Morgunblaðið - 04.09.2009, Page 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2009
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„MÉR finnst þetta mál vekja upp
ýmsar spurningar sem rétt er að
leita svara við,“ segir Svandís Svav-
arsdóttir umhverfisráðherra um þær
greiðslur sem fóru frá Landsvirkjun
til Skeiða- og Gnúpverjahrepps í
tengslum við skipulagsvinnu vegna
virkjanaáforma í neðri Þjórsá.
Að mestu leyti var um lögfræði-
kostnað að ræða en greiðslur upp á
alls 11 milljónir kr. ná til vinnu á ár-
unum 2006 til 2008, þar sem breyta
þurfti deiliskipulagi og aðalskipulagi
vegna áforma um Hvamms- og
Holtavirkjun í neðri Þjórsá, sem eru
innan hreppsins. Sveitarstjórnin hélt
tíu vinnufundi á árunum 2007 og 2008
og fengu hreppsnefndarmenn
greiddar 200 þúsund krónur hver,
einnig Sigurður Jónsson, fv. sveitar-
stjóri, sem vakti athygli á þessum
greiðslum opinberlega í vikunni.
Skeiða- og Gnúpverjahreppur
samþykkti skipulagið og er umhverf-
isráðherra nú með það mál til með-
ferðar. Svandís segist ekki hafa
kynnt sér greiðslur Landsvirkjunar
til hlítar en almennt megi velta fyrir
sér hvernig lítil sveitarfélög geti
staðið straum af kostnaði við skipu-
lagsvinnu. „Þau þyrftu að geta sótt í
miðlægan sjóð svo að þau væru ekki
háð hagsmunaaðilum um kostnað.
Það er mikilvægt að farið sé vel með
slíka hagsmuni og allar ákvarðanir
og athafnir hafnar yfir allan vafa.
Þetta dæmi vekur mann verulega til
umhugsunar um stöðu sveitarfélaga í
málum sem þessum,“ segir Svandís.
Undir þetta tekur Gunnar Örn
Marteinsson, oddviti og sveitarstjóri
Skeiða- og Gnúpverjahrepps, sem
veltir fyrir sér hvort lítil sveitarfélög
eigi að leggja í allan kostnað við und-
irbúning stórra framkvæmda. Eðli-
legra geti verið að ríkið sjái um þann
kostnað frekar en framkvæmdaaðil-
ar sjálfir.
Þorsteinn Hilmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsvirkjunar, segir
fyrirtækið hafa gert svipaða sam-
starfssamninga við fleiri sveitarfélög
í tengslum við skipulagsvinnu vegna
virkjanaáforma, m.a. við Norðurhér-
að á Austurlandi og við sveitarfélög í
Húnaþingi vegna Blönduvirkjunar.
Líka samið við Ásahrepp?
Þar sem aðalskipulag hafi legið
fyrir austanmegin Þjórsár, hjá Ása-
hreppi og Rangárþingi ytra, hafi ekki
þurft að gera svona samninga við þau
sveitarfélög. Þar geti þó þurft að
koma til breytinga á deiliskipulagi og
ekki sé útilokað að samið verði við
þau, líkt og Skeiða- og Gnúpverja-
hrepp. „Þetta er í samræmi við þau
vinnubrögð sem við höfum viðhaft í
gegnum tíðina,“ segir Þorsteinn.
Mál sem vekur upp spurningar
Umhverfisráðherra telur greiðslur Landsvirkjunar til Skeiða- og Gnúpverjahrepps vekja spurningar
um stöðu sveitarfélaga gagnvart stórum framkvæmdaraðilum Oddviti hreppsins er sömu skoðunar
RANNSÓKNARÞJÓNUSTAN
Sýni opnaði í vikunni matvælaskóla.
Matvælafræðingar og ráðgjafar hjá
Sýni munu halda námskeið sem
fjalla um matvæli og meðhöndlun
þeirra frá öllum hliðum, allt frá
frumframleiðslu til neytanda. Náms-
efnið nær einnig yfir hollustu og fjöl-
breytta notkun matvæla og hráefna-
val en það er unnið af ráðgjöfum sem
starfað hafa í mörg ár í matvælaiðn-
aði og byggist á langri reynslu þeirra
af námskeiðahaldi, rannsóknar-
störfum og samstarfi við fyrirtæki
og fagmenn.
Er skólinn hugsaður jafnt fyrir
einstaklinga, fyrirtæki, veitinga-
staði, bændur sem vilja selja beint
frá býli og ófaglærða starfsmenn í
matvælageiranum sem vilja fá rétt-
indi til að starfa sem gæðastjórar.
Fjalla um meðhöndlun
matvæla frá öllum hliðum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sýni Ásta Guðmundsdóttir, Guðrún Alfonsdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir.
Á FUNDI borgarráðs í gær var
samþykkt tillaga VG um könnun á
kostum þess að bílastæðahús
borgarinnar verði seld. Borg-
arfulltrúar Sjálfstæðisflokks,
Framsóknarflokks og VG sam-
þykktu tillöguna en fulltrúar Sam-
fylkingarinnar bókuðu fyrirvara
við málið og sátu hjá. Í bókun Sam-
fylkingar segir að augljóst sé að
þessar hugmyndir gætu leitt til
stórhækkunar á bílastæðagjöldum í
borginni. Þá sé vandséð hvernig
hægt sé að aðskilja stefnu um verð-
lagningu og aðgengi að miðborg-
inni frá rekstri bílastæðahúsa.
Skoða einkavæð-
ingu bílastæðahúsa
ÁRNI Helgason
var kjörinn for-
maður Heimdall-
ar, félags ungra
sjálfstæðismanna
í Reykjavík, á að-
alfundi félagsins.
Árni hlaut 58,5%
atkvæða, en 930
atkvæði voru
greidd á aðal-
fundinum.
Í stjórnmálaályktun, sem sam-
þykkt var á fundinum, er m.a.
hörmuð hjáseta meirihluta þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins í at-
kvæðagreiðslu á Alþingi um Ice-
save-frumvarpið.
Þá er þeirri skoðun lýst, að um-
sókn Íslands um aðild að Evrópu-
sambandinu sé ógæfuspor og að
hagsmunum Íslendinga sé best
borgið utan sambandsins.
Árni kjörinn formað-
ur Heimdallar
Árni Helgason
Oddviti Skeiða- og Gnúpverja-
hrepps sendi frá sér yfirlýsingu
síðdegis í gær vegna frétta-
flutnings af greiðslum Lands-
virkjunar, auk þess sem hann
birti rammasamkomulag við
Landsvirkjun og fleiri gögn (sjá
mbl.is). Greiðslurnar hafi verið í
fullu samræmi við samkomu-
lagið og þær ekki runnið beint
til sveitarstjórnarmanna. Frá-
leitt sé að ýja að því að borið
hafi verið fé á sveitarstjórn-
armenn. Bendir hann einnig á
að Sigurður Jónsson, fv. sveit-
arstjóri, hafi verið látinn hætta.
Eigi borið fé á okkur
Þorsteinn
Hilmarsson
Svandís
Svavarsdóttir
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Reykjanesbær | Grunn- og leikskólabörn í
Reykjanesbæ settu ljósahátíð í 10. sinn í gær-
morgun þegar þau slepptu 2000 blöðrum í öll-
um litum til himins, sem tákn um þau 55 þjóð-
arbrot sem búa í bænum. Börnin komu
fótgangandi til setningarinnar við Myllu-
bakkaskóla og tóku með því þátt í heims-
göngu til friðar en takmark hennar er að
skapa kringumstæður sem leitt geta til friðar
og tilvistar án ofbeldis.
Fjölbreytt dagskrá er hafin um allan bæ og
heldur áfram til síðdegis á sunnudag með há-
punkti á laugardag, Ljósanótt. Aðaláhersla
verður lögð á tónlistarviðburði í tengslum við
10 ára afmæli hátíðarinnar, m.a. með Ljósa-
nætursvítu á hátíðarsviði á laugardagskvöld,
ásamt flutningi ljósalagins. Áhugi á sýning-
arhaldi er ekki minni nú en verið hefur og er
allt sýningarrými bæjarins nýtt.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Friður í upphafi ljósahátíðar í Reykjanesbæ