á Ísafjörð Umboðsmaður Rafvirkjar Fitjar Electro vantar rafvirkja til vinnu hjá Akerstord (ath. landvinna). Kröfur eru sveins- próf í rafvirkjun, reynsla í skiparafmagni eða iðnaðarrafmagni. Laun 199 kr. norskar í dagvinnu. Fitjar Electro leggur til bíl og húsnæði. Umsóknir sendist til Rafiðnaðarsambandsins eða á netfangið: firmapost@fitjarelectro.no. Frekari upplýsingar gefur Ásgeir B. Sævars- son í síma 0047 4020 6074. Raðauglýsingar 569 1100 Nauðungarsala Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Laxatunga 86, 231-3727, Mosfellsbæ, þingl. eig. Verklag ehf., gerðarbeiðandi Gluggasmiðjan ehf., þriðjudaginn 1. september 2009 kl. 13:30. Laxatunga 141, 212629, Mosfellsbæ, þingl. eig. Asparhvarf ehf., gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., þriðjudaginn 1. september 2009 kl. 14:00. Laxatunga 143, 212630, Mosfellsbæ, þingl. eig. Asparhvarf ehf., gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., þriðjudaginn 1. september 2009 kl. 14:30. Vatnsveitu. Fákur, 205-3211, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Þórarinn Kópsson, gerðarbeiðandi Byko ehf., þriðjudaginn 1. september 2009 kl. 10:30. Þingvað 61, 230-1274, Reykjavík, þingl. eig. Byggingarfélagið saga ehf., gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf., þriðjudaginn 1. septem- ber 2009 kl. 11:30. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 27. ágúst 2009. Tilkynningar IN THE MATTER OF COMMERCIAL UNION LIFE ASSURANCE COMPANY LIMITED (“CULAC”) and IN THE MATTER OF CGNU LIFE ASSURANCE LIMITED (“CGNU Life”) and IN THE MATTER OF AVIVA LIFE & PENSIONS UK LIMITED (“AVLAP”) (formerly known as NORWICH UNION LIFE & PENSIONS LIMITED) and IN THE MATTER OF NORWICH UNION LIFE (RBS) LIMITED (“NUL(RBS)”) (together the “Applicants”) and IN THE MATTER OF PART VII OF THE FINANCIAL SERVICES AND MARKETS ACT 2000 Further to the publication of the notice of this insurance transfer in the Icelandic Official Legal Gazette on 10 June 2009, notice is hereby given that the Applicants presented an application to the High Court of Justice in the United Kingdom on 1 May 2009 (the “Application”) for an order under section 111 of Part VII of the Financial Services and Markets Act 2000 (the “Act”) sanctioning a scheme (the “Scheme”) for: 1. the transfer of the whole of the long-term business of CULAC to AVLAP; 2. the transfer of the whole of the long-term business of CGNU Life to AVLAP; 3. the transfer of the whole of the long-term business of NUL(RBS) to AVLAP; 4. the reattribution of the inherited estates of CULAC and CGNU Life; and for an order under section 112(1) of the Act making ancillary provisions for implementing the Scheme. Copies of the report by the Independent Expert (the “Report”) pursuant to section 109 of the Act and of a statement setting out the terms of the Scheme and a summary of the Report may be obtained free of charge by contacting Aviva, Fund Transfer Support Team, P O Box 3312, Surrey Street, Norwich NR1 3FE United Kingdom in writing or by telephone on 0800 051 1300 (+ 44 1603 208808 if calling from outside the United Kingdom) between Monday and Friday from 9:00am to 5:00pm from the date of publication of this notice until the date on which the Application will be heard before the Court. These documents can also be viewed on the website at www.aviva.co.uk/fundtransfer. The Application will be heard before a Judge of the Chancery Division, Companies Court at the Roya Courts of Justice, The Strand, London WC2A 2LL on 14 September 2009 and any person, including any policyholder or any employee of the Applicants, who claims that he would be adversely affected by the carrying out of the Scheme may appear at the time of the hearing in person or by Counsel. Any person who intends to appear, and any person who dissents from the Scheme but does not intend to appear is asked to give not less than 21 clear days’ prior notice in writing of such intention or dissent, and the reasons therefore, to Clifford Chance LLP, 10 Upper Bank Street, London E14 5JJ, United Kingdom Ref KAC/CMS. Any affected policyholder may without any conditions cancel his or her policy in the event of a transfer of an insurance portfolio from one insurance company to another, by a written notice of cancellation within one month of the transfer date which is, subject to the High Court’s approval, anticipated to be 1 October 2009. Dated: 28 August 2009 Félagslíf Kaffi Amen í kvöld kl. 21 með lifandi tónlist. Smáauglýsingar augl@mbl.is Farðu inn á mbl.is/smaaugl ✝ Auður Sigurjóns-dóttir, fæddist 22. jan. 1920 á Arnheið- arstöðum í Fljótsdal, N-Múlasýslu. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands fimmtu- daginn 20. ágúst sl. Foreldrar hennar voru Guðlaug Þor- steinsdóttir, f. 20.3. 1890 í Hrafnsgerði í Fellahr. N-Múl., d. 24. 4. 1972, húsmóðir í Kollsstaðagerði á Völlum 1921-1944, síðast búsett á Kópavogsbraut 83 í Kópavogi, og Sigurjón Guðjónsson, f. 4.5. 1884 á Eyvindará í Eiðahr., S-Múl., d. 1.5. 1943, bóndi á Brekku í Fljótsdal 1920-1921 og í Kolls- staðagerði 1921-1943. Auður giftist 8.2. 1945, Bergi Þórmundssyni, f. 27.10. 1915 í Langholti í Bæjarsveit, Borg., d. 27.10. 1991, mjólkurfræðingi á Sel- fossi. Foreldrar hans voru Þór- mundur Vigfússon, búfræðingur rafvirkjameistari og rafeindafræð- ingur í Reykjavík. Kona hans er Bríet Þorsteinsdóttir, f. 16.8. 1951 á Reykum á Skeiðum, Árn., skrif- stofumaður í Reykjavík. Ólöf Helga Bergsdóttir, f. 23.1. 1951 á Selfossi, snyrtifræðingur á Selfossi. Maður hennar er Smári Kristjánsson, f. 26.3. 1949 í Reykjavík, útibússtjóri VÍS og hljóðfæraleikari. Arnlaug- ur Bergsson, f. 30.10. 1954 á Sel- fossi, kennari á Selfossi. Kona hans er Guðný Ósk Sigurbergsdóttir, f. 27.9. 1958 í Vestmannaeyjum. Þór- mundur Bergsson, f. 25.2. 1959 á Selfossi, framkvæmdastjóri í Reykjavík frá 1995. Kona hans er Margrét Einarsdóttir Laxness, f. 29.12. 1961 í Reykjavík, grafískur hönnuður og myndlistarmaður í Reykjavík. Bergur Heimir Bergs- son, f. 5.9. 1960 á Selfossi, íþrótta- fræðingur í Reykjavík. Kona hans er Þuríður Björnsdóttir, f. 10.7. 1962 á Akranesi, hjúkrunarfræð- ingur í Reykjavík. Barnabörn og barnabarnabörn Auðar eru nú 25 talsins búsett ýmist á Selfossi eða í Reykjavík. Auður verður jarðsungin frá Sel- fosskirkju í dag, 28. ágúst, kl. 13.30. og bóndi í Langholti og Bæ í Bæjarsveit, ráðsmaður barónsins á Hvítárvöllum um skeið, f. 26.2. 1875 á Efri-Reykjum í Bisk- upstungum, d. 19.7. 1949 í Reykjavík, og Ólöf Helga Guð- brandsdóttir hús- móðir, f. 19.6. 1875 í Kílhrauni á Skeiðum, Árn., d. 4.2. 1946 í Bæ. Sonur Bergs er Sverrir Bergmann Bergsson, f. 20.1. 1936 í Flatey á Skjálfanda, stúd., læknir í Reykjavík. Móðir hans var María Helga Guðmundsdóttir, f. 2. sept. 1914 í Krosshúsum í Flatey á Skjálfanda. Auður og Bergur eign- uðust sex börn. Sigurjón Bergsson, f. 13.8. 1944 á Selfossi, raf- eindavirkjameistari á Selfossi. Kona hans er Pálína Ingibjörg Tómasdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 25.1. 1943 í Kópavogi. Þórir Bergsson, f. 11.6. 1948 á Selfossi, Látin er í hárri elli elskuleg tengdamóðir mín, Auður Sigurjóns- dóttir. Fram til síðustu ára átti Auður hamingjuríkt líf, umvafin börnum sínum og niðjum þeirra sem hún unni svo mjög. En að fá að lifa svo lengi með af- komendum sínum er að sjálfsögðu mikil Guðsblessun. Heilsuhraust, dugmikil kona sem aldrei féll verk úr hendi og ekki sízt glaðlynd og skapgóð. Voru þau Berg- ur og Auður ávallt mjög samrýnd í öllum sínum verkum enda eins gott ef koma átti krakkaskaranum til manns! Ég tengdist fjölskyldunni ungur eða fyrir rúmum 40 árum og var mér strax tekið sem einum af hópnum. Voru þau Bergur heitinn, en hann lézt fyrir tæpum 18 árum, og Auður mér afskaplega góð og nánast eins og foreldrar. Var alla tíð mjög hlýtt og gott sam- band okkar á milli. Auður var þeim eiginleika gædd að hún gat töfrað fram hvort sem var dýrindis matar- eða kaffiveizlu án þess að maður tæki eftir því. Skyndi- lega var boðið til borðs og gestir undruðust hvenær hún hafði eigin- lega haft tíma því hún var jú allan tímann að spjalla við þá! Eins var það með hannyrðirnar. Ekki var slegið slöku við þær frekar en önnur heimilsstörf og voru ófáar peysur, sokkar, vettlingarnir og önn- ur plögg töfruð fram af prjónunum hvort sem var fyrir börnin, barna- börnin eða aðra ættingja og enginn tók eftir því fyrr en flíkin lá fyrir full- kláruð. „Að muna tímana tvenna“ er sann- arlega orðatiltæki sem vel átti við Auði. Fædd nánast í byrjun síðustu aldar og fylgdist með öllum þeim gíf- urlegu framförum og byltingum sem átt hafa sér stað; allt frá torfkofum til tunglferða; öðlaðist tækifæri til þess að ferðast fljúgandi um heiminn og skoða sig um. Þau Bergur og Auður fóru einmitt nokkrar ferðir til út- landa og nutu þess í hvívetna. Einnig voru þau dugleg að ferðast innan- lands meðan heilsu Bergs naut við. Margs er að minnast frá þessum árum sem ég fékk að þekkja og lifa með þeim elskulegu heiðurshjónum Auði og Bergi í Bæ. Læt hér samt staðar numið. Börnum, tengdadætrum, barna- börnum, barnabarnabörnum og öðr- um ættingjum sendi ég samúðar- kveðjur. Guð blessi fallegar minningar um Auði Sigurjónsdóttur. Smári Kristjánsson. Elsku tengdamamma! Hún var einstök perla. Afar fágæt perla, full af kærleika, skreytt gimsteinum sem glitraði og gerðu líf samferðamanna hennar innihaldsríkara og fegurra. Fáar perlur eru svo ríkulega búnar, gæddar svo mörgum af dýrmætustu gjöfum Guðs. Hún hafði ásjónu engils sem frá stafaði ilmur umhyggju og vináttu, ástar og kærleika. Hún var farvegur kærleika Guðs, kærleika sem ekki krafðist endur- gjalds. Hún var vitnisburður um bestu gjafir Guðs, trúna, vonina, kærleikann og lífið. Blessuð sé minning einstakrar perlu. (Sigurbjörn Þorkelsson.) Takk fyrir allt, mín kæra. Guðný Ósk. Elsku amma, Við höfði lútum í sorg og harmi og hrygg við strjúkum burt tárin af hvarmi. Nú stórt er skarð í líf okkar sorfið því fegursta blómið er frá okkur horfið. Með ástúð og kærleik þú allt að þér vafðir og ætíð tíma fyrir okkur þú hafðir þótt móðuna miklu þú farin sért yfir þá alltaf í huga okkar myndin þín lifir. Við kveðjum þig, amma, með söknuð í hjarta, en minning um faðmlag og brosið þitt bjarta. Allar liðnar stundir um þig okkur dreymi og algóður Guð á himnum þig geymi. (Sigfríður Sigurjónsdóttir.) Lilja, Sindri og Elín Rós. Auður Sigurjónsdóttir mikil sóma- kona og mamma vina minna Domma og Heimis er látin. Frá því að ég var unglingur kom ég oft á heimili þeirra heiðurshjóna Auðar og Bergs í Bæ. Þegar maður verður eldri finnur maður hvað það er gott að eiga góðar minningar um gott fólk og þannig minningar á maður sannarlega um Auði og fjölskyldu hennar. Oftar en ekki var hlaðborð í eld- húsinu sem Auður var búin að útbúa og gestrisnin var mikil. Þessu fylgdi svo alltaf skemmtilegt spjall. Auður var þannig í viðmóti að mað- ur fann að maður var velkominn. Eftir að þeir bræður fóru að heim- an héldum við Auður áfram góðu sambandi, heimsóttum hvor aðra. Hún kom færandi hendi þegar strák- arnir mínir fæddust og eins er mér minnisstæð heimsókn þeirra beggja, hennar og Bergs, þegar við Tóti vor- um nýflutt á Víðivellina. Þau sögðu okkur frá þeim tíma þegar þau fluttu hingað á Selfoss sem þá var lítið þorp og allri þeirri breyt- ingu sem orðið hafði á fáum áratug- um. Þau voru meðal frumbyggja hér á Selfossi og má segja að börnin þeirra séu með fyrstu innfæddu Sel- fyssingunum. Allt heiðarlegt og gott fólk, sem hefur gert bæinn okkar betri og gátu þau Auður og Bergur verið stolt af myndarlegum afkomendum sínum. Fjölskyldu Auðar votta ég samúð mína og megi minningin um þau góðu hjón, Auði og Berg í Bæ, lifa. Anna Guðmundsdóttir. Auður Sigurjónsdóttir Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist val- kosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minn- ingargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virk- um dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Greinar, sem berast eftir að út- för hefur farið fram, eftir tiltekinn skilafrests eða ef útförin hefur verið gerð í kyrrþey, eru birtar á vefnum, www.mbl.is/minningar. Æviágrip með þeim greinum verður birt í blaðinu og vísað í greinar á vefnum. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Engin lengdar- mörk eru á greinum sem birtast á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja við- hengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletr- aður, en ekki í minningargreinun- um. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.