Morgunblaðið - 28.08.2009, Síða 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
tordur@mbl.is
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ vill
endurskoða samning um leigu HS
orku á jarðvarmaauðlindum á
Reykjanesskaga með þeim hætti að
leigutíminn verði styttur og greiðsla
fyrir leiguna verði hækkuð. Heimild-
ir Morgunblaðsins herma að Magma
Energy, sem hyggst verða kjölfestu-
fjárfestir í HS orku, hafi lýst yfir
vilja til að taka þátt í slíkri endur-
skoðun.
Farið eftir tillögum nefndar
Endurskoðunin mun fara fram í
samræmi við niðurstöður nefndar á
vegum forsætisráðuneytisins sem
fjallar um leigu á vatns- og jarðhita-
réttindum í opinberri eigu. Nefndin,
sem Karl Axelsson hæstaréttarlög-
maður fer fyrir, hefur verið að störf-
um frá því í fyrra og átti að skila til-
lögum sínum 1. júní síðastliðinn. Af
því varð ekki og er nú gert ráð fyrir
að hún skili tillögum sínum í síðasta
lagi 31. desember næstkomandi.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur Ross Beaty, forstjóri
Magma, lýst yfir vilja til að samn-
ingur um auðlindaleigu milli HS
orku og Reykjanesbæjar sem nú
þegar er í gildi verði breytt til sam-
ræmis við tillögur nefndarinnar þeg-
ar þær liggja fyrir.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að lögð sé áhersla á það á meðal ís-
lenskra ráðamanna að leigutíminn
verði styttur og að greiðsla fyrir leig-
una verði hækkuð. Með því er stefnt
að því að tryggja að meirihluti arðs
af jarðvarmaauðlindum HS orku
renni til opinberra aðila.
Samkvæmt upprunalega sam-
komulaginu átti HS orka að leigja
nýtingu á auðlindunum næstu 65 ár-
in með möguleika á að framlengja þá
nýtingu til annarra 65 ára. Reiknað
árlegt auðlindagjald vegna þessarar
nýtingar, sem rennur til eigenda
landanna á Reykjanesi, er samtals
72 milljónir króna vegna allrar nú-
verandi raforkuframleiðslu HS orku,
samkvæmt grein sem Júlíus Jóns-
son, forstjóri HS orku, skrifaði á
mbl.is fyrr í vikunni.
Sameinast ekki Geysi Green
Beaty hitti Steingrím J. Sigfússon
fjármálaráðherra öðru sinni á fundi á
miðvikudag. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins sátu þeir einir þann
fund en fyrri fundur þeirra, sem fór
fram á þriðjudag, hafði einnig verið
setinn af Magnúsi Bjarnasyni, fram-
kvæmdastjóra ráðgjafafyrirtækisins
Capacent Glacier, og starfsmönnum
úr fjármála- og iðnaðarráðuneyti.
Á ofangreindum fundum Beatys
með íslenskum ráðamönnum hefur
komið fram að samruni Geysis Green
Energy (GGE) við Magma hafi verið
til umræðu frá því að samstarf fyr-
irtækjanna hófst fyrst fyrir tilstilli
Capacent Glacier fyrr á þessu ári.
Heimildir Morgunblaðsins herma að
þá hafi verið rætt um að Magma
myndi renna inn í GGE eða öfugt,
auk þess sem Magma myndi falast
eftir hlutum annarra núverandi eig-
enda HS orku. Ef öll kaup myndu
síðan ganga eftir þá yrði sameinaða
félagið eigandi nánast alls hlutafjár í
HS orku.
Ætlaði ekki að vera ráðandi
Það stangast á við það sem Beaty
sagði í viðtali við Morgunblaðið þann
8. júlí síðastliðinn þegar Magma var
að kaupa 10,8 prósenta hlut í HS
Orku af GGE. Þar lagði hann mikla
áherslu á að Magma ætlaði sér ekki
að verða ráðandi aðili í HS orku og
hefði engin áform um að skipta sér af
rekstri orkuvera fyrirtækisins og
sagði orðrétt að „hlutur okkar gæti
orðið stærri, en þetta var sá hlutur
sem var í boði núna. Eftir að þetta
skref klárast gætu skapast tækifæri
til að auka eignarhlut okkar lítillega
en við verðum bara að horfa á þau
þegar þau bjóðast [...] Við ætlum
okkur ekki að koma með neinum
hætti að rekstri virkjana HS orku
[...] Við ætlum okkur heldur ekki að
falast eftir fulltrúa í stjórn félagsins.
En það sem við getum bætt við þetta
er fjármagn.“
Hærra gjald og styttri leigutími
Fjármálaráðuneyti vill tryggja að meirihluti arðs af jarðvarmaauðlindum HS orku renni til opinberra
aðila Stefnt var að því að Magma rynni inn í GGE og falaðist eftir hlutum annarra eigenda HS orku
Fundahöld Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra fundaði með fulltrúum Magma í vikunni.
Morgunblaðið/Heiddi
Góðar líkur eru á að samningur
um leigu HS orku á jarð-
varmaauðlindum á Reykjanes-
skaga verði endurskoðaður og að
breytingar verði gerðar í sam-
vinnu við Magma Energy.
Í HNOTSKURN
» Í greiningu greiningar-fyrirtækisins Raymond
James á Magma Energy sem
birt var á mánudag kemur
fram að Magma hyggist eyða
um 25 milljónum dala, 3,2
milljörðum króna á núvirði, í
að kaupa 10,8 prósenta hlut í
HS orku af GGE fyrir marslok
2010. Þá eigi Magma einnig
möguleika á því að eignast
fimm prósent til viðbótar fyrir
15 milljónir dala, 1,9 milljarð
króna, í fyrirtækinu í gegnum
hlutafjáraukningu.
»Magma hefur einnig veriðvalið úr hópi bjóðenda til
að kaupa 32,32 prósenta hlut
Orkuveitu Reykjavíkur (OR).
Samkvæmt mati Raymond
James munu þau kaup verða
til þess að fjárfesting Magma í
HS orku fari yfir 100 milljónir
dala, 12,9 milljarða króna.
Hins vegar tiltekur greining-
arfyrirtækið sérstaklega að
það telji að seinni viðskipti
Magma, með hlut OR, verði
með þeim hætti að fyrirfram-
greiðsla fyrir hlutinn verði
með minnsta móti.
Þegar Hitaveitu Suðurnesja var skipt upp í tvö fyrir-
tæki, HS orku og HS veitur, í lok árs 2008 var Capacent
ráðgjöf ráðin til þess að meta eignir fyrirtækisins og
hafa yfirumsjón með skiptingunni.
Sú deild innan Capacent sem vann að verkefninu er
sú sama og síðar sameinaðist Glacier Partners, sem
áður var hluti af Glitni og varð að Capacent Glacier
snemma á árinu 2009.
Þegar HS orka hóf að gera samninga um greiðslu
auðlindagjalds til landeigenda fyrir nýtingu jarðvarma
var um fyrstu slíka samninga sinnar tegundar að ræða
sem gerðir hafa verið hérlendis. Forsætisráðuneytið
hafði reyndar skipað nefnd sem átti að skila tillögum
um leigu á vatns- og jarðhitaréttindum í síðasta lagi 1.
júní 2009.
Hitaveitunni var hins vegar skipt upp áður en sú
nefnd lauk störfum, en hún hefur enn ekki skilað til-
lögum, og því unnu stjórnendur Hitaveitunnar sínar
eigin útfærslur á því hvernig gjaldið skyldi innheimt og
hver leigutími fyrir nýtingu auðlinda ætti að vera.
Í grein Júlíusar Jónssonar, forstjóra HS orku, sem
birtist á mbl.is í vikunni, kemur fram að leitað hafi ver-
ið til virtustu jarðvísindamanna landsins um hvernig
gjaldtökunni skyldi háttað og fordæmi frá Orkustofnun
hafi verið skoðuð. Þá segir orðrétt: „leitað var eftir
óháðu áliti frá ráðgjafarfyrirtækinu Capacent um
hvernig auðlindagjaldtöku er háttað í heiminum.“
Á heimasíðu Capacent Glacier má sjá að fyrirtækið
starfaði síðan fyrir GGE í upphafi árs 2009 við ýmiss
konar stefnumótunarvinnu og matsgerðir áður en það
hóf að starfa fyrir Magma Energy sem ráðgjafi við kaup
kanadíska fyrirtækisins á 10,78 prósenta hlut GGE í HS
orku, sem fram fóru fyrr í sumar. Capacent Glacier
starfar enn sem ráðgjafi Magma hérlendis, enda sér-
hæfir Capacent Glacier sig í fyrirtækjaráðgjöf í jarð-
varma- og sjávarútvegsgeirunum.
Capacent vann að uppskiptingu Hitaveitu Suðurnesja
Morgunblaðið/Ómar
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
VELFERÐARRÁÐ Reykjavíkur
hefur ákveðið að bjóða þeim sem
njóta fjárhagsaðstoðar hjá borginni
en hafa ekki rétt til atvinnuleysis-
bóta verkefni eða launalaus hluta-
störf til þess að létta viðkomandi líf-
ið. Um er að ræða um 1.800 manns
og fjölgaði þeim um 600 frá janúar
til júní í ár samanborið við 2008.
Jórunn Frímannsdóttir, formaður
velferðarráðs, segir að ýmsar hug-
myndir um störf og verkefni hafi
komið fram og næsta skref sé að
vinna úr þeim og útfæra þær.
Stefnt sé að því að bjóða verkefni í
öllum hverfum borgarinnar. Í þessu
sambandi nefnir hún til dæmis að
fjórir til fimm gætu tekið að sér
gæslu ákveðinna svæða eins og
Laugardalsins og þeir myndu þá
sjá um að allt væri í lagi á svæðinu.
Byrja í október
Að sögn Jórunnar hefur fólk í
umræddum hópi haft samband við
borgina og óskað eftir því að gera
eitthvað. „Það vill ekki bara þiggja
aðstoð heldur leggja sitt af mörkum
á móti og við erum að bregðast við
þessu,“ segir hún. Jórunn leggur
áherslu á að ekki sé hægt að skil-
yrða fjárhagsaðstoðina en fólki
standi einhver starfsþátttaka eða
verkefni til boða. Þannig sé komið
til móts við þá sem vilja ekki koðna
niður heldur hafa eitthvað reglulega
fyrir stafni. Ekki sé verið að taka
störf frá öðrum heldur bæta við
þjónustu sem annars yrði ekki í
boði.
Gert er ráð fyrir að byrjað verði
að bjóða upp á verkefni í öllum
hverfum borgarinnar í október og
getur fólk þá skráð sig hjá þjónustu-
miðstöðvunum.
Verkefni í boði fyrir þá sem vilja
Velferðarráð bregst við óvirkni fólks
Verkefni í boði í öllum hverfum
Morgunblaðið/Valdís Thor
Átak Víða má taka til hendi án þess
að ganga á önnur störf í borginni.
Í HNOTSKURN
» Velferðarráð Reykja-víkur fól í gær sviðs-
stjóra velferðarsviðs að út-
færa leiðir til að stuðla að
virkni fólks sem nýtur
fjárhagsaðstoðar hjá borg-
inni.
» Bjóða á einstaklingumað taka þátt í skipu-
lagðri starfsemi í borginni.
NEYTENDASTOFA hefur lagt
600.000 króna stjórnvaldssekt á
Heimsferðir fyrir að fara ekki að
ítrekuðum tilmælum stofnunar-
innar um að gefa upp endanlegt
verð vöru, þó að afdráttarlaus
skylda hvíli á seljendum vöru og
þjónustu að gera svo.
En á bókunarvef Heimsferða
kemur heildarverð með flugvalla-
skatti og öðrum gjöldum ekki fram
fyrr en búið að gefa upp verð ferð-
ar og gistingar.
„Því er það mat Neytendastofu
að sú framsetning Heimsferða að
gefa upp „verð frá“ sem inniheldur
ekki skatta og önnur gjöld sé brot
gegn ákvæðum laga nr. 57/2005
sem og reglna um verðmerkingar.
Er sú krafa um verðframsetningu í
samræmi við þær kröfur sem stofn-
unin hefur gert til annarra ferða-
skrifstofa og flugrekenda,“ segir í
tilkynningunni.
Heimsferðir
sektaðar