Morgunblaðið - 28.08.2009, Qupperneq 44
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 2009
HHHH
– IN TOUCH
HHH
„HITTIR Í MARK.“
-S.V. MBL
30.000 MANNS
FRÁ FRUMSÝNINGU
„DAZZLINGLY WELL MADE...“
VARIETY - 90/100
„HÚN VAR FRÁBÆR!“
NEW YORK MAGAZINE – 90/100
STÆRSTA BÍÓOPNUN Í ÁR!
YFIR 50.000 MANNS FRÁ FRUMSÝNINGU!
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLSÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
Í REYKJAVÍK
SÝND MEÐÍSLENSKU TALI
EIN ALLRA BESTA
DISNEY-PIXAR
MYND TIL ÞESSA
TVÆR ÓLÍKLEGAR HETJUR
MUNU FINNA TÝNDA VERÖLD,
EN STÆRSTA ÆVINTÝRIÐ
VERÐUR AÐ KOMAST AFTUR HEIM
STÓRKOSTLEGT ÆVINTÝRI
SEM ENGIN FJÖLSKYLDA MÁ MISSA AF
GAGNRÝNENDUR ERU Á EINU MÁLI
“BESTA MYND ÁRSINS”
HHHH
„SKEMMTILEG, HJARTNÆM
OG DREPFYNDINN“
- T.V. KVIKMYNDIR.IS
HHHH
„HÉR ER ENN EITT
MEISTARAVERK FRÁ PIXAR,
SEM RYÐUR BRAUTINA
Í NÚTÍMA TEIKNIMYNDAGERÐ.“
- ROGER EBERT
100/100 – VARIETY
100/100 – THE HOLLYWOOD REPORTER
á allar 3D sýningar merktar með grænu850 krrSPARBÍÓ
/ KRINGLUNNI
UP m. ensku tali kl. 63D - 83D - 10:103D L DIGITAL 3D G-FORCE 3D m. ísl. tali kl. 43D L
UPP (UP) m. ísl. tali kl. 3:403D - 5:503D L DIGITAL 3D THE PROPOSAL kl. 8 L
UPP (UP) m. ísl. tali kl. 3:40 - 5:50 L
DRAG ME TO HELL kl. 8:20 - 10:30 16
PUBLIC ENEMIES kl. 10:10 16 DIGITAL 3D
/ ÁLFABAKKA
INGLOURIOUS BASTERDS kl. 5:30 - 8:30- 10:10 16 UP m. ensku tali kl. 83D DIGTAL 3D L
INGLOURIOUS BASTERDS kl. 10:10 LÚXUS VIP UP m. ensku tali kl. 3:40 - 5:50 - 8 LÚXUS VIP
DRAG ME TO HELL kl. 8 - 10:10 16 UPP (UP) m. ísl. tali kl. 3:403D - 5:503D L
PUBLIC ENEMIES kl. 8 - 10:40 16 UPP (UP) m. ísl. tali kl. 3:40 - 5:50 L
G-FORCE m. ísl. tali kl. 3:30 L HARRY POTTER 6 kl. 5 10
THE PROPOSAL kl. 5:50 - 8 - 10:20 L HANGOVER kl. 3:40 síðustu sýningar 12
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
LIÐNIR eru tveir áratugir síðan
Halldór Bragason stofnaði blússveit-
ina Vini Dóra og hann hefur verið
þar í brúnni síðan. Eitt af því sem
Dóri og félagar hafa gert er að fá
hingað til lands ýmsa þekkta tónlist-
armenn að spila og þar á meðal pí-
anóleikarann goðsagnakennda Pine-
top Perkins, sem hljóðritaði plötu
með Vinum Dóra fyrir áratug eða
svo. Nú hafa mál svo þróast þannig
að Dóra hefur verið boðið að gjalda
líku líkt, því hann er á förum utan að
spila sem sérstakur gestur á tón-
leikum á heimaslóðum blúsins.
Í kjölfar heimsóknar Pinetops á
Blúshátíðina í vor var Dóra nefni-
lega boðið að vera sérstakur gestur
The Legendary Blues Band á tvenn-
um tónleikum í Bandaríkjunum í
október næstkomandi, en í þeirri
merkissveit eru meðal annars forð-
um spilafélagar Muddy Waters, þeir
Willie „Big Eyes“ Smith, Bob Mar-
golin og Pinetop Perkins.
Dóri segir að það sé vitanlega
fyrst og fremst heiður að vera boðið
að spila með þeim köppum sem hér
hafa verið taldir upp og hann hafi
ekki þurft að hugsa sig lengi um.
„Patricia Morgan, sem er forseti
alþjóðlegs sambands blúsvina, kom á
blúshátíðna í vor þegar Pinetop spil-
aði og í kjölfarið vildi hún endilega fá
mig út til að spila með karlinum.
Hún bauð mér svo að koma út og
vera með á tónleikum í Helena í Ark-
ansas 10. október og svo daginn eftir
á Pinetop Perkins Homecoming Jam
á Hopson-plantekrunni í Clarksdale
í Mississippi, en Pinetop ólst þar upp
og vann við baðmullartínslu,“ segir
Dóri, en hann flýgur til Memphis og
ekur svo þjóðveg 61 niður til Helena.
Ekki ætlar Dóri að láta það nægja
að spila, því hann er líka á leið út í
þeim tilgangi að efla tengsl við menn
vegna blúshátíðarinnar hér heima og
eins leita að forvitnilegum lista-
mönnum.
Heiðursgestur goðsagna
Halldóri Bragasyni boðið að spila á heimaslóðum blúsins
Morgunblaðið/Kristinn
Blúsarinn Dóri spilar bæði í Arkansas og Mississippi í október.
AÐDÁENDUR stúlknasveitarinnar
All Saints verða að sætta sig við að
sveitin mun aldrei koma saman aft-
ur. Svo segir einn fyrrum meðlimur
hennar, Melanie Blatt, sem vill alls
ekki taka saman við Nicole Apple-
ton, Natalie Appleton og Shaznay
Lewis aftur. Hún vill frekar
skemmta sér en skemmta öðrum.
„All Saints kemur aldrei saman
aftur, ég vil aldrei syngja aftur,“ lét
Blatt hafa eftir sér.
Blatt og hinar stúlkurnar úr All
Saints eru þó ágætis vinkonur og
voru hún og Nicole Appelton fengn-
ar til að taka viðtöl við stjörnurnar á
rauða dreglinum á BRIT-verðlauna-
hátíðinni í febrúar. „Ég og Nicole
spjölluðum við fólk og duttum síðan í
það. Það er takmark mitt, að fá
borgað fyrir að spjalla við fólk og
drekka.“
All Saints var stofnuð í London
árið 1993 og átti farsældum að fagna
til ársins 2001 þegar sveitin hætti.
Þá sneru stúlkurnar sér allar að
sólóferli. Árið 2006 komu þær saman
aftur en léleg sala á plötunni Studio
1 varð til þess að þær hættu end-
anlega.
Reuters
All Saints Melanie Blatt, t.v., ásamt stöllum sínum í All Saints árið 2000.
Aldrei aftur All Saints