Morgunblaðið - 28.08.2009, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 28.08.2009, Qupperneq 20
20 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 2009 Á blómaskeiði góðærisins, því herr- ans ári 2007, var ásjóna þjóð- þekktra auðmanna nær daglegt brauð í rækt- inni. Ég fór gal- vaskur í Laugar og velti því fyrir mér hvaða auðmaður yrði á vegi mínum þann daginn. Hreiðar Már, Björgólfur Thor, Lárus Welding, Róbert Wessman, allir þessir menn virt- ust eiga það sameiginlegt að finnast gott að lyfta lóðum á milli þess sem þeir gerðu framvirka gjaldeyrisskipta- samninga og keyptu lyfjafyrirtæki með skuldsettum yfirtök- um. Eins og hálf þjóðin sem virtist hlekkjuð við staura hjarð- hugsunar dáðist ég að þessum mönnum. Og gladdist mjög við þá tilhugsun að eiga að minnsta kosti eitt sameiginlegt með helstu út- rásarvíkingum þjóðarinnar. Ég byrjaði sem blaðamaður á innlendum fréttum og fór ekki í viðskiptafréttirnar fyrr en einum mánuði fyrir bankahrun. Ég var því blessunarlega ekki ein af klappstýrum útrásarinnar, en maður fylgdist með úr fjarlægð og bar ómælda virðingu fyrir þessum stjörnum, svo hugsanlega hefði maður fallið í þá gryfju hefðu aðstæður boðið upp á slíkt. Ég man t.d. eftir ódauðlegum ferðum Björgólfs Thors Björgólfssonar í ræktina í svörtum Dolce & Gabbana hlýrabol með breskan einkaþjálfara sér til halds og trausts. Á sama tíma fylgdumst við hin með með aðdáunarsvip, og einhverjir eflaust með öfundar- augum, þegar auðugasti maður landsins sendi Bretann að ná í hrein handklæði og meira Gator- ade. Þetta er liðin tíð. Auðmennirnir eru hættir að láta sjá sig í ræktinni. Hvar eru þeir eig- inlega? Sú „frétt“ birtist nýlega að þekktir auðmenn hefðu reynt að hylja andlit sín undir miklum skeggvexti og sólgleraugum er þeir fylgdust með börnum sínum á knattspyrnumóti ungmenna á Akureyri fyrr í sumar. Getur verið að auðmenn séu heima að safna spiki og skeggi? Kannski þunglyndir í þokkabót? Eini góðærisgosinn, sem fellur reyndar frekar í mengi sérviturra vísindamanna, sem mætir enn í ræktina er Kári Stefánsson. Alltaf mætir Kári samviskusamlega í ræktina til að lyfta. Maðurinn er á sjötugsaldri og lætur alltaf sjá sig í körfuboltabúningi og með hvítt skegg. Og alltaf er karlinn jafn svalur. Þorbjörn Þórðarson | thorbjorn@mbl.is HeimurÞorbjarnar ’Ég man t.d. eftiródauðlegum ferðum Björgólfs Thors Björg- ólfssonar í ræktina. EF GESTI ber skyndilega að garði og húsráðandi vill snara einhverju laufléttu, ódýru en girnilegu fram úr erminni er ekki úr vegi að leita í smiðju sjónvarpskokksins Jamie Oliver. Gott brauð úr bakaríinu er tilvalið að eiga í frystinum eða kaupa nýtt og skella á það freistandi og frumlegu áleggi á örskotsstundu. Jamie leggur til: Keyptu þér 20 þroskaða cherry tómata og skerðu hvern þeirra í fernt Fjarlægðu steinana úr góðum svörtum og/eða grænum ólífum og skerðu þær í bita Skelltu tómötunum og ólífunum saman í skál saman við slatta af góðri ólífuolíu ásamt balsamik ediki. Kryddaðu blönduna með salti, pipar og chilidufti (ath. að sumar ólífur eru saltar svo best að gæta að sér!) Hitaðu gott brauð í ofni og skelltu svo blöndunni yfir brauðið niðurskorið Skreyttu með fersku kryddi, t.d. basiliku Með þessum einfalda rétti má bera fram ferskt salat og gott hvítvín og víst er að gestgjafinn slær í gegn! Gott í gogginn Heitt brauð með ólífum og tómötum Hér kemur jákvæð frétt íkreppunni: Líkams-ræktarkort hafa ekkihækkað í verði á milli ára! Í það minnsta ekki hjá þeim stöðvum sem Morgunblaðið hafði samband við. Svo það er hægt að púla fyrir sömu krónur og í fyrra. Flestar stöðvarnar bjóða upp á sérkjör fyrir námsmenn, hvort sem þeir eru í framhaldsskóla eða há- skóla og jafnvel yngri. Ungmenni undir 18 ára geta auk þess sótt um frístundastyrk hjá sveitarfélögum til að niðurgreiða kortin enn frekar. Í flestum tilfellum nægir að framvísa skólaskírteinum. Og þá er bara spurning hvar á að æfa? Í Baðhúsinu verður dansstemn- ingin í hávegum höfð í stundaskrá vetrarins en að auki er boðið upp á hefðbundið púl af ýmsum gerðum. Magadans, afró, salsa og latin fitness er meðal þess sem vinsælt er um þessar mundir. World Class er með sjö líkams- ræktarstöðvar vítt og breitt og þar er stundaskráin full af spennandi tímum. Viljirðu fá fulla keyrslu ferðu t.d. í High Impact en meiri rólegheit verða í jógatímunum. Í Laugum í Laugardal er stundaskráin stútfull af fjölbreyttum tímum. Í Bootcamp við Suðurlandsbraut er svo púlið sett á oddinn. „Nei, við finnum lítið fyrir krepp- unni, það æfðu til dæmis fleiri hjá okkur í maí síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra,“ segir Arnaldur Birgir Konráðsson fram- kvæmdastjóri, en hann á von á því að um 800 til 1.000 manns taki á því í Bootcamp í vetur. Það verður allt á iði í Hreyfingu í vetur sem fyrri ár. Stöðin var flutt í nýtt og glæsilegt húsnæði nýverið og aðstaðan því stórbætt. „Hvort sem þú vilt leggja áherslu á styrktarþjálfun, liðleika, fitu- brennslu, dans eða sitt lítið af hverju ættirðu að geta fundið eitt- hvað við þitt hæfi,“ segir á heima- síðu Hreyfingar. Ingibjörg Reyn- isdóttir sölustjóri segir allt komið á fullt í stöðinni. „Nú eru jólin hjá okkur,“ segir hún hlæjandi. Í Heilsuakademíunni í Egilshöll er boðið upp á herþjálfun, jump fit, sem er æfingakerfi með sippubönd- um, jóga og margt fleira. Nú er bara málið að leggjast yfir heimasíður líkamsræktarstöðv- anna og finna eitthvað sem heillar. Eitt er víst: Úr nógu er að velja! Púlað fyrir sömu krónur og í fyrra HLJÓMSVEITIRNAR Jeff Who? Stuð- menn, Dikta og Hairdoctor koma fram á unglingaballi í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi í kvöld. Ballið er hugsað fyrir aldurshópinn frá 13 til 17 ára, og stendur ballið frá kl. 20 til kl. 24. Miðaverð er 1.500 krónur og fer miðasala fram í íþróttahúsinu. Annað kvöld verður svo ball fyrir fullorðna fólkið, þar sem Stuðmenn, Megas, Björn Jörundur og fleiri koma fram. Nánari upplýsingar um það má finna á blaðsíðu 39 í Morg- unblaðinu í dag. Tónleikar Ball fyrir 13 til 17 ára AÐ stæra sig af nýju hljómflutn- ingsgræjunum eða flatskjánum með myndum á Facebook og til- kynna svo nokkr- um dögum síðar að þú sért á leið í sumarbústað í nokkra daga gæti haft alvarlegar af- leiðingar í för með sér. Nýleg bresk könnun á vegum Legal And General leiddi í ljós að nærri fjór- ir af tíu notendum samskipta- vefjanna Facebook eða Twitter hika ekki við að láta vini og kunningja vita að þeir verði að heiman um skeið. Að- standendur könnunarinnar unnu í samstarfi við fyrrverandi þjóf sem staðfesti að þjófar nýttu sér sam- skiptavefi við að undirbúa rán. Vinabeiðnir frá ókunnugu fólki voru sendar til 100 manns og af þeim voru 13 samþykktar á Facebook og 92 á Twitter. 48% af 2.000 þátttak- endum höfðu engar áhyggjur af ör- yggi á samskiptavefjum og 70% töldu vefina rétta staðinn til að sýna nýkeyptar gersemar. jmv@mbl.is Varlega á Facebook Twitter Betra að gæta orða sinna. Þjófarnir fylgjast með SAGAN um Franken- stein er alkunn, enda hafa ótal kvik- myndir verið gerðir eftir henni og mikið vitnað í hana, oft af þeim sem ekki hafa lesið skáldsögu Mary Shelley. Þessi magnaða saga er nú komin út í kilju í þýðingu Böðvars Guðmundssonar. Mary Shelley var einungis átján ára þegar hún hóf að skrifa söguna um unga menntamanninn Frankenstein sem skapar skrímsli í mannsmynd sem síðan rís gegn skapara sínum og verður eyðandi afl. Þetta er einmitt bók sem hentar ungu og bókhneigðu fólki sérstaklega vel. Sagan er drama- tísk og spennandi og það er afar auð- velt að gleyma sér í henni. Þessi út- gáfa er einkar falleg, enda ríkulega myndskreytt. kolbrun@mbl.is Bækur Frankenstein Spennandi klassík Hvað viltu lesa? Sendu okkur tölvupóst á daglegtlif@mbl.is '( ) * + , +(( -$# . / .")$         0 "(  $%  $% % $% $% % $%  $%      - - - -'        ) /

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.