Morgunblaðið - 28.08.2009, Side 30

Morgunblaðið - 28.08.2009, Side 30
30 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 2009 ✝ Jón E.B. Guð-mundsson, flug- maður og flug- vélstjóri, fæddist í Reykjavík 18. nóv- ember 1943. Hann lést á heimili dóttur sinnar í Flórída 3. ágúst sl. Hann hefur verið búsettur í Flór- ída í Bandaríkjunum frá 1994. Foreldrar hans eru hjónin Guð- mundur Bjarnason, f. 19. janúar 1924, d. 28. september 2005, og K. María Jónsdóttir, f. 2. apríl 1924. Bróðir Jóns er Stefán Ólafur raffræðingur, f. í Reykjavík 10. júní 1947, kvæntur Svanhvíti Jón- asdóttur, f. 23. ágúst 1945. Börn þeirra eru: a) María, f. 3. ágúst 1970, maki Hákon Stefánsson hdl., f. 5. júlí 1972. Börn þeirra eru afgreiðslustörf í einni af fyrstu kjörbúðum landsins, Kjöt og græn- meti við Snorrabraut. Jón sótti um hjá Loftleiðum 1962 að fara til Tulsa í Bandaríkjunum í nám í flugvirkjun sem hann fékk. Eftir námið hóf hann störf hjá Loftleið- um og á næstu árum starfaði hann þar og síðan víða um heiminn. Jón fékk réttindi sem flugvélstjóri og starfaði sem slíkur hjá Flugleiðum þar til það starf var aflagt, flutti Jón þá til Flórída þar sem hann hóf nám til flugmanns og síðustu árin starfaði hann sem flugmaður í póstflugi um öll Bandaríkin og Suður-Ameríku. Flug átti hug hans allan, hann stundaði svifflug ásamt því að læra vélflug, hann var áhugasamur um allskonar flug- keppnir og eftir að hann eignaðist eigin flugvél var hann virkur þátt- takandi í keppnum hér heima og erlendis. Útför Jóns fer fram frá Háteigs- kirkju í dag, 28. ágúst, og hefst at- höfnin kl. 11. Meira: mbl.is/minningar Anna Elísabet, f. 6. janúar 2003, og Stef- án Orri, f. 19. júlí 2005. Áður átti María Fanneyju, f. 26. nóv- ember 1992, faðir Jó- hannes Ingimund- arson. b) Elísabet, f. 25. júlí 1977. Hinn 16 júlí 1969 kvæntist Jón Hedy Kues flugfreyju, f. í Finnlandi 1. október 1941, d. 18. sept- ember 1973. Dóttir þeirra er Astrid Lar- issa Kues, f. 25. ágúst 1970, búsett í Flórída í Bandaríkjunum, unnusti Guðmundur Sigurðsson, f. 23. febr- úar 1970, dóttir þeirra er Hedy María Kues, f. 23. febrúar 2007. Jón stundaði nám í Miðbæj- arskólanum og á Núpi við Dýra- fjörð. Að loknu námi vann hann við Jón kynntist konu sinni Hedy Kues í gegnum flugið. Hún var ein af fáum stúlkum í Finnlandi sem fékk vinnu sem flugfreyja hjá Loft- leiðum og var staðsett á Íslandi. Jón vann þá sem flugvirki í New York í Bandaríkjunum. Hann flutt- ist heim til Íslands og þau giftu sig 16. júlí 1969 í Finnlandi. Ári síðar eignuðust þau dóttur sína Larissu. Um haustið 1973 veiktist Hedy al- varlega og hún lést 18. september 1973. Þetta var mjög erfiður missir og mikil sorg en gerði Jón og dótt- ur hans mjög nátengd og þau tengsl styrkust eftir því sem tíminn leið. Hedy var stóra ástin í hans lífi og hann minntist hennar oft og ljómaði í hvert skipti sem hann tal- aði um hana. Jón og dóttir hans fluttust heim til foreldra Jóns sem studdu við bak þeirra í gegnum líf- ið. Jón var einn þeirra lánsömu manna sem geta unnið við sitt mesta áhugamál sem var flugið. Það átti hug hans allan og hann eignaðist sínar eigin flugvélar sem hann flaug um land allt í frístund- um sínum eins og í hjálparstörfum. Jón var ávallt tilbúinn að rétta fram hjálparhönd, var vinmargur og mik- ill fjölskyldumaður. Árið 1994 flutti Jón aftur til Bandaríkjanna og starfaði þar sem flugmaður hjá ýmsum flugfélögum þar til 2006 að hann greindist með kölkun í augnbotnum eins og for- eldrar hans, sem yfirleitt leiðir til blindu, og varð að hætta að fljúga. Hann var lánsamur að sjúkdóm- urinn greindist á byrjunarstigi og honum var boðið að taka þátt í til- raunaverkefni með ný lyf sem báru það góðan árangur að hann fékk fulla sjón til baka. Í febrúar 2007 fæddist dóttur- dóttir hans Hedy María Kues og þá tók við hans stærsta og besta starf í lífinu, að vera heimsins besti afi. Hann var svo stoltur af litlu stelp- unni sinni og fylgdist grannt með öllum áföngum í hennar lífi, hún var sólargeislinn hans. Eins og sönnum afa sæmir, lagði hann sig óspart fram við að spilla barnabarninu sínu, sérstaklega með ís og öðru góðgæti. Hedy María lærði fljótt orðatiltækið „einn biti“ og var það orðið og er enn heitið á uppáhalds- kexinu hans afa. Einn biti var nú samt samheiti yfir nokkuð fleiri bita en bara einn hjá afa. Eitt af fyrstu orðunum var „airplane“ en frá byrj- un hefur hún verið heilluð af flug- vélunum sem fljúga yfir okkur og benti afa sínum alltaf á þær, afa sínum til mikillar ánægju. Um haustið 2008 veiktist Jón og þurfti að leita læknishjálpar í Tampa á Flórída. Hann bjó hjá dóttur sinni og fjölskyldu hennar á meðan hann undirgekkst þetta erf- iða tímabil sem tók svo enda 3. ágúst sl. Jón barðist hetjulega við veikindi sín og hafði það að mark- miði fram á síðasta dag að komast á rétt ról aftur. Fjölskyldan hans var afskaplega þakklát fyrir það að geta tekið þátt og gert honum lífið léttara undir lokin. Fjölskyldan var alltaf númer eitt hjá Jóni, og að- spurður hvað veitti honum mestan styrk á erfiðum stundum, svaraði hann fjölskyldan. Móðir Jóns, María, kom til sonar síns mánuði áður en hann lést og þau ræddu allt milli himins og jarðar og hún veitti honum mikinn styrk. Fjölskyldan vill skila innilegu þakklæti til Elínar Steinþórsdóttur fyrir að hjálpa Maríu að komast út til sonar síns. Í gegnum öll veik- indin gat „afi sinn“ þó alltaf sýnt „stóru stelpunni sinni“ henni Hedy Maríu athygli, ást og hlýju. Við kveðjum þig, pabbi minn, strákurinn minn, bróðir minn, Nonni minn, „afi sinn“ og þökkum ánægjulega samfylgd. Larissa Jónsdóttir og fjölskylda. Hann Jón bróðir minn er látinn. Ég var staddur í Þýskalandi þegar ég fékk þessa frétt, í heimsókn hjá dóttur minni og hennar fjölskyldu. Það kemur manni til að leiða hug- ann til baka að minningunum. Nú síðustu árin höfðum við verið í sam- bandi nærri því daglega. Við bræðurnir unnum saman í Kjöti og grænmeti og fórum síðan í svifflugið saman, þarna áttum við sameiginleg áhugamál sem entust okkur lífið í umræðunni. Árið 1969 gekk Jón í hjónaband með Hedy sinni Kues, en því miður missti hann hana eftir aðeins þriggja ára hjónaband. Á þessum tíma eignuðust þau eina dóttur, Larissu, hún ólst upp í foreldra- húsum Jóns og varð augasteinn hans í lífinu. Jón starfaði víða um heiminn, m.a. í Noregi, Svíþjóð og Þýska- landi, ásamt því að taka þátt í píla- grímsfluginu. Á þessum tíma voru það póstkortin eða símtöl sem komu fréttum heim af honum. Þar kom að hann flutti til Bandaríkj- anna og starfaði þar sem flugvél- stjóri. Hann festi sér húsnæði í Lake Wales, í nágrenni við Sigrúnu frænku sína og Pete. Seinna flutti svo Larissa dóttir hans til hans og stofnaði sína fjölskyldu þar. Þær eru ógleymanlegar heimsóknirnar okkar til Lake Wales. Vegna netvæðingar urðu sam- skipti okkar örari. Þegar hann var í póstfluginu vissi ég alltaf þegar hann var kominn í næturstað og bú- inn að kveikja á tölvunni, þá var komið á sambandi og spjallað um allt milli himins og jarðar. Eftir að hann komst í flugmannssætið komu oft lýsingar á síðasta flugi og jafn- vel á lendingum ef eitthvað sérstakt hafði hent. Hann hætti að fljúga eftir að hann fékk augnsjúkdóm sem báðir foreldrar hans höfðu fengið, en sem betur fer greindist þetta nógu fljótt þannig að hægt var að koma honum til hjálpar og stöðva sjónmissinn. Hann upplýsti mig alltaf um stöðu mála á sjón- mælingum svo ég gæti upplýst móður okkar. Í þessum veikindum hans kom svo lítill sólargeisli inn í lífið hjá honum og um leið varð það aðalumræðuefnið, dótturdóttirin hún Hedy María. Hann vildi að hún kæmi á skjáinn í spjalli okkar svo við kynntumst og yrðum kunningj- ar í tölvunni í sjón og ekki ókunnug. Hann var alltaf að lýsa uppátækjum hennar og framförum auk þess að senda okkur myndir af henni, hún var svo sannarlega augasteinninn hans. Frá áramótum fækkaði sam- tölum okkar vegna þessa erfiða sjúkdóms sem hann greindist með. Þó heyrðust athugasemdir frá hon- um þegar eitthvað var sagt í tölv- una sem hann vildi skjóta á eða leiðrétta, þá fann maður að það var stutt í létta skapið hans. Ég vil koma á framfæri þakklæti okkar í fjölskyldunni til hennar Elínar Steinþórsdóttur eða Ellu eins og við köllum hana, en hún tók sig til og fylgdi móður okkar til Boston og kom henni þar í flug til Flórída svo hún gæti verið hjá Jóni syni sínum síðustu dagana eða vikurnar meðan hann lifði. Þá vil ég koma á fram- færi kærum þökkum fyrir góða samfylgd frá Svönu. Elsku Larissa mín, Gummi og Hedy María, megi góður guð styrkja ykkur í heimkomunni til Flórída og minningin um góðan föð- ur og afa lifa í ljósinu. Stefán Ó. Guðmundsson. „Tilvera okkar er undarlegt ferðalag.“ Það má með sanni segja að þessi lína úr ljóðinu Hótel jörð eigi vel við um hann Nonna föð- urbróður minn. Mín fyrsta minning um Nonna frænda tengist einmitt ferðalagi, og það minni fyrstu flug- ferð. Ég var á leiðinni til Vest- mannaeyja með ömmu og afa, við vorum að fara að horfa á Larissu keppa í fimleikum þar. Ég var lík- legast bara þriggja eða fjögurra ára og man ekkert eftir dvöl minni í Eyjum eða hvernig Larissu gekk í keppninni, það eina sem ég man er hversu vel ég skemmti mér í flug- vélinni. Ég skemmti mér konung- lega í þessari fyrstu flugferð minni, enda var Nonni aðeins að gera smá ævintýralegar „flugvélaæfingar“. Ég klappaði bara saman höndum, skríkti og bað um meira. Það má í raun segja að allar flugferðir síðan þá hafi nánast verið vonbrigði, eða allavega þar til hann svo seinna fór með mig í svipaðan flugtúr uppi við Geysi, þar sem voru teknar nokkrar dýfur og nánast svifið í lausu lofti. Ætli það sé ekki honum að þakka að ég er ekki flughrædd manneskja í dag. Þegar ég hugsa um Nonna frænda man ég bara eftir grallara því eins og flestir karlmenn í þess- ari fjölskyldu var hann afar stríð- inn. Á tímabili var ég eitthvað mikið á hausnum og alla tíð síðan kallaði Nonni mig aldrei neitt annað en Slasabet. Á Háaleitisbrautinni var mjög snemma til myndbandstæki, nema þetta var það langt síðan að það voru ekki komnar fjarstýringar á þessi tæki. Nonni frændi dó ekki ráðalaus, einhvern veginn tókst honum að fá mig til að vera fjar- stýring fyrir sig. Ég fékk bara til- mæli um á hvaða takka ég átti að ýta! Já og matarsmekkurinn hans, hann fékk sér lakkrís og ost á brauð. Nonni var orðinn algjör Kani, enda búinn að búa ansi lengi á Flórída. Gekk um í stuttbuxum, hvítum sportsokkum með derhúfu og keyrði um á pick-up. Hann kunni vel við sig í hitanum. Ennþá betra var þó að Larissa bjó þar líka. Svo kom að því að litla ljósið hún Hedy María fæddist. Þá fór ég að sjá hlið á honum sem ég hafði ekki séð áður. Mikið kunni hann vel við afahlutverkið. Það var hrikalega sárt fyrir hann, og okkur sem höld- um ferðalaginu áfram, að þurfa að kveðja okkur svona skyndilega. Ég á ennþá mjög erfitt með að trúa því að hann sé farinn. Ég veit að Lar- issa á eftir að segja henni Hedy Maríu endalausar sögur af þér, þannig lifir þú áfram í minningum okkar. Elsku Nonni frændi, takk kær- lega fyrir tímann sem við vorum samferða. Þín Elísabet. Þegar hann Stefán, frændi minn, hringdi til að tilkynna mér andlátið hans Jóns, bróður síns, átti það ekki að koma mér að óvörum. En samt fór það svo að það kom mér að óvörum, maður heldur alltaf í sinni eigingirni að það sé smátími eftir og ég fylltist mikilli sorg. Þó átti ég ekki að vera svona eig- ingjörn því nú var þessu veikinda- stríði lokið og það var af hinu góða. Hann kominn til hennar Hedy, kon- unnar sinnar, sem hann er búinn að sakna öll þessi ár. Ég er búin að þekkja hann Nonna síðan hann fæddist en hann var fjórum árum yngri en ég og samheldnin í móðurfjölskyldu minni (föðurfjölskyldu hans) mikil. En á fullorðinsárunum hefur fjarlægðin oftast verið mikil, hann í Ameríku og ég í Danmörku eða á Íslandi. Þá var það þannig allt lífið að í hvert skipti sem við hittumst var eins og við hefðum hist í gær. Og við höfð- um alltaf svo mikið að tala um. Hann kom einu sinni sem oftar til Danmerkur og ég var nýkomin heim úr vinnunni þegar Nonni kom í heimsókn, hann var í „kassanum“ sem er eitthvað sem flugmenn fara í reglulega að mér skilst. Ég setti kaffið yfir og við byrjuðum að tala og alla nóttina sátum við og töl- uðum og drukkum kaffi í lítravís. Um morguninn þegar ég þurfti að fara í vinnuna urðum við samferða út, ég í vinnuna og hann heim á hótel. Félagar hans voru fullir efa- semda um frænkuna og stríddu honum og sögðu það er nú hægt að segja okkur það. Annað sinn kom hann sömu erindagjörða til Dan- merkur og bauð mér og vinkonu minni út að borða á einum fínasta matsölustað í Kaupmannahöfn og komst að þeirri niðurstöðu að Dan- ir kynnu ekki að elda mat. Skemmtilegust var þó ferðin til Næstved „Næst við“ eins og pabbi hans sagði. Nonni kom til Dan- merkur til að kaupa sér flugvél og gisti hjá frænku sinni, við ákváðum að hittast við skrifstofu flugfélags- ins niðri í bæ þegar ég væri búin í skólanum og hann búinn að fá bíla- leigubílinn. Allt stóðst þetta og við lögðum af stað. Á leiðinni þvert yfir Sjáland fundum við til svengdar og stoppuðum við veitingasölu. En þá kom nú babb í bátinn, hvorugt var með peninga! Jón hafði notað alla peningana hjá bílaleigunni og ég var bara með nokkra krónur í vas- anum. Saman var þetta þó fyrir einni gosflösku og einum ávexti fyr- ir hvort okkar en hjónin sem voru að selja flugvélina biðu okkar með veisluborð sem við gerðum góð skil. Það er nú margt fleira sem ég geymi í bernskuminningunni, ferða- lög innanlands með foreldrum mín- um og Guðmundi, móðurbróður mínum, Maríu, konu hans, og þeim bræðrum. Ein sérstök ferð ásamt Jóni E. Bergsveinssyni á vatna- jeppa austur um sanda til að líta eftir skipbrotsmannaskýlunum þar. Gleðin við að heimsækja þau Hedy, Jón og litlu Larissu á fallegu heim- ili þeirra í Stóragerðinu. Núna er lítil Hedy María að sjá á eftir afa sínum ásamt foreldrum sínum og ömmu sem missir Jón, son sinn. Guð gefi ykkur styrk og líkn við þessi tímamót í lífinu. Við fjölskylda mín þökkum allar góðar stundir. Guðrún Valdemarsdóttir. Það er sárt að Nonni frændi sé dáinn. Sérstaklega er erfitt að hafa svo lítið umgengist hann undanfar- in ár þar sem hann hefur búið er- lendis – nú er of seint að koma í heimsókn til hans. Þegar ég hugsa til baka kemur ótalmargt upp í hugann. Nonni var alltaf á ferð og flugi og kom ósjaldan með eitthvað sniðugt frá útlöndum fyrir mig þeg- ar ég var lítil – ég eignaðist t.d. snemma ameríska hjólaskauta, áð- ur en hjólaskautahallirnar risu í Reykjavík sem var frekar flott. Á gelgjunni tók ég upp á því að safna ilmvötnum og vílaði hann ekki fyrir að sér að kippa með einu og einu glasi þannig að fljótlega var ég komin með stórt safn sem ég náði auðvitað aldrei að nota. Annað sem Nonni gat ekki látið vera en það var að skammast í mér yfir því hvað ég borðaði lítið og takmarkað. Þegar við vorum í útlöndum og fór- um á framandi staði var hann alltaf að reyna að fá mig til að smakka nýja rétti, Larissa auðvitað alltaf til en ég kúgaðist bara við tilhugs- unina að borða eitthvað annað en hvítt brauð, cheerios og franskar með tómatsósu. Ég dauðsé eftir því núna að hafa ekki nýtt tækifærið og víkkað sjóndeildarhringinn og alltaf þegar ég panta mér eitthvað á veitingastað sem ég hef ekki smakkað áður verður mér hugsað til frænda. Nonni elskaði flug og gat talað um það endalaust, hann fann sér svo sannarlega þann frama sem honum var ætlaður en það er ekki öllum gefið. Nú þegar hann var hættur að fljúga var kominn tími til að vera með fjölskyldunni og spilla litlu Hedy Maríu en hann náði sem betur fer að gera það fyrstu árin hennar. Hann verður bara að halda áfram að dekra við hana eftir óhefðbundnum leiðum með aðstoð afa. Við í Þýskalandi söknum þín öll og finnst afar leitt að hafa ekki hitt þig áður en þú fórst, elsku Nonni. Hvíl í friði, María og fjölskylda. Þá er Nonni frændi fallinn frá. Ég á margar ljúfar minningar með Nonna enda hafa verið sterk bönd á milli okkar og því er söknuðurinn mikill. Nonni ólst upp í Reykjavík, fyrstu árin á Baldursgötu 17 með foreldrum sínum í húsi afa okkar og ömmu. Nonni var 5-6 ára þegar við vorum sendir í sveit til Helgu Jón E.B. Guðmundsson Minningar á mbl.is ✝ Marsibil Guð-munda Helga- dóttir fæddist í Tröð í Súðavík í Álftafirði 15. janúar 1921. Hún lést á Fjórðungssjúkra- húsi Ísafjarðar 4. ágúst síðastliðinn. Marsibil Guðmunda var jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju 15. ágúst síðastlið- inn. Meira: mbl.is/minningar Óskar Ingólfsson ✝ Óskar Ingólfs-son fæddist í Hafnarfirði 10. des- ember 1954. Hann andaðist á gjörgæslu- deild Landspítala 10. ágúst 2009 og var út- för hans gerð frá Fossvogskirkju 20. ágúst. Meira: mbl.is/minningar Marsibil Guð- munda Helgadóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.