Morgunblaðið - 28.08.2009, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 2009
– meira fyrir áskrifendur
Glæsilegt sérblað um börn og
uppeldi fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 11. september
Börn &
uppeldi
Fáðu þér áskrift á
mbl.is/askrift
Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16
mánudaginn 7. september.
Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105 netfang: kata@mbl.is
Víða verður komið við í uppeldi barna
bæði í tómstundum þroska og öllu því
sem viðkemur börnum.
Meðal efnis:
• Öryggi barna innan og utan heimilis.
• Barnavagnar og kerrur.
• Bækur fyrir börnin.
• Þroskaleikföng.
• Ungbarnasund.
• Verðandi foreldrar.
• Fatnaður á börn.
• Þroski barna.
• Góð ráð við uppeldi.
• Umhverfi barna.
• Námskeið fyrir börnin.
• Barnaskemmtanir.
• Tómstundir fyrir börnin.
• Barnamatur.
• Ljósmyndir.
• Ásamt fullt af spennandi efni um börn.
ÞÁTTTAKENDUR í keppnis-
íþróttum, sem klæðast rauðu, eru
jafnan heldur sigursælli en þeir, sem
skarta búningi í öðrum lit. Kemur
það fram í þýskri rannsókn en nið-
urstaða hennar er, að þeir rauðu
vinni 10% oftar en hinir.
Talið er, að skýringin sé sú, að
rauði liturinn auki einstaklingum og
liðum sjálfstraust og hafi líka þau
áhrif, að andstæðingurinn finnist
hinn rauðklæddi mjög ákveðinn og
harður í horn að taka.
Þarna er hugsanlega komin
ástæðan fyrir velgengni Manchester
United, Liverpool og Arsenal en svo
getur líka verið, að góð frammistaða
þessara liða hafi ýtt undir trúna á
rauða litinn.
Fóru úr rauðu í hvítt og
hafa ekki unnið síðan
Sem dæmi er nefnt, að Englend-
ingar unnu heimsbikarkeppnina í
knattspyrnu 1966 undir forystu Bob-
bys Moore og klæddust þá rauðu en
svo skiptu þeir yfir í hvítt og hafa
síðan hvorki unnið heimsbik-
arkeppnina né Evrópumeist-
arakeppnina.
Það voru íþróttasálfræðingar við
háskólann í Münster, sem stóðu að
rannsókninni, og segja frá henni í
grein í tímaritinu New Scientist. Þar
kemur fram, að þeir hafi sýnt 42
reyndum dómurum í taekwondo
myndband þar sem tveir keppendur
í þeirri grein áttust við. Var annar
rauðklæddur en hinn bláklæddur.
Var myndbandið sýnt tvisvar en í
síðara sinnið hafði búningslitnum
verið víxlað með tölvubrögðum. Í
hvort sinn var sá rauði talinn 13%
líklegri til að sigra.
Skiptir máli þegar
geta keppenda er lík
Norbert Hagemann, sem stýrði
rannsókninni, segir, að sé mikill
munur á getu keppenda, hafi lit-
urinn lítil áhrif, en séu þeir álíka
sterkir, geti hann ráðið úrslitum.
Í rannsókninni voru einnig skoðuð
úrslit í ólympískum greinum eins og
boxi, taekwondo og grísk-róm-
verskri glímu og niðurstaðan var, að
þeir rauðklæddu unnu í 55% tilvika.
„Rannsóknin sýnir, að í hugum
manna er rauði liturinn tengdur
styrk og yfirburðum,“ segir Hage-
mann. svs@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Á sigurbraut Líklega hafa Hauk-
arnir ekki afsannað kenninguna.
Þeir rauðklæddu eru
sigursælli en aðrir
Rannsókn þýskra íþróttasálfræðinga bendir til, að rauði
liturinn auki á sjálfstraust keppenda og á ótta andstæðinganna
VINSTRISTJÓRNIN í Noregi kann að halda naumum
meirihluta á þinginu, samkvæmt skoðanakönnun sem
birt var í fyrrakvöld, tæpum þremur vikum fyrir kosn-
ingar.
Gallup-könnun fyrir sjónvarpsstöðina TV2 bendir til
þess að Verkamannaflokkurinn og samstarfsmenn hans í
Sósíalíska vinstriflokknum og Miðflokknum fái 86 sæti af
169 á þinginu. Hægriflokkunum er spáð 82 þingsætum
og flokkurinn Rødt, sem er lengst til vinstri, fær einn
þingmann kjörinn, ef marka má könnunina.
Skoðanakönnunin staðfestir að allt útlit er fyrir mjög
spennandi þingkosningar 15. september. Áður höfðu
verið birtar nokkrar kannanir sem bentu til þess að
hægriflokkarnir fengju nauman meirihluta.
„Þetta styður það sem ég hef lengi sagt, að þetta er
naumt, mjög spennandi, en mikilvægast er að sigur okk-
ar er innan seilingar,“ sagði Jens Stoltenberg, forsætis-
ráðherra Noregs.
Framfaraflokkurinn er stærsti hægriflokkurinn en
honum hefur ekki tekist að fá minni mið- og hægriflokka
til að samþykkja myndun ríkisstjórnar ásamt Hægri-
flokknum. bogi@mbl.is
Mjög tvísýn barátta
Vinstriflokkarnir í Noregi fá mjög nauman meirihluta á þingi
í komandi kosningum samkvæmt nýrri skoðanakönnun
Reuters
Á atkvæðaveiðum Jens Stoltenberg, forsætisráðherra
Noregs, ræðir við kjósanda í Ósló.
ÞESSAR gínur eru notaðar til að auglýsa fatnað í tísku-
verslun í Sjanghæ og ekki í frásögur færandi nema fyr-
ir það, að þær eru allar ljóshærðar og undarlega háls-
langar. Þær eru sem sagt ekkert líkar því fólki, sem
þær eiga að höfða til. Í næsta mánuði verða 60 ár frá
því Maó formaður lýsti yfir stofnun alþýðulýðveldisins
Kína og í tilefni af því hefur verslunum verið skipað að
halda aftur af verðhækkunum. svs@mbl.is
Reuters
Stöðluð fegurðarímynd