Morgunblaðið - 04.09.2009, Blaðsíða 48
48 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2009
Það virðist ætla að rætast að
kreppu fylgir aukin virkni í listum.
Tónleikaröðin Réttir, sem fram fer
23. - 26. september samhliða RIFF
og You Are in Control ráðstefnunni
hefur nú bætt við sig tónleikastöð-
um (Jakobsen og Grand rokk) og
áhugasamar sveitir geta sent inn
umsóknir á info@faxafloi.is.
Tónleikaröðin Réttir
breiðir rækilega úr sér
Fólk
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ÞANN 10. september verða aðrir tónleikar í tón-
leikaröðinni Manstu ekki eftir mér haldnir á
NASA en röðin er samstarfsverkefni Reykjavík
Grapevine og Rafskinnu. Hugmyndafræðin er sú
að listamaður eða hljómsveit komi fram og spili
eitthvert meistaraverk úr dægurtónlistarsögunni
í heild sinni. Ensími reið á vaðið 11. júní sl. og lék
nafntogaðan frumburð sinn, Kafbátamúsík, fyrir
troðfullu húsi.
Og það er engin smáræðis kanóna sem kemur
fram þann 10., sjálfur Megas sem ætlar að spila
plötu sína Millilendingu (sem Demant hf. gaf út
1975). Platan var önnur plata meistarans og var
unnin með hljómsveitinni Júdas. Á plötunni má
finna þekkt lög eins og „Silfurskotturnar hafa
sungið fyrir mig“, „Ég á mig sjálf (söngurinn
hennar Diddu)“ og „Ragnheiður biskupsdóttir“.
Platan kom út þremur árum eftir frumburð Meg-
asar en sú plata kom aðeins út í nokkur hundruð
eintökum og það í Noregi. Á Millilendingu var
hins vegar búið að rafmagna sig upp og vakti plat-
an talsverða athygli á Megasi hér heima, og var
stjarna hans, eins umdeild og hún varð, farin að
rísa svo um munaði. Það eru Senuþjófarnir, nú-
starfandi sveit Megasar, sem munu sjá um undir-
leik á tónleikunum en samstarf þessara aðila hef-
ur verið með afbrigðum gjöfult undanfarin ár og
gefið af sér þrjár hljómplötur til þessa. Miðasala á
tónleikana er á midi.is og í verslunum Skífunnar.
Megas spilar Millilendingu í heild sinni
Enn bætist við Iceland Airwaves-
flóruna en tilkynnt hefur verið um
átján erlendar sveitir sem bætast
við þær 48 sem þegar hafa verið
staðfestar. Helst ber að nefna
Kings of Convenience frá Noregi,
The Drums, sjóðandi heita sveit frá
Brooklyn og síðast, en ekki síst,
Jessica 6, nokkurs konar samstarfs-
sveit nýdiskósveitarinnar stórkost-
legu Hercules and Love Affair, en
söngkona þar er hin íðilfagra Nomi
Ruiz. Alls bárust hátíðinni 800 um-
sóknir í ár, 500 erlendis frá og
heilar 300 héðan af Fróni sem ku
vera met. Tilkynnt verður um fleiri
sveitir á næstu dögum.
800 sveitir sóttu um á
Iceland Airwaves
Snillingurinn Dr. Gunni gaf út
plötuna Inniheldur á árinu og nú er
komið að því að kynna hana á tón-
leikum – í fyrsta og mögulega eina
skipti. Tónleikarnir fara fram á
Grand Rokk í kvöld og leika Insol,
Hellvar og Blóð.
Dr. Gunni kynnir nýja
plötu sína (loksins)
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÉG lagði upp með að gera trúverð-
uga mynd um venjulegt fólk sem
lendir í óþægilegum aðstæðum,“ seg-
ir Júlíus Kemp,
leikstjóri spennu-
tryllisins Reykja-
vík Whale Watch-
ing Massacre sem
frumsýndur verð-
ur í Reykjavík,
Keflavík, á Ak-
ureyri og á Sel-
fossi í kvöld.
Myndin segir í
stuttu máli frá
hópi ferðamanna sem fara í hvala-
skoðun en lenda í miklum ógöngum
þegar þeir hitta snarbrjálaða hval-
veiðimenn.
Þótt töluvert af blóði flæði í mynd-
inni, og ofbeldið sé mikið, segir Júlíus
að þetta sé ekki „splatter“ eða svo-
kölluð B-mynd, eins og margir hafa
haldið.
„Orðið spennutryllir er miklu nær.
B-myndir eru oft soðnar saman á
stuttum tíma og fyrir litla peninga.
Menn hendast í tökur í fimm eða tíu
daga og reyna að gera sem mest ógeð
á sem stystum tíma. Þetta er allt
öðruvísi, myndin er dýr og meira að
segja mjög dýr á íslenskan mæli-
kvarða því hún kostaði 268 milljónir í
framleiðslu. Við ákváðum því að gera
mjög vandaða mynd eftir góðu hand-
riti og finnst ekki við hæfi að tengja
okkur við þessa tegund mynda, splat-
tera og B-myndir.“
Júlíus segir að myndin eigi því
fremur lítið skilt við B-myndina
frægu, Texas Chainsaw Massacre,
fyrir utan nafnið og þá staðreynd að
Gunnar Hansen fer með stór hlutverk
í báðum myndum.
„Gunnar er hins vegar að leika
gæðablóð í okkar mynd – íslenskan
sjómann en ekki Leatherface. Hann
hefur leikið í fullt af myndum og fær
alltaf tilboð um að leika skrímsli. Ég
held hins vegar að engum hafi áður
dottið í hug að fá hann til að leika góða
gæjann,“ segir leikstjórinn.
Aðspurður segir Júlíus að hann hafi
ekki átt sér neina sérstaka fyrirmynd
þegar hann gerði R.W.W.M. en „vondi
gaurinn“ í áströlsku hrollvekjunni
Wolf Creek eigi þó margt sameig-
inlegt með illmennunum í sinni mynd.
„Eins og þeir er hann allt að því
„venjulegur“ maður sem vinnur á bif-
reiðaverkstæði, maður sem þú þekkir
þegar þú ferð með bílinn þinn í við-
gerð. Sú var hugmyndin með sjó-
mennina, að ef þú færir niður á Kaffi-
vagn þá væri þetta fólk sem Helgi,
Guðrún og Stebbi leika eins og hver
annar þar inni og ekkert öðruvísi,
hvorki í útliti né atgervi.“
Góð stemning
Júlíus segist afar sáttur við útkom-
una, enda sé R.W.W.M. klárlega hans
besta mynd hingað til.
„Það er gaman að fá loksins að gera
mynd þar sem maður er með alvöru
fólk í hverri stöðu og peninga í það.
Þær tvær myndir sem ég hef áður
gert voru gerðar af vanefnum, við
höfðum lítið til að spila úr,“ segir hann
og bætir því við að hann sé hvað sátt-
astur við þá stemningu sem mynd-
aðist á tökustað og skilar sér á hvíta
tjaldið. „Það er ekki sjálfgefið að
mönnum takist að búa slíka stemn-
ingu til. En þú veist ekki fyrr en í lok-
in hvort það hefur tekist, þegar búið
er að klippa, litgreina, setja hljóð og
tónlist, þá veistu hvort þetta er að
smella. Það þarf nefnilega ekki nema
einn liður af tuttugu að klikka til þess
að allt falli.“
Það þarf ekki að koma neinum á
óvart að R.W.W.M. sé bönnuð börn-
um yngri en 16 ára, enda ansi óhugn-
anleg á köflum. Júlíus segist ekki
hafa miklar áhyggjur af því að missa
þar með út stóran hluta hugsanlegra
bíógesta. „Það er ekkert við þessu að
gera, við höfðum heldur ekki áhuga á
að leyfa hana fyrir yngra fólk því það
hefði bara skapað okkur vandræði.
Þessi mynd er bara það sem hún er –
stundum gerir maður barna- eða fjöl-
skyldumynd og stundum svona mynd.
Það er bara þannig,“ segir Júlíus, en
eins og áður kom fram kostaði mynd-
in 268 milljónir króna og því ljóst að
marga bíógesti þarf til þess að borga
hana upp.
„Myndin mun ekki borga sig upp á
Íslandi, það er alveg ljóst. Þannig að
við þurfum að selja þessa mynd til út-
landa og erum byrjaðir á því. En við
værum mjög kátir með að fá 30 til 40
þúsund manns á Íslandi.“
Að lokum má því hvetja sem flesta
til að drífa sig í bíó – að því gefnu þó,
að þeir séu orðnir 16 ára og lausir við
hjartasjúkdóma.
Hvorki „splatter“ né B-mynd
Spennutryllirinn Reykjavík Whale Watching Massacre frumsýndur í kvöld
Kostaði 268 milljónir „Vönduð mynd eftir góðu handriti,“ segir leikstjórinn
Júlíus Kemp
Eigi skal höggva! Helgi Björnsson mundar öxina, Stefán Jónsson og Guðrún Gísladóttir fylgjast spennt með.
Aðalhlutverk:
Helgi Björnsson, Stefán Jóns-
son, Ragnhildur Steinunn Jóns-
dóttir, Guðrún Gísladóttir, Pihla
Viitala, Þorvaldur Davíð Krist-
jánsson, Snorri Engilbertsson,
Terrence Anderson, Nae Yuki og
Aymen Hamdouchi.
Handritshöfundur:
Sjón, byggt á hugmynd eftir
Torsten Metalstein Hvas og Sjón.
Leikmynd:
Eggert Ketilsson.
Klipping:
Sigurbjörg Jónsdóttir.
Kvikmyndataka:
Jean Noel Mustonen.
Tónlist:
Hilmar Örn Hilmarsson.
Leikstjóri:
Júlíus Kemp.
Framleiðendur:
Ingvar H. Þórðarson, Júlíus Kemp
og Gísli Gíslason.
Reykjavík Whale Watching Massacre
Guðrún Gísladóttir í hlutverki sínu.
Ballett
Byrjendur (yngst 3ja ára)
og framhaldsnemendur.
Innritun í síma
567 8965
Ballettskóli
Sigríðar Ármann
Reykjavík,
Kópavogi.