Morgunblaðið - 04.09.2009, Side 42

Morgunblaðið - 04.09.2009, Side 42
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2009 Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Þetta er ein af bænunum sem amma kenndi mér þegar ég var lítil stelpa, en sem barn dvaldi ég nokk- ur sumur fyrir vestan hjá ömmu og afa á Suðureyri. Þar var margt brallað og mjög ljúft að fá að dvelja hjá þeim. Amma var alltaf eitthvað að stússast, ýmist að steikja klein- ur, baka eða elda. Hún var líka mikil hannyrðarkona og lét það ekkert á sig fá þótt hún hafi misst framan af nokkrum fingrum í slysi fyrir mörgum árum síðan. Hún var alltaf prjónandi eða föndrandi á meðan sjónin leyfði. Höfum við barnabörnin og síðan langömmu- börnin notið góðs af því, það var gott að fá prjónaða ullarsokka, vett- linga, trefla og húfur frá ömmu. Ég vona að ég verði einhvern tímann jafn myndarleg í höndunum og hún amma. Amma hafði gaman af ferðalög- um og ferðuðust þau afi mikið um landið. Fékk ég að fara með í nokkrar ferðir með þeim. Í þessum ferðum þá var ekkert verið að stoppa í einhverri vegasjoppu til að fá sér hamborgara, nei, amma var ávallt búin að smyrja nesti og síðan var stoppað einhversstaðar á leið- inni, fundin fín laut, breytt út teppi og nestið borðað. Mér eru líka minnisstæðar allar sumarbústaða- ferðirnar sem farnar voru með stór- fjölskyldunni í Húsafell og Mun- aðarnes, amma alltaf búin að baka kræsingar til að hafa meðferðis. Það var ætíð gaman þegar amma og afi komu suður í frí og dvöldu hjá okkur. Amma alltaf til í að spila við okkur systkinin og hafði hún einstaka þolinmæði við að kenna okkur að spila, við til að byrja með ekki há í loftinu. Árið 1993 fluttu amma og afi að vestan á Sólvangs- veginn í Hafnarfirði og bjuggu þau þar allt þar til þau fluttu á Hrafn- istu fyrir rúmum 2 árum síðan. Mér þykir mjög vænt um að amma hafi náð að lifa það að sjá frumburð minn, hann Áka Val. Það var ljúft að sjá hana kyssa hann og knúsa. Ég mun fara með og kenna syni mínum bænirnar sem hún amma mín kenndi mér. Hafðu þökk fyrir allt, elsku amma. Þín, Alma. Elsku amma Finney hefur nú fengið hvíldina. Ég á ótal margar góðar minn- ingar um ömmu Súg, eins og ég kallaði hana svo lengi, sem ylja hjartanu og vekja þær margar bros þó ég sakni hennar mikið. Taktarnir hennar eins og hvernig hún blikkaði mann, glotti og nikkaði í mann þegar hún var að stríða eða atast í afa eða einhverjum öðrum og hvernig hún lyfti enninu óra- langt þegar hún var að velta ein- hverju fyrir sér. Hún var svo hlý og svo ótrúlega mjúk. Aldrei man ég eftir að hafa séð ömmu reiða. Hún var alltaf svo ró- leg og yfirveguð að dást má að. Hún var líka ótrúlega fær og þó hún hafi misst af fingrunum lét hún það ekki stoppa sig og var ótrúlega klár og fjölhæf handverkskona. Hún heklaði, prjónaði og saumaði út í margskonar skraut. Ég nýt Finney Árnadóttir ✝ Finney Árnadótt-ir fæddist á Sæ- bóli í Aðalvík 8. jan- úar 1919. Hún lést á Dvalarheimilinu Hrafnistu í Hafn- arfirði 13. ágúst sl. og var jarðsungin frá Víðistaðakirkju 24. ágúst. Meira: mbl.is/minningar góðs af því og hef án efa erft eitthvað af handavinnugenunum hennar. Hún sat með mér góða stund fyrir nokkrum árum inni í herbergi á Sólvangs- vegi. Hún gaf af sér mikla þolinmæði í að kenna mér að hekla teppi eins og hún gerði ótal mörg því ég var ekki alveg að skilja þetta strax en það hafðist þó. Þessi stund er mér ómetanleg og ég geymi vel minninguna í hjartanu mínu. Mín teppi verða þó seint jafn falleg og hennar. Minningarnar um ömmu eru ótal fleiri og renna ljúfar í gegnum hug- ann á meðan tárin falla við hugs- unina um hana. Hvíldu í friði, elsku amma Súg. Takk fyrir allt og allt. Þú hefur án efa fengið far í fal- legum gullvagni þegar þú fékkst friðinn. Gullvagni líkum þessum sem sungið er um í laginu sem þér þótti svo fallegt. Ég bið þig, sendu nú vagninn þinn að sækja mig. Já, herra, sendu nú gullvagninn að sækja mig. Gættu mín, geymdu mig, gefðu mér friðinn. Langt hef ég farið og mig langar heim. (J.F. Guðnason.) Guð geymi þig. Þín, Rakel. Þegar leiðir skiljast finn ég fyrir djúpu þakklæti að hafa átt þig að ömmu. Ég á sterkar minningarnar um þig úr barnæsku minni. Sér- staklega úr eldhúsinu á Eyrargöt- unni heima á Suðureyri. Og þegar ég loka augunum finnst mér varla lengra en í gær að ég sat við borðið og stuttir fæturnir dingluðu undir stólnum og þú komst með mjólk- urglas og kleinur til mín. Og út um gluggann sá ég mávana fyrir utan í harðri baráttu og ég hrósaði happi meðan þú gafst í einn rakka. Þú hafðir allt sem prýddi góða ömmu, hlýleika og stríðnislegt bros og það varð enginn svekktur á því að kom- ast í veitingarnar þínar. Það voru ófáir sunnudagarnir eftir að við fluttum öll suður sem við pabbi komum í heimsókn til þín og Guðna afa á Sólvangsveginn. Þetta varð að ómissandi þætti í lífi mínu sem mér þykir vænt um í dag þegar þú og pabbi eruð bæði búin að kveðja þennan heim. Ég kveð þig að sinni amma mín og ég veit að þú og pabbi hafið hist á ný. Heimsins þegar hjaðnar rós og hjartað klökknar. Jesús gefðu mér eilíft ljós sem aldrei slökknar. (Höf. ókunnur.) Þín „nabba“ Finney Rakel Árnadóttir. Á kveðjustund hef ég margt að þakka þér, þakka allt hið góða er sýndir mér. Þökk fyrir samleið þína og hreina dyggð, þakka fasta vináttu og tryggð. (Höf. ók.) Þegar ég kveð mína kæru vin- konu, Finneyju Árnadóttur, vil ég sérstaklega þakka henni árin sem við áttum saman á Eyrargötu 4 í Súgandafirði. Við á efri hæðinni hefðum ekki getað átt betra sam- býlisfólk en þau hjónin. Vinátta þeirra og greiðasemi var ómetanleg og áttu yngri dætur mínar alltaf at- hvarf hjá þeim. Finney var ein- staklega hlý og góð kona, sannur vinur vina sinna. Hún var ljúf og já- kvæð og með hátterni sínu sýndi hún umhverfinu og því fólki sem hún umgekkst ætíð fyllstu virðingu. Hún var kona sem gott var að hafa nálægt sér. Gull er það sem býr í góðu hjarta, gull er það sem mildu augun skarta, gull er mannsins gæfa, mikill sjóður, gull er barnsins ljúfa hjal við móður. Gullið skín við handtak góðra vina, gull er þegar huggun sorg vill lina, gull er þegar góður dagur kveður, gull er það sem hug og anda seður. (Sigurjón Ari Sigurjónsson.) Við Þórhallur og fjölskylda okkar sendum fjölskyldu Finneyjar okkar dýpstu samúðarkveðjur. Sigrún Sturludóttir. Það er bjart yfir Súgandafirði í dag. Fjöllin skarta sínu fegursta og fjörðurinn spegilsléttur. Staðardal- ur angar af síðsumarsgróðri. Nú mætti sannarlega taka sér hrífu í hönd. Já það er líka mikil birta yfir minningunum um hana vinkonu mína Finneyju eða Finnu eins og faðir minn kallaði hana gjarnan. Var hún gift Guðna bróður hans, þeim einstaka ljúflingi. Og hún Fin- ney tók sér sannarlega hrífu í hönd ef hjálpa þurfti jafnt í eiginlegri sem óeiginlegri merkingu. Ófá voru sporin sem hún átti fyrir Spilli til að leggja hönd á plóg. Á vorin voru þær amma Jóna ómissandi við rún- inguna. Þá var nú fjörið í réttunum og í hvíta tjaldinu sem jafnan var sett upp. Amma Jóna með sína léttu lund stóð við prímusinn og jós upp kakóinu og bakkelsið bráðnaði í munni er Finney og mamma lögð- ust á eitt. Síðan þurfti að þvo ullina í hlóðarpotti við Undirtúnslækinn. Og þá var það hrífan og heyskap- urinn, sérstaklega engjaheyskapur- inn sem þurfti meiri mannskap. Og oftast var Finney mætt, oft með hala með sér. Oft kom hún með kaffibrauð og þóttu kleinurnar hennar listagóðar. Já, það lék allt í höndunum á henni og hjálpsemin var einstök. Þær amma Jóna bjuggu í sama húsi og eftir því sem börnunum fjölgaði hjá yngri kon- unni flugu hin úr hreiðrinu. En það var oft setinn Svarfaðardalurinn og á fárra færi að búa við þessar að- stæður en það tókst þeim frábær- lega vel. Var heimilið að Eyrargötu 17 ein- stæður griðastaður allra sem þang- að leituðu, ungra sem aldinna. Og öll sú aðstoð sem þær veittu Stað- arbúinu er ómetanleg, en þar var jafnan miðstöð mjólkurpóstanna. Það var sama hvort flutt væri á klakk í klakabrynju vetrarins eða á hestakerru sumarblíðunnar. Alltaf fengu mjólkurpóstarnir einstaka aðhlynningu og aðstoð við að skipta niður mjólkinni og þvo brúsana. Þannig hélst það fram eftir öllu, löngu eftir að gamli Land Roverinn kom til sögunnar. Og þegar við börnin fórum burtu í skóla var það sama hvort við kæmum köld og hrakin úr póstbátnum eða kviðum fyrir margra mánaða aðskilnaði, alltaf var það jafn notalegt að koma að Eyrargötu 17. Þegar ég byrjaði að vinna var ég í fæði hjá Finneyju og eins naut ég hennar vel þegar ég stúlkukind sá um ókunnugt heimili í smátíma. Gaf hún mér mörg góð ráð og laumaði að mér kökum. Já, það var alltaf mjög hlýtt á milli Staðar og Eyrargötunnar, jafnt í gleði sem sorg en bæði heimilin urðu fyrir þeirri þungbæru reynslu, með stuttu millibili, að missa lítinn sól- argeisla. Á þannig stundum er ómetanlegt að eiga góða að. Já, Finney mín, ekki var síðri hjálp- semi þín við andlát og útför for- eldra minna. Ég veit ekki hvernig ég hefði annars farið að. Þá var nú allt bakað heima og mjög fjölmennt í bæði skiptin. Fæ ég aldrei full- þakkað þína hjálp við mig og mína. Elsku Guðni frændi, það var allt- af jafn yndislegt að sækja ykkur heim, bæði fyrr og síðar. Það er mikil Guðsgjöf að fá að lifa svona langa og gifturíka ævi saman og gefur okkur hinum trú á hið fagra í lífinu. Guð geymi þig og alla ykkar afkomendur. Ykkar Þóra. V i n n i n g a s k r á 18. útdráttur 3. september 2009 A ð a l v i n n i n g u r Kr. 3.000.000 kr. 6.000.000 (tvöfaldur) 5 0 8 9 1 V i n n i n g u r Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) 6 9 4 8 2 4 9 6 9 7 5 0 6 2 7 7 2 4 6 V i n n i n g u r Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 720 16107 19201 22021 46784 56600 13178 19027 20808 35677 55468 71817 V i n n i n g u r Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur) 3 4 4 1 2 3 7 7 2 4 6 5 6 3 5 2 3 4 4 6 0 7 7 5 3 4 4 5 6 3 3 1 6 7 0 4 5 2 7 2 9 1 4 0 6 6 2 4 6 7 2 3 5 8 9 6 4 6 5 2 0 5 3 9 2 5 6 3 8 6 1 7 1 0 0 3 3 0 7 9 1 6 2 0 0 2 6 9 9 5 3 6 2 0 9 4 7 1 0 9 5 3 9 5 5 6 3 8 8 9 7 3 4 1 1 3 4 0 5 1 6 7 7 4 2 7 4 0 8 3 6 2 2 3 4 7 8 1 2 5 5 9 9 1 6 5 1 8 7 7 6 7 6 1 5 2 3 9 1 9 8 3 0 2 8 0 0 4 3 7 3 8 9 4 8 0 6 9 5 6 9 4 7 6 5 7 5 6 7 7 1 3 1 5 7 8 4 2 0 4 8 5 3 1 2 9 4 3 7 8 7 5 4 9 0 2 0 5 7 2 8 1 6 7 0 5 2 7 7 5 0 2 5 9 4 5 2 2 8 3 9 3 1 4 6 2 3 9 2 3 5 5 0 1 2 8 5 9 0 8 9 6 7 1 9 5 7 8 0 3 5 6 0 7 1 2 2 9 6 8 3 2 1 2 5 4 1 7 8 7 5 0 4 9 9 5 9 2 4 4 6 7 2 8 8 7 8 3 9 3 6 2 3 6 2 3 0 4 9 3 2 3 0 2 4 2 0 1 8 5 1 7 4 4 5 9 5 2 7 6 7 2 9 7 7 9 0 7 1 6 2 9 0 2 3 5 6 5 3 2 5 9 8 4 2 8 0 5 5 2 1 2 2 6 0 5 1 9 6 7 3 7 0 6 7 4 5 2 3 7 2 1 3 3 6 0 1 4 4 2 6 3 5 2 3 2 7 6 1 2 2 6 6 8 0 7 1 1 0 7 6 8 2 4 2 0 6 3 4 6 7 0 4 4 9 1 5 5 2 9 5 2 6 1 6 1 9 6 8 7 4 2 1 1 5 9 3 2 4 2 7 4 3 5 0 6 9 4 6 0 7 3 5 3 4 2 6 6 2 2 9 6 6 9 2 9 1 V i n n i n g u r Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur) 5 3 9 9 0 3 1 9 0 6 8 2 8 3 1 3 4 4 0 4 8 5 4 3 3 2 6 5 1 4 5 7 3 1 0 0 5 9 0 1 0 6 4 8 1 9 8 7 3 2 9 4 1 6 4 4 3 2 4 5 4 7 8 2 6 5 1 7 6 7 3 3 9 3 5 9 2 1 0 9 5 7 1 9 9 8 3 3 0 0 3 6 4 4 5 8 0 5 4 9 5 0 6 5 3 5 0 7 3 5 7 7 7 4 2 1 1 3 0 6 2 0 0 3 7 3 0 1 0 8 4 5 2 4 8 5 5 3 6 8 6 5 8 9 2 7 4 2 4 2 8 1 4 1 1 4 0 9 2 0 1 6 0 3 0 2 8 5 4 5 4 0 3 5 5 8 1 0 6 6 0 0 4 7 4 2 6 2 1 3 1 5 1 1 4 6 4 2 0 6 9 5 3 0 5 9 0 4 6 9 0 8 5 6 0 5 6 6 6 1 4 3 7 4 8 8 0 1 4 9 1 1 1 9 9 9 2 0 8 4 9 3 1 2 1 0 4 6 9 1 4 5 6 6 3 4 6 6 2 8 6 7 6 0 3 9 1 5 0 9 1 2 2 0 6 2 0 9 6 4 3 1 8 6 3 4 6 9 1 9 5 6 6 9 7 6 6 6 5 2 7 6 1 5 6 1 7 1 2 1 2 3 3 5 2 1 7 2 5 3 2 4 9 7 4 7 0 8 4 5 6 9 9 5 6 7 1 7 8 7 6 5 9 3 1 7 3 7 1 2 8 1 5 2 2 2 0 7 3 2 8 0 7 4 7 1 7 1 5 7 0 2 4 6 7 2 3 9 7 6 6 2 8 1 8 2 5 1 3 0 4 3 2 2 2 5 5 3 3 3 6 9 4 7 5 2 8 5 7 1 3 3 6 7 4 0 6 7 6 6 7 3 2 1 5 9 1 3 1 9 0 2 2 2 5 9 3 3 4 9 9 4 7 9 3 7 5 8 4 5 9 6 7 4 4 5 7 7 2 1 1 2 1 8 6 1 3 6 5 4 2 2 2 8 2 3 4 4 8 8 4 8 1 5 2 5 8 4 7 8 6 7 7 4 9 7 7 2 3 5 2 1 9 7 1 3 8 8 3 2 3 0 9 4 3 4 8 1 2 4 8 5 3 4 5 8 6 5 7 6 7 9 5 7 7 7 2 7 5 2 5 8 2 1 4 1 1 5 2 4 0 6 2 3 4 9 7 7 4 8 7 5 9 5 8 8 3 7 6 8 0 3 5 7 7 5 3 6 3 3 0 0 1 4 1 5 4 2 4 4 1 2 3 5 2 5 5 4 9 2 8 9 5 8 8 4 9 6 8 1 0 1 7 7 6 1 6 3 4 9 1 1 4 3 5 4 2 4 9 3 2 3 5 4 4 7 4 9 2 9 0 5 9 2 1 3 6 8 1 7 2 7 7 9 0 6 3 5 0 1 1 4 4 2 3 2 5 2 0 7 3 6 0 3 5 4 9 6 0 9 5 9 2 2 3 6 8 3 4 4 7 7 9 7 3 3 5 0 9 1 4 6 9 0 2 5 4 6 4 3 6 6 7 9 5 0 1 1 9 5 9 5 6 3 6 8 6 7 7 7 8 1 2 7 3 5 3 4 1 5 0 3 9 2 5 5 2 1 3 6 7 1 6 5 0 2 3 0 5 9 9 5 2 6 8 9 7 3 7 8 1 3 7 3 6 7 2 1 5 3 1 1 2 5 7 9 5 3 6 9 1 9 5 0 8 2 1 6 0 0 4 1 6 9 0 8 4 7 8 1 4 5 3 9 0 1 1 5 6 9 0 2 5 8 6 1 3 8 1 3 9 5 0 9 5 4 6 0 6 9 8 6 9 1 3 6 7 8 5 9 1 4 1 8 6 1 5 8 2 5 2 6 0 6 3 3 8 5 6 6 5 1 0 4 5 6 0 8 8 8 6 9 6 7 8 7 8 9 3 3 4 5 0 2 1 6 0 5 0 2 6 3 4 7 3 8 8 4 1 5 1 4 3 9 6 1 9 5 4 7 0 4 2 0 7 9 3 3 5 4 6 5 2 1 7 2 9 4 2 6 4 1 7 3 8 8 6 7 5 1 4 4 3 6 2 0 6 7 7 0 5 1 1 7 9 4 1 3 4 7 6 3 1 7 6 3 7 2 7 0 0 5 3 8 9 0 9 5 1 9 9 2 6 2 5 1 9 7 1 0 8 5 7 9 4 9 2 4 9 5 8 1 7 9 5 6 2 7 1 1 0 4 0 3 9 8 5 2 7 3 6 6 2 8 3 5 7 1 3 2 7 5 0 8 4 1 8 5 8 9 2 7 1 3 3 4 0 5 7 3 5 3 1 8 7 6 3 9 0 3 7 1 7 1 9 6 8 8 3 1 8 7 8 3 2 7 2 6 3 4 1 0 8 8 5 3 5 9 2 6 4 2 3 6 7 1 9 7 7 7 1 6 5 1 8 9 0 2 2 7 4 7 0 4 1 3 9 3 5 3 7 7 9 6 4 5 3 5 7 2 4 0 8 8 2 5 2 1 8 9 3 7 2 8 1 7 3 4 2 1 3 8 5 3 8 4 8 6 4 5 3 7 7 2 4 3 3 8 7 7 9 1 9 0 0 7 2 8 1 8 4 4 2 6 7 6 5 4 0 4 7 6 4 8 9 5 7 2 9 6 7 Næstu útdrættir fara fram 10. sept, 17. sept, 24. sept & 1. okt 2009 Heimasíða á Interneti: www.das. AÐ SKRIFA MINNINGARGREIN Sami skilafrestur er á greinum vegna útfara í kyrrþey. Minningargreinar sem berast blaðinu innan tilskilins frests verða birtar í blaðinu. Leitast verður við að birta þær á útfarardegi eða sem næst þeim degi.Hvemargar greinar birtast í blaðinu á útfarardegi viðkomandi, ræðst af stærð blaðsins hverju sinni. Minningargreinar, sem berast eftir tilskilinn frest eða útfarardag, verða eingöngu birtar á vefnum á www.mbl.is/minningar. Tilvísun á vefslóðina verður í greinum eða æviágripi sem birtast í blaðinu. Netgreinarnar eru öllum opnar. Þeim, sem vilja fá birta minningargreinar í Morgunblaðinu, er bent á að skilafrestur til birtingar í blaðinu er á hádegi tveimur virkum dögum fyrir útfarardag, þ.e.: Birtingardagur Skilatími Mánudagsblað Hádegi föstudag Þriðjudagsblað Hádegi föstudag Miðvikudagsblað Hádegi mánudag Fimmtudagsblað Hádegi þriðjudag Föstudagsblað Hádegi miðvikudag Laugardagsblað Hádegi fimmtudag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.