Morgunblaðið - 04.09.2009, Blaðsíða 2
Morgunblaðið/Kristinn
ÞAÐ eru gömul sannindi og ný að bókvitið verður
ekki í askana látið. En hvaða merkingu hefur
þessi setning í reynd? Með henni er átt við að lær-
dóm fenginn úr bókum sé ekki hægt að skammta
mönnum, heldur verði þeir að hafa fyrir því sjálfir
að afla sér hans.
Og það eru stúdentar landsins svo sannarlega
að gera þessa dagana, því nemar flykkjast sem
aldrei fyrr í háskólana til þess að afla sér meiri
vitneskju og lærdóms. Til marks um þetta var
margt um manninn á nýnemadögum í Háskóla Ís-
lands í vikunni.
BÓKVITIÐ VERÐUR EKKI Í ASKANA LÁTIÐ
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
BREYTINGAR
eiga sér stað í
stjórn Nýja
Kaupþings í kjöl-
far samninganna
frá því í gær.
Erna Bjarnadótt-
ir er nýr stjórn-
arformaður
bankans. Aðrir í
stjórn eru Helga
Jónsdóttir, Drífa Sigfúsdóttir, Jón-
ína Sanders, Jóhannes Rúnar Jó-
hannesson og Theodór S. Sigur-
bergsson. Erna segir ljóst að mikil
vinna sé framundan hjá bankanum,
við uppbyggingarstarfið og að
ljúka eigendamálum bankans.
Erna er nýr
formaður
Ný stjórn tekur við
hjá Nýja Kaupþingi
Erna Bjarnadóttir
GÓÐUR andi var í viðræðum íslenskra, breskra og hol-
lenskra embættismanna á óformlegum fundi í Haag í
fyrradag um nýsamþykkta fyrirvara Alþingis við Ice-
save-samninginn. Þetta segir í tilkynningu frá forsætis-
ráðuneytinu. Fjárlaganefnd Alþingis fundaði í gær með
fulltrúum forsætis-, fjármála- og utanríkisráðuneytis þar
sem hún var upplýst um stöðu viðræðnanna.
„Það voru í rauninni engar fréttir en þó það góðar að
þær voru ekki neikvæðar heldur,“ segir Guðbjartur
Hannesson, formaður fjárlaganefndar.
„Engin viðbrögð voru komin – málið er ennþá á
embættismannastigi og í eðlilegum farvegi. Fundurinn
var haldinn af kurteisi við fjárlaganefnd sem hefur sett
svona mikla vinnu í þetta, enda hafði verið óskað eftir að
hún fengi að fylgjast með.“
Í tilkynningu forsætisráðuneytisins segir að fulltrúar
landanna taki væntanlega upp þráðinn í næstu viku „í
þeim tilgangi að ná fram sameiginlegum skilningi eins
fljótt og auðið er“.
Þá sendi Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
breskum og hollenskum kollegum sínum bréf í síðustu
viku þar sem óskað var eftir að þeir beittu sér fyrir far-
sælli lausn á málinu. Í bréfinu var einnig fjallað um hugs-
anlega fundi forsætisráðherranna þriggja. ben@mbl.is
Taka upp þráðinn í
viðræðum í næstu viku
Góður andi á fundi íslenskra, breskra og hollenskra embætt-
ismanna um Icesave-málið í Haag í Hollandi í fyrradag
Morgunblaðið/Ómar
Icesave Embættismenn ræða fyrirvara Alþingis.
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
ÁFANGA í endurreisn Nýja Kaup-
þings banka var náð í gær. Þá skrif-
uðu fulltrúar bankans, ríkisins og
skilanefndar Kaupþings undir samn-
ing sem felur meðal annars í sér
ákvæði um endurfjármögnun bank-
ans og uppgjör milli gamla og nýja
bankans.
Tveir möguleikar um uppgjör milli
skilanefndar Kaupþings og Nýja
Kaupþings eru í stöðunni eftir und-
irritun samninganna í gær. Annars
vegar getur skilanefnd Kaupþings
fyrir hönd kröfuhafa eignast um 87%
hlutafjár í Nýja Kaupþingi á móti
ríkissjóði, sem þá ætti 13% hlut.
Skilanefndin hefur frest til 31. októ-
ber næstkomandi til að taka ákvörð-
un þar um. Hinn möguleikinn er að
skilanefndin hafi kauprétt á allt að
90% hlut í Nýja Kaupþingi, sem yrði
virkur á árunum 2011 til 2015.
Finnur Sveinbjörnsson, banka-
stjóri Nýja Kaupþings, segir að end-
urfjármögnun bankans og samning-
arnir í gær séu
mikilvægt skref í
markvissri end-
urreisn bankans
til hagsbóta fyrir
viðskiptavini og
samfélagið í heild.
Mikil áhersla
hefur verið lögð á
það af hálfu fjár-
málaráðuneytis-
ins að ljúka mál-
inu sem fyrst, ekki síst vegna
skilyrða Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Fjármögnun Nýja Kaupþings hef-
ur verið tryggð, en gengið var frá
samkomulagi þess efnis í síðasta
mánuði. Eigið fé bankans verður 72
milljarðar króna.
Kröfuhafar geta eignast
Nýja Kaupþing fljótlega
Gengið var frá samkomulagi um endurfjármögnun og uppgjör í gær
» Stórir erlendir bank-
ar meðal kröfuhafa
» Geta eignast
87% hlut
Finnur
Sveinbjörnsson
„Stjórnendur
gera það sem
gerlegt er að gera
og við reisum
ekki kröfur um-
fram það,“ segir
Ögmundur Jón-
asson heilbrigð-
isráðherra, sem í
gær átti fund með
forstöðumönnum
heilbrigðisstofn-
ana þar sem ræddar voru leiðir til að
mæta fyrirsjáanlegum niðurskurð-
arkröfum. Að sögn Ögmundar er
margt sem má gera til góðs innan
heilbrigðiskerfisins sem sparar pen-
inga samtímis því sem það eflir kerf-
ið. Segir hann ljóst að grípa þurfi til
róttækra aðgerða.
„Góðir stjórnendur nota þreng-
ingar til að hugsa langt fram í tím-
ann og reyna að skila kerfinu og
sjálfum grundvellinum sem það hvíl-
ir á þannig að við getum haldið
áfram uppbyggingu inn í framtíð-
ina.“ Forstjóri Landspítalans hefur
boðað starfsmenn spítalans til funda
í dag, þar sem kynna á stöðu spít-
alans og fyrirhugaðan niðurskurð og
aðgerðir í rekstrinum.| 8
Gæti eflt heil-
brigðiskerfið
til framtíðar
Niðurskurðar-
kröfur ræddar
Ögmundur
Jónasson