Morgunblaðið - 28.08.2009, Síða 25

Morgunblaðið - 28.08.2009, Síða 25
Umræðan 25BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 2009 UNDANFARIÐ ár hefur gengið á ýmsu í lífi fólks. Einn lítill hluti af því hefur verið þegar erlend blöð fóru að berast mjög stopult í lok síðasta árs. Þetta stafaði mest af því að stór innflytjandi blaða fór á hausinn og það tekur tíma að byggja upp innflutning á svona vöru eins og ann- arri. Ólíkt mörgum öðrum vörum tekur fólk um leið eftir því þegar er- lend blöð berast hingað mán- aðargömul eða eldri, eða hreinlega hætta að berast. Um leið var hægt án vandkvæða að lesa öll tímaritin í landsaðgangi, yfir 14.000 að tölu. Það var ekki allt sem fór á hvolf í lok síðasta árs. Ákveðin starfsemi í landinu hafði breyst lítið á upp- gangstímum og hélt áfram sem best varð á kosið eftir hrunið. Mestur hluti mennta- og heilbrigðiskerfisins stóð þannig uppi, sinnti þeirri þjón- ustu sem til hafði verið stofnað og vann sína vinnu við nýjar aðstæður. Nokkur fjölgun varð á nemendum á háskólastigi í kjölfar bankahruns- ins og verður umtalsverð þetta haustið. Nemendum á meistara- og doktorsstigi mun fjölga mikið jafnt sem nemendum í grunnnámi há- skóla. Þetta fólk og kennarar þeirra ásamt rannsóknarfólki í landinu þurfa greiðan aðgang að fjölda vísindarita og annarra rita sem ekki fást gefins. Bókasöfnin í landinu hafa myndað samlag sem greiðir fyr- ir áskriftir yfir 14.000 tímarita sem má finna á hvar.is, auk þess sem umtalsverður hluti kostnaðar er greiddur beint af hinu opinbera. Þar á meðal má finna greinar rita eins og Harvard Business Re- view áður en þessi rit koma á prenti til landsins. Þetta hefur reyndar ver- ið svona um langan tíma en varð meira áberandi eftir bankahrunið. Þannig las ég greinar úr júlí- ágústhefti ritsins í byrjun júlí meðan júníheftið var nýkomið í hillur bóka- verslana. Þetta er eitt dæmi af 14.000. Tímaritin og gagnasöfnin á hvar.is eru valin með það fyrir augum að þau nýtist sem víðast. Mikil áhersla er á vísindaefni sem nauðsynlegt er fólki sem stundar rannsóknir og kennslu í háskólum, enda er þar um dýrt efni að ræða og mikið hagræði að kaupa það inn á þennan hátt. Þarna er einnig efni sem nýtist námi í viðskiptafræðum, rekstrarfræði og stjórnun, enda er um sjötti hver há- skólanemi í þess konar námi eða skyldum fögum. Að lokum er efni sem nýtist framhaldsskólanemum og almenningi. Má þar nefna En- cyclopaedia Britannica í þremur út- gáfum, ætluðum grunnskólanemum, framhaldsskólanemum og svo lengra komnum. Landsaðgangur greiðir fyrir aðgang allra að öllum greinum úr greinasafni Morgunblaðsins þeg- ar þær eru orðnar þriggja ára gaml- ar. Skólar í landinu og almennings- bókasöfn hafa í tengslum við þann samning fengið hagstæða samninga um aðgang að greinum sem eru yngri en þriggja ára. Þau sem vilja fylgjast með hvað skrifað er um Ísland í heimspress- unni geta skráð sig sem notendur á ProQuest eða Ebsco, sett upp sjálf- virka leit (vaki, alert) og fengið nið- urstöður sem RSS-straum eða sem áminningu í tölvupósti. Úttektir hafa leitt í ljós að þetta fyrirkomulag er til muna ódýrara fyrir íslensk bókasöfn en aðrar leiðir til að ná í þetta efni og margfalt auð- veldara fyrir notendur. Um svipað leyti og bankar hrundu á Íslandi voru viðræður hafnar við birgja sem allir sýndu skilning á breyttum að- stæðum og lækkuðu verð á árinu 2009. Hvort sem fólk stundar rann- sóknir, er námsmenn eða fróð- leiksfús almenningur ætti það að skoða kosti landsaðgangs með ann- arri upplýsingaleit. Allar greinar heims- ins um allt land Eftir Svein Ólafsson »Hvort sem fólk stundar rannsóknir, er námsmenn eða fróð- leiksfús almenningur ætti það að skoða kosti landsaðgangs með ann- arri upplýsingaleit. Sveinn Ólafsson Höfundur er upplýsingafræðingur. FYRIR rúmu ári hófu fjórar konur átakið „Á allra vörum“. Með já- kvæðni og varagloss að vopni náðu þær til íslensku þjóðarinnar. Þeirra markmið var að láta gott af sér leiða og eitt sumarkvöld í júní 2008 upp- lifðum við hjá Skjá einum þann stuðning sem þær fengu frá fólki í kvik- myndagerð, sjón- varpsframleiðslu, leik og skemmt- un, hópi fólks sem gerði söfnunar- og skemmtiþátt í beinni útsendingu að veruleika. Nú ári síðar stendur sami hópur að nýju söfnunarátaki. Íþetta sinn er safnað fyrir hvíldarheimili handa börnum með krabbamein. Íslensk börn eru framtíð landsins og það er undir okkur, þeim full- orðnu, komið að tryggja öllum börnum sem best skilyrði í upp- vextinum. Árlega greinast að meðaltali 10- 12 börn og unglingar, 18 ára og yngri, með krabbamein á Íslandi. Hvíldarheimilið er nauðsynlegt fyr- ir fjölskyldur krabbameinssjúkra barna á meðan meðferð barnanna stendur yfir. Samstaða til fyrirmyndar Samstaða „Á allra vörum“ hópsins er til fyrirmyndar við þær að- stæður sem við nú upplifum. Það hefur aldrei verið mikilvægara en nú að við öxlum ábyrgð, snúum bökum saman og höldum áfram að byggja samfélag sem við erum stolt af. Samfélag sem tryggir börnum okkar bestu möguleg lífs- gæði. Við Íslendingar eigum gnótt auðlinda, ein þeirra er samheldnin. Við höfum margoft sýnt það að fá- menn þjóð stendur saman þegar að kreppir, þá hugsum við til þeirra sem þurfa á aðstoð að halda. Það er vegna sjálfboðaliða undir dyggri stjórn Maríönnu Friðjóns- dóttur, framkvæmdastjóra útsend- ingarinnar, sem Skjá einum er kleift að standa fyrir skemmti- og söfnunarþætti í beinni útsendingu föstudagskvöldið 28. ágúst næst- komandi. Allir sem koma að út- sendingunni starfa í sjálfboðavinnu. Vertu velkomin/n í hópinn Það eru forréttindi að fá að taka þátt í þessu verkefni, undanfarnar vikur hafa kraftar góðvildar legið í andrúmsloftinu í höfuðstöðvum Skjásins í Skipholtinu. Í dag, 28. ágúst, færa sjálfboðaliðar Íslend- ingum átakið „Á allra vörum“ heim í stofu og við treystum á góðar móttökur. Mundu því eftir að horfa á skemmti- og söfnunarþáttinn „Á allra vörum“ sem sýndur verður kl. 21 föstudaginn 28. ágúst á Skjá einum og taktu þátt – fyrir börnin. SIGRÍÐUR MARGRÉTI ODDSDÓTTIR, framkvæmdastjóri Skjá miðla, sem sér um rekstur Já og Skjásins. Fyrir börnin Frá Sigríði Margréti Oddsdóttur: Sigríður Margrét Oddsdóttir ÉG ER ekki viss um að Íslendingar hafi orðið varir við breytingu á reglugerð nr. 503/2005 um merk- ingu matvæla sem Jón Bjarna- son landbún- aðarráðherra undirritaði 22. júlí síðastliðinn. Megininntak breytinganna er að eftir 1. sept- ember verður það skylda að merkja uppruna- land vöru. Þeir sem hafa farið í kjörbúðir í Evrópuríkjum hafa séð slíkar merkingar. Allt grænmeti, þar sem ég hef komið, er merkt upprunalandi hvort sem um er að ræða lausavöru eða henni pakkað í umbúðir. Neytendur geta því valið að kaupa sér tómata frá Spáni eða Hollandi. Í 1. grein nýju reglugerðarinnar segir m.a. um tilteknar matvörur að þær: „skulu vera merktar á um- búðum með upplýsingum um upp- runaland. Sama gildir um vöruteg- undir úr ferskum matjurtum þar sem matjurtum er blandað saman og/eða þær skornar niður. Þegar um er að ræða vörutegund þar sem ferskar matjurtir hafa uppruna í fleiri en einu landi skal tilgreina nafn hverrar matjurtar og upp- runaland hennar á umbúðum.“ Í 2. grein segir: „Þegar ferskum matjurtum er dreift án umbúða eða pakkað af seljanda á sölustað skal seljandi vörunnar veita kaupanda upplýsingar um upprunaland vör- unnar með sýnilegum hætti, þar sem varan liggur frammi.“ Þetta er mikill áfangi fyrir ís- lenska neytendur. Loks getum við tekið upplýsta ákvörðun um inn- kaup á íslenskri eða erlendri mat- vöru. Það hefur því miður tíðkast að innflytjendur hafa sett merking- ar á vörur sem villa um fyrir neyt- endum og gefa í skyn að um ís- lenska vöru sé að ræða þó erlend sé. Samaband garðyrkjubænda hef- ur um árabil krafist slíkra merk- inga og fara hagsmunir íslenskra grænmetisframleiðenda saman við hagsmuni neytenda en Neytenda- samtökin hafa einnig haft uppi slíka kröfu. Íslenska fánaröndin á um- búðum grænmetis er trygging neytenda á því að varan sé íslensk, fersk og hollustuvara. Ég vil einnig nota tækifærið og benda á að framleiðendur íslenskra blóma merkja framleiðslu sína með fánaröndinni en íslensk framleiðsla fer langt með að fullnægja eftir- spurn. Í heimsóknum í garð- plöntustöðvar getur neytandinn einnig séð á merkingum þeirra hvort um íslenska framleiðslu sé að ræða þar sem garðplöntuframleið- endur notast við sambærilegar merkingar. Ég óska því íslenskum neyt- endum til hamingju með aukna neytendavernd sem þessi reglu- gerðarbreyting er. BJARNI JÓNSSON, framkvæmdastjóri Sambands garðyrkjubænda. Upprunamerking matvöru Frá Bjarna Jónssyni Bjarni Jónsson KOLBRÚN Hall- dórsdóttir fyrrverandi umhverfisráðherra skrifar hjartnæma hug- vekju um utanvega- akstur í Morgunblaðið 22. ágúst. Henni tekst þar hins vegar að draga undarlegar ályktanir af ágætum forsendum sem hún gefur sér. Harmsögu þessa mála- flokks rekur hún með eftirfarandi gamalkunnum orðaleppum úr ís- lenskri stjórnsýslu: Reynt að skýra lagaramma með reglugerð – endur- skoðun vegalaga – starfshópur hefur verið settur á laggirnar – leitað hefur verið samstarfs við hagsmunaaðila – skilgreiningarvandi er uppi um hvað er slóði og hvað ekki og síðan auðvit- að margir fundir haldnir í starfshópi og tilraunir gerðar til að samræma hagsmuni ólíkra hópa. Þetta er dæmigerð upptalning á lausnum í ís- lenskri stjórnsýslu. Stjórnsýslan var ekki bara ómarkviss á sviði banka og peningamála á síðustu árum. Vand- inn var víðtækur og ákvarðanafælni landlæg og þá eru þetta lausnirnar. Af þessari upptalningu dregur Kolbrún síðan þá ályktun að ut- anvegaakstur sé því að kenna að af- numin hafi verið ríkiseinokun á kortagerð. Þetta rökstyður hún með því að vitna í lagagrein frá 1985 sem bannar stuld á gögnum Landmæl- inga og telur hana sýna að á þeim gömlu góðu tímum hafi aðeins einn aðili mátt stunda kortagerð. Þetta er rangt. Benda má á að fyrsta einka- fyrirtæki á sviði kortagerðar á Ís- landi var stofnað árið 1955 ( litlu seinna en Landmælingar Íslands). Það má líka minna á að aðilar eins og Google og Microsoft eru farnir að stunda kortagerð og verða trauðla stoppaðir með íslenskri ríkiseinokun. Með því að kenna kortagerðarfyr- irtækjum um óstjórn í skilgrein- ingum á vegslóða er Kolbrún að hengja bakara fyrir smið. Sökin liggur hjá ómarkvissri stjórn- sýslu. Fyrirliggjandi gögn Við hjá Loftmyndum ehf. höfum á und- anförnum rúmum ára- tug tekið loftmyndir af öllu landinu og á þeim myndum mælt alla vegi og slóða sem þar eru sjáanlegir. Þetta eru um 45.000 km af vegum og slóðum. Þessi gögn buðum við um- hverfisráðuneytinu vegna ut- anvegaaksturs fyrir nokkrum árum en það boð var ekki þegið. Það er því ekki skortur á upplýs- ingum sem veldur óvissu um ut- anvegaakstur heldur liggur vandinn í því að til þess bærum aðilum, þ.e. sveitarfélögunum, er ekki gert kleift að taka ákvarðanir um hvaða slóða má keyra og hverja ekki. Kort eru og verða aldrei annað en upplýsinga- miðill um það sem er og því á að sýna alla helstu slóða á kortum. Maður lokar ekki slóðum með því að þurrka þá út af korti. Það er bara strúturinn sem stingur hausnum í sandinn. Það er einungis hægt að koma til skila á kortum upplýsingum um það hvar má keyra og hvar ekki ef fyrir liggja ákvarðanir þar um. Þá ákvörð- un tekur kortagerðarmaður ekki. Að sýna ekki greinilega slóða á korti er fölsun staðreynda. Það er hinsvegar ekkert frekar á færi opinberrar stofnunar en einkafyrirtækis að koma þessum upplýsingum inn á kort. Hver hefur vald til að leysa málið? Ákvörðunarvald um umferð og þar með talinn akstur eftir slóðum liggur hjá sveitarfélögunum og á að vera hluti aðalskipulags. Vandamálið er í hnotskurn það að ríkið getur ekki ákveðið þetta einhliða og því velkist málið í kerfinu. Eins og allir vita eru mörg sveitarfélög fámenn en lands- tór og því vanbúin til að taka á mál- um. Þar þyrfti ríkið að aðstoða með upplýsingum, og til þess er netið upplagður miðill. Síðan getur aðili eins og t.d. Skipulagsstofnun tekið að sér að safna þessu í einn samræmdan gagnagrunn (eins og öðrum skipu- lagsgögnum). Sveitarfélögin gætu síðan haldið gögnunum við eftir því sem ákvörðunum vindur fram og slóðum er lokað eða þeir lagðir. Síðan yrði öllum sem gefa út kort gefinn kostur á að nota gögnin og koma þar með til skila upplýsingum um hvar megi aka. Allur akstur utan slóða í þeim gagnagrunni teldist þá ut- anvegaakstur og þar með væri skil- greiningarvandinn á því hvað er slóði og hvað ekki leystur. Þá gæti lög- regla farið að taka af festu á málinu. Hætt er þó við að víða þyrfti að loka slóðum með hliðum eða á annan sýni- legan máta. Einnig þarf að stika helstu leiðir. Ríkiskortin Það að ríkið sé hætt að gefa út kort kemur hvorki í veg fyrir né tryggir að réttum upplýsingum sé miðlað. Réttar upplýsingar, vönduð vinnu- brögð og fært starfsfólk ræður þar mestu. Upplýsingar sem ekki eru fyrir hendi verða eðli máls sam- kvæmt ekki birtar. Utanvegaakstur á ekki að flokka sem kortagerðarmál heldur sem stjórnsýslulega ákvörðun og stefnumörkun eins og öll önnur skipulagsmál. Það verður að skipa máli sem þessu á réttan bás. Nægur er nú ruglingurinn samt. Ekki hengja bakara fyrir smið, Kolbrún Eftir Örn Arnar Ingólfsson »Maður lokar ekki slóðum með því að þurrka þá út af korti. Það er bara strúturinn sem stingur hausnum í sandinn. Örn Arnar Ingólfsson Höfundur er framkvæmdastjóri Loftmynda og áhugamaður um náttúruvernd.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.