Morgunblaðið - 04.09.2009, Side 13
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2009
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur
sia@mbl.is
„VIÐ sem erum hérna samankomin
erum hópur fólks sem einhvern veg-
inn rataði saman í kringum þetta mál
eingöngu. Við viljum mótmæla fyrir-
hugaðri breytingu Vallarstrætis og
Ingólfstorgs,“ sagði Björn B. Björns-
son í upphafi blaðamannafundar sem
haldinn var í Fógetahúsinu í Aðal-
stræti 10 í gær.
Hugmyndir eru uppi um að færa
tvö gömul hús sem standa sunnan
megin við Ingólfstorg eina 17 metra
inn á torgið og byggja stórt hótel á
reitnum sem húsin standa á núna.
Borgarbúum gefst núna tækifæri,
til 11. september, til að gera athuga-
semdir við tillöguna á slóðinni skipu-
lag.is. „Tillagan er að okkar mati unn-
in út frá hagsmunum lóðareigenda
fyrst og fremst,“ hélt Björn áfram,
„en ekki út frá hagsmunum borgar-
búa.“ Við breytinguna mun Ingólfs-
torg minnka verulega, skuggavarp
verður af húsunum sem færast inn á
torgið auk þess sem fyrirhugað hótel
á að vera fimm hæðir. Björn sagði til-
löguna fela í sér óafturkræf spjöll á
borginni. „Ingólfstorg verður með
þessu skuggatorg, en við viljum hafa
sól á Ingólfstorgi,“ sagði hann.
Vallarstræti verður við breyt-
inguna afar þröngt þannig að þar
muni hvorki komast rútur né bílar.
„Sundið sem þar myndast hefur þeg-
ar fengið nafnið pissusund því allir
geta séð fyrir sér þá notkun á göt-
unni,“ sagði Björn.
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
GETUR fólksfækkun hjálpað Íslandi
út úr kreppunni? Þóroddur Bjarna-
son, prófessor við félagsvísindadeild
Háskólans á Akureyri, telur a.m.k.
nauðsynlegt að velta stöðu mála
gaumgæfilega fyrir sér áður en
skrattinn er málaður á vegginn.
Þóroddur hélt erindi á Félagsvís-
indatorgi HA í vikunni og benti þar
m.a. á að gengju svörtustu spár eftir,
um að 9,3% landsmanna flyttust á
brott – eins og gerðist í Færeyjum
þegar efnahagshrunið varð þar um
1990 – yrðu íbúar Íslands þrátt fyrir
allt jafn margir og þeir voru árið 2003.
Hverjir fara og hvers vegna?
„Það er hugsanlegt að fólksflutn-
ingar geti hjálpað okkur út úr krepp-
unni, en það sem skiptir mestu máli
er hvaða fólk fer og hvers vegna. Það
er sitt hvað þegar fólk hrekst úr landi
niðurbrotið eftir að hafa orðið gjald-
þrota og misst vinnuna eða að fólk
fari með því hugarfari að nú sé rétti
tíminn til þess að prófa eitthvað nýtt.
Að því finnist ný tækifæri gefast,“
segir Þóroddur.
Auðvitað yrði það vandamál ef
mjög fækkaði í tilteknum aldurshóp-
um eða starfsstéttum, segir hann en
nefnir að ekki megi gleyma því að Ís-
lendingar í útlöndum séu mikil auð-
lind, „og þeir sem kunna að flytja út
núna eru hluti af varaliðinu sem þjóð-
in á í útlöndum“.
Ekki stærsta vandamálið
Hann leggur áherslu á þá skoðun
sína að tími Vesturfaranna sé ekki
kominn aftur; ekki séu líkur á því að
fólk kveðji í stórum stíl og komi aldrei
aftur. „Ef og þegar ástandið lagast
munu marga leita aftur heim, auðvit-
að ekki allir, en margir. Mér finnst því
að menn verði að anda með nefinu og
velta hlutunum fyrir sér í rólegheit-
um. Fólksflutningar eru ekki stærsta
vandamálið sem við stöndum frammi
fyrir.“
Þóroddur dregur þó ekki dul á að
nauðsynlegt sé að fylgjast vel með
þróun mála, hverjir fari og hvers
vegna. Vandræði geti vitaskuld skap-
ast, t.d. á fasteignamarkaði, þar sem
verð á húsnæði geti lækkað og þar
fram eftir götunum en gott sé að velta
fyrir sér langtímaáhrifunum af fólks-
fækkun. „Minnkar fólksfækkun álag-
ið á velferðarkerfið?“ spyr hann til
dæmis.
Þóroddur bendir á að fólksfjölgun á
Íslandi hafi verið ótrúleg á uppgangs-
tímanum. „Hér fjölgaði um 2% á ári í
nokkur ár, sem er algjörlega út úr
korti á Vesturlöndum. Við búum að
þessari miklu fjölgun og þó svo hér
fækki um 5% þá byggju hér samt sem
áður jafn margir og árið 2006. Fólks-
fjölgun er eitt af því sem keyrði ból-
una áfram, þess vegna var t.d. byggt
svona rosalega mikið. Við búum í
opnu hagkerfi, þá er auðvelt að fá fólk
inn í landið í þenslu og það er hluti af
sveigjanleika kerfisins að fólkið geti
farið.“
Hann nefnir að jafnvel grípi um sig
einhvers konar þjóðerniskennd ef
fólk vill flytja úr landi. „Það er eins og
kallað sé maður fyrir borð ef ein-
hverjir vilja fara þótt hér sé 10% at-
vinnuleysi.“
Er fólksfækkun
jafnvel jákvæð
í kreppunni?
Hluti sveigjanleikans að fólk geti farið
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Fjöldi Að vera eða fara og þá að
koma aftur eða ekki. Þar er efinn.
Í HNOTSKURN
»Heldur færri útlendingarkoma nú til landsins en áð-
ur en aðeins fleiri flytjast úr
landi. Jafnvægi er á milli
fjölda Íslendinga sem koma og
flytjast í burtu.
»Ef Íslendingum myndifjölga jafn hratt og síðustu
ár yrðu þeir 600.000 eftir 37
ár. „Halda mætti að byggt
hefði verið húsnæði hér á
landi síðustu árin miðað við þá
þróun!“ segir Þóroddur
Bjarnason.
Við breytinguna mun húsið sem tónlistarstaðurinn Nasa er í hverfa með
öllu, en áform eru uppi um að í framtíðinni verði eftirlíking tónlistarsals
Nasa sett upp í kjallara hótelsins.
Hópurinn veltir þeirri spurningu upp hvort þörf sé fyrir nýtt hótel á
þessum stað þar sem 370 hótelherbergi eru þegar í næsta nágrenni. Arki-
tektastofan Gláma Kím hefur gert úttekt á breytingunni og í niðurlagi
hennar segir m.a.: „Reykjavíkurborg þarf að láta vinna heildstætt deili-
skipulag fyrir Ingólfstorg þar sem hagsmunir heildarinnar verði hafðir að
leiðarljósi og skoðað hvort ekki megi varðveita og endurnýja húsin við
Vallarstræti með öðrum hætti en hér er gert ráð fyrir.“
Blásið hefur verið til tónleika á Ingólfstorgi á morgun til að vekja at-
hygli á málinu. Dagskráin er í mótun en eftirtaldir listamenn hafa staðfest
þátttöku: Hjálmar, Hljómsveit Tómasar R. Einarssonar, Buff og Páll Ósk-
ar. „Og vonandi bætast einhverjir við,“ lauk Samúel J. Samúelsson máli
sínu. Heimasíða áhugahópsins verður jafnframt opnuð í dag; bin.is.
Nasa myndi hverfa með öllu
Morgunblaðið/Heiddi
Sjálfsprottinn hópur Ragnheiður Þorláksdóttir, Sunneva Hafsteinsdóttir, Björn B. Björnsson, Samúel J. Sam-
úelsson, Guðmundur Ingólfsson, Halla Bogadóttir og Eiríkur Guðmundsson mótmæla breytingunum.
Skuggatorg myndast
Langt inn á Ingólfstorg Þessi tvö hús, hið rauða og hið gula, færast eina
sautján metra inn á torgið ef tillögur að deiliskipulaginu ganga eftir.
Sjálfsprottinn hópur mótmælir fyrirhugaðri byggingu hótels
og breytingu á deiliskipulagi Vallarstrætis og Ingólfstorgs
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Óseyri 2, Akureyri, 461 1150 • Opið virka daga kl. 12:00-18:00 – laugardaga kl. 12:00-16:00
www.svefn.is
Stillanleg rúm á sumartilboði
Ein besta heilsudýna í heimi
Gerið samanburð