Morgunblaðið - 04.09.2009, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.09.2009, Blaðsíða 18
18 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2009 Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is ALLS mega 133 Írakar, sem leitað höfðu hælis í Danmörku, búast við að verða sendir aftur til heimalandsins og að sögn Politiken hafa margir þeirra nú farið í felur. 17 hælisleit- endur, sem vísað var frá Danmörku og héldu til á alþjóðaflugvellinum við Bagdad í fyrrinótt af ótta við hand- töku, héldu í gær til norðursvæðanna í Írak. Þar ætla þeir að sögn að reyna að fela sig með aðstoð fjölskyldu og vina. Alls voru 22 Írakar fluttir frá Dan- mörku á miðvikudag en náðst hafði samkomulag um flutningana við stjórnvöld í Írak. Fimm Írakanna voru hins vegar handteknir eftir að danskir fylgdarmenn þeirra voru farnir. Lögfræðingur nokkurra Íraka í Danmörku, Kåre Traberg Smith, taldi í gær ástæðulaust að óttast handtökuna um of. Sennilega væri um það að ræða að verið væri að fara yfir pappíra umræddra manna og þeim yrði síðan sleppt. Brottvísunin hefur vakið harðar deilur í Danmörku, efnt hefur verið til mótmæla við stjórnarbyggingar. Ríkisstjórn Venstre og Íhaldsflokks- ins er sökuð um að beita nauðung- arflutningum til að losna við fólk sem verði lífshættu í sínu gamla heima- landi. Sumir Írakarnir hafa dvalið ár- um saman í Danmörku. Danski þjóð- arflokkurinn veitir ríkisstjórninni stuðning á þingi. En stjórnarflokk- arnir tveir saka hins vegar stjórn- arandstöðu jafnaðarmanna og Sósíal- íska þjóðarflokksins um að leika tveim skjöldum. Annars vegar vilji þeir ekki breyta landslögum sem ver- ið sé að framfylgja en reyni síðan að grafa undan sömu lögum með því að hvetja til að allir Írakarnir fái hæli. Danska ríkislögreglan segir að núna séu 12 Írakar í Ellebæk- fangelsinu fyrir hælisleitendur og bíði þess að verða sendir til Íraks. Fjölskyldum sé ekki sundrað Tvo að auki í fangelsinu var ekki hægt að senda á miðvikudag vegna þess að stjórnvöld í Bagdad hafa krafist þess að fjölskyldum sé ekki sundrað í flutningunum. Þær verði að fara saman til heimalandsins, að sögn Birthe Rønn Hornbech, ráð- herra aðlögunarmála. Konur og börn, sem tengjast umræddum tveim mönnum, eru þegar farin í felur, að sögn danskra fjölmiðla. Lögmaðurinn Kåre Traberg Smith gagnrýnir harkalega aðgerðir danskra stjórnvalda og segir að menn hafi flýtt sér um of við að af- greiða mál fólksins. Fullyrðir hann m.a. að málsmeðferð hafi enn verið í gangi. Ekki hafi verið orðið við ósk hans um frest vegna þeirra sem var ákveðið að vísa á brott. Rønn Hornbech vísar á bug kröf- um samtakanna Kirkjugriða, sem hafa unnið fyrir Írakana, um að flest- ir eða allir Írakarnir sem hafa fengið nei við beiðni um hæli ættu í reynd að fá landvist. „Ég hef ástæðu til að ætla að þeir sem sendir voru á brott í dag [miðvikudag] hafi þegar fengið neit- un við beiðni um landvist af mann- úðarástæðum,“ segir hún og bendir á að mál allra Írakanna hafi þegar fengið formlega umfjöllun. Senda fleiri á brott  Dönsk stjórnvöld ætla að senda alls yfir 130 Íraka aftur til heimalandsins  Segja mál hælisleitenda fá vandlega afgreiðslu áður en gripið sé til þessa ráðs Reuters Ótryggt Aftöku einræðisherrans Saddams Husseins fagnað í héraðinu Najaf í Írak árið 2007. Þótt árásum og tilræðum hafi fækkað mjög í landinu á þessu ári fer því fjarri að ástand öryggismála sé komið í viðunandi horf. Fjöldi manna telur sig eiga einhverjum grátt að gjalda og ekki er skortur á vopnum. ÍRANSKA þingið samþykkti í gær Marzieh Vahid Dastjerdi sem heilbrigðis- ráðherra og er hún fyrsti kven- ráðherrann í 30 ára sögu ísl- amska lýðveld- isins. Dastjerdi var meðal 18 ráðherra sem tóku sæti í ríkisstjórn Mahmouds Ahmad- inejads forseta. Hún er sögð hörð íhaldskona sem m.a. hefur barist fyrir aðskildu heilbrigðiskerfi fyrir karla og konur. jmv@mbl.is Fyrsti íranski kvenráðherrann Marzieh Vahid Da- stjerdi FEITUR matur er ekki eina ástæða þess að við fitnum. Danskir vís- indamenn reyna nú að útskýra mik- inn leyndardóm: Hvernig stendur á því að dönsk börn fædd 1942 og 1971 urðu allt í einu feit? Skýrslur sýna að hlutfall feitra barna í 6. bekk hélst svipað þar til kom að ’42 árganginum. Þá varð hlufall feitra barna tíu sinnum hærra en áður. Þetta var fyrir skyndibitabylt- inguna svo hvorki var drukkið kók né innbyrtir borgarar. Þyngd barna verður svo eðlileg á ný í 20 ár þar til tveir árgangar, 1971 og ’72 verða áberandi þungir án augljósra ástæðna. Vísindamenn klóra sér nú í höfð- inu og skoða m.a. áhrif af brjósta- gjöfum mæðra. En engin haldbær svör hafa fundist enn. „Ef einhver hefur tillögu viljum við gjarnan heyra hana,“ segir Thorkild I.A. Sørensen, prófessor í klínískri far- aldsfræði við Kaupmannahafnarhá- skóla. Hvað gerðist eig- inlega árið 1942? DREGIÐ hefur stórlega úr skógar- eyðingu í Brasilíu og hún hefur ekki verið minni í rúma tvo áratugi, að sögn Carlos Minc, umhverf- isráðherra landsins. Minc segir að áætlað sé að skóg- areyðingin hafi minnkað um 46% á einu ári frá júlí í fyrra. Hann rekur þetta einkum til herts eftirlits yf- irvalda með regnskógunum. Stjórn Brasilíu hafði lofað að minnka skógareyðinguna um helming á tíu árum. bogi@mbl.is Segir að hægt hafi á skógareyðingu FRÉTTASKÝRING Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is Í SUMUM löndum haldast völdin í sömu fjöl- skyldunni mann fram af manni og Afríkuríkið Gabon er enn eitt dæmið um það eftir að Ali Bongo var lýstur sigurvegari umdeildra for- setakosninga sem fram fóru um helgina. Sumir Gabonar kalla hann Ali B en hann hef- ur einnig verið uppnefndur „herra Sonur“ (eða „Monsieur Fils“) til heiðurs föður sínum, ein- ræðisherranum Omar Bongo Odimba, sem stjórnaði landinu í 41 ár þar til hann lést í júní. Omar Bongo varð einn af auðugustu mönn- um heims og Frakkar, fyrrverandi nýlendu- herrar Gabons, voru sakaðir um að halda verndarhendi yfir honum til að tryggja eigin viðskiptahagsmuni þrátt fyrir ásakanir um að hann hefði gerst sekur um gegndarlausa spill- ingu og kosningasvik. Í Gabon er stór frönsk herstöð og um 120 frönsk fyrirtæki starfa í landinu, þeirra á með- al olíurisinn Total. Um 10.000 Frakkar búa í Gabon. Mikil fátækt þrátt fyrir auðlindir Þótt íbúar Gabons séu aðeins um ein og hálf milljón er landið mjög mikilvægur hlekkur í viðskiptaveldi Frakka í fyrrverandi nýlendum þeirra í Afríku. Gabon er fjórði mesti olíufram- leiðandi Afríku sunnan Sahara og næstmesti timburútflytjandi álfunnar. Þrátt fyrir auð- lindirnar er fátækt landlæg í Gabon, um 60% íbúanna eru undir fátæktarmörkum. Bongo-fjölskyldan hefur verið sökuð um að hafa stjórnað landinu eins og það væri einka- fyrirtæki í eigu hennar. Einræðisherrann fyrr- verandi stórauðgaðist og keypti tugi glæsihúsa í Frakklandi. Hann var sakaður um að hafa sól- undað opinberu fé í hégómleg verkefni á borð við marmaraforsetahöll og lítt notaðar járn- brautir í stað þess að leggja vegi sem miklu meiri þörf er fyrir. Tryggði sér stuðning hersins Ali Bongo fæddist 9. febrúar 1959 í kong- ósku borginni Brazaville þegar faðir hans gegndi þar herþjónustu í franskri herstöð. Móðir hans, Patience Dabany, var söngkona og flutti til Bandaríkjanna eftir að hún skildi við einræðisherrann, um 20 árum eftir að hann komst til valda. Ali B fékkst við tónlist á yngri árum sínum og gaf jafnvel út plötu, „A Brand New Man“ (Splunkunýr maður), árið 1977 með aðstoð fyrrverandi umboðsmanns bandaríska soul- söngvarans James Brown. Ali Bongo var gerður að utanríkisráðherra í ágúst 1989, þegar hann var þrítugur. Faðir hans gerði hann síðan að varnarmálaráðherra tíu árum síðar. Hann gegndi því embætti þar til einræðisherrann lést – nógu lengi til að tryggja sér stuðning hersins eftir forsetakosn- ingarnar umdeildu. Ali B tekur við af föður sínum  Deilt um valdatöku sonar nýlátins einræðisherra Gabons sem var við völd í rúma fjóra áratugi  Faðirinn sakaður um spillingu og fjársóun undir verndarvæng Frakka, gömlu nýlenduherranna Herra Sonur Ali Bongo og stuðningsmenn hans eru sakaðir um kosningasvik. Í HNOTSKURN » Óeirðir blossuðu upp í stærstu borg-um Gabons í gær eftir að tilkynnt var að Ali Bongo hefði sigrað í forseta- kosningum með 42% atkvæða. » Tveir helstu keppnautar hans fengu25% hvor, samkvæmt opinberum kjörtölum, og sökuðu Bongo-fjölskyld- una um kosningasvik. » Frönsk stjórnvöld, sem eru sökuðum að hafa stutt Bongo, hvöttu alla Frakka í Gabon til að halda kyrru fyrir heima hjá sér vegna óeirðanna. SUMT af fólkinu sem sent hefur verið aftur til Íraks á ættingja í Norður-Írak en þorir ekki að hafa samband við fólkið. Það sagði að starfsmenn í flughöfninni í Bag- dad hefðu talið hættulegt fyrir það að fara inn í borgina. „Það er vígahópur hér í Írak sem sækist eftir lífi mínu svo að ég er hræddur við að segja nokkrum hér frá því að ég sé kominn,“ sagði einn Írakanna, Shalaw Mohamed, sem er 25 ára. „Ég er hræddur um mitt eigið líf en ég er líka hræddur við það sem getur komið fyrir fjöl- skyldu mína og vini ef þau hjálpa mér. Þeir [vígamennirnir] hafa áð- ur drepið ættingja mína.“ „Sækist eftir lífi mínu“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.