Morgunblaðið - 04.09.2009, Blaðsíða 25
Umræðan 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2009
EX
PO
·w
w
w
.e
xp
o.
is
Tilboð á
þakefnum!
Vnr. 0013256
Byggingartimbur
Byggingartimbur, VI flokkur,
25x150 mm.
Vnr. 53504031
Þolplast
Þolplast,4 m x10 m.
Vnr. 0024509
Burðarviður
Burðarviður T1, heflað,
50x225 mm.
739kr./lm.
Vnr. 0011251
Byggingartimbur
Byggingartimbur 25x25 mm.
49
Fullt verð: 65 kr./lm.
kr./lm.
249
Fullt verð: 324 kr./lm.
kr./ lm.
6.990
Fullt verð: 9.538
kr.
rúlla
Vnr. 0234211
Þakpappi
ICOPAL þakpappi
1500g, 1x20 m.
9.590kr./rúllan
Vnr. 33196581
Þaksaumur
GBO þaksaumur,
60x3,7 mm.
1.800
Fullt verð: 2.440 kr./pk.
kr./pk.
Pakkinn er 2,69 m2
29kr./stk.
Vnr. 0212004
Renningur
Masonítrenningur fyrir þakull.
Vnr. 0212003
Þakull
Þakull PL, 200 mm.
Fullt verð: 39
Fullt verð: 6.378
kr./pk.
4.990
Vnr. 0231250
Bárustál
Bárustál, alusink,
klæðir 99 cm.
1.825 kr.lm
ÍSLENSK
FRAMLEIÐSLA
UNDANFARIÐ
hef ég verið að fylgj-
ast með þeim um-
ræðum sem hafa átt
sér stað um Ísland og
fall bankanna, ekki
síst með tilliti til al-
manntengsla. Sú um-
ræða hefur að mörgu
leyti verið gagnleg og
ljóst að við höfum
mikið lært og getum
notað þessa þekkingu til að gera
betur. Fyrirtæki mitt, Nordic
eMarketing, hefur nýtt sér miðla
sína, IceNews, eNewsPR og
eNewsWire UK, til að safna upp-
lýsingum um hegðun blaðamanna
og hagsmunaaðila eins og sam-
keppnis- og ráðgjafarfyrirtækja.
Hvað gera þessir aðilar þegar
mikilvægar fréttir fara í loftið og
hvað tekur það langan tíma fyrir
þessar fréttir að komast á flug og
ná til fjöldans?
Heimsóknir á fréttaveituna Ice-
news.is tuttugufölduðust á viku við
fall bankanna. Nokkur þúsund
heimsóknir urðu nær tvö hundruð
þúsund. Það sem líka gerðist var
að erlendir fjölmiðlar, þyrstir í
fréttir frá Íslandi, komu ítrekað
inn á vefinn. Fréttamiðlar eins og
BBC, The Guardian, Reuters,
Seattle og New York Times nýtu
sér það efni sem þar var birt. Við
fall bankanna fóru leitir eftir orð-
inu Iceland upp um 400% sam-
kvæmt Google og áhuginn á land-
inu og því sem var að
gerast þar var gríð-
arlegur. Okkur var
ljóst frá upphafi að
hér gafst einstakt
tækifæri til að kort-
leggja leiðir frétta á
Internetinu og hvern-
ig fjölmiðlafólk og
hagsmunaaðilar nota
netið til gagnasöfn-
unar.
Samkvæmt Midd-
leburg-könnun sem
gerð var í Bretlandi
og Bandaríkjunum fyrir nokkru,
nota blaðamenn Internetið mikið.
98% þeirra fara á netið daglega og
78% segjast finna fréttir og frétta-
tilkynningar í gegnum internetið
og styðjast við þær við skrif sín.
Það sem ekki er vitað er sá tími
sem það tekur frá því að efni fer
út þar til að það er „pikkað upp“
og notað. Aðgangur að eNewsW-
ire, Icenews og öðrum fréttadreifi-
veitum, fall íslensku bankanna
ásamt öðru fréttnæmu efni gaf
okkur tækifæri til að rannsaka
þann þátt.
Ég ætla að rekja í stuttu máli
tvö dæmi, sem reyndar koma
bankakrísunni ekki beint við (hún
þarf sér úttekt), þó annað sé af-
leiðing hennar, en þau undirstrika
hvernig þetta virkar.
Nýrra dæmið, sem sýnir ferlið
vel, var þegar flugvél frá United
Airlines þurfti að nauðlenda á
Keflavíkurflugvelli. Icenews fékk
fréttina fyrst og var sá netmiðill
sem fjallaði fyrst um atburðinn.
Um þetta voru skrifaðar tvær
fréttir sem komu út með u.þ.b. 15
mín. millibili. Það tók Google
News innan við sextíu sekúndur
að pikka þá fyrri upp og rétt um
tvær mínútur að taka við þeirri
seinni. Réttum 28 mín. eftir að
Google var komin með fréttina
komu aðilar frá CNN inn á vefinn
(CNN kom samtals 6 sinnum inn
frá tveim mismunandi tölvum),
stuttu seinna komu Chigaco Trib-
une og Washington Post og innan
24 tíma voru nær 200 aðrir net-
miðlar búnir að fjalla um málið.
Ofan á þetta komu síðan ýmsir að-
ilar sem málið varðaði, beint eða
óbeint: Boeing komu inn á svip-
uðum tíma og CNN, United komu
inn og tengdu sig við Twitter próf-
íl Icenews. Síðan var það sam-
keppnin og hugsanlegir hags-
munaaðilar; US Airways og Delta
komu inn, sama gerði US Postal
Service, Pentagon komu inn og
einnig mátti sjá tryggingafélög
auk auðvitað þúsunda frétta-
þyrstra aðstandenda farþeganna í
vélinni.
Hitt dæmið er einfaldara og
sýnir kannski tækifæri sem við
áttum í brjálæðinu við fall bank-
anna. Íslenskir bílasalar, sem sátu
uppi með gríðarlegan lager lúx-
usbíla þegar allar aðstæður
breyttust í einu vetfangi, fengu þá
hugmynd að flytja bíla út frá Ís-
landi. Gengið var hátt og verðið í
íslenskum krónum hagkvæmt. Í
október fékk Icenews nálægt tvö
hundruð þúsund heimsóknir, að-
allega vegna frétta um fjármála-
ástandið. Frétt sem skrifuð var
um bílasöluna fékk þó nær fimm
þúsund heimsóknir, þar af töluvert
frá fjölmiðlum og þá sérstaklega
finnskum og sænskum. Tele2 í
Svíþjóð fjölluðu um málið og þeir
sem lásu fréttina komu frá SKY,
Reuters, Bloomberg og TV2 Nor-
egi og meðal hagsmunaaðila sem
komu mátti sjá Renault, Ford,
Volvo, Danske Bank, SpareBank
and Lehman Brothers. Flest gerð-
ist þetta á innan við sólarhring.
Dæmin tvö hér að ofan eru ekki
einsdæmi og rannsóknir okkar,
sem ekki hefur tekist að ljúka að
fullu vegna þess gríðarlega gagna-
magns sem safnast hefur, sýna að
það er ákveðið hegðunarmynstur í
notkun blaðamanna og hags-
munaaðila á Internetinu við
gagnaöflun. Rannsóknin gefur ein-
staka innsýn inn í það hvernig
þjóð eins og Ísland getur notað
Internetið við að koma á framfæri
sjónarmiðum sínum og hagsmuna-
málum og með því haft áhrif á þá
umfjöllun sem landið fær og/eða
sjónarmið almennings annarra
landa.
Í sumar hefur nemandi við
þýska háskólann Hochschule
Kempten í samvinnu við Nordic
eMarketing og Icenews tekið sam-
an ýmis gögn með áherslu á efna-
hagshrun landsins þar sem farið
er yfir hlutverk Internetsins í
málinu. Þetta er mjög áhugaverð
lesning, en sýnir þó aðeins hluta
þess sem þarf að skoða. Hefur
Nordic eMarketing nú leitað til
bandaríska ráðgjafarfyrirtækisins
Enquiro eftir frekari stuðningi við
áframhaldandi rannsóknir, enda
tækifærið einstakt.
Viðbrögð blaðamanna og hagsmuna-
aðila erlendis vegna bankahrunsins
Eftir Kristján Má
Hauksson »Heimsóknir á frétta-
veituna Icenews.is
tuttugufölduðust á viku
við fall bankanna. Nokk-
ur þúsund heimsóknir
urðu nær tvö hundruð
þúsund.
Kristjan Már Hauksson
Höfundur er ráðgjafi.
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100