Morgunblaðið - 28.08.2009, Side 32

Morgunblaðið - 28.08.2009, Side 32
32 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 2009 Elsku afi, ég sit hér í rigningunni á Costa Rica og læt hugann reika. Margar myndir koma upp í huga minn og minningar mínar frá Akureyri eru og hafa alltaf verið mér dýrmæt- ar og þá sérstaklega þær stundir sem ég átti með þér og ömmu. Við áttum margar stundir saman enda var ég alltaf tilbúin að keyra með þér hingað og þangað og hafði gaman af. Þá ræddum við mikið saman og þú kenndir mér eitt og annað sem ég hef svo tekið með mér út í lífið. Með því að þú kenndir mér að reisa spila- borgir lærði ég þolinmæði, í öll þau skipti sem ég kom með þér á dval- arheimilið á Dalvík lærði ég að hlusta og þannig læra af mér eldra fólki og frá þér erfði ég meðal annars vinnusemi og þrautseigju. Mínar dýrmætustu stundir voru þegar við fórum til Dalvíkur að heimsækja langömmu. Yfirleitt fékk ég að fara ein með þér og mér leið eins og ég væri afar mikilvæg að fá að koma með og fullorðin og mikið þótti mér vænt um það. Í eitt skipti reiddist ég þér og það var þegar þú klipptir mig stutthærða og settir í mig bylgjur en í dag er þetta sú minning sem ég segi frá með bros á vör og kærleik í hjarta. Undanfarin ár hef ég búið mikið erlendis og við nám í háskóla hérlendis og gat því ekki heimsótt þig eins oft og ég hefði viljað en síð- ustu tvö skipti sem ég kom spurðir þú mig mikið út í líf mitt og nám. Þú sýndir alltaf áhuga á því sem ég tók mér fyrir hendur og ég efast ekki um að þú sért stoltur af því sem ég er að gera hér úti. Líkt og við ræddum einu sinni þá erum við ennþá við- stödd þó líkami okkar hafi yfirgefið þetta líf. Elsku Jón afi, ég kveð þig nú með söknuði en um leið fyllist ég gleði og stolti yfir því að þú varst afi minn. Líf þitt er á förum, fellir ilm sinn og fögnuð sinn, ljóð sitt, blöð sín, birtu sína og mína (Þorgeir Sveinbjarnarson.) Oddný Arnarsdóttir. Ég á margar góðar minningar um hann afa minn. Flestar eru frá æsku- og unglingsárunum þegar ég naut þess að heimsækja Jón afa og Öddu ömmu á Akureyri og dvelja hjá þeim um lengri eða skemmri tíma. Það voru forréttindi að eiga þau að, og ég verð ætíð þakklát fyrir örlætið og elskuna sem þau sýndu mér. Jón afi minn bar kannski tilfinningar sínar ekki auðveldlega á torg, en hann sýndi þær á sinn hátt. Þannig gerðist það, eins og fyrir yfirskilvitlegar til- viljanir, þegar mann vantaði eitthvað sérstakt að maður vann skyndilega í dularfullu „happdrætti“ fyrir norð- an. Ég var komin verulega til vits og ára þegar ég áttaði mig á því að þetta var engum tilviljunum háð. Afi fylgdist með sínum og sá til þess að draumar gætu ræst. Og þegar stór- viðburðir gerðust, eins og til dæmis fæðing nýs barns, þá brást ekki að það kom sending frá afa, skemmtileg og hugljúf tækifærisvísa hinum nýja fjölskyldumeðlimi til blessunar. Þegar ég hugsa um Jón afa er samt alltaf ein minning sem kemur fyrst upp í hugann. Og þar sem hann er nú þekktastur fyrir umferðar- lagabrot sem leiddi til réttarbótar í íslensku samfélagi þá er pínulítið fyndið að í þessu minningarbroti skuli hann sitja undir stýri. Ég sit í aftursætinu og við erum að keyra Jón Kristinsson ✝ Jón Kristinssonfæddist á Kamb- felli í Djúpadal í Saur- bæjarhreppi 2. júlí 1916. Hann lést á dvalarheimilinu Hlíð 16. ágúst síðastliðinn og fór útför hans fram frá Akureyr- arkirkju 24. ágúst. einhversstaðar í Eyja- firðinum á áttunda áratug síðustu aldar. Afi hafði góða söng- rödd og var vanur að syngja hressilega í bíl- túrunum. Í minning- unni er hann að syngja þessa vísu sem ég æ síðan tengi við hann: Sól úti, sól inni, sól í hjarta, sól í sinni, sól, bara sól. Ég kveð elsku Jón afa með sól og söng í hjarta, glöð að hafa þekkt hann og þakklát fyrir allt sem hann gaf mér. Margrét Örnólfsdóttir. Frændi kær. Kveðjustundin er komin og ég vil af veikum mætti reyna að greiða þér smáræði af þeirri miklu þakkarskuld sem ég á þér að gjalda. Heilladísirnar sáu til þess að ég naut þeirra miklu forrétt- inda að fá að vera til heimilis á hinu einstaka heimili þínu og þinnar ógleymanlegu eiginkonu Arnþrúðar Ingimarsdóttur (Öddu), þau fjögur ár sem ég var við nám við MA. Allt frá barnæsku hefur þú verið einn af föstum punktum tilveru minnar. Ógleymanlegar eru heimsóknir þín- ar og fjölskyldu þinnar í sveitina. Þá geislaði allt af lífi og fjöri, málin krufin og brugðið á leik, glens og gaman, eins þegar leiðin lá til Ak- ureyrar þá var heimili ykkar Öddu fastur viðkomustaður. Það veganesti sem ég síðan hlaut með dvölinni hjá ykkur á skólaárunum er ómetanlegt og verður aldrei að fullu þakkað. Kynnin af jákvæðum viðhorfum þín- um til daglegra starfa. Þau voru unn- in af reglufestu og trúmennsku og þar við bættist ótrúlega fjölbreytt og lifandi félagsmálastarf og er með ólíkindum hverju þú fékkst áorkað. Þú áttir það viðhorf að ganga til verka af jákvæðni og bjartsýni en samt framar öllu að meta hlutina af sanngirni og réttsýni. Það veganesti sem ég fékk þarna hefur orðið mér heilladrjúgt. Heimilið ólgaði af hinu fjölþætta félagsmálastarfi, sem þú varst í forystu um, en þá bar þar hæst stúkustarf og starf fyrir L.A. Í stúkustarfinu bar á þessum árum hæst hjá þér uppbyggingu barna- heimila á þeirra vegum, þar sem dvölin varð mörgum ungum sálum hollt veganesti. Þá er að hefjast starfið að uppbyggingu atvinnuleik- húss en hlutur þinn í því máli er stærri en flestra annarra. Túlkun þín á persónum leikbókmenntanna á þessum árum er ógleymanleg. Þú varst að byrja farsælt starf þitt sem forstöðumaður í Skjaldarvík. Eftir að starfsdegi lauk áttir þú ákaflega lifandi og ánægjulegt ævikvöld. Það afrek sem mun lengst halda nafni þínu á lofti er þegar réttsýni þín bauð þér að ganga á hólm við stjórn- völd og árangur þess varð endur- skoðun á aðskilnaði framkvæmda- og dómsvalds í stjórnkerfi hér á landi. Þú ert einn af þessum fáu per- sónum, sem eru slíkum mannkostum búnar, að samskiptin við þær gera annað fólk sem þeirra nýtur að betri mönnum. Þú áttir svo sannarlega fjölbreytt og jákvætt áhugasvið og ræktaðir garðinn þinn af einstakri kostgæfni í öllum samskiptum við þína nánustu og alla samferðamenn. Fáir munu njóta þeirrar gæfu að skilja við blómlegri reit. Eftir að við vorum búsettir hvor á sínu lands- horninu fækkaði fundum. Fyrir um mánuði hittumst við stutta stund. Þá í fyrsta sinni fann ég hjá þér að lífs- löngunin var ekki lengur jafn tindr- andi og áður. Líkamlegir kraftar höfðu dvínað hratt, en hinn andlegi kraftur var greinilega samur og jafn og áður og þú sagðir að þér liði í raun ágætlega en þráðir orðið að fá frið- inn og hvíldina. Þú hefur nú samein- ast hinum eilífa friði. Minningin um einstakt göfugmenni mun samt lifa. Arnari, Helgu Boggu, Öddu og öðr- um aðstandendum flyt ég innileg- ustu samúðarkveðjur. Jón Viðar Jónmundsson. Kveðja frá Leikfélagi Akureyrar Með Jóni Kristinssyni er genginn einn mikilvirkasti leiðtoginn í sögu Leikfélags Akureyrar. Með reglu- festu sinni og öguðum vinnubrögð- um vann hann félagi sínu ómælt gagn, jafnt útá við sem inná við. Hann bar hag leikhúsfólksins ávallt mjög fyrir brjósti og nægir þar að nefna Framkvæmda- og menningar- sjóð LA sem hann kom á laggirnar upp á sitt einsdæmi til að hvetja fé- lagsmenn til dáða. Jón var brautryðjandi, en í for- mennskutíð hans á sjöunda og átt- unda áratug síðustu aldar var Leik- félagi Akureyrar breytt úr áhugamannaleikhúsi í atvinnuleik- hús og þar naut félagið þess ríkulega hversu ábyrgur og heilsteyptur Jón var í verkum sínum. Fyrir öll hans störf og góð ráð ber að þakka. Sannur heiðursfélagi er fallinn frá, en nafn hans mun ávallt lifa í Samkomuhúsinu okkar undir brekkubrún. Sigmundur Ernir Rúnarsson formaður stjórnar LA. Einhvern tímann var mér sögð sú saga að þegar Jón Kristinsson fædd- ist, 2. júlí 1916, í óhrjálegum húsa- kynnum á bænum Kambafelli, Djúpadal í Eyjafirði hefði baðstofan verið tjölduð innan með leiktjöldum. Þessi saga er mjög táknræn fyrir Jón og það áhugamál sem átti hug hans allan síðar á ævinni. Jón gekk ungur til liðs við Góðtemplararegl- una og aldrei á sinni löngu ævi rauf hann heit templara. Jón lærði til rak- ara og stundaði þá iðn árum saman. Jón var einstaklega duglegur og reglusamur í öllu sem hann tók sér fyrir hendur og mikill félagsmála- maður. Á sjöunda áratug síðustu aldar urðu straumhvörf í lífi Jóns, þegar hann hætti rekstri rakarastofu sinn- ar og gerðist forstöðumaður elli- heimilisins Skjaldarvíkur og dvalar- heimilisins Hlíðar á Akureyri. Þessu erilsama starfi sinnti Jón af ein- skærri trúmennsku, dugnaði og út- sjónarsemi allar götur þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Jón var um tíma meðhjálpari í Ak- ureyrarkirkju, og eftir að hann lét af störum hjá Akureyrarbæ vann hann ómælda sjálfboðavinnu við safnaðar- heimili kirkjunnar. Eitt er það sem Jón er ef til vill þekktastur fyrir; hann breytti rétt- arkerfinu og þar með Íslandssög- unni. Hann var kærður af sýslu- mannsembættinu á Akureyri fyrir minniháttar umferðarlagabrot. Sami aðili rannsakaði málið og dæmdi Jón í fjársekt. Þetta gat minn maður ekki sætt sig við og kom málinu, með aðstoð lögmanns, til Haag. Mann- réttindadómstólnum fannst þetta at- hyglisvert mál og dæmdi Jóni fullan sigur. Þar með var komið an uppá í íslensku réttarkerfi sem varð til þess að fullur aðskilnaður varð milli ákæruvalds og dómsvalds. Minnis- varði hefur nú verið reistur á gatna- mótum Þingvallastrætis og Byggða- vegar, þar sem þetta örlagaríka umferðalagabrot átti sér stað. Þá kem ég að því sem ég nefndi í upphafi, að leiktjöldin sem Jón Kristinsson fæddist í hafi haft tákn- rænt gildi. Jón fékk brennandi áhuga á leik- list og gekk hann til liðs við Leik- félag Akureyrar og var þar betri en enginn um áratuga skeið. Hann lék fjölda hlutverka með leikfélaginu, sat í stjórn þess og var formaður um árabil. Hann átti sér draum – draum um að á Akureyri yrði rekið atvinnu- leikhús, í höfuðstað Norðurlands. Jón barðist á öllum vígstöðvum – lét engan í friði – var eins og grár köttur í ráðuneytum menntamála og fjármála, glímdi við bæjarstjórn Ak- ureyrar og draumurinn rættist haustið 1973. Á annan dag jóla 1978 lék Jón sitt síðasta hlutverk og átti þá 40 ára leikafmæli. Og hvað gerði Jón þá – hann gaf leikaralaunin sín og gott betur, 250 þúsund krónur, í fram- kvæmda- og menningarsjóð LA. Lýsandi dæmi um hugsjónamanninn Jón, sem varð heiðursfélagi Leik- félags Akureyrar. Kona Jóns var Arnþrúður Ingi- marsdóttir, en hún lést árið 1993. Arnþrúður var glæsileg kona og samstiga Jóni í áhugamálum er tengdust leikhúsinu. Jón og Arn- þrúður eignuðust tvö börn, Arnar Jónsson og Helgu Elínborgu Jóns- dóttur. Þá ættleiddu þau frænku Arnþrúðar, Arnþrúði Jónsdóttur. Vertu nú sæll – farðu í friði gamli vinur. Þráinn Karlsson. Kveðja frá Náttúrulækninga- félagi Akureyrar Sterkur stofn er fallinn í valinn. Jón Kristinsson var einstakur dugn- aðarforkur og nutum við í NLFA góðs af því um langt árabil. Hann gegndi margvíslegum trúnaðarstörf- um og sat í stjórn félagsins í mörg ár. Hann var einn af þeim eldhugum sem lögðu á sig ótakmarkaða sjálf- boðavinnu vegna byggingar Kjarna- lundar. Háaldraður tók hann sig til og skrifaði sögu Náttúrulækninga- félags Akureyrar, af þeirri snilld sem honum einum var lagið. Hér er aðeins fátt eitt talið upp sem hann framkvæmdi á sinni löngu ævi. Vilj- um við færa honum einlægar þakkir fyrir allt sem hann fékk áorkað fyrir félagið okkar Kæri vinur, far þú í friði og hafðu þökk fyrir allt. Sendum fjölskyldunni innilegar samúðarkveðjur. Núverandi og fyrr- verandi stjórn Náttúrulækninga- félags Akureyrar. Ásdís Árnadóttir. Þó að ég hafi verið skírður Jón Kristinn Hannesson þá breyttist nafnið mitt í Jon K. Kristinsson við það að flytja til Ameríku. Ég lít á það sem forréttindi að vera skírður í höf- uðið á Jóni frænda. Ég þekkti hann ekki mjög vel fyrr en ég kom ásamt Helga bróður mínum á Byggðaveg 95 bjartan og sólríkan dag í janúar 1967, þá 11 ára gamall. Jón og Adda náðu í okkur á flugvöllinn og þegar við keyrðum inn á bílaplanið sá ég skíði sem stóðu upp við húsvegg. Ég varð strax spenntur fyrir þeim og spurði hvort ég mætti prófa. Ég festi þau á skóna mína og hélt af stað nið- ur planið án þess að hugsa um hvað biði mín eða hvort ég gæti stoppað. Þegar ég nálgaðist götuna áttaði ég mig á því að Ford Bronco bifreið kom aðvífandi og að hætta væri á árekstri. Ég hugsaði með mér að þetta yrði stutt skíðareynsla fyrir mig. Sem betur fer var bara einhver að koma til að heilsa upp á okkur Helga. Þennan dag féll ég fyrir skíðaíþróttinni sem hefur enst fram til dagsins í dag og er að stórum hluta ástæða þess að ég bý í Colo- rado, allt skíðunum við húsvegginn að þakka. Það sem er þó mikilvægara er að nú hófst samband sem var miklu meira en það að við værum nafnar. Við eigum margt sameiginlegt og ýmislegt lærði ég af honum. Hann var einstaklega göfuglyndur maður þó að það væri stundum falið í höst- ugum rómi og orðum sem hreint ekki pössuðu við það sem hann svo gerði. Mín reynsla í lífinu er sú að fólk er miklu líklegra til að sýna ör- læti í orðum en gjörðum. Öfgafyllstu dæmi um slíkt eru svikahrappar. Þeir lofa gulli og grænum skógum á sama tíma og þeir eru að skipuleggja að ræna þig. Jón var algjör and- stæða við slíka menn. Þegar við komum á Byggðaveginn var þröngt setinn bekkurinn. Ungt par leigði kjallarann, Jón Viðar bjó í austur- herberginu og kom ekki fram nema til að fara í skólann eða setjast að matarborðinu. Helgi og ég fengum herbergið hennar Öddu og hún var sett í hjónaherbergið. Adda missti herbergið sitt, Jón og Adda einka- lífið. Mikil fórn sem lýsir vel örlæt- inu, að skaffa okkur heimili að heim- an. 11 ára gamall drengur hefur ekki forsendur til að meta slíkt örlæti. Ég var miklu meðvitaðri um harðleita röddina og hversu strangur hann var. Reyndar hefur það tekið mig mörg ár að átta mig á því að gjörðir eru mikilvægari en orð. Ekki er ég að draga úr mikilvægi orða heldur benda á að gjörðir segja meira en orð þ.e. ef við hlustum gaumgæfi- lega. Það tók mig langan tíma að átta mig á því að ég var svipaður frænda, sem ég var skírður í höfuðið á. Mér þótti auðvelt að skipuleggja það að hjálpa öðrum en það sem ég lét út úr mér var oft án sömu nærgætni. Það var ekki fyrr en mörgum árum seinna að ég áttaði mig á hversu al- gengt þetta vandamál er og hversu mikið við þurfum öll að glíma við það hvernig við tölum. Líf Jóns var hlaðið afrekum, ör- læti, aga og réttum gjörðum. Ég vona að okkur auðnist öllum að ná að afreka álíka í lífi okkar um leið og við glímum við litla vöðvann í munnhol- inu. Megi orð okkar bæta við gjörðir okkar en ekki gera lítið úr þeim. Jón Kristinn Hannesson. Enn haustar að og atvinnuleikhús- in í landinu kynna öfluga vetrardag- skrá. Þá berast þær fréttir að ak- ureyrski höfðinginn Jón Kristinsson sé látinn, 93 ára að aldri. Ég drúpi höfði í virðingu og verður hugsað um samhengi hlutanna. Ekkert verður til úr engu. Það er mönnum eins og Jóni Kristinssyni að þakka að ís- lensk leiklist hefur náð þeim list- rænu hæðum sem raun ber vitni, skapar nú fjölda manns atvinnu og hrærir hug og hjörtu bæði innan lands og utan. Þetta samhengi varð mér einkum skýrt er ég starfaði ung sem leikhússtjóri hjá Leikfélagi Ak- ureyrar og kynntist sögu þess og fólki. Umhyggja Jóns fyrir leikfélag- inu, þroska þess og þróun var aug- ljós. Að lokinni frumsýningu á My Fair Lady í október 1983 var þess sér- staklega minnst að liðin voru 10 ár frá því að Leikfélag Akureyrar gerð- ist atvinnuleikhús. Þar var Jóni sér- staklega þakkað að verðleikum, en hann hafði í formannstíð sinni hjá leikfélaginu barist ötullega fyrir því að LA stigi skrefið til fulls úr áhuga- leikhúsi yfir í atvinnumennsku, eins og Leikfélag Reykjavíkur hafði gert árið 1963. Þar höfðu brautryðjenda- hæfileikar Jóns notið sín sem fyrr, en hann var geysilega kraftmikill maður, ákveðinn og fastur fyrir. Hann hlífði sér aldrei í baráttu og náði því sem hann ætlaði sér. Hann var líka bráðmyndarlegur, kom vel fyrir sig orði og sópaði að honum hvar sem hann fór. Að sjálfsögðu var hann leikari sem fór með ótal rullur hjá leikfélaginu frá tvítugsaldri. Ég var aðeins of sein að ná því að sjá hann á sviði, eða réttara sagt tókst mér aldrei að plata hann í hlutverk, en mikilvirkur er sá leiklistarættbogi sem frá honum er kominn, leikarar, leikskáld, leik- stjórar og dansarar með meiru – öll með fríðleika og dugnað forföðurins í farteskinu. Ég minnist yndislegra ljósmynda af Jóni, Björgu Baldvins- dóttur og drengjunum í leikritinu „Pabba“ frá 1960 þar sem Arnar Jónsson leikur son pabba síns. Í Sögu leiklistar á Akureyri 1860-1992 eftir Harald Sigurðsson segir: „Að- alhlutverkið, hinn uppstökka harð- stjóra og taugaveiklaða æðikoll, lék Jón Kristinsson og komst vel frá því þó örðugt sé“ (Íslendingur), en blað- ið Íslendingur segir þar einmitt um Arnar að hann virðist hafa áunna eða meðfædda hæfileika til að koma fram á leiksviði. Það var einmitt við útgáfu þessarar bókar sem ég kynntist náið eljusemi Jóns er við sátum saman í ritnefndinni og hann stjórnaði fjármálahliðinni af festu. Ræktarsemi Jóns við LA var alltaf söm við sig. Í lok frumsýningar á Skugga-Sveini á annan jóladag 1978 var 40 ára leikafmælis Jóns minnst. Hann færði þá LA að gjöf veglega fjárupphæð sem stofnframlag í framkvæmda- og menningarsjóð LA. Sá sjóður hefur nýst til margra góðra verka. Við verkamenn á menningarakr- inum minnumst Jóns Kristinssonar með þakklæti og virðingu. Hann reyndist hugsjónamaður í fleiru en leiklistinni eins og frægt er orðið en það verður ekki rakið hér. Ég færi fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minn- ing Jóns Kristinssonar. Signý Pálsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.