Morgunblaðið - 28.08.2009, Qupperneq 38
38 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 2009
Það verður ákveðið
tyrkneskt þema hjá
Stuðmönnum, enda er ég
nýkominn frá Tyrklandi. 39
»
BIÐRÖÐ myndaðist í miða-
sölu Íslensku óperunnar þeg-
ar hún var opnuð kl. 14 í gær,
en þá hófst miðasala á óp-
eruna Ástardrykkinn, sem
frumsýnd verður 25. október.
Símalínur voru allar rauðgló-
andi og fjöldi manns stóð í
biðröðinni eftir að festa sér
miða. Að sögn starfsmanna
Óperunnar seldust þúsund
miðar á tveimur klukkutímum, enda takmark-
aður miðafjöldi í boði. Alls verða átta sýningar á
Ástardrykknum, en höfundur hennar er ítalska
tónskáldið Gaetano Donizetti. Í aðalhlutverkum
verða Dísella Lárusdóttir, Garðar Thór Cortes
og Bjarni Thór Kristinsson.
Tónlist
Örtröð í miðasölu
Íslensku óperunnar
Íslenska óperan
BLÓMSTRANDI dagar
standa nú yfir í Hveragerði. Í
kvöld kl. 20.30 heldur Hinn ís-
lenski þursaflokkur tónleika í
Hveragerðiskirkju á vegum
þessarar menningarhátíðar
bæjarbúa. Forsala miða er á
Bókasafni Hvergerðisbæjar.
Meðal annarra viðburða á
hátíðinni má nefna sýninguna
Andans konur í Listasafni Ár-
nesinga, þar sem sýnd eru verk eftir Gerði Helga-
dóttur og Nínu Tryggvadóttur og tónlistarhátíð á
sunnudag kl. 17 í Þinghúsinu, þar sem saga lista-
manna sem hafa dvalið í Hveragerði frá 1940 til
dagsins í dag er rifjuð upp í tali og tónum á leik-
rænan máta.
Tónlist
Þursarnir blómstra
í Hveragerði í kvöld
Þursar
Í DAG verður
opnuð ljós-
myndasýning
Lisu K. Blatt,
Öfgar heimskaut-
anna, í Skotinu í
Ljósmyndasafni
Reykjavíkur. Ár-
ið 2008 dvaldi
Lisa á Suðurskautslandinu um tveggja mánaða
skeið en hún hlaut styrk úr verkefnisáætlun sem
listamenn og rithöfundar fá úthlutað úr á vegum
ríkisvísindasjóðs Suðurskautslandsins. Sýningin
er afrakstur dvalarinnar og dregur upp mynd af
viðkvæmri fegurð suðurskautsins og sýnir hversu
mikla þýðingu það hefur fyrir áframhaldandi bú-
setu manna á jörðinni.
Ljósmyndir
Öfgar heimskaut-
anna í Skotinu
Ein af myndum Lisu Blatt.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
AKUREYRARVAKA verður haldin í áttunda
sinn um helgina, og markar hún lok Listasumars
á Akureyri.
Einn af stærstu viðburðunum á vökunni verður
óperusýning í Samkomuhúsinu á Akureyri á
morgun og sunnudag kl. 15. Þar verða sýndar ein-
þáttungsóperurnar Biðin eftir Mikael Tariverdiev
og er það frumflutningur óperunnar hér á landi,
og Síminn eftir Giancarlo Menotti, sem hefur
nokkrum sinnum áður verið flutt á Íslandi.
Alexandra Chernyshova, ópersöngkona á Hofs-
ósi, átti hugmyndina að óperuuppfærslunni.
Rakhmaninov vakti heimþrá
– og hugmynd
„Ég hef aldrei sungið í einmenningsóperu, en
mig hefur lengi langað til þess,“ segir Alexandra.
„Mig hefur líka lengi langað til þess að setja upp
Símann eftir Menotti, en tækifærið kom ekki þar
til nú, vegna þess hvað ég hef mikið að gera.“
Í vor gaf Alexandra út plötu, þar sem hún söng
lög eftir Rakhmaninov. Alexandra, sem er frá
Úkraínu, kveðst hafa fengið mikla heimþrá þegar
hún æfði lögin. „Þá datt mér í hug öll fallega tón-
listin sem ég hef heyrt eftir Mikael Tariverdiev en
aldrei sungið. Það rifjaðist líka upp að hann samdi
einmenningsóperu sem ég hafði heyrt á plötu en
aldrei séð. Hún heitir Biðin. Tónlistin er ofboðs-
lega falleg, en verkið er um sterka konu sem hefur
allt til alls í lífinu; allt sem allar konur myndu vilja
hafa – nema ástina. Hún þráir ástina og verður
viðkvæm. Ég fann að mig langaði til að syngja
þessa óperu, ekki síst vegna þess að í þessum
heimi eru margir í hennar sporum, einmana og
ástlausir. Óperan er bæði falleg og nútímaleg.“
Persónulegur áfangi að takast á við nýtt
Alexandra segir óperurnar gjörólíkar og stóran
persónulegan áfanga fyrir sig að takast á við þær.
Síminn eftir Menotti er samin fyrir tvær persón-
ur, karl og konu, og með henni þar syngur Mich-
ael Jón Clarke karlhlutverkið.
„Ég var áður búin að tala við Daníel Þor-
steinsson píanóleikara á Akureyri og Michael; ég
hafði kynnst þeim og langaði að vinna með þeim,
því þeir eru frábærir tónlistarmenn. Ég bað þá að
vera með og þeir voru til í það, og ég er mjög
ánægð með það. Daníel spilar með á píanóið og
leikstjóri sýningarinnar er Aðalsteinn Bergdal.“
Stjórnar skóla, óperu og kór
Alexandra hefur ótrúlega mörg járn í eldinum.
Hún er hámenntuð í söng og var einn af aðal-
söngvurum óperunnar í Kiev áður en hún fluttist
til Íslands. Hún er líka spænskukennari.
Í Skagafirðinum er hún listrænn stjórnandi Óp-
eru Skagafjarðar, og rekur sinn eigin söngskóla.
Síðasta vetur var hún með 35 söngnemendur bæði
á Sauðárkróki og Hofsósi. Þá stjórnar Alexandra
kórnum Draumaröddum norðursins, en í honum
eru rúmlega 50 stúlkur úr Húnavatnssýslum og
Skagafirði. „Þetta er stúlknakór Norðurlands
vestra og er samstarfsverkefni Söngskóla Alex-
öndru og tónlistarskólanna í Austur-Húnavatns-
sýslu og á Hvammstanga. Þetta er allt saman
mjög skemmtilegt og spennandi.“
Óperusýningin verður tekin upp í Iðnó 4. og 5.
september og aftur í Miðgarði 19. september.
„Ofboðslega falleg tónlist“
Tvær einþáttungsóperur sýndar á Akureyrarvöku Alexandra Chernyshova
frumflytur Biðina eftir Tariverdiev „Stór persónulegur áfangi“ segir söngkonan
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„OPNUNIN gekk ljómandi vel og það kom
mér á óvart hvað hún var vel sótt,“ segir Úlfur
Grönvold, myndlistarmaður í Kling og Bang,
en galleríið er þátttakandi í listahátíðinni
Hamborg Subvision sem opnuð var í fyrra-
kvöld. Fjórir listamenn, Eyrún Sigurðardóttir,
Bjarni Massi, Unnar Örn og Huginn Arason,
sýna þar fyrir Kling og Bang.
Hátíðin er haldin við höfnina í Hamborg á
svæði sem er í mikilli uppbyggingu. Sýnt er í
gámahverfi sem arkitektinn Simon Putz hann-
aði. Úlfur segir mikla umræðu hafa verið úti
um sýninguna, sérstaklega vegna staðsetn-
ingar hennar, í gámum mitt innan um rík-
mannlegar nýbyggingar. Hátíðin er alþjóðleg
en sýningarstjóri er Brigitte Kölle.
Bjarni Massi sýnir sérstakt verk í einum af
gámum Kling og Bang. „Þetta er mynd sem ég
gerði með Íslenska hernum, um Svalvogaveg,
sem líka er kallaður Kjaransbraut og liggur
frá Dýrafirði yfir í Arnarfjörð. Það var talið
kolómögulegt að leggja veg þarna, en árið 1973
byrjaði Elís Kjaran á verkinu óumbeðinn með
syni sínum, unglingsstrák. Það tók þá tólf ár
að leggja þennan veg til vina sinna.
Ég gerði mynd um veginn, og tók líka af-
steypu af honum í Dalsdal, en þar er lind sem
sprettur upp úr jörðinni á ógnarhraða. Ef
maður drekkur úr lindinni áður en fyrsti hrafn
flýgur yfir hana að morgni, þá hefur hún lækn-
ingamátt. Ég sýni því afsteypu af veginum á
sýningunni og myndina, en Sigurður Skúlason
las inn á hana bút úr bók sem Elís skrifaði um
framkvæmdina. Ég mæli með því að þeir sem
fara vestur, fari þessa leið, því hún er stór-
brotin og maður finnur sterkt kraftinn í nátt-
úrunni,“ segir Bjarni Massi.
Hugur í mannskapnum
Aðspurður um framtíð gallerísins Kling og
Bang segir Úlfur Grönvold að ætlunin sé að
halda áfram. „Við gerum þetta af hreinum
áhuga. Vinnan við þetta er orðin mjög mikil og
alltaf að aukast. Við höfum verið að taka þátt í
hátíðum eins og þessari og sýndum til dæmis
Sirkus-barinn á Frieze í fyrra. Við höfum verið
að reyna að spana hvert annað upp í það að
sleppa þessum stóru verkefnum eins og þessu í
Hamborg, því höfum ekki úr miklum pen-
ingum að spila. Við höfum þó alltaf lag á því að
gleyma því og halda áfram, þrátt fyrir allt, og
þrátt fyrir að við vinnum þetta allt í sjálfboða-
vinnu.“
Úlfur segir að þrátt fyrir erfiðleika hefði það
verið synd að kasta Kling og Bang-nafninu
fyrir róða. Það hafi öðlast sess í alþjóðlega list-
heiminum. „Í þessum heimi þekkir fólk Kling
og Bang vel og veit að það hefur gert áhuga-
verða og svolítið „kreisí“ hluti.
Ég held að niðurstaðan verði sú að við virkj-
um fleiri inn í galleríið, eins og upphaflega var
lagt upp með, og halda ótrauð áfram. Það er
alla vega hugur í mannskapnum,“ segir Úlfur.
Svalvogavegur í útrás
Kling og Bang sýnir á hátíðinni Hamborg Subvision
Gjörningur Eyrún Sigurðardóttir í Gjörningaklúbbnum var með gjörning við opnunina.
PÁLL Baldvin Baldvinsson, einn níu
umsækjenda um stöðu þjóðleik-
hússtjóra, hefur sent mennta-
málaráðherra
bréf þar sem hann
andmælir áliti
þjóðleikhúsráðs
um þá sem sóttu
um stöðu þjóðleik-
hússtjóra.
Í bréfinu gagn-
rýnir hann m.a. að
starf leikhúsráðs
sé svo samofið
starfsferli sitjandi
leikhússtjóra að ef
hann er í hópi umsækjanda, eins og
nú, sé ráðið vanhæft að fjalla um
ráðningu þjóðleikhússtjóra.
Í áliti ráðsins um umsækjendur
eru allir dæmdir vel hæfir en Tinna
Gunnlaugsdóttir og Þórhildur Þor-
leifsdóttir lýstar mjög vel hæfar til að
gegna starfinu. Gagnrýnir Páll að
frekari rökstuðningur fylgi ekki áliti
ráðsins til menntamálaráðherra og
furðar sig á vinnubrögðum ráðsins
sem sá ekki ástæðu til að kalla um-
sækjendur í viðtal. Páll óskar eftir
rökstuðningi frá ráðinu.
Páll fjallar líka um úttekt Ríkis-
endurskoðunar á Þjóðleikhúsinu sem
kom fram í nóvember 2008. Þar var
dregin upp svört mynd af rekstri leik-
hússins og furðar Páll sig á því að sá
þjóðleikhússtjóri sem hefur borið
ábyrgð á rekstrinum síðustu fjögur
ár sé talinn mjög vel hæfur þegar litið
er til skýrslunnar.
Katrín Jakobsdóttir mennta-
málaráðherra ætlar ekki að tjá sig
um þetta mál fyrr en andmælafrest-
urinn er útrunninn, en hann rennur
út um helgina. „Þá ætla ég að fara yf-
ir þær athugasemdir sem berast en
ég hef ekki fengið neitt annað en frá
Páli,“ sagði Katrín í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi. „Við mun-
um auðvitað skoða andmæli Páls og
meta þau eins og önnur sem berast.
Það var gefinn kostur á athugasemd-
um og við eigum eftir að sjá hvað þær
verða margar og hvað þar kemur
fram.“
Spurð hvort hún sjái eitthvað at-
hugavert við ráðningaferli þjóðleik-
hússtjóra segir Katrín að því ferli
sem ákveðið er í lögum sé fylgt. „Svo
er bara spurning hvort það sé einhver
ástæða til að endurskoða það.“
Páll Baldvin
andmælir
Álit þjóðleikhúsráðs
ekki málefnalegt
Páll Baldvin
Baldvinsson
Akureyrarvaka verður sett í Lystigarðinum
í kvöld kl. 20 með opnun sýningarinnar List
í garðinum. Dagskráin er viðamikil og fjöl-
breytt, með listsýningum, upplestri leikjum,
göngum, opnum söfnum, tónlist og dansi.
Ítarlegar dagskrárupplýsingar eru á
vefnum visitakureyri.is
Akureyrarvaka
Beðið eftir ást Alexandra Chernyshova í hlut-
verki sínu í óperunni Biðinni, eftir Tariverdiev.