Morgunblaðið - 28.08.2009, Side 11

Morgunblaðið - 28.08.2009, Side 11
Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 2009 Á LAUGARDAGINN verður enda- punkturinn í söfnun fyrir fiskabúri í Vesturbæjarlaug. Þá verður blásið til útihátíðar við laugina. Dag- skráin er fjölbreytt og boðið verður upp á sælgæti, ís og leiktæki fyrir börnin. Fram koma Ný dönsk, Magga Stína, Ólöf Arnalds, Lay Low og Jazztríó – Jóel Pálsson ásamt Tómasi R. og Matthíasi Hem- stock. Flutningur tónlistar fer fram á sundlaugarbakkanum þar sem gömlu útiklefarnir voru. Herleg- heitin hefjast kl. 14. Morgunblaðið/ÞÖK Útihátíð við laugina LÖGREGLAN á Suðurnesjum hefur undanfarið þurft að hafa af- skipti af tólf manns í Flugstöð Leifs Eiríkssonar vegna þess að greitt hafði verið fyrir farmiða þeirra með stolnum greiðslukort- um. Fólkið virðist ekki tengjast inn- byrðis en skýrir allt frá viðskiptum sínum með flugfarseðlana á svip- aðan hátt og er trúverðugt. Fólkið keypti farmiða sína á net- inu af óþekktum millilið sem bauð flugferðir á mjög góðu verði. Það fékk síðan sent bókunarnúmer með e-mail mjög skömmu fyrir brottför. Þegar fólkið kom í flugstöðina voru þar fyrirliggjandi upplýsingar um að farmiðarnir hefðu verið greiddir með stolnum greiðslukort- um og fólkinu meinað að halda áfram för sinni. Flest bendir til að þeir aðilar sem sviku fólkið séu er- lendis. Komið hefur í ljós að fleiri hafa keypt farmiða með sama hætti að undanförnu en svikin ekki komist upp í tæka tíð. Svikin í far- seðlakaupum KÖNNUN á leiguverði íbúða, sem birt er á heimasíðu Keilis, sýnir að hagstæðasta leigan á íbúðum fyrir námsmenn er hjá Keili á Ásbrú. Leigan hjá Keili er 30-50% lægri en á höfuðborgarsvæðinu og um 20% lægri en á Bifröst. Könnunin var gerð í sumar, þeg- ar fyrir lá hvert leiguverð íbúða yrði í vetur. Kostnaður við hita, raf- magn og sameign er ekki inni í þessum samanburði. Í íbúðum á Ásbrú er innifalið í leiguverðinu net og rútuferðir. Keilir ódýrastur ÁHERSLA er lögð á að ein- staklingsnáms- skrá verði gerð fyrir öll börn sem njóta sér- kennslu í leik- skólum í nýrri sérkennslustefnu leikskólasviðs Reykjavíkurborgar. Ábyrgðarmaður sérkennslu mun starfa við leikskóla borgarinnar og aukin áhersla verður lögð á að fjölga leikskólum með sérhæfða þekkingu vegna þjónustu við börn með fötlun. Þeir leikskólar sem eru skilgreindir sérhæfðir leikskólar skulu vera í fararbroddi við þekk- ingaröflun á sínu sérsviði og miðla þekkingu til annarra leikskóla. Þjónusta við fötluð börn aukin STUTT FRÉTTASKÝRING Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is „SVO virðist sem síldin hafi staldrað lengur við í íslenskri lögsögu en und- anfarin sumur og meira hafi verið af henni,“ segir Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri nytjastofna hjá Hafrann- sóknastofnun. Við mælingar á norsk- íslensku síldinni í maímánuði virtist magnið vera svipað á síðasta ári. Miðað við upplýsingar sem hefðu borist frá veiðiskipum í sumar og einnig úr makrílleiðangri fyrir skömmu virtist meira vera af síldinni en í mörg ár. Aðspurður hvort síldin myndi hafa vetursetu í lögsögunni sagðist Þor- steinn ekki vilja spá um slíkt. Fiski- fræðingar hefðu allt eins búist við að slíkt gerðist síðastliðin fimmtán ár og allar forsendur virtust fyrir hendi. Síldveiðarnar í sumar hafa tekið mið af takmörkunum vegna makríls á miðum fyrir austan, auk þess sem makríll hefur fengist í of miklum mæli með síldinni. Útgerðarmaður sem rætt var við í gær orðaði þetta þannig, að makríllinn hefði stýrt síld- veiðunum. Hann sagði að í heildina hefði gengið vel og nú væri verið að frysta á fullu bæði um borð í vinnslu- skipunum og í landi. Byrjað er að frysta síld hjá HB Granda á Vopnafirði, en þar var lok- að yfir hásumarið, m.a. vegna þess að síldin er ekki eins hentug á þeim tíma til manneldisvinnslu. Frysta síldin fer að miklu leyti til Póllands, Rússlands og á aðra hefðbundna markaði í Austur-Evrópu. Frysting hófst í fyrrinótt hjá Síldarvinnslunni að loknu sumarfríi. Börkur kom með 900 tonn af síld til vinnslu í frystihús- inu, Bjarni Ólafsson var á landleið í gær með 600 tonn af síld til vinnslu, Vilhelm Þorsteinsson, vinnsluskip Samherja hf., og Hákon, vinnsluskip Gjögurs hf., lönduðu í gær fullunnum síldarafurðum í frystigeymslu sam- tals um 1.200 tonnum af afurðum. Áætluð verðmæti sem þannig fara um Norðfjarðarhöfn á einum sólar- hring voru um 300 milljónir króna samkvæmt því sem fram kemur á heimasíðu fyrirtækisins. Blankalogn Sjórinn var spegilsléttur og fallegt undir Hólmatindi þegar Aðalsteinn Jónsson SU 11 og Huginn VE 55 mættust utan við höfnina í Eskifirði snemma morguns fyrr í sumar. Aðalsteinn að koma til löndunar með fullfermi af síld og makríl, en Huginn á útleið. Meira af síld en síðustu ár og hún staldrar lengur við Norðfjarðarhöfn iðaði af lífi í gær og mikil verðmæti fóru um höfnina Ljósmynd/Hafsteinn Hinriksson Veiðar og vinnsla síldar ganga vel. Meira virðist af norsk- íslensku síldinni í lögsögunni en síðastliðin sumur. TÆPLEGA 109 þúsund tonnum af makríl hafði verið landað á miðvikudag, samkvæmt upplýsingum Fiskistofu. 27 skip höfðu borið nánast allan aflann að landi. Hoffellið frá Fáskrúðsfirði hafði fengið mest af aflanum, eða 77.360 tonn, en fjögur stærstu fyrirtækin í makrílveiðum ársins eru Ísfélag Vestmannaeyja, Samherji á Akureyri, Eskja á Eskifirði og Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum. Ekki er aflamark á makrílveiðunum heldur veiddu skip- in úr einum potti og síðan er leyfilegt að veiða makríl sem meðafla með síld upp að ákveðnu marki. Útvegsmenn hafa farið fram á að það hlutfall verði hækkað og einnig að viðbótarkvóti verði gefinn út á skip, en upphaflega var miðað við að makrílaflinn færi ekki yfir 112 þúsund tonn. Fyr- irkomulag makrílveiða á næsta ári hefur ekki verið ákveðið. 1   0 ' . /     0  '  . /     0  '  & 2"3   456    7  1  45  8 & 9 : ;   < * = =  &  5  & ? 7 @   A  (" 7   4B%  6 %88 6 % 7 2  45   3  (B  &) (  C (   & #<   (% D & " ?     ( "   (        &7E;   & ( " A : 2   > &7E;   A : 2   > (>E3  ;  &7E;   F5&   2   2   A : 2   > 2   2   (      &7E;   (>E3  A : 2   > ( " & >B  A : 2   > < B    1     G  %       1  2   >  1 2   >  F>  2   >  &    ;  F>  1  2   >  2   >  35 " 2   >  2   >  G  %   1  &    35 " 1 1 2   >                                         27 skip með makrílafla BLOGG á heimasíðum skipverja á síldveiðiskipunum lýsir því vel hvern- ig gengur. Þar má sjá lýsingar á afla- brögðum, veðurfari, matnum um borð og flestu á milli himins og jarð- ar. Við lauslega skoðun síðustu daga virðast aflabrögð hafa verið ágæt og sjómennirnir ánægðir með sinn hlut. Á heimasíðu Álseyjar var á þriðju- dag sagt frá löndun á Þórshöfn. „Einn svona túr hefur gríðarlega mikla þýðingu fyrir svona samfélag eins og á Þórshöfn. Það hefur öllu verið til tjaldað, ungt skólafólk sem og fólk víða af svæðinu, frá t.d. Rauf- arhöfn og Bakkafirði svo dæmi sé tekið, hefur verið fengið til að koma og vinna þennan afla. Því eru marg- feldisáhrifin mikil og innspýtingin mikil á þetta svæði hér á norðaustur- svæði landsins, sem er að sjálfsögðu hið besta mál og gaman að taka þátt.“ Stöðug vinnsla allan túrinn og gengið með ágætum Nokkuð er um að skipin veiði sam- an eins og þeir gera á Ásgrími Hall- dórssyni og Jónu Eðvalds frá Horna- firði. Á heimasíðu Jónu var síðasta túr lýst á miðvikudag, en þá voru Hornafjarðarskipin á heimleið. „Til stendur að reyna að vinna afla þennan í vinnslunni hjá Skinney- Þinganesi, allt gert til að afla gjald- eyris,“ segir á heimasíðu Jónu. Það var gott hljóð í bloggaranum um borð í Hákon EA 148, sem skrif- aði á miðvikudag: „Jæja gott fólk, það er ekki hægt að segja annað en að það sé búið að ganga ágætlega hjá okkur þennan túrinn. Vinnsla hefur haldist stöðug allan túrinn og gengið með ágætum. Til stendur að landa á morg- un, fimmtudag, þó svo að frystilestin sé ekki orðin full. Ættum að geta landað um 500 t í frost og einhverjum slatta í bræðslu.“ Síldin hefur ætíð verið brellin eins og vel kemur fram á heimasíðu Lund- eyjar NS 14 í gær: „Eftir að hafa dúll- að okkur yfir hörkutorfum í gærdag var loksins slakað trolli í sæ. Var sem við manninn mælt að allur fiskur hvarf eins og dögg fyrir sólu. Var á endanum gefist upp og híft um mið- nættið. Voru þá komin nokkur tonn í pokann sem ekki þarf að ræða frekar um að öðru leyti en því að þau tókst að kæla bæði fljótt og vel. Síðan höf- um við ásamt fleiri skipum rassskellst um allan sjó og ekki séð neitt spenn- andi. En svona er þetta bara á sjó, það er aldrei á vísan að róa. Núna er bara að leita … og leita … og bíða eft- ir fótboltanum.“ „Núna er bara að leita og leita og bíða eftir fótboltanum“ Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Frysting Síld unnin til manneldis í Síldarvinnslunni á Norðfirði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.