Morgunblaðið - 28.08.2009, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 28.08.2009, Blaðsíða 39
Menning 39FÓLK MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 2009  Opið hús verður í stóru leikhús- unum tveimur, Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu, á morgun. At- hygli vekur að dyr beggja húsa verða opnar á sama degi, á nákvæm- lega sama tíma, frá kl. 13 til 16. Borgarleikhúsið hefur boðið fólki í heimsókn síðasta laugardag ágúst- mánaðar mörg undanfarin ár, og því spurning hvort Þjóðleikhúsið hefði ekki getað fundið annan dag til þess arna. Af þessu má þó skilja að sam- keppnin um athygli leikhúsgesta verður afar hörð í vetur – jafnvel harðari en nokkru sinni fyrr. Hörð barátta um at- hygli leikhúsgesta Fólk Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is ÁRLEGT Gróttuball verður haldið í íþróttahúsinu á Sel- tjarnarnesi um helgina. Að þessu sinni skiptist hátíðin í tvennt því í kvöld verður ball fyrir 13 til 17 ára þar sem fram koma Jeff Who? Stuðmenn, Dikta og Hairdoctor, og stendur það frá kl. 20 til 24. Annað kvöld stíga Stuðmenn svo aftur á svið og verð- ur það í tíunda skiptið í röð sem sveitin leikur á þessu balli. „Það verður ákveðið tyrkneskt þema hjá Stuðmönn- um, enda er ég nýkominn frá Tyrklandi,“ segir Stuð- maðurinn Jakob Frímann Magnússon. Líkt og vanalega koma ýmsir gestir fram með Stuðmönnum á ballinu og eru þeir ekki af verri endanum að þessu sinni: Megas, Björn Jörundur, Megas og dansmeyjar frá Vegas  Skemmtistaðurinn Oliver við Laugaveginn virðist risinn úr ösku- stónni, ef svo má segja. Eins og margir eflaust muna naut staðurinn gríðarlegra vinsælda þegar góð- ærið stóð sem hæst á Íslandi á ár- unum frá 2005 til 2007, og var þá langvinsælasti skemmtistaður landsins. Um áramótin 2007/2008 fór hins vegar að halla undan fæti og dvínuðu vinsældirnar til muna. Síðustu mánuði hefur staðurinn hins vegar sótt í sig veðrið og er nú svo komið að nánast fullt er út úr dyrum allar helgar. Stemningin er hins vegar töluvert önnur en var á tímum góðærisins því í dag er Oli- ver sannkallaður „FM-staður“, enda hljómar þar svokölluð „FM 957-tónlist“ allar helgar. Sú upp- skrift virðist hins vegar svínvirka. Andi góðærisins svífur yfir vötnum á Oliver  Myndband við nýjasta lag Gus- Gus, „Add This Song“, verður frumsýnt á internetvídeó-rásum Myspace UK á mánudaginn. Fregn- ir herma að Daníel Ágúst komi nakinn fram í myndbandinu, og mun það því eflaust vekja athygli. Nakinn Daníel Ágúst Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is „ÉG var komin inn í SAE Institute í hljóðtækni í Stokkhólmi en svo varð bara bankahrun og námslánin urðu alltof lág svo ég þurfti að hætta við. Ég varð mjög fegin þeg- ar ég kom auga á þetta nám og sótti strax um,“ segir Guðrún Heið- ur Ísaksdóttir sem stundar nú nám í Hljóðtækni sem Tækniskólinn býður upp á í samstarfi við Stúdíó Sýrland. Um áramótin var í fyrsta skipti boðið upp á þetta nám hér á landi og er það þrjár samfelldar annir. Guðrún hefur því verið í skólanum í sumar. „Ég hef verið í verklegum og bóklegum tímum í sumar og svo hef ég líka verið að taka að mér eig- in verkefni.“ Spurð af hverju hún hafi ákveðið að gerast hljóðmaður segir Guðrún að hún hafi orðið heilluð af tækninni í fyrsta skipti sem hún fór í hljóð- ver. „Ég er búin að vera í tónlist heillengi, ég byrjaði að spila á bassa þegar ég var þrettán ára og stofn- aði Mammút fjórtán ára, tónlist hef- ur átt hug minn allan. Þegar ég fór fyrst í hljóðver með Mammút fannst mér þetta svo heillandi tækni og fann að þetta væri fyrir mig,“ segir Guðrún sem er eina stelpan í tólf manna bekk í hljóð- tæknináminu. Með mörg járn í eldinum Guðrún, sem er tvítug, var liðs- maður í hljómsveitinni Mammút í þrjú ár en leikur nú á bassa í pönk- hljómsveitinni Viðurstyggð. „Systir mín er á gítar og syngur og svo er vinkona okkar á trommunum. Ég stefni að því að taka upp plötu með okkur bráðlega,“ segir Guðrún sem hefur nóg að gera við að taka upp plötur þó að hún hafi ekki lokið náminu. „Núna er ég að taka upp plötu með hljómsveitunum HEK og We went to space. Ég og Kata, söng- konan í Mammút erum að búa til tónlist saman sem ég vonast til að hljóðrita. Svo höfum við Lovísa (Lay Low) vinkona mín verið að tala um að taka upp plötu með nýju efni frá henni með ljóðum eftir ís- lenskar konur. Ég hafði hugsað mér að hafa það sem lokaverkefnið mitt úr náminu,“ segir Guðrún sem hef- ur augljóslega mörg járn í eldinum. Alls kyns hljóðvinnsla Hún segir hljóðtækninámið al- gjörlega hafa staðið undir sínum væntingum. „Tækniskólinn og Stúdíó Sýrland leggja mikla áherslu á að námið nýtist vel og sé mark- visst. Við fáum t.d. töluvert að taka upp tónleika og vinna þá í fram- haldinu. Við tókum t.d. upp alla tón- leika á Jazzhátíð Reykjavíkur og fáum að vinna efnið. Það er mjög mikilvægt að hafa þetta nám í boði hérlendis, hingað til hefur bara ver- ið hægt að læra hljóðtækni úti og það er mun dýrara en þetta. Þörf fyrir námið sýnir sig líka í því að það komust aðeins tólf af sjötíu um- sækjendum að þegar það byrjaði og það hringja margir og spyrjast fyrir um það,“ segir Guðrún sem á sér þann draum að fá að vinna við allar hliðar hljóðsins. „Mig finnst sjarm- erandi tilhugsun að vinna hjá út- varpi og leikhúsi, svo langar mig að búa til aðstöðu heima hjá mér til að taka upp. Annars fást þeir sem eru með þessa menntun við alls kyns hljóðvinnslu, ekki bara tónlist held- ur einnig kvikmyndir, talsetningar, upptökur, mix, rafmagnsfræði og fleira,“ segir Guðrún. Spurð hver sé listin við að vera góður hljóðmaður svarar Guðrún ákveðin að fyrir utan tæknilegu hliðina og reynsluna skipti miklu máli að skilja hvað tónlistarmað- urinn vilji fá út úr upptökunum og bera virðingu fyrir því. Heilluð af hljóðtækni  Guðrún Heiður Ísaksdóttir er eina stelpan í bekk í hljóðtækninámi  Hyggst taka upp plötu með Lay Low og pönkhljómsveit sinni Viðurstyggð Morgunblaðið/Kristinn Hljóðmaður Guðrún Heiður hefur nóg að gera við upptökur og nám. Hvar læturðu helst til þín taka á heimilinu? Í eldhúsinu. Ýmsum litlum verk- efnum annars. Getur þú lýst þér í 5-10 orðum? Ég tala hreimlausa norsku og er með bílpróf. Á ekki að reyna að sjá eitthvað á Artfart? (Spyr síðasti aðalsmaður, Hannes Óli Ágústsson leikari) Ég veit ekki hvað það er, en ég skal athuga það. Ert þú góður í fótbolta? Ég er ekki eins góður og þeir bestu, en ég gæti léttilega verið í Sampdoria eða Olympiakos, því leikstíllinn þeirra er svolítið svona HM ’94. 4-5-1 kerfi. En ég er byrj- unarmaður í liði Úngmennafélags musteris Íslenzkrar túngu. Hver er tilgangur lífsins? Skora fleiri mörk. Hvaða bók ertu að lesa? Rokland og Minnisbók Sigga Páls. Þetta var rétt hjá Hallgrími, þetta gerðist, eða á eftir að gerast. Sennilega rétt hjá Sigga líka. Núna Kardemommubær. Brennu- vargarnir. Magnað stöff. Ertu ástríðufullur? Á vorin. Býrðu yfir leyndum hæfileika? Get farið ferða minna án þess að vekja minnstu athygli. Leikhús, kvikmyndir eða sjónvarp? 60%, 20%, 20%. Hvaða áhugamál áttu þér? Ég hef gaman af fuglum. Hver er þinn helsti kostur? Fljótur að aðlagast hlutum. En ókostur? Öfundsjúkur. Hvar sérðu þig eftir 10 ár? Sem íbúa í frjálsu Íslandi. Hver er skemmtilegastur? Anna Kristín. Frank Hvam. Hefurðu fundið fyrir kreppunni? Ég skil ekki spurninguna. Á konu? Færðu gæsahúð eða hroll þegar þú heyrir minnst á IceSave? Nei. Meira svona væga kippi fyrir aftan augað. Eins og þegar maður hefur tekið sjóveikistöflu. Ert þú búinn að fara í berjamó og búa til sultu? Nei, ég fæ þetta sent. Ertu með spurningu handa næsta viðmæl- anda? Hvaða þrjá útrás- arstráka myndirðu taka með þér á eyðieyju? HEFUR GAMAN AF FUGLUM AÐALSMAÐUR ÞESSARAR VIKU HEITIR ÞÓRIR SÆMUNDSSON OG FER HANN MEÐ HLUTVERK SKÁTANS DAVÍÐS Í SJÓNVARPS- ÞÁTTUNUM UM ÁSTRÍÐI SEM SÝNDIR ERU Á STÖÐ 2. Aðall Þórir erástríðufullur á vorin. Björn Jörundur Friðbjörnsson, Lögreglukórinn og maga- dansmeyjar frá Las Vegas. „Þarna verður í fyrsta skipti framið á sviði sólóið úr „Para- dísarfuglinum“ af Á bleikum náttkjólum sem Valgeir Guð- jónsson samdi og var mikið framúrstefnu- og tímamóta- sóló á sínum tíma. En svo tekur Lögreglukórinn undir með bæði Megasi, Birni Jörundi og Stuðmönnum,“ segir Jakob, en sérstaka athygli mun án efa vekja flutningur Björns Jörundar og Lögreglukórsins á laginu „Lög og regla“ eftir Bubba Morthens. Þá mun kórinn einnig flytja lagið „Born To Be Wild“ í nýrri íslenskri þýðingu Kristjáns Hreinssonar. Húsið verður opnað kl. 23 annað kvöld og fer miða- sala fram í Íslandsbanka á Eiðistorgi og í íþróttahús- inu. Miðaverð er 2.500 kr. en 1.500 kr. á unglingaball- ið í kvöld. Meistararnir Megas og Björn Jr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.