Morgunblaðið - 04.09.2009, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 04.09.2009, Blaðsíða 51
Eitt af markmiðum Victoriu Beckham eft-ir að ferli hennar sem Kryddpíu laukvar að koma sér áfram í tískuheiminum ... eða eftir að ljóst varð að hún yrði ekki stór- stjarna sem sólósöngkona eða leikkona. Hún hefur mjakað sér áfram í tískubrans- anum í mörg ár, orðspor hennar hefur stöðugt vaxið og hún þykir nú hafa meiri áhrif á það sem er í tísku en flestar aðrar konur. Nú er svo komið að hennar eigin hönnun er farin að vekja verulega athygli. Haustlína Beckham kom í búðir nýverið og við hönnun línunnar voru lykilorð Beckham: nútímalegt, munaður og vinnudagur. Nið- urstaðan á að vera föt fyrir flottustu of- urmömmur á jörðinni, föt fyrir vinnandi mæð- ur.    Fötin hafa fengið fína dóma hjá tískutopp-unum og stjörnur eins og Elle Macpher- son, Katherine Jenkins og Dannii Minogue hafa sést klæðast þeim. Beckham er þó sinn helsti aðdáandi og sést varla öðruvísi en uppáklædd í eigin hönnun. Enda eru fötin sniðin á hana; níð- þröngir, látlausir kjólar sem ná niður fyrir hné. Beckham segir sjálf að með hönnun sinni sé hún að vernda kvenlegar línur, skapa sterkar, tímalausar og fallegar flíkur, sem séu vel gerð- ar og hagnýtar. „Ég eyði nánast öllum mínum tíma í að elta börnin um,“ segir hún um nota- gildi kjólanna og vísar þar til að þeir eigi að vera góðir hversdagslega, í vinnunni frá 9 til 5 eða við að elta börnin um í.    Því verður ekki neitað að kjólarnir eru fal-legir en ég sé ekki hvernig hún getur markaðssett þá sem föt fyrir vinnandi konur og uppteknar mæður. Beckham sannaði það sjálf um daginn þegar hún fór í verslunarleiðangur í einum kjóla sinna að þeir væru ekki það hent- ugir. Kjóllinn var það þröngur að hún átti mjög erfitt með að ganga upp tröppur í einni versl- uninni og auðvitað náðist það allt á filmu. Heftandi er það eina sem kemur upp í huga minn þegar nýja fatalínan er skoðuð. Með þess- ari hönnun og þessari markaðssetningu er frú Beckham að ýta undir ímyndina af fullkomnu súpermömmunni, ímynd sem konur vilja sár- lega uppfylla en eru að sligast undan.    Skoðanir á nýju línunni eru misjafnar, mörg-um finnst hún óspennandi en öðrum glæsi- leg. Flestir eru þó sammála um að markaðs- setning Beckham á fötunum sé kolröng, með því að segja þetta föt fyrir vinnandi konur og mæður sé hún að skapa sér enn frekari óvin- sældir hjá almúgakonunni. Með þessu geri hún sér augljóslega enga grein fyrir því hvernig líf venjulegra vinnandi kvenna er eða vöxtur þeirra. Þó Beckham segist vilja upphefja hið kvenlega form með kjólalínunni eru þeir engir vinir kvenlegra lína, svo þröngir að aðeins keppalausar mjónur eins og Victoria Beckham sjálf geta látið sjá sig í þeim. ingveldur@mbl.is Áhrifamikil en óraunsæ » Því verður ekki neitað aðkjólarnir eru fallegir en ég sé ekki hvernig hún get- ur markaðssett þá sem föt fyrir vinnandi konur og uppteknar mæður. AF LISTUM Ingveldur Geirsdóttir Vel klædd Frú Beckham í kjól úr eigin línu á ferðinni á dög- unum. Spurning hvort hún elti syni sína um í þessum hælum. 9 til 5 Myndir af kjólum úr nýrri línu Beckham sem birt- ust í V-tímaritinu á dögunum. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2009 44.000 manns í aðsókn! BYGGÐ Á METSÖLUBÓK STIEG LARSSON 42.000 manns í aðsókn! FRÁ LEIKSTJÓRA QUENTIN TARANTINO KEMUR HANS MAGNAÐASTA, VILLTASTA OG STÓRKOSTLEGASTA ÆVINTÝRI TIL ÞESSA. HHHHH - H.G.G, Poppland/Rás 2 HHHHH “Besta Tarantino-myndin síðan Pulp Fiction og klárlega ein af betri myndum ársins” T.V. - Kvikmyndir.is HHHHH “ein eftirminnilegasta mynd ársins og ein sú skemmtilegasta” S.V. - MBL HHHH „Gargandi snilld allt saman bara.“ Þ.Þ – DV VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG MARGRÉT LÁRA VIÐARSDÓTTIR GRÉTA MJÖLL SAMÚELS- DÓTTIR SARA BJÖRK GUNNARSDÓTTIR HÓLMFRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR EDDA GARÐARSDÓTTIR KATRÍN JÓNSDÓTTIR SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI Þú færð 5% endurgreitt í Smárabíó þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum! 50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGANUM SÝND Í SMÁRABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI HAS AR OG TÆK NIB REL LUR SEM ALD REI HAF A S ÉST ÁÐU R FRÁ LEIKSTJÓRA QUENTIN TARANTINO KEMUR HANS MAGNAÐASTA, VILLTASTA OG STÓRKOSTLEGASTA ÆVINTÝRI TIL ÞESSA. FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“ KEMUR EIN FLOTTASTA STÓRMYND SUMARSINS HHHHH „Besta Tarantino-myndin síðan Pulp Fiction og klárlega ein af betri myndum ársins“ T.V. - Kvikmyndir.is HHHHH - H.G.G, Poppland/Rás 2 HHHHH „ein eftirminnilegasta mynd ársins og ein sú skemmtilegasta” S.V. - MBL HHHH „Gargandi snilld allt saman bara.“ Þ.Þ – DV VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG „Á ÉG AÐ GÆTA SYSTUR MINNAR“ Magnað og blóðugt framhald af Halloween sem Rob Zombie færði okkur fyrir tveimur árum. Hinn stórhættulegi og snargeðveiki raðmorðingi Michael Myers heldur áfram að myrða fólk á hrottalegan hátt! Stranglega bönnuð innan 16 ára Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónumwww.laugarasbio.is -bara lúxus Sími 553 2075 Sýnd kl. 5:40 og 10:10 Sýnd kl. 8 Sýnd kl. 5:50, 8 og 10:10 Sýnd kl. 7 og 10 Halloween 2 kl. 5:45 - 8 -10:15 B.i.16 ára Ísöld 3 3-D (ísl. tal) kl. 3:45 LEYFÐ Inglorious Bastards kl. 5 - 8 - 11 B.i.16 ára Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 3:40 LEYFÐ Inglorious Bastards kl. 5 - 8 - 11 Lúxus Taking of Pelham 123 kl. 5:45 - 8 - 10:30 B.i.16 ára Karlar sem hata konur kl. 5 - 8 - 11 B.i.16 ára
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.