Morgunblaðið - 02.10.2009, Síða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2009
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
„ÞAÐ er mjög einstaklingsbundið hvernig fólk
bregst við því að greinast með krabbamein. Í
mínu tilfelli var þetta mest þroskandi skeið í lífi
mínu og ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að
ganga í gegnum þetta. Ég er allt annar og betri
maður en ég var áður en ég greindist. Ég fór
að skoða sjálfan mig og tók mig í gegn, bæði
líkamlega og andlega. Núna legg ég mig fram
um að vera góð manneskja og standa mig vel í
því sem ég er að gera. Ég geri mér líka grein
fyrir að það er ekkert sjálfsagt að fá að vera á
lífi,“ segir Jóhannes Þorleiksson sem greindist
með eitlakrabbamein fyrir þremur árum þegar
hann var aðeins 21 árs.
„Það skiptir svo miklu máli hvernig maður
tekst á við hlutina. Ég tókst á við krabbameinið
og lyfjameðferðina sem ögrandi verkefni. Ég
upplifði þetta ekki sem eitthvað hræðilegt og ég
gekk ekki í gegnum sorgarferli. Fyrir mér var
þetta tækifæri. Þetta var prófsteinn á persónu-
leika minn. Upplifun annarra í sömu stöðu er
svo kannski allt önnur. Hver og einn tekst á við
vandamálin með sínum hætti.“
Sköllóttur hélt hann sínu striki
Jóhannes segist vera heppinn hversu krabba-
meinið greindist fljótt hjá honum. „Ég bólgnaði
á hálsi og öxlum en þar sem ég spila á trompet
hélt ég að þetta væri algengur álagssjúkdómur
sem fylgir því. Ég skrapp yfir til læknis sem
býr hér í götunni hjá mér og er vinur pabba
míns og hann sá strax að þetta væri ekki álags-
sjúkdómur. Hann sendi mig í blóðprufur upp á
spítala daginn eftir. Seinna þann dag var ég
sendur til blóðmeinafræðings sem sagði að ég
væri að öllum líkindum með krabbamein. Ég
var sendur í sneiðmyndatöku sem staðfesti að
sú var raunin.“ Hjá Jóhannesi tók við átta mán-
aða lyfjameðferð. „Ég greindist vorið eftir að
ég hafði lokið stúdentsprófi. Ég hafði einbeitt
mér að tónlistarnámi um veturinn og var að
vinna hálfan daginn í byggingarvinnu. Um sum-
arið þegar ég var í lyfjameðferðinni vann ég
sem tónlistarmaður í skapandi sumarstörfum
hjá Hinu húsinu. Ég missti auðvitað hárið en
leit ekkert sérstaklega illa út og ég reyndi að
halda mínu striki,“ segir Jóhannes en bætir við
að vissulega hafi þetta tekið heilmikið á.
Tepokarnir tóku tillit
Jóhannes þurfti að takast á við marga slæma
fylgikvilla lyfjameðferðarinnar. „Mér var alltaf
flökurt og ég var mjög þreyttur og máttlítill.
En ég tók strax þá ákvörðun að stunda hreyf-
ingu, mæta tvisvar í viku til sjúkraþjálfara,
borða holla fæðu og gera allt sem ég gæti til að
halda sem mestu þreki. Þetta hélt mér gang-
andi en auðvitað gat ég ekki tekið fullan þátt í
öllu sem ég vildi. Strákarnir í Tepokunum,
hljómsveitinni sem ég spila með, tóku fullt tillit
til þess að ég var frá þrjá daga í senn, tvisvar í
mánuði, þegar ég fékk lyfjaskammtinn minn,
enda kemst maður þá nánast ekki fram úr rúm-
inu.“
Salsadansinn breytti lífinu
Jóhannes segir þunglyndi vera einn af verstu
óvinum krabbameinssjúklinga og hann hafi því
verið mjög ákveðinn í að láta það ekki buga sig.
„Vissulega gekk ég til sálfræðings vegna þess
að maður er eðli málsins samkvæmt í klessu
andlega. En ég hóf nám í rafmagnsverkfræði
við Háskóla Íslands um haustið, af því að ég
vildi vera þokkalega upptekinn, þá hefur maður
minni tíma til að velta sér upp úr því að maður
sé með krabbamein. Þetta gekk ótrúlega vel,
með góðri hjálp samnemenda og annarra. Auð-
vitað var mætingin slök en kennararnir gáfu
mér svigrúm með skilafrest verkefna og annað
slíkt. Ég var líka í tónlistarskólanum með nám-
inu og vissulega komu dagar þar sem ég gat
ekki spilað á trompetið, slímhúðin þornaði upp
vegna lyfjanna, ég fékk sár í munninn og var-
irnar voru svo þurrar að ég gat ekki blásið tón
úr hljóðfærinu.“
Um jólin lauk lyfjameðferð og þá hófst end-
urhæfingin. „Fyrst fór ég í jóga en síðan sneri
ég mér að dansi. Ég fór að dansa salsa hjá
Salsa Iceland og það breytti lífi mínu. Ég hef
aldrei verið í eins góðu formi og ári eftir að
lyfjameðferð lauk og ég dansa enn salsa nokkr-
um sinnum í viku.“
Jóhannes situr nú í stjórn Krafts, stuðnings-
félags fyrir ungt fólk með krabbamein og að-
standendur þess. „Því miður kom ég ekki þar
inn fyrr en eftir að ég náði bata. Ég hefði sann-
arlega viljað njóta góðs af því frábæra starfi
sem þar fer fram á meðan ég var í meðferðinni.
Ég fór með vini mínum þangað í sumargrill og
þá komst ég að því hvað þetta eru frábær sam-
tök, þarna var svo margt gott og skemmtilegt
fólk. Ég mætti á næsta aðalfund, bauð mig
fram í stjórn og hef verið þar síðan. Ég reyni
að leggja mitt af mörkum. Það er mjög gefandi.
Og það er gríðarlega mikil þörf fyrir svona fé-
lag, því ungt fólk með krabbamein er í svolítið
sérstakri stöðu. Sá sem er kannski rétt skriðinn
yfir tvítugt og nýfluttur úr foreldrahúsum verð-
ur svolítið í lausu lofti í öllu því róti sem fylgir
því að fá krabbamein.“
Djasshátíð í Berlín framundan
„Kraftur er með frábært stuðningsnet, fólk
getur hringt og rætt við mjög hæfa ein-
staklinga. Við erum líka með ráðgjafarmiðstöð
sem nýtist vel fyrir bæði þá sem eru með
krabbamein og aðstandendur. Þegar einhver
fær krabbamein hefur það nefnilega áhrif á alla
í fjölskyldu hans. Þegar ég var veikur hafði
fólkið mitt til dæmis meiri áhyggjur af mér en
ég sjálfur. Þau voru miklu óttaslegnari en ég,“
segir Jóhannes sem horfir björtum augum til
framtíðar. Hann lýkur rafmagnsverkfræðinni
um næstu jól og fer í fullt starf við kerfisþróun
hjá Landsneti eftir áramót, en þar hefur hann
verið í hlutastarfi með náminu. Hann heldur
áfram að njóta þess að spila tónlist með Tepok-
unum sem nú eru orðnir salsahljómsveit en
hann er líka að spila með stórsveit Samma og
framundan er spilamennska á djasshátíð í Berl-
ín.
Ekki sjálfsagt að fá að lifa
Morgunblaðið/Kristinn
Tónelskur Trompetið fær sjaldan hvíld hjá Jóhannesi enda var hljóðfærið eitt af því sem hélt honum gangandi í baráttunni.
Trompetleikarinn Jóhannes Þorleiksson greindist með krabbamein þegar
hann var 21 árs Hann hafði sigur og segist betri maður eftir prófraunina
Stuðningsfélagið Kraftur var stofnað 1. októ-
ber 1999 og hefur það að leiðarljósi að beita
sameinuðum kröftum sínum til að aðstoða þá
sem þurfa á stuðningi að halda. Leitast er við
að aðstoða þá einstaklinga sem greinast með
krabbamein og aðstandendur og miðla upplýs-
ingum sem auðvelda þeim að takast á við sjúk-
dóminn.
„Við viljum nýta þá breytingu sem varð á lífi
okkar og þá reynslu sem við höfum öðlast í
baráttunni við krabbamein til að hjálpa þeim
sem þurfa á hjálp að halda. Kraftur stendur
fyrir margskonar starfsemi og beitir sér fyrir
málefnum sem stuðla að betri líðan þeirra sem
kynnst hafa sjúkdómnum með beinum eða
óbeinum hætti,“ segir m.a. á síðu félagsins.
Stuðningsfélagið Kraftur
Á ÁRSFUNDI
Norræna endur-
skoðenda-
sambandsins,
sem haldinn var í
Gautaborg ný-
verið, var Mar-
grét G. Flóvenz
kjörin forseti
sambandsins til
næstu tveggja
ára. Margrét er viðskiptafræðingur
og löggiltur endurskoðandi og einn
eigendA KPMG á Íslandi. Hún hef-
ur að auki verið formaður Félags
löggiltra endurskoðenda sl. tvö ár.
Formaður norrænna
endurskoðenda
Margret G. Flóvenz
BORGARAHREYFINGIN styður
þá ákvörðun Ögmundar Jónassonar
að taka ekki þátt í ríkisstjórn
blekkinga og þvingana. Ekki sé við
það að una að Alþjóðagjaldeyr-
issjóðurinn segi réttkjörnum
fulltrúum fyrir verkum og taki
hagsmuni Breta og Hollendinga
fram yfir hagsmuni Íslendinga.
Styðja Ögmund
ÞINGMENN Hreyfingarinnar hafa
farið fram á að ekki verði skrifað
undir nokkra samninga né skjöl
tengd Icesave-deilunni fyrir Íslands
hönd fyrr en málið hafi hlotið þing-
lega meðferð og viðkomandi samn-
ingar kynntir fyrir þeim þing-
nefndum sem um málið hafa fjallað.
Morgunblaðið/Ómar
Stopp Þingmenn Hreyfingarinnar.
Ekki verði skrifað
undir Icesave
VIÐSKIPTARÁÐ hefur sent frá sér
ályktun þar sem úrskurður um-
hverfisráðuneytisins á mánudag sl.
er harmaður. Auk þess að setja
framkvæmdir við álver í Helguvík
og gagnaver í Reykjanesbæ í skað-
lega óvissu er ljóst að úrskurðurinn
er sjálfur ólögmætur þar sem ráðu-
neytið stóð ekki við lögbundinn
tveggja mánaða frest til að úr-
skurða í málinu. Auk alls þessa sé
ósamræmið gagnvart markmiðum
stöðugleikasáttmálans augljóst.
Morgunblaðið/RAX
Álverið Óvissa er um Helguvík.
Segja úrskurðinn
vera ólögmætan
NÚ þegar gerð fjárlaga fyrir árið
2010 stendur yfir vilja Barnaheill á
Íslandi beina því til ríkisstjórnar og
sveitarfélaga að þau standi vörð um
réttindi barna og skerði alls ekki
þjónustu við þau og fjölskyldur
þeirra á sviði menntamála, heil-
brigðisþjónustu og félagsþjónustu.
Samkvæmt Barnasáttmála Sam-
einuðu þjóðanna, sem íslensk
stjórnvöld hafa staðfest, skulu öll
börn njóta sömu réttinda óháð
stöðu þeirra og foreldra þeirra.
Verja þarf börnin
STUTT
Í tilefni af 10 ára afmæli Krafts verður málþing
í dag kl. 13-17 í Skógarhlíð 8, í húsi Krabba-
meinsfélagsins. Yfirskriftin er Lífið er núna, og
meðal þess sem þar verður rætt er hug-
myndakraftur, gildi stuðnings, sókn í krabba-
meinslækningum, hvernig sjúklingarnir geta
sjálfir haft áhrif á krabbamein og vangaveltur
um hamingjuna.
Á morgun, laugardag, verður Sólarganga þar
sem Kraftsfélagar hvetja fólk til að ganga sól-
armegin með þeim í lífinu. Gengið verður frá
Hallgrímskirkju kl.14:00 niður á Ingólfstorg
þar sem verður hátíðardagskrá í tilefni afmæl-
isins.
Nánari upplýsingar:
www.kraftur.org
Málþing og Sólarganga